Morgunblaðið - 21.02.1979, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
Strassburg
hefur forystu
ÚRSLIT í frönsku deildar-
keppninni í knattspyrnu um
heÍRÍna urðu þessi:
Nice—Laval 2:1
Nantes— Marseilles 2:2
St. Etienne—Monaco 1:0
Metz—Reims 2:1
Nimes—Lille 3:2
Paris St. G.—Angers 1:1
Bordeux—Lyon 1:0
Strassburg—Paris FC 3:0
Strassburg hefur forystu í
deildarkeppninni, 40 stig eftir
27 leiki. Nantes og St. Etienne
eru saman í 2.-3. sæti með 36
stig hvort félag. Monaco hefur
35 stig.
Jafntefli
Dynamó
SOVÉSKA stórliðið Dynamó
Moskva, sem er á keppnisferða-
lagi um Bandarikin um þessar
mundir kom á óvart um helgina
með því að ná aðeins jafntefli
gegn Tampa Bay Rowdies.
Gherskovich skoraöi fyrst fyrir
Dynamó, en Wegerie jafnaði
fyrir Tampa Bay í síðari hálf-
leik með marki úr vítaspyrnu,
eftir að Rodney gamli Marsh
hafði verið felldur innan vita-
teigs.
Guðmundur
yfir 2,05
ÞÆR fregnir berast frá Sví-
þjóð um þessar mundir að
Guðmundur R. Guðmundsson
hástökkvari, sem nú er búsett-
ur ytra, hafi stokkið yfir 2,05
metra í hástökki á æfingum,
en aðeins einn íslendingur
hefur stokkið hærra. Að sögn
heimildamanna Mbl. hefur
Guðmundur náð góðum tökum
á þessari hæð á æfingum og er
vonandi að hann fari hæðina
sem fyrst í keppni.
Þessi árangur Guðmundar
bendir til þess að hann geri í
surnar atlögu að fslandsmeti
Jóns b. ólafssonar ÍR, en
metið er 2,10 mtr og sett árið
1965. Er það met reyndar eitt
af eldri metum frjálsíþrótta
hérlcndis.
— ágás.
Afmælis-
knatt-
spyrna
A þessu ári eru CO ár liðin frá
því að Knattspyrnuráð Reykja-
víkur var stofnað.
Afmælis ráðsins mun verða
minnst á ýmsan hátt á árinu og
er innanhússmótið í knatt-
spyrnu, sem fram fer fimmtu-
daginn 22. febrúar, fyrsti liður-
inn í þeirri áætlun.
Þátttakendur í þessu móti
eru öll Reykjavíkurfélögin,
nema Í.R., en auk þess verða lið
frá íþróttabandalagi Akraness
og íþróttabandalagi Kefla-
víkur.
Keppt verður um vegiegan
bikar, sem Heildverslun Björg-
vins Schram hefir gefið, en að
auki verða veittir verðlauna-
peningar til liðsmanna þeirra
liða er verða í fyrsta og öðru
sæti.
Keppnin hefst kl. 18.00 og
gert er ráð fyrir aö úrslita-
leikurinn fari fram um klukkan
23.15.
KR-INGAR tryggðu sér í
gærkvöldi sæti í undanúr-
slitum bikarkeppni KKÍ,
eftir sigur á Valsmönnum í
Laugardalshöllinni. Var
leikur þessi á köflum ágæt-
lega vel leikinn og spenna
mikil í lokin. Leiknum
lyktaði með sigri KR-inga,
81:74, en staðan í hálfleik
var 42:41.
KR-ingar léku skínandi vel í
upphafi fyrri hálfleiksins og náðu
fljótlega talsverðu forskoti. Var
staðan 34:18, KR-ingum í hag
þegar um 8 mínútur voru eftir af
hálfleiknum. Valsmenn voru þó
ekki á þeim buxunum að gefa sig
og börðust af mikilli hörku það
sem eftir lifði hálfleiksins og eins
og áður segir skildi aðeins eitt stig
liðin að í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var afar
jafn, en um miðjan hálfleikinn
náðu KR-ingar aftur upp nokkru
forskoti og héldu því til loka
leiksins.
