Tíminn - 20.06.1965, Side 3
SUNNUDAGUR 20. Jfiní 1065
3
TÍMINN
|
k 53
\&3W
'
,
l
'
5il||ͧ|||g|l
| ^
í SPEGLI TlMANS
Þetta er Phyllis McGairie, sem er ein af hinum lieimsfrægu
bandarísku McGurie-systram, en Þær hafa sungið sig inn í hug
og hjörtu milljóna manna á s. 1. 15 árum, enda eru þær almennt
taldar eitt bezta söngtríó kvenna í heiminum. Phyllis hefur nú um
skeið verið mikið með einum alræmdasta glæpaforingja Chicago-
borgar; en hann heitir Momo Salvatore Giancana, og er hann
sagður vera Mafíumeðlimur. Giancana hefur átt f erfiðleikum
við ríkislögregluna á síðustu mánuðum og getur farið svo að
þeir stingi honum í steininn. Þessi mynd er tekin af Phyllis
þegar hún er að koma frá yfirheyrslu í sambandi vlð rannsóknina
á glæpastörfum Giancana.
Hinn 42 ára Sikileyingur
Aldo Donati, sem er ákærður
fyrir fjölkvæni, reynir nú að fá
sig sýknaðan, þar sem hann sé
piparsveinn. \
Lögreglan ,sem kom að Don-
ati, þar sem hann var að leiða
24 ára gamla kennslukonu upp
að altarinu í október síðast-
liðnum þykist geta sannað,
að hann hafi kvænzt 12 konum
í síðastliðnum 16 árum. Verj-
endur hans spyrja hins vegar:
Hvemig getur maður verið f jöl-
kvænismaður, ef hann hefur
aldrei verið löglega kvæntur?
Þessi lögfræðilega undankoma
er þó möguleg, þar sem
kaþólska kirkjan ógilti fyrsta
hjónaband hans ,og samkvæmt
fullyrðingum lögfræðingana er
ekkert hinna hjónabanda Don
atis löglegt, þar sem hann gekk
í þau undir fölsku nafni. Á-
rangurinn er sá, að Donati tel-
ur sig saklausan af fjölkvæni,
þar sem hann hafi aldrei verið
löglega kvæntur.
★
Daliah Lavi, hin 24 ára
gamla ísraelska kynbomba, hef
ur nú ákveðið að ganga í hjóna
band. Hinn væntanlegi eigin-
maður lieitir John Sullivan, og
er leikstjóri. Kynntust þau í
Kambodia, þar sem þau voru
bæði við kvikmyndatöku. Dal
iah segir, að dag nokkurn hafi
þau horfzt lengi í augu, og allt
í einu hafi hún uppgötvað, að
þetta væri einmitt maður handa
henni.
Sybil Burton, hin 36 ára fyrr-
verandi eiginkona Richards
Burton, hefur nú gifzt 24 ára
gömlum dægurlagasöngvara
Jordan Christopher að nafnl.
Svo nú heitir hún ekki lengur
Mrs. Burton, heldur Mrs. Jord
án EIi Zankoff. Eiginmaður
hennar skipti nefnilega um
náfh, þegar hann varð dægur
lagasöngvari, og kallaði slg
Christopher.
Alexandra prinsessa af Kent
var nýlega í heimsókn í París
ásamt manni sínum, skozka
kaupsýslumanninum Angus Og
ilvy. Þar heimsótti hún frænda
sinn hinn 70 ára hertoga af
Windsor, en hann býr i stór-
fenglegri villu rétt utan við
París, ásamt eiginkonu sinni,
Wallis Simpson.
