Morgunblaðið - 22.02.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 22. PEBRÚAR 1979
19
þessum leik hugarflugsins.
Sumar persónur þekkjum við
aftur úr mann- eða goðheimi,
aðrar eru framandi og að því er
virðist án táknrænnar
merkingar. Júlía er iátin rísa
upp úr gröf sinni í Verona og er
ásótt af þremur hvítum hestum,
en einn svartur hestur kemur
henni til hjálpar og gætir henn-
ar. Leikhússtjórinn gerir Júlíu
að yngissveini: „Rómeó getur
verið fugl og Júlía steinn." Það
er fyrst og fremst hin kynferðis-
lega afstaða verksins sem mun
hafa ruglað vini García Lorca
forðum og gert þá fráhverfa því.
En García Lorca varð ekki
haggað. Hann hafði boðskap að
flytja löndum sínum með E1
público, en eins og jafnan sat
skáldskapurinn í fyrirrúmi.
Hann lét hafa eftir sér að hann
vildi fást við eitthvað annað en
hann hafði gert í vinsælustu
verkum sínum. E1 público er
vísbending um það og einnig
Comedia sin titulo.
Spánverjar eru að vonum
óánægðir með það að skáldið
skuli nú sæta ritskoðun
ættingja sinna. Þeir vilja að öll
verk hans séu gefin út og leikrit-
in leikin. Ritskoðun Franco-
tímans hafði ýmislegt að athuga
við verk skáldsins, en nú eru það
ættingjar hans sem láta til sín
taka eftir að ritskoðun hefur
verið aflétt. Það sýnir betur en
annað hve mikilvægur skáld-
skapur García Lorca er að enn
skuli verk hans verða tilefni til
deilna og umfram allt höfða til
fólks með nýjum og óvæntum
hætti.
Þórir Einarsson, prófessor.
Þegar verið er að skipuleggja skóla-
kerfið þarf að taka tillit til frum-
kvæðisstarfs hans, og þess starfs-
þáttar að glæða áhuga nemandans.
— Annar aðili utan kennslu og
námseiningar, sem getur haft
hvetjandi og áhugaglæðandi áhrif,
eru foreldrar. Með því að virkja þá
til samstarfs við kennslu- og náms-
eininguna, má búast við að inn komi
aukin hvatning. Um leið og stjórnun-
in er dreifð, opnast leið fyrir slík
áhrif. Nú eru skólarnir lokaðir í öllu
kerfinu. Hópar nú sem áhrif hafa
eru þjóðfélagið og sveitarfélögin
gegnum menntamálaráðuneyti og
fræðsluráð. Mín hugmynd er sú, að í
dreifstýringu komi neðarlega í píra-
mídanum áhrif annarra hópa en
þessara. Þar komi inn áhrif foreldr-
anna og viðtakenda nemendanna,
sem eru aðrir skólar og atvinnulífið
svo og kennarasamtaka. Auk þess
sem snemma þarf að koma inn
þekkingarkerfi, sem kennarinn getur
leitað til, eins og áður er nefnt, svo
sem bókasöfn og kennslugagna-
miðstöðvar.
Talið barst að núverandi kerfi,
sem er laustengt með lokuðum
námsleiðum, en nú er verið að reyna
að bæta úr því. — Þegar breytingar
eiga sér stað verður ákveðið þýðu-
ástand að verða á undan, segir Þórir.
Óánægja með ríkjandi ástand verður
fyrst að gerjast. Þá fylgja á eftir
breytingar og síðan aftur frysting á
ástandinu. Það þýðir ekki að byrja á
breytingunum fyrr en óánægjan
hefur gerjast nægilega. Annars er
hætta á að allt mistakist. Ef ekki er
orðinn almennur skilningur á mál-
Stríð og ástríður
Gréta Sigfúsdóttir: ÖRVA-
FLUG. sextán smásögur. 1G8 bls.
Letur. Rvík. 1978.
