Tíminn - 20.06.1965, Blaðsíða 1
HANDBÖK
VERZLUNARiMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16888 16688
HANDBÓK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
18688 16688 16688
SELJA
EYLKfí
Houari Boumedienne
EJ-Reykjavík, laugardag.
— „IVTikið er rætt um framleiðni
atvinnuveganna og ekki sízt land-
búnaðarins. Samkvæmt skýrslum
efinahagsstofnunarinnar í París er
framleiðni aukning landbúnaðar-
ins að meðaltali 3.8 á ári s.l. sex
ár, en 3.7 er framleiðniaukning-
in í þjóðarframleiðslunni allri
miðað við manin. Hitt er svo vitað,
að fólki hefur fækkað mjög í sveit
unum s.l. sex ár sumir áætla þá
fækkun allt að 25%. Framleiðni-
aukning á mann i landbúnaðinum
er því miklu meúri en hjá þjóðinni
í heild, eða ekki minni en 4.5 á
mann, og er meiri á mann i land-
búnaði en í sjávarútvegi. sem þó
hefúr ýms fríðindi fram yfir
landbúnaðinn“. — sagði Gunnar
Guðbjartssom, formaður Stéttar-
sambands bænda, í skýrslu sinni
á 20. aðalfundi sambandsins. sem
hófst á Eiðum i morgun.
í skýrslu sinni gerði Gunnar
grein fyrir því, hvað gerzt hefði
í málum þeim. sem tillögur voru
samþykktar um á síðasta aðal-
fundi sambandsins Þá gerði
hann einnig grein fyrir verðlags-
umræðunum í sexmannanefnd í
fyrra, en frá þeim hefur áður
verið .sagt í TÍMANUM.
Þá gerði Gunnar grein fyrir
niðurstöðum af könnun þeirri,
sem Stéttasambandið lét fara fram
árið 1963 um framleiðslukostnað
búvaranna. Margt fróðlegt kom
fram í skýrslum þessum, sagði
Gunnar, m.a. að meðallandsbúið
er nú orðið verulega stærra en
vísitölubúið, en síðar þegar þetta
var athugað, var það um 12—14%
minna, — sagði Gunnar
Þá sagði Gunnar, að flestir
gjaldaliðir hafi verið hærri í
krónutölu. Aftur á móti sagði
hann, að könnunin hefði ekki gef-
ið nægilegar upplýsingai um fjár-
magnið, sem stendur í búrekstrin-
um, þar sem mat eigna væri í
fullkomnu ósamræmi við kostnað-
arverðið. og ennfremur um þá
gjaldaliði. sem væru byggðir upp
i nánu sambandi við verðmæti
eignanna. Þá vantaði einnig fyllri
upplýsingar um vinnumagnið sem
að baki framleiðslunnar liggur
Könnunin sýndt að skuldn eru
að meðaltaii hærri en verið hefur
undanfarin ár. Þannig voru skuld-
ir við Stofnlánadeild kr. 101.-
806.00 að frádregnum lánum við
byggingarsjóð, og aðrar skuldir
rúmlega 72.9 þúsund kr. eða alls
að meðtöldum öllum tbúðalánum
kr. 191.228.00. En þafi voru rúm-
lega 112 þús. kr. skuldir taldar í
fyrra árs verðlagsgrundvelli, en
þá voru íbúðalánin að sjálfsögðu
ekki meðtalin Sagði Gunnar, að
líta mætti svo á, að nokkurt sam-
hengi væri á milli örrar stækkun-
ar búanna og skuldaaukningar-
innar.
Yfirlit yfir framleiðslu búsaf-
urða fyrir árið 1964 sýndi hvað
sauðfjárafurðum viðvíkur. að tala
dilka, sem barst til sláturhús-
anna. var 647.830 á móti 703.939
árið áður. Þessi mismunur gerir
tæplega 8%. Alls bárust slátur-
húsunum 686.764 kindur til slátr-
unar árið 1964, en árið 1963 var
þessi tala 780.723 Fækkunin er
því rúmiega 12%. Magn kinda-
köts árið 1964 varð alls um 10.152
lestir en árið áður 11151 lestir.
Er þetta tæplega 9% minna magn
en árið 1963. í yfirlitinu er bent.
á þá eftirtektarverðu staðreynd,
að þó tala dilka, er komu til slát-
urhúsanna s.l. ár hafi lækkað um
nærri 8%, þá minnkaði magn
dilkakjöts ekki nema um 3.24%.
Stafar þessi mismunur af því, hve
dilkar voru miklu vænni til frá-
lags haustið 1964 en haustið 1963.
Yfirlit yfir mjólkurframleiðsl-
una sýndi, að magn mjólkur, sem
mjólkursamlögunum barst á árinu
1964. hefur vaxið um 5.8 millj.
kg„ eða um 6.17%. Jókst fram-
leiðslan heldur minna s.l. ár en
næsta ár á undan, bæði hlutfalls-
lega og að magni til.
