Morgunblaðið - 24.02.1979, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
46. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1979
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Kínverskar herþotur
gera árás á Haiphong
Enn barist á gervöllum landamærunum
Bangkok, WashinKton, 23. febrúar. AP. Reuter
KÍNVERSKAR herþotur gerðu mikla árás á hafnarhverfi víetnömsku hafnarborgarinnar Haiphong í
morgun og er þetta það lengsta sem Kínverjar hafa farið inn í Víetnam í vikugömlu stríði rikjanna að því
er segir í fréttum frá Bangkok í dag. Ennfremur segir að ástæðan fyrir þessari óvæntu árás svo langt inn
í Víetnam hafi verið fyrst og fremst að eyðileggja sendingu af sovézkum radarbúnaði sem skipað var á land
í gærdag.
í fréttum japönsku fréttastof-
unnar Kyodo í dag segir, að enn
geisi mjög harðir bardagar á
gervölluin landamærum ríkjanna
svo og á svæðum um 20 kílómetra
innan iandamæra Víetnams og
Að sögn Kínverja komust allar
þoturnar heilu og höldnu til búða
sinna aftur og að förin hafi heppn-
ast „fullkomlega". Ekki hefur
verið minnst einu einasta orði á
árásina í Hanoi-útvarpinu í dag.
segist fréttastofan hafa þessar
heimildir sínar eftir háttsettum
vestrænum embættismönnum í
Peking í dag. Ennfremur segir í
fréttum Kyodo, að bardagarnir séu
harðastir á svonefndum Cao Bang-
HART BARIZT — Með þessari mynd sem víetnamska fréttastofan sendi frá sér í dag er sagt að
Víetnamar hafi nú fellt alls 12 þúsund Kínverja í átökum ríkjanna og eyðilagt 140 skriðdreka, en myndin
sjálf sé af víetnamska herliðinu í Hoang Lien Son-héraði rétt innan landamæra Víetnams að skjóta á
kínverska árásarliðið.
Símamynd AP
og Lang Sons-svæðum sem eru
nokkru fyrir innan landamæri
Víetnams.
Dimitri F. Ustinov yfirmaður
alls herafla Sovétríkjanna endur-
tók í dag viðvörun sína til Kín-
verja um að hætta öllum hernaði
gegn Víetnömum og draga lið sitt
þegar í stað til baka og lét í það
skína að Sovétmenn fylgdust mjög
vel með framvindu mála án þess
þó að hóta beinni íhlutun. A sama
tíma berast fréttir þess efnis að
Sovétmenn hafi þegar hafið mikla
birgðaflutninga til Víetnams til
stuðnings Víetnömum, er þar bæði
um vopn og vistir að ræða, að því
er áreiðanlegar heimildir herma.
1 síðustu fréttum segir að
Bandaríkjamenn hafi mælst til
þess í Öryggisráði S.Þ. að þegar
yrði samið vopnahlé, Kínverjar
hefðu engu meiri rétt til að ráðast
inn í Víetnam, en Vietnamar inn í
Kambódíu.
Árásarferð
gegn Nkomo
Lusaka, Zambíu, 23. febrúar. AP.
FLUGHER Rhódesíu gerði í
dag mjög harða árás á búðir
skæruliða Nkomos um 22 míl-
ur vestur af I.usaka. höfuð-
borg Zamhíu. og klukku-
stundu síðar streymdu þangað
sjúkrabílar að sögn sjónar-
votta að því er fréttir frá
Lusaka herma í dag.
Að sögn sjónarvotta réðust
fjórar herþotur Rhódesíuhers á
búðirnar rétt upp úr hádeginu í
dag og létu sprengjunum rigna
yfir þær. Þær sneru fljótlega á
braut þegar zambískar loft-
varnabyssur hófu að gelta. Um
tveimur klukkustundum síðar
sneri ein herþota aftur og skaut
nokkrum skotum að björgunar-
Mikil mótmæli
gegn Khomeini
Teheran, 23. febrúar.
AP.Reuter.
ÍRANSKIR vinstrimenn og marxistar fóru tugum þúsunda saman um
götur Teheran í dag og efndu til mikils mótmælafundar á háskóla-
sva“ðinu. Að sögn fréttaskýrenda eru þetta langmestu mótmæli gegn
Ayatollah Khomeini frá því að hann náði völdum. brátt fyrir mikinn
mannfjölda kom ekki til mannska>ðra átaka að því er segir í fréttum
Fahd hættir við
Bandaríkjaferð
frá Teheran í dag.
Þá bárust fréttir
af miklum
WashinKton. 23. febrúar. AP
FAHD krónprins frá
•Saudi-Arabíu hefur hætt við för
sína til Bandaríkjanna í marz til
viðræðna við Carter Bandarikja-
forseta, sennilega til að gefa til
kynna kólnandi sambúð rfkjanna
að því er haft er eftir áreiðan-
legum heimildum í Washington í
kvöld.