Gréta Sigfúsdóttir er ekki smá-
sagnahöfundur; raunar verðskuld-
ar varla nokkur íslenskur rithöf-
undur þá nafnbót nú á dögum —
hún er skáldsagnahöfundur en
hefur samið þessar smásögur í
ígripum frá öðrum ritstörfum á
löngum tíma. Þess bera þær
merki. Þetta eru sögur samdar við
ólíka stemming á ýmsum stöðum
og tímum og jafnólíkar hver ann-
arri sem þær eru margar. Þetta er
því dæmigert smásagnasafn eins
og þau gerast þessi árin — þau fáu
sem koma út — blæbrigðaríkt og
sundurleitt, og ber það með sér að
höfundurinn hafi samið það fyrir
sjálfan sig, að minnsta kosti svona
í og með. Sumar smásögur Grétu
jafnast á við bestu skáldsögur
hennar — eða allt að því. Aðrar
eru fremur kappræða en skáld-
skapur. Besta og minnisstæðasta
sagan þykir mér vera Etýða í
E-dúr. Það er ástarsaga. Og meir
en svo. Því það er líka, eða kannski
öllu fremur saga af hindrunum
þeim sem aldursmunur, venja,
fjölskylda og almenningsálit
leggja í götu elskenda.
Þarna segir sem sé frá hugrenn-
ingum og tilfinningum konu sem
komin er af léttasta skeiði, æsku-
þokkinn fer þverrandi, árin eru
orðin af mörg til að ljóstra því upp
fyrr en á úrslitastund. Ungur
maður verður hugfanginn af henni
og játar henni ást sína. Játningar
hans gleðja hana fyrst. En þegar
hún tekur að lesa bréf hans, og
lesa það á milli línanna, tekur
efinn að gægjast fram í hugskot-
inu. Konan vegur og metur, tekur
síðan ákvörðun. í sögulok lætur
höfundur lesanda eftir að ráða í
hver sú ákvörðun muni vera.
Astardraumar er líka saga af
konu sem verður að velja milli
slæmra kosta: heimilis og alls-
Bðkmenntir
eftir ERLEND
JÓNSSON
nægta annars vegar þar sem ekk-
ert skortir nema — ástina! Eða
ótryggs fylgilags við mann nokk-
urn hins vegar, mann sem hún að
vísu ann en veit að getur aldrei
veitt henni neitt nema útrás fyrir
innibyrgða ást, mann sem er svo
mikil mannleysa að hann getur
ekki þegið ást hennar nema auð-
mýkja hana sjálfa um leið.
Ástandsár — með undirtitlinum
Svipmynd frá Reykjavík árið
1946 — lýsir tómaleikanum hjá
konu sem hefur verið í ástandinu
og saknar kananna þegar þeir eru
farnir. Tilfinningar hennar
hvarfla milli óraunsærra framtíð-
ardrauma og kaldrar bölsýni. í
einverunni spilar hún plötur og
skoðar myndina af elskhuganum
og »þrýstir heitum kossi á kalt
glerið.«
Ég nefni líka söguna Brúin: Fín
frú, ein í fínu stofunum sínum! Og
ungur og stæltur garðyrkjumaður
að vinna úti í garðinum hennar.
»Án þess að vita hvernig það
gerðist lá hann allt í einu við hlið
hennar í grasinu. Hún lagði hand-
leggina um. háls honum og dró
hann til sín, og hann kyssti rjóðar,
þrýstnar varir hennar fast og
lengi.« Fína frúin býður garð-
yrkjumanninum inn. En bilið á
milli þeirra tekst ekki að brúa.
Hún á sínar þrár. Og hann á sína
drauma. Hún heldur áfram að
ganga um stofurnar sínar. Og
hann heldur áfram að vinna úti í
garðinum. Og henni hættir að
bregða fyrir innan við gluggana.
Af öðru tagi eru sögur eins og
Verðlaunahafinn og Spegilmynd-
in. I hinni fyrrnefndu útskýrir
höfundur hvernig því víkur við að
listamannalaun, hverju nafni sem
þau nefnast, safnast á fárra hend-
ur með þeim afleiðingum að aðrir
hljóta ekki neitt. Orðtakið gamla:
þangað vill fé sem fé er fyrir —
umritar Gréta í: »sá sem hefir
honum mun gefið verða en sá sem
ekki hefir frá honum mun tekið
verða einnig það sem hann ætlar
sig hafa«. I síðarnefndu sögunni
deilir höfundur á framúrstefnu-
list, segir frá rithöfundi sem fékk
þá »snilldarhugmynd að hann
skyldi skrifa söguna með upphafs-
stöfum og láta þá standa á höfði.«
Síðar segir að »ástand þetta stóð
ekki lengi og hafði ekki annað í för
með sér en stundargaman almenn-
Gréta Sigfúsdóttir
ings.« Kannski hefði Gréta mátt
útlista þetta efni betur því fram-
úrstefna hefur bæði sínar dökku
og ljósu hliðar. Almenningur er
jafnan íhaldssamur í skoðun sinni
á listum og tekur nýjungum með
tortryggni. Andstaðan þjappafc
saman þeim sem fylgja nýjum
stefnum. Fyrir bragðið tekst ýmiss
konar fúskurum oft að lauma sér
inn í raðir listamanna og vekja
athygli til jafns við þá meðan
nýjabrumið er tekið fram yfir
verðleikana. Þykist ég vita að
Gréta sé að fjalla um þess konar
tilfelli þó það hefði mátt koma
skýrar fram í sögunni.