Þá gerði Gunnar grein fyrir
fiárfestingu í lanbúnaðinum á ár-
inu. og sagði. að það kæmi í ljós,
að framkvæmdir væru mismiklar
í hinum einstöku Héruðum lands-
ins. Þannig væri nær 40% af
ræktuninni í tveim sýslum lands-
ins, Árnes- og Rangárvallasýslum,
og nokkur hliðstæða með aðrar
framkvæmdir. Hann sagði, að gerð
hefði verið skýrsla um túnastærð
iarða við árslok 1963. og kæmi
þar í Ijós. að þar sem minnst tún
Framhald á 15. síðu.
NTB-Algeirsborg, 19. júní.
Hinum volduga forseta Alsír,
Ahmed Ben Bella var í nótt steypt
af stóli með vopnaðri byltingu, en
án blóðsúthellinga. Við stjóm
landsins hefur tekið byltingarráð
undir forsæti Houari Boumedienne
hershöfðingja. Opinber tilkynning
nm hina nýju stjóm var gefin út
klukkan 11 í morgun að íslenzkum
tíma, en áður höfðu aðeins borizt
óstaðfestar fréttir um byltinguna.
Um klukkan hálf þrjú í nótt eft-
ir íslenzkum tíma var Algeirsborg
tekin herskildi og öflugur hervörð-
ur settur við flugvöllinn og allar
opinberar byggingar. Skriðdrekar
umkringdu bústað forsetans og
fallbyssum var beint að aðaldyr-
um byggingarinnar.
Þá var vélbyssuhreiðrum komið
fyrir við allar helztu útgönguleið-
ir úr borginni og stórir herflokk-
ar fóru um götur. Hergöngur þess
ar vöktu mikla athygli og ugg með
al fólks, sem lengi vel vissi ekki
hvað var að gerast. Erlendir sendi
menn gerðu ítrekaðar tilraunir til
að ná sambandi við yfirvöld og fá
skýringu á atburðunum, en án ár-
angurs.
Útvarpsstöð borgarinnar hafði
verið tekin og venjulegar útsend-
ingar stöðvaðar, en í staðinn leik-
in hergöngulög og ættjarðarsöngv
ar. Einnig var allt símasamband
við umheiminn rofið og allar
fréttasendingar stöðvaðar.
Af og til komu orðsendingar í
útvarpinu um að mikilvægrar til-
kynningar væri að vænta fyrir há-
degi í dag, en um hvað vissi eng-
inn fyrr en klukkan 11, eins og
áður segir.
f gærkveldi var orðrómur á
kreiki um að alvarlegur ágrein-
ingur væri kominn upp milli hers
ins og stjórnarinnar. Samkvæmt
þeim orðrómi átti stjórn alsírsku
þjóðfrelsishreyfingarinnar (FLN)
að koma saman í morgun og ganga
frá mjög mikilvægum samþykkt-
um.
Það var yfirmaður hersins,
Houari Boumedienne, sem skýrði
frá vuldatöku byltingarráðsins og
bað fólk að sýna stillingu. Sagði
haim, að ráðstefna Afríku- og
Asíuríkja yrði haldin í Alsír, eins
og ráðgert hefði verið.
f skýrslu frá herráðinu er Ben
Framliald á TÁ síðu.
VERULEG FRAMLEIÐNIA UKNING
( LANDBÚNADISÍDUSTU 6 ÁR
KJ-Reykjavík, laugardag.
Borizt hefur kauptilboð í
togarann Fylki, að upphæð
um 19 milljónir króna, en
leyfi fyrir sölunni hefur enn
ekki borizt frá viðkomandi
yfirvöldum hérlendis.
B. v. Fylkir, eign sam-
nefnds hlutafélags hér í
Reykjavík, smíðaður í Bev
erley í Englandi árið 1958,
kom 'hingað til landsins árið
1959, og er því einn af allra
yngstu togurum okkar. Fylk
ir er þó ekki í sama stærðar
flokkí og þúsund lesta tog
ararnir Sigurður og Víking-
ur, því hann er mun minni
eða 642 tonn. Skipið hefur
jafnan verið aflasælt allt
frá því það kom til lands-
ins, enda undir stjórn dug-
legra og farsælla skipstjóra,
svo sem hinna þekktu og
aflasælu Auðunsbræðra.
B. v. Fylkir mun hafa
vertð boðin til sölu á er
lendum markaði fyrir
nokkru síðan, og upp frá
því barst kauptilboð í hann
að upphæð um 19 milljónir
íslenzkra króna. Útgerðar
félagið sendi þá beiðni til
viðkomandi yfirvalda hér
lendis um að mega selja
skipið, en ríkisábyrgð er
fyrir lánum þeim sem feng
Framhald a bls. 14