Morgunblaðið - 22.02.1979, Síða 1
48 SÍÐUR
44. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Leiðtoga
lýðveldis-
flokksins
falin stjórn-
armyndun
á Ítalíu
Róm. 21. febrúar. Reuter, AP.
GIULIO Andreotti fráfarandi
forsætisráðherra ítaliu hætti í
dag við tilraunir sínar til að
mynda nýja stjórn. Pertini
forseti ítaliu hefur ákveðið að
fela Ugo la Malfa, leiðtoga
lýðveldisflokksins, að mynda
nýja stjórn. Er talið að forset-
inn vilji fyrir alla muni reyna
að komast hjá því að boða til
nýrra kosninga, en margir
stjórnmálafréttaritarar telja
þó óhjákvæmilegt að kosning-
um þeim sem fyrirhugaðar eru
á árinu 1981 verði flýtt.
La Malfa er 75 ára gamall og
hefur m.a. verið varaforsætis-
ráðherra og gegnt ýmsum
ráðherraembættum í sam-
steypustjórnum á Ítalíu undan-
farin ár. Fallist hann á að gera
tilraun til stjórnarmyndunar
Ugo la Málfa, sem falin hefur
verið stjórnarmyndun á Ítalíu.
verður það í fyrsta sinn frá
stríðslokum að stjórnmála-
maður úr öðrum flokki en kristi-
lega demókrataflokknum gerir
slíka tilraun. Líklegt er talið að
la Malfa reyni að mynda minni-
hlutastjórn flokks síns,
jafnaðarmanna og sósíalista,
með hlutleysisstuðningi kristi-
legra demókrata og
kommúnista.
Andreotti gegnir áfram for-
sætisráðherrastörfum á meðan
reynt verður að koma saman
nýrri stjórn, en stjórnar-
myndunartilraun hans stóð í
þrjár vikur.
Þjóðaratkvæði í
íran um stofnun
íslamsks lýðveldis
Tokoron 91 fakpilap A P Pnlltop
Teheran, 21. lebrúar. AP. Reuter.
STJÓRN Bazargans forsætisráðherra írans tilkynnti í dag að boðað
yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu innan tveggja vikna. þar sem
þjóðin yrði spurð hvort hún kærði sig um að lýðveldi í anda
múhameðstrúar verði stofnað og keisaradæmið lagt niður. Víst er talið
að stofnun íslamsks Iýðveldis verði samþykkt og er þá ráðgert að kjósa
til stjórnlagaþings, sem samþykkja mun nýja stjórnarskrá sem tæki
við af stjórnarskrá keisaradæmisins frá 1906.
yrði endi bundinn á frekari vopna-
kaup í stórum stíl frá Bandaríkj-
unum. Jafnframt yrði hlustunar-
stöðvum Bandaríkjanna við
sovézku landamærin lokað.
Irönsk yfirvöld létu i dag lausan
úr haldi bandarískan hermann,
sem tilkynnt hafði verið að yrði
leiddur fyrir rétt fyrir að hafa
skotið á íranska borgara, þegar
árás var gerð á bandaríska sendi-
ráðið í Teheran í fyrri viku. Er
talið að með því að láta manninn
lausan hafi stjórnin komið sér hjá
meiri háttar diplómatískum úti-
stöðum við Bandaríkjastjórn.
Hreyfing Marxískra skæruliða,
Fedayeen, sem boðað hafði til
mótmælagöngu í miðborg Teheran
á morgun, fimmtudag, hefur aflýst
göngunni í samræmi við bann
Khomeini trúarleiðtoga. Segjast
ieiðtogar hreyfingarinnar ekki
vilja lenda í átökum við menn
Khomeinis. Hins vegar hafa þeir
boðað til útifundar við háskólann í
Teheran á föstudag og hvatt sem
flesta til þátttöku, til að mótmæla
því að Khomeini hyggist útiloka
þá frá áhrifum í byltingarstjórn-
inni.
Hinn nýi yfirmaður íranshers,
Gharani hershöfðingi, sagði í dag
að stjórn Bazargans myndi virða
samninga sína við Bandaríkin um
að láta ekki vopn keypt þaðan af
hendi við aðrar þjóðir eða þjóð-
frelsishreyfingar. Á hinn bóginn
Kínverjar ólíklegir
draga heim lið sitt
Peking, Bangkok, Washington,
21. febrúar. AP, Reuter.
BARDAGAR héldu áfram í dag á
landamærum Víetnams og Kína og
ekkert bendir til að Kínverjar
hyggist draga lið sitt frá ianda-
mærahéruðum Víetnams á næst-
unni. Vestrænir stjórnarerindrekar
í Peking voru kallaðir í kínverska
utanríkisráðuneytið í dag og
Camp David viðræðurnar;
Lítil von um árangur
Washington, 21. febrúar.
AP, Reuter.
SAMNINGAMENN ísraels og
Egyptalands komu saman til fund-
ar í Camp David, sveitasetri Banda-
ríkjaforseta í fjöllunum í Mary-
land-ríki, í kvöld, en litlar vonir eru
þó bundnar við þessar viðræður.