Allvíða gætir í þessum sögum
áhrifa frá stríðsárunum. Það fé-
lagslega og tilfinningalega umrót,
sem stríðið olli, er kjörsvið Grétu
sem rithöfundar, samanber t.d.
skáldsögu hennar Bak við byrgða
glugga. I rauninni er sú ágæta bók
eins og lykill að öðrum verkum
Grétu, einnig þessum smásögum.
Erlendur Jónsson.
inu, er hætta á að ekkert verði úr.
Einhver verður svo að beina breyt-
ingunum í farveg. Og þá er komið að
því að útfæra breytingarnar. Eftir
það hefst nýtt samstarf og hegðun á
grundvelli breytinganna og þær
frystar í kerfinu. En menn verða að
vera reiðubúnir til að játast undir
breytingarnar og tileinka sér þær,
því þær geta ekki orðið ef andstaða
er gegn þeim með skæruhernaði eftir
að þær koma til framkvæmda.
— í dag eru margar breytingar í
gangi í fræðslumálum innan ýmissa
eininga skólakerfisins. Það kemur
frumkvæði frá mörgum, sem er
ákaflega jákvætt. Tilraunir eru gerð-
ar. Stjórn á breytingum á heildar-
kerfinu er í höndum menntamála-
ráðuneytis, sem nú ætlar að breyta
heildarskipulaginu án þess að búið
sé að taka út mat á tilraununum.
Ekki komið mat á það hvað af þeim
hæfir okkur. Með frumvarpi til laga
um framhaldsskóla aflar ráðuneytið
sér víðtækrar stjórnunarheimildar.
Hætta er á að breytingar verði
gerðar í eitt skipti fyrir öll. Viss
hætta er sem sagt á miðstýringu.
— Það fólk, sem nú stendur í
breytingunum, fær mikið út úr því. I
því er skapandifullnæging.Enslíkt á
ekki að fara fram einu sinni, heldur
sífellt. Og ég tel meiri möguleika á
að svo verði alltaf með dreifstýringu.
Þá gefst færi á að fá stöðugt mat
neðan frá. Þó þarf nokkrar sam-
ræmingarreglur að ofan. Ég sakna
þess að fá ekki hugmyndir að breyt-
ingum fyir ólík sveitarfélög. Að
mínum dómi skortir enn raunveru-
lega úttekt á síðustu breytingum og
stefnumörkun um innra starf. Fyrst
þarf að marka stefnuna og búa svo
til lögin. Ekki að setja svo víðtæk lög
að hvaða stefna sem er rúmist innan
þeirra. Þá er þægilegasta og nær-
tækasta lausnin miðstýring og þann-
ig getum við lent í verksmiðjuskipu-
laginu, sem nefnt var í upphafi. Því
verðum við að gæta okkar og fara
hægt, svo okkur verði ekki fótaskort-
— Hvað á þá helst að forðast eða
gera''
— Forðast staðallausnir, byggðar á
„viðmiðunarhéraði". Einnig að forð-
ast staðlað námsefni, sem drepur
niður frumkvæði kennara, nema
þeirra sem semja það. Skipuleggja
dreifstýrt og virkja þannig kennara
og skólastjórnendur varanlega í
tengslum við hagsmunaaðila. Og
klæða stefnuna síðan í rúman laga-
búning.
ÞEKKIR
ÞÚ
ELVIS
Elvis Costello,
breski nýbylgjurokkarinn
er að slá í gegn á íslandi sem og annars staðar
á jarðarkringlunni.
Nýja platan meö Elvis og
Attractions er þrumugóð enda
stjórnar hinn margreyndi Nock
Lowe upptökunni.
ÞaÖ er vel þess viröi aö
sperra eyrun þegar Elvis Cost-
ello er settur á fóninn.
Nú höfum viö einnig fengiö litlu plötuna meö laginu
„Olivers Army“, sem er aö gera allt
vitlaust um þessar mundir.
Á bakhliö litlu plötunnar er lagiö „My Funny Valentine
sem ekki er á Armed Forces.
Viö bjóöum aö sjálfsögöu upp á allar plötur nýbylgju
rokkarans Elivs Costello.
- E.Pá.