Morgunblaðið - 08.03.1979, Side 10

Morgunblaðið - 08.03.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 Dr. Terry G. Lacy flytur í kvöld fyrirlestur í Norræna húsinu kl. 20.30 um fuglalff ok fuglaskoðun í Alaska og við Hudsonflóa. Terry er félagsfræðingur að mennt en kennir ensku við enskudeild Háskóla íslands. Hún er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en hefur búið hér á íslandi í 5 ár. „í kvöld ætla ég að gera samanhurð á fuglum og fugla- lífi hér og í Alaska. Það er margt sem cr líkt með fuglun- um á þessum tveimur stöðum, en einnig margt sem er ólíkt. Ég kem lika inn á fuglah'fið við Hudsonflóann,“ sagði Terry er blaðamaður heimsótti hana á hcimili hennar í' Reykjavík. „Ég fór til Alaska árið 1969 og kunni svo vel við mig í norðrinu að ég fór til íslands árið 1971, til að skoða fugla að vísu í byrjun. En ég komst að því að það var fleira á íslandi en aðeins fuglar svo úr varð að ég settist hér að. Ég átti heima á sléttunum í Coloradofylki þar sem hvergi sást til sjávar. Ég er hins vegar fædd og uppalin á lítilli eyju úti fyrir norðaustur strönd Banda- ríkjanna og saknaði því hafsins frá æsku.“ Hvenær fékkstu áhuga á fugl- skoðun? þeim tíma. Það var mjög óþægi- legt, sérstaklega þegar heitt var, því að þá fylltist allt af móskító- flugum. Það er ekki alltaf þægi- legt að skoða fugla, en þetta er mín della eins og Grétar Eiríks- son sagði í viðtali við Morgun- blaðið um daginn. Terry sagði að það væri sjald- an beinlínis hættulegt að elta fugla en þó væri best að vera í bíl við fuglaskoðun. „Ef þú ert í bíl þá ertu ekki lengur manneskja. Fuglarnir skilja það ekki að það sé maður á ferð í bílnum og þú getur skoðað þá án þess að trufla þá. Ég nota sjálf 400 mm linsu við myndatökurnar og á því ekki að þurfa að nálgast þá að ráði. Terry mun sýna mikið af myndum með fyrirlestri sínum í kvöld. ,,„I háskólanum lærði ég örlít- ið um myndatökur en fugla- myndir tók ég ekki fyrr en ég fór til Alaska. Ég hafði myndatöku sem aukagrein við háskólann til þess að geta hvílt hugann frá félagsfræðinni. „Verö að elta einhvern" „Ég hef þörf fyrir að elta einhvern og þess vegna hef ég svo gaman af að skoða fugla. Terry meö myndavélina og Þann útbúnað sem hún notar viö fuglamyndatökurnar. í vor en til þess að undirbúa mig fer ég fyrst á námskeið í hug- lægri þjálfun í Bandaríkjunum." Með BA-próf í tónlist Fuglaskoðunin er ekki eina áhugamál Terry. Hún spilar á flautu í Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur, syngur með Söng- sveitinni Fílharmóníu og er nú að æfa með hljómsveit íslensku óperunnar fyrir óperuna Pagliacci. „Ég tók BA-próf í tónlist og kenndi á flautu í 10 ár. En laun tónlistarkennara eru mjög lág og það var ekki nóg fyrir mig að gera sem tónlistarmann. Því ■ ákvað ég það, þegar tækifæri gafst, að fara aftur í háskólann og lagði þá stund á félagsfræð- ina. Það er líka miklu hagstæð- ara að hafa tónlistina að tóm- stundaefni en atvinnu." Terry sagði að mikill munur væri á tónlistarlífi hér og í Bandaríkjunum og það væri alls ekki það sama að vera tónlistar- maður í þessum tveimur lönd- um. „Ég var sem barn í tónlistar- Upplifði tvisvar vetur og þrisvar sumar á 10 dögum Rœtt við dr. Terry G. Lacy um fuglaskoð- un, tónlist og fleira Terry tekur fleiri myndir en fuglamyndir. Þessa tók hún hér 17. júní 1974 og