Tíminn - 20.06.1965, Side 11
SUNNUDAGUR 20. júní 1965
TÍMINN
HÆTTULEGIR
HVEITIBRAUDSDACAR
Axel Kielland
41
inn situr í gildrunni. Hvar var
ég?
— Þjóðverjarnir tóku ungan
pilt til fanga, sagði ég.
— Já, alveg rétt. Pilturinn
hafði fyrirmæli um að halda kjafti
þangað til hann væri hálfdauður
af pyntingum og þeirri skipun
hefur hann greinilega hlýtt. Þeg-
ar hann leysti loks frá skjóðunni,
trúðu þeir honum. Síðan höfum
við orðið vör við njósnaflugvélar
á þessu svæði á hverjum degi og
þeir hafa einmitt séð það, sem
Tito vildi að þeir sæju. Og svo
rak hann endahnútinn á verkið í
gær, þegar hann sendi hermanna-
lestina þeirra til helvítis og lok-
affl hershöfðingjann inn í svína-
stíunni, þar sem hann á heima.
Þjóðverjar kunna ekki slíkt að
meta, svo að núna koma þeir. Þeir
ráðast til atlögu við sólarupprás
eins og venja þeirra er, vinna
stórkostlegan sigur, streyma nið-
ur í dalinn og skemmta sér dátt
yfir fábjánanum Tito. Og svo líð-
ur að kvöldi. Og dimmir.
Hann brosti og blés reykinn út
í mörgum hringjum.
— Þá veit ég um hóp af pulsu-
ætum, sem fá sér vænan bita,
sagði hann. Oh boy.
— Hvar er Tito? spurði Gösta.
— Ilann getur setið þarna bak
við steininn fyrir mér. Hvað veit
ég. Nú byrjar það.
í fjarska heyrðist dynur frá
mörgum flugvélum. Buddy tók
upp kiki sinn og beindi honum
að ásjaðrinum Ég heyrði óskap-
legan dyn, sem fór stöðugt vax-
andi.
Buddy saeði:
— Piltarnii okkar skjóta á flug
vól.
í sömu andrá þutu fjörar stór-
ar sprengjuflugvélar fram rétt yf-
ir ásjaðrinum. Þær flugu mjög
lági og um leið og þær brunuðu
hjá ngndi sprengjunum niður.
Hver spi'enginin af annarri kvað
við og fjallshlíðin hvarf í reyk og
eldi.
— Þeir kunna að kasta sprengj-
um, svínin að tarna, æpti Buddy.
Flugvélarnar flugu þvert yfir
dalinn og sprengjunum hélt áfram
að rigna niður. Það var eins og
fjallið nötraði undan þessum
óskaplegu drunum, tré þeyttust
í loft upp og reykurinn breiddist
út um allt, og dalurinn var eitt
haf af reyk og eldi. Mig sveið
í augun, það var eins og þau
þyldu ekki að horfa á þessar ægi-
legu aðfarir, þau lokuðust enda
þótt ég sjálf vildi sjá. Sjá allt —
og allt í einu.
— Liggið kyrr, æpti Buddy
gegnum hávaðann.
Flugvélarnar flugu rétt yfir
höfðum okkar, en engin sprengja
lenti á hæðinni okkar. Svo tóku
þær stóra sveigju og sneru aftur
yfir dalinn og enn á ný hrundu
sprengjurnar niður og dalurinri'
varð aftur eldhaf. Svo komu þær
að ásjaðrinum. Þær létu ekki fleiri
sprengjur falla, en skutu í sífellu
af vélbyssum og mennirnir sem
lágu í felum svöruðu hreystilega.
Ein vélanna sveigði snö|glega
til hægri og beindi nefinu til lofts.
— Húrra, hrópaði Buddy.
— Bravo. Þeir hafa hitt hana.
Flugvélin reyndi enn að hækka
sig, en það var vonlaust og skyndi-
lega hrapaði hún á æðislegum
hraða niður í dalinn. Svo virtist
sem hún ætlaði að lenda á okkur.
Ég starði skelfingu lostin á flug-
vélina og fannst hún hlyti að
lenda á okkur.
En svo þeyttist vélin niður eft-
ir fjallshlíðinni. Óskaplegir brest-
ir kváðu við og leifarnar af flug-
vélinni þeyttust í allar áttir.
— Dalurinn þarna er ekki bein-
línis óskastaðurinn þessa stund-
ina, sagði Buddy. — En þar er
heldur engin ljfandi sála. Og Þjóð
verjarnir sem halda að Tito sé
þar með fimm þúsúhd manna lið.