Þeir Khalil forsætisráðherra
Egyptalands og Dayan utanríkisráð-
herra ísraels munu á næstu dögum
reyna ásamt Vance utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna að finna nýja
fleti á deilu landanna og kanna hvort
hægt er að taka upp þráðinn í
samningum, þar sem síðast var frá
horfið í desember. Haft er eftir
Dayan að það verði að teljast veru-
legur árangur takist að semja um að
leiðtogar landanna, Begin og Sadat,
eigi með sér annan toppfund í
líkingu við þann, sem haldinn var í
Camp David í september.
Haft var eftir Sadat í Washington
í dag, að hann hafi tilkynnt Banda-
ríkjastjórn, að hann væri reiðubúinn
til að grípa til vopna til að vernda
olíuflutninga til Bandaríkjanna frá
Mið-austurlöndum verði þess þörf.
sjónarmið Kniverja vegna innrásar-
innar í Víetnam útskýrð, en að sögn
gáfu kínverskir ráðamenn engar
vísbendingar um hvenær Kínverjar
hygðust draga lið sitt til baka.
Talið er að komið geti til verulegra
átaka á næstunni, því fregnir
herma að Víetnamar séu nú að
flytja mikinn herafla að landamær-
unum, en Kínverjar hafa þegar
mjög öflugan liðstyrk í Víetnam og
við landamærin.
Mjög ólíkar fréttir berast af
mannfalli í bardögunum, og segjast
Víetnamar hafa banað 5—8 þúsund
Kínverjum, en Kínverjar telja sig
hafa drepið 10 þúsund hermenn
til að
í bráð
Víetnama en misst 2—3 þúsund
menn.
Búizt er við að Bandaríkjastjórn
fari fram á það á næstunni við
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, að
það taki til meðferðar bardagana í
Suðaustur-Asíu. Kínverjar og Víet-
namar eru hins vegar sagðir andvíg-
ir því að ráðið taki sameiginlega
fyrir bardagana í Kambódíu og
átökin á landamærum Kína og Víet-
nams. Sovétríkin og stuðningsríki
þeirra í Öryggisráðinu eru einnig
andvíg frekari umræðum um
Kambódíu í ráðinu, en vilja hins
vegar gjarnan ræða innrás Kínverja
í Víetnam.
Kambódía:
Menn
Pol Pots
sækja á
Bangkok, 21. febrúar. Reuter.
SKÆRULIÐAR hliðhollir stjórn
Pol Pots í Kambódíu hafa að
undanförnu veitt hersveitum
Víetnams harða mótspyrnu og
hafa náð á sitt vald nokkrum
þorpum, að þvi er heimildir í
Bangkok herma.
Styrkur skæruliða er mestur í
norðvesturhluta landsins og hafa
þeir mjög torveldað birgðaflutn-
inga Víetnama á því svæði, en
Víetnamar eru nú sagðir nota
flugvéiar til að koma birgðum til
sveita sinna. Talið er að nú séu
um eitt hundrað þúsund víet-
namskir hermenn í Kambódíu og
ekkert bendir til að stjórnin í
Hanoi hyggist flytja lið þaðan til
kínversku landamæranna til að
mæta kínverska innrásarliðinu.
Víetnamar hafa ekki viður-
kennt að þeir hafi liðssafnað í
Kambódíu heldur halda þeir því
fram, að það séu frelsishreyfing-
ar Kambódíumanna sjálfra, sem
nú ráði landinu. Fulltrúar hinna
nýju valdhafa í Phnom Penh og
stjórn Víetnams hafa gert með
sér friðar- og vináttusamning, en
sendiherra Pol Pots í Kína for-
dæmdi í dag harðlega þennan
samning og sagði hann að engu
hafandi.
Vinnudeilan í Bret-
landi að leysast?
London, 21. febrúar. Rcuter. AP.
Samtök opinberra starfsmanna í
Bretlandi hafa fyrir sitt leyti fallist
á samkomulagstillögu ríkisvaldsins
í launadeilu þeirri, sem að undan-
förnu hefur lamað starfsemi skóla,
sjúkrahúsa. líkhúsa, sorphreinsun
og fleira. Hafa samtökin nú hvatt
félagsmenn sína til að fallast á
samkomulagið og falla frá frekari
verkfallsaðgerðum. Bera verður
samkomulagið undir atkvæði í hin-
um ýmsu starfsmannafélögum og er
óvíst hver afdrif þess verða þar, en
verði samkomulagið samþykkt linn-
ir verkföllum þó ekki að fullu og
öllu fyrr en í næstu viku.
í hinum nýja samningi er gert ráð
fyrir 9% launahækkun sem gildi frá
því í nóvember sl. og einhverjum
hækkunum síðar. Jafnframt er sam-
ið um að koma á laggirnar sérstakri
nefnd sem kanni staðhæfingar laun-
þegasamtakanna um að starfsmenn
hins opinberra búi við miklu lakari
kjör en almennt gerist á vinnu-
markaðnum. í fyrstu höfðu samtök
opinberra starfsmanna krafist 42%
launahækkunar, en stjórnvöld boðið
rúmlega 8% hækkun.
Kínversk kona útskýrir aðgerðir Víctnama fyrir landamæravörðum í Kwangsi-héraðinu við landamæri
Kína og Víetnam í.