kallar hana „Gamall maöur“. Þessar myndir tók Terry í Vestmannaeyjum. „Það er langt síðan ég fór að skoða fugla. Fyrrverandi tengdafaðir minn var fuglaskoð- ari og ætli hann hafi ekki smitað mig í kringum 1950 þegar ég var enn í háskóla. Síðan þá hef ég ferðast víða og séð 1088 tegundir fugla. Ég fór t.d. til Afríku, til Kenýja, Tansaníu og Uganda, rétt áður en Amín tók þar völdin. Það var fpjóg gaman að koma til Úganda. Fólkið þar er svo vina- legt og kátt. Einu sinni þegar ég fór að skoða fuglana við Hudsonflóann fór ég með flugvél mjög langt norður eftir flóanum til lítillar borgar sem heitir Churchill. Ég og vinkona mín leigðum okkur lítinn vörubíl og ókum um nágrenni borgarinnar. I Church- ill er alþjóðleg höfn sem er ísilögð allt árið. Þegar vindinn lagði frá hafi var mjög kalt í borginni og nágrenni en þegar vindurinn stóð af landi var afskaplega heitt, allt upp í 26 gráður á celsíus. Við dvöldumst þarna í 10 daga og upplifðum tvisvar sumar og þrisvar vetur á Mér finnst t.d. grasafræðin leiðinleg vegna þess að plantan er alltaf á sama stað. Lífið er svo breytilegt og fuglarnir eru alltaf á ferðinni. Örnin fer t.d. 20—30 mílur á dag. Fuglarnir eru líka alltaf uppteknir. Það er svo gaman að horfa niður á hreiður fuglanna í Vestmannaeyjum. Þar hafa þeir mikið að gera og þeir hafa líka hátt,“ sagði Terry og brosti. Terry á sinn uppáhaldsfugl eftir því hvar hún er stödd hverju sinni. „Þegar ég er í Afríku hef ég mest dálæti á litlum fugli sem er alltaf að veiða fisk. Annars eru margir fuglar í Afríku mjög bjartir og litríkir og það er mjög gaman að horfa á þá. Hér á Islandi held ég mest upp á kríuna. Það er svo skemmtilegt að ljósmynda hana. Hún er svo' fíngerð og létt og vænghaf hennar er svo fallegt. Krían er virkilega tignarlegur fugl.“ Terry kom hingað í annað skipti árið 1973, þá sem Fuíl- bright-lektor í félagsfræði við Háskólann í eitt ár. „Ég kom hingað í þriðja sinn árið eftir og þá til að setjast hér að. Það er svo gott og skemmti- legt að búa hér,“ sagði Terry. I Bandaríkjunum kenndi ég tækniskrift við blaðamanna- deild. Hér kenni ég enskan stíl svo atvinnan er mjög svipuð. Ritþjálfun er heldur ekki svo fjarlæg félagsfræðinni. Hún er punkturinn þar sem einstakl- ingurinn og kerfið, samfélagið, mætast. Ég hugsa oft um það hver vandræðin eru í raun og veru þegar einstaklingurinn fer að aðlagast kerfinu. Eg ætla að rannsaka þann þátt tilverunnar skóla í Baltimore og fór þá á marga tónleika heimsfrægra tónlistarmanna. Það tækifæri er ekki fyrir hendi fyrir ungt tón- listarfólk hér á landi. Það sem hér er gert er ekki allt það besta en hér er mikið gert á tónlistarsviðinu. Það er hægt að hlusta á mikið af tónlist og læra af þvi um leið. Tónlist- arlífið er blómlegt í stórborgum Bandaríkjanna, t.d. New York og Boston, en mjög lítið úti í sveitum og engri tónlist er útvarpað í Bandaríkjunum nema poppi og rokki. Mér finnst mjög gaman að vinna með íslenskum tónlistar- mönnum. Það var gaman að syngja í Sköpuninni sem er mjög gott verk. En stundum hef ég of mikið að gera og ég hef alltaf mikið að gera. Samt er minna álag á mér hér en í Bandaríkjunum. Tækifærin eru svo mörg hér, það er svo margt hægt að gera og því finnst mér svo gott og gaman að búa á Islandi," sagði Terry að lokum. rmn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.