í tilkynningu bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins í kvöld segir að
samskiptin séu breytingum undir-
orpin og misnáin eftir tímum eins
og allaf gerist en samskipti
Bandaríkjanna og Saudi-Arabíu
muni eftir sem áður verða mjög
náin.
Samkvæmt áætlun átti Fahd að
vera í Bandaríkjunum 14.—15.
marz n.k. og var búizt við því að
Carter nýtti tækifærið til að reyna
að fá Fahd til stuðnings við
samningaviðræður Egypta og
ísraelsmanna.
A sama tíma og þetta gerist eru
Saudi-Arabar að tryggja sér
stuðning Bandaríkjanna vegna
átakahættu í framhaldi af
atburðunum í Iran, en það hefur
vakið nokkurn ugg í Bandaríkjun-
um að að undanförnu hefur sovézk
sendinefnd verið í Saudi-Arabíu til
að kanna möguleika á því að ríkin
tvö taki aftur upp stjórnmálasam-
band.
í tilkynningu sem send var frá
sendiráði Saudi-Arabíu í
Washington í kvöld segir að
ástæðan fyrir ákvörðun Fahds sé
einfaldlega sú, að hann vilji fá
lengri tíma til að kanna þau mál
sem hann kemur til með að ræða
við Carter.
átökum víða um landið þar sem
vinstrisinnar höfðu sig mjög í
frammi, sérstaklega þó í borgun-
um Saqar, Geneh og Marivan þar
sem allnokkrir féllu.
Til átaka kom í kvöld milli
lögreglumanna Khomeinis og mót-
mælenda þegar lögregluforingi var
tekinn af lífi, dæmdur fyrir að
hafa borið ábyrgð á kvikmynda-
húsbrunanum í september s.l. í
Teheran þegar 337 manns létu
lífið. Það vakti nokkra athygli að
það voru slökkviliðsmenn sem
tóku lögregluforingjann af lífi og
átti það að vera táknrænt fyrir
glæpinn, að sögn Teheranútvarps-
ins.
I kvöld bárust fréttir þess efnis
að hafnir væru flutningar Banda-
ríkjamanna og Breta á sjó í fyrsta
sinn síðan keisaraveldið féll. Voru
þar bandarísk skip á ferðinni.
Iranska stjórnin krafðist þess í
dag við svissnesku stjórnina að
hún legði hald á allar eigur
kreisarans þar í landi þar sem
ákveðið hefði verið að allar eigur
hans hvar sem þær voru niður-
komnar yrðu þjóðnýttar.
Khmerar nálgast Phnom Penh
BanRkok, 23. íebrúar. AP.
LIÐSMENN Pol Pots. fyrrverandi leiötoga Kambódiumanna, segjast stööugt auka
umsátur sitt um víetnömsk herfylki víös vegar í Kambódíu jafnframt sem þeir segjast nú
ráða öllum vesturbakka Mekongfljóts allt að 100 kflómetrum frá höfuðborg landsins
Phnom Penh að því er segir í fréttum frá Bangkok í dag.
Ennfremur var haft eftir tals-
manni skæruliða að mótspyrnan
sem þeir hefðu mætt við
Mekon-fljót væri ótrúléga lítil og
myndu þeir ekki linna látum fyr
en þeir væru komnir til höfuð-
borgarinnar.
Þá sagði útvarpsstöð skæru-
liðanna í dag, að aðeins væri um
tímaspursmál að ræða hvenær
borgin Kratie við Mekong-fljót
félli í hendur þeim en þeir hafa
setið um hana síðustu daga.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum í Bangkok í dag, að um
30 þúsund mannr víetnömsku
herliði hefði verið fyrirskipað að
halda aftur til Víetnams frá svæði
í námunda við Kratie, og mikil
vandræði væru þegar orðin hjá
Víetnömum á svæðinu kringum
borgirnar Nimit og Sisophon
vegna þess að skæruliðar hefðu
allar aðflutningsleiðir á sínu valdi,
en annars hefur ekkert heyrst frá
Víetnömum að öðru levti.
30 manns
deyja vegna
ópíumskorts
Islamabad. 23. (ebrúar. AP.
ÞRJÁTÍU manns hafa látist á
undanförnum dögum í Pakist-
an vegna ópíumskorts að því
er haft er eftir lögreglu- og
sjúkrahúsyfirvöldum í Islama-
bad.
Öll fórnarlömbin létust á
miðvikudag og fimmtudag
þegar skyndilega varð skortur á
eitrinu en það hefur verið til
sölu í búðum sem eru undir
eftirliti stjórnvalda.
Zia-Ul-Haq forseti landsins
tilkynnti 10. febrúar s.l. algert
bann við neyzlu alkóhóls og
annarra vímuefna því það sam-
rýmist ekki lögum múhameðs-
trúarmanna. Stjórnin hefur þó
samþykkt að sjúkrahús fái
ópíum til lækninga undir
ströngu eftirliti.