Hetjan hér á myndinni er enginn annar en vöðvafjallið Mickey Hagitay, sem einu sinni vann titiJ
í alþjóðafegurðarsamkeppni karla, enda þótti hann hafa stórfenglegustu vöðvana af þeim er til
sýnis voru. Mickey er fyrrverandi maður sexbombunnar Jayne Mansfield, og er ekki síður frægur
fyrir það afrek. Um daginn réðst einhver óþokkinn inn í svefnherbergið hans Mickey í Róm, og
stakk hann með hníf. Flytja þurfti hctjuna á spítala og binda um sárið. Ekki fylgir sögunni
hver hafi viljað hann feigan.
Eins og kunnugt er hefur Elísabet Englandsdrottning nýlega
sæmt bítlana orðu. Hafa þeir nú hlotið titilinn Member of the
British Empire, skammstafað M.B.E. og er orða þessi veitt árlega
í tilefni afmælis drottningar. Þessl orðuveiting hefur vakið
mikla athygli um allan heim, en ekki alls staðar mikla hrifningu,
og nokkrir menn, sem höfðu fengið Þessar orður, liafa nú skilað
þeim aftur í mótmælaskyni. Þar reið fyrstur á vaðið fyrrverandi
kanadískur þingmaður, Hector Dupuis. Hann lét þau orð fulla,
að þegar hann hafði verið sæmdur þessari orðu hafi hann verið
sannfærður um að hann væri hennar verður, því hann hefði álitið
að hún væri eingöngu veitt stjómmálamönnum og mönnum,
sem höfðu unnið einhverja hetjudáð, en nú óskaði hann ekki
eftir að bera orðu, sem veitt væri í viðurkenningarskyni við
heimsku og móðursýki. Hann hefur því sent orðuna til drottning-
ar. Á Bretlandi er það hins vegar sagt að það breyti engu, þó
hann sendi orðuna til baka, hann hafi eftir sem áður titilinn
Member of the British Empi^e.
Hér á myndinni sjást svo bítlarnir með orðurnar sínar.
★
í skóla nokkrum í Englandi
spurði kennarinn einhvern tíma
bekkinn sinn: — Hvenær beið
England mesta ósigur sinn?
Það var löng þögn, en að
lokum rétti einn ncmandinn
upp höndina og sagði:
— Afsakið, kcnnari, en þér
sögðuð ekki, hvort þér meint-
uð í fótbolta eða tennis?
Danski skipaeigandinn A. P.
Möller, sem er talinn einn af 10
auðugustu mönnum heims, er
nýlátinn i Kaupmannahöfn, 88
ára að aldri. Þrátt fyrir allar
milljónirnar sínar lét hann það
aldrei niður falla að sækja elli-
styrkinn sinn.
★
Soffía Grikkjaprinsessa, sem
gift er Juan Carlos de Bourbon
y Bourbon prinsi á Spáni, eign
aðist dóttur 13. júní. Er þetta
önnur dóttir þeirra. Bæði Frið
rika, fyrrverandi Grikkjadrottn
ing og Irene prinsessa komu til
Spánar nokkru áður en barnið
fæddist.
Jacqueline Kennedy hefur
nú enn einu sinni verið boð-
ið til Hvíta hússins, en þangað
hefur hún ekki komið síðan
hún flutti þaðan. í þetta sinn
buðu núverandi forsetahjón
henni á listahátíð, sem þau
héldu í Hvita húsinu. Talsmað-
ur Hvíta hússins sagði, að því
miður hefði Jacqueline ekki
getað komið, og er ekki til-
greind nein ástæða fyrir því.
Hefur það vakið talsverða
furðu, að hún þáði ekki boðið,
þar sem hún hefur mikinn á.
huga á öllu, sem viðkom list,
þegar hún var forsetafrú.
Franski leikarinn og söngvar
inn Maurice Chevaller virðist
vera algjörlega óþreytandi, og
ritarinn hans segir með stolti,
að Chevaller vinni minnst 10
tíma á dag. Einhverjum varð
það að orði, að það gæti ekki
verið, hann væri jú orðinn 77
ára gamall.
— Að vísu, sagði ritarinn,
en hann veit það bara ekki sjálf
ur.