Morgunblaðið - 22.03.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1979
19
Bók Fischers er kennsludæmi
um hvernig þröngsýni og orð-
helgisháttur sósíalista varnar
þeim fullkomlega að bera skyn á
eðli og tilgang lista og vísinda.
Það væru mistök að reyna að
skýrgreina list án tillits til
félagslegs umhverfis hennar.
Einnig er rétt að krefja verður
listina sannsögli hvort heldur
hún kýs að segja hánn í formi
lyginnar eða ekki. Jafnskjótt og
listinni er á hinn bóginn skipað á
bás með valdboði hlýtur hún að
líða undir lok. Náfnykinn af
fagurfræði sósíalista má skýra í
ljósi þess að þeir hvorki skilja né
þola að listsköpun geti haft
markmið í sjálfu sér óháð
altækum stórasannleik. Er
athyglisvert hve það virðist hafa
orðið fáum listamönnum til
trafala að kunna ekki að útskýra
athæfi sitt. I bókinni „Veizla í
farangrinum" lýsir Hemingway
skáldbróður sínum Scott
Fitzgerald. Skáldskaparhæfileik-
ar hans, segir Hemingway, voru
honum eins eiginlegir og vígindi í
dufti fiðrildisvængja. Þegar hann
loks uppgötvaði það sjálfur og fór
að velta fyrir sér samsetningu
þeirra fór honum að fatast flugið
og brátt leið ekki á löngu uns
hann hætti að skrifa góðar
bækur.
Þegar krafist er sannsögli af
listamanni, felur það einnig í sér
kröfu um ábyrgð. Æðsta ábyrgð
hvers listamanns hlýtur að vera
sú, að hann misnoti ekki það
frelsi, er hann nýtur til list-
sköpunar, í þeim tilgangi að
útrýma því. Af öllu er hins vegar
ljóst að einmitt í þessu lýsi sér
táknrænt ábyrgðarleysi sósía-
lista. Njótandi þess öllum fótum í
etu að standa reyta þeir hár sitt
og fjargviðrast hamstola yfir
þeirri sömu umgjörð og gerir
þeim sjálfum kleift að þenja
básúnur sínar.
Lýðræði er að því leyti sérstætt
stjórnarform að þar fylgjast að
hönd í hönd öryggi og áhætta.
Það frelsi, er einstaklingurinn
hlýtur í fararnesti getur lýst
honum og öðrum veginn til annað
hvort gæfu eða glötunar. Frelsis-
ábyrgð íslenzkra menningarvita
er ekki sízt fólgin í þeirri skyldu
að gaumgæfa stöðu lands síns í
alþjóða samfélagi. Smæðin ein
hefur aldrei staðið íslenzkri
menningu fyrir þrifum og er
hlutur hennar ekki minni fyrir
því að við höfum haslað okkur
völl í bandalagi gegn tangarsókn
kúgunar og ófrelsis. Áhrifum
erlendrar hersetu ber eftir megni
að halda í skefjum. Sé það á hinn
bóginn raunveruleg trú íslenzkra
þjóðrembusósíalista að almenn
listgáfa sé bundin ákveðinni
afstöðu til Atlantshafsbanda-
lagsins segir það nóg um
„hernám hugarfarsins" við þann
borðsendann.
Á