Þegar mest á reynir leikur
KR-liðið best. Það sýndi sig í
leiknum gegn Njarðvíkingum í
fyrri viku og aftur í gærkvöldi.
Meginhluta fyrri hálfleiksins lék
liðið eins og það best gerir; varnar-
leikurinn var með albesta móti og í
Njarðvík í,
basli með IS
STÚDENTAR léku einn sinn besta leik á keppnistímabilinu, þegar
þeir fóru suður með sjó allar götur til Njarðvíkur. Þar léku þeir við
heimamenn í bikarkeppni KKÍ7 ÍS gerði sér lítið fyrir og hafði forystu
lengst af og það var ekki fyrr en töluvert var liðið á síðari hálfleik, að
Njarðvík tókst að jafna. Og jafnvel þá tókst þeim ekki að hrista
stúdentana af sér, heldur var algert jafnræði allt til leiksloka, en
Njarðvík vann naumlega 91—86, staðan í hálfleik var 46—41 fyrir ÍS
Sem fyrr segir, hafði IS foryst-
una lengst af, mest 10 stig rétt
fyrir leikhlé. Snemma í síðari
hálfleik mátti síðan sjá tölur eins
og 55—47 fyrir ÍS. En Njarðvík-
ingar tóku þá að saxa á forskot ÍS
og um miðjan síðari hálfleik skor-
aði t.d. Ted Bee eins 10 stig í röð í
mikilli rispu sem hann tók. Náði
Njarðvík þá forystunni, 71—69, en
ÍS jafnaði á nýjan leik og var
jafnræði til leiksloka. Þegar ein
mínúta var til leiksloka var staðan
84—84 og spennan gífurleg. En
Njarðvíkingar voru sterkari þessa
einu mínútu, sigu fram úr og unnu
frekar naumlega.
Segja má, að Bandaríkjamenn-
irnir Ted Bee hjá UMFN og Trent
Smock hjá ÍS hafi verið bestu
mennirnir á vellinum og dómar-
arnir þeir, Sigurður V. Halldórs-
son og Þráinn Skúlason meðal
þeirra slökustu. Bitnaði dóm-
gæslan þó ekki á öðru liðinu frekar
en hinu. Geir og Gunnr voru
einnig góðir hjá UMFN og Ingi
Stefánsson hjá ÍS
Flest stig skoruðu fyrir ÍS:
Trent Smock 36, Ingi 17, Steinn 12
og Gísli 10. Ted Bee var stigahæst-
ur UMFN með 31 stig, en aðrir
leikmenn voru nokkuð jafnir.
gig/- gg.
Islandsmetin fuku
Eins og fram kom í
blaðinu í gær, náðist
ágætur árangur á lyftinga-
móti í Vestmannaeyjum um
helgina. Hæst bar þá afrek
þeirra Kristjáns Kristjáns-
sonar og Gunnars Stein-
grímssonar. Kristján sem
er á efri myndinni setti 4
íslandsmet í 56 kg flokki, í
hnébeygju, 125 og 130 kg, í
réttstöðulyftu 167,5 kg og í
samanlögðu 367,5 kg.
Gunnar sem er hér til
hægri setti íslandsmet í
réttstöðulyftu í sínum
flokki. Hann lyfti 292,5 kg.
sókninni fékk boltinn að ganga vel
milli manna. Liðið var mun jafn-
ara á þessum kafla en í mörgum
undanförnum leikjum. Gunnar
Jóakimsson var mjög góður í fyrri
hálfleiknum, var að vísu tekinn út
af nokkru fyrir lok hálfleiksins og
kom það mörgum spánskt fyrir
sjónir, því að engin þreytumerki
var á honum að sjá. John Hudson
lék vel undir lokin, þegar mest á
reyndi, en hafði fram til þess verið
nokkuð mistækur. Jón Sigurðsson
átti einnig ágæta kafla.
Tim Dwyer var bestur Vals-
manna, eins og svo oft áður og
önnur eins hamhleypa og hann er í
fráköstum er vandfundin. Kristján
Ágústsson var eirtnig góður, svo og
Ríkharður Hrafnkelsson. Þeir
Torfi Magnússon og Þórir
Magnússon voru báðir langt frá
sínu besta, en sá síðarnefndi fékk
raunar 4 villur löngu fyrir lok
fyrri hálfleiks og lék því lítið.