Mér kom allt í einu v. Hann-
ecke í hug og hrópaði:
— Þýzku fangarnir, Buddy?
—í öruggu skjóli inni í sjálfu
fjallinu. Engin hætta. Nú kemur
Jfótgönguliðið.
Flugvélarnar höfðu bersýnilega
gert skyldu sína, því að þær hurfu
í vestur og við greindum hin
ýmsu hljóð hvert frá öðru á ný.
Það hljómar fávitalega, en brak-
ið og brestirnir frá vélbyssunum
Var eigírilega ekkert eftir þessar
voðalegu sprengingar. Eg taldi
tólf vélbyssur í stefnu á ásjaðar-
inn og þeir skutu viðstöðulaust.
Þýzkum kúlum rigndi yfir, en
eftir því sem ég sá bezt, hæfði
engin.
— Þeir skjóta illa, sagði ég.
— Vitleysa sagði Buddy.
— Bíddu bara.
Og hann hafði ekki fyrr sleppt
orðinu, þá steyptist þýzkt kúlu-
regn niður í jniðjan hópinn
vinstra megin. Það var viðbjóðs-
leg sjón og ég var fegin að vera
tiltöluíega langt í burtu. Fjar
lægð hjálpar mikið þegar svona
stendur á, voðalegt vaj- það auð-
vitað, en ég held að ég verði að
sjá andlit fólksins fyrir mér til
að finna að það er manneskja.
Það hvíldi einhver óraunveruleiki
yfir þessu, það var eins og ég
horfði á kvikmynd. Það var ekki
fyrr en síðar, að ég gerði mér
fullkomlega ljóst, að saklausar
manneskjur voru ^drepnar fyrir
augunum á mér.
— Viltu fá lánaðan kíkinn?
æpti Buddy.
— Ekki fyrir nokkra muni.
Enn ein vélbyssa var ónothæ%’
hjá skæruliðunum. Aðeins átta
vélbyssur skutu núna. Ég kom
ekki auga á nokkra manneskju
þarna í jaðrinum, svo að þeir
kunnu bersýnilega vel að skýla
sér, en það var jafn augljóst að
hér kenndi liðsmunar og óvinur-
inn hlaut að hafa yfirhödnina.
Það var hábjartur dagur núna
og sólin skein. Unaðslegt fjalla-
landslagið lá í tignarlegri ro
fugl söng í tré skammt frá okku
Náttúran varð ekki kveðin í kút-
inn, þótt manneskjurnar brjáluð-
ust. Eg skildí að bardaginn haf'i
staðið lengi, tíminn hafði liðio in
þess að ég yrði þess vör. Eg
reyndi að neyða mig til að horfa
í aðra átt, en augnaráð mitt hvarfl
aði alltaf þangað aftur, það var
engu líkara en ég væri tilneydd
að horfa á þetta, þótt ég fengir
velgju af viðbjóði.
— Vonlaust, sagði Buddy.
— Þarna fór ein til.
Nú voru aðeins fjórar vélbyss-
ur starfhæfar. Sprengjukúlur óvin
arins féllu þétt og brotin þutu
um í loftinu. Ég leit niður í dal-
inn. Reykurinn var ekki lengur,
það logaði enn í nokkrum kofum
og í flugvélarflakinu, annars var
allt eins og áður. Náttúran er
ofjarl tækninnar.
Skæruliðarnir i ásjaðrinum
höfðu byrjað með handsprengjur
núna. Þjóðverjarnir skutu ekki
lengur en i stað þess ruddust
fram vígvélar frá öllum hliðum.
— Þeir sækja fram, sagði
Buddy. — Bráðum verða þeir
komnir í návígi og þá fáum við
að sjá bardaga.
Aftur heyrðist vélarhljóðið og
óx og varð að æðislegri hljóm-
kviðu. Fimm sprengjuflugvélar
þutu yfir jaðarinn og sprengjurn-
ar féllu allar í einni línu.
— Vesalings piltamir, æpti
Buddy gegnum hávaðann.
— Þarna verða þeir að sitja og
hafast ekki að og taka á móti
sprengjunum '"''fian Þjóðverjarn-
ir nálgast stöðugt.
Enn ein ^piengjuromsa var
send riiður. En þegar drunurnar
höfðu minnkað og reykurinn barst
á braut, sáum við að skæruliðarn-
ir skutu af sama kappi og áður.
Spren'gjuflugvélarnar hurfu aftur
og Buddy sagði:
— Nú eru liðin svö . nálægt
hvort öðru, að þeir senda ekki
fleiri sprengjuvélar.