Stig KR: Hudson 20, Jón Sig-
urðsson 18, Gunnar Jóakimsson
11, Einar Bollason 10, Garðar
Jóhannsson 8, Þröstur Guðmunds-
son 6, Kolbeinn Pálsson 4 og Árni
Guðmundsson og Birgir Guð-
björnsson 2 hvor.
Stig Vals: Tim Dwyer 28,
Kristján Ágústsson 19, Ríkharður
Hrafnkelsson 15, Torfi Magnússon
6, Þórir Magnússson 4 og Haf-
steinn Hafsteinsson 2.
Dómarar voru Erlendur
Eysteinsson og Kristbjörn
Albertsson. _ GI
• Jón Sigurðsson átti að vanda mjög góðan leik með KR, skoraði
mikið og átti íallegar sendingar.
Jimmy Greenhoff
kom United áfram
NOKKRIR leikir fóru fram í
ensku knattspyrnunni í gær-
kvöldi og nokkrum var einnig
frestað að vanda. Tveir leikir
fóru fram í 5. umferð ensku
bikarkeppninnar. Ber þar hæst
að nefna, að Manchester Utd.
tryggði farseðil sinn í 6. umferð
með sigri gegn Colchester á
heimaveíli litla liðsins. Colchest-
er, sem leikur í 3. deild, er
gamalkunnur bikarmorðingi,
hefur oít slegið út stóru liðin og
aldrei fyrr en í gærkvöldi hafði
liðið tapað á heimavelli sínum
fyrir liði úr 1. deild. Leikurinn
fór fram við afleit skilyrði og var
lengst af þófkenndur mjög.
Jimmy Greenhoff skoraði síðan
sigurmarkið aðeins 4 mínútum
fyrir leikslok, en þá var leik-
mönnum Colchester farið að
hlakka til aukaleiksins á Old
Trafford. Leikir í gærkvöldi voru
þessir:
Bikarkeppnin:
Aldershot-Shrewsbury 2:2
Colchester-Man. Utd. 0:1
1. deild:
Southampton-Bristol C. 2:0
3. deild:
Blackpool-Hull City 3:1
Spánverjar
firna sterkir
Spánverjar virðast geysisterkir
í handboltanum um þessar
mundir. Þeir léku tvo landsleiki
við Búlgari, annan í Zaragoza,
hinn í Madrid. Spánverjar unnu
báði leikina með miklum yfir-
burðum, fyrri leikinn 27—17 og
þann sfðari 25—18.
Walsall-Swansea 1:1
4. deild:
Torquay-Crewe 3:0
Portsmouth-Newport 2:1
Ásgarftur í kvöld:
Stjarnan-Leiknir
EINN leikur fer fram í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik í
kvöld. í Ásgarði eigast við klukkan
20.30 lið Stjörnunnar og Leiknis.
Þó að hér mætist neðsta liðið og
það næstneðsta, yrði það meiri
háttar viðburður ef úrslitin yrðu á
annan veg en Stjörnusigur.
Teningavald
Eftir frestanir síðustu 8 laugar-
daga kastaði fyrst „tólfunum" s.l.
laugardag í ensku knattspyrnunni,
er öllum leikjum bikarkeppninnar
og öllum deildaleikjum utan fjórum
var frestað. Það hefur aldrei gerst
fyrr í sögu enska knattspyrnusam-
bandsins, að heilli umferð í bikar-
keppninni sé frestað vegna veðurs.
Á miðvikudag voru mikil fundahöld
hjá sambandinu og deildastjórninni
um breytingar á niðurröðun leikj-
anna s.l. laugardag, vegna þess hve
illa hefur gengið að útklja leiki í
bikarkeppninni, en þegar allt kom
til alls, gátu þeir sparað sér þá
fyrirhöfn.
Varpa varð hlutkesti um alla 12
leikina á getraunaseðlinum og
komu upp þessi merki: XXX - Xll -
'2XX - 222. Fram komu 4 raðir með
10 réttum, sem gefa kr. 298.000.- og
20 raðir með 9 réttum, sem gefa kr.
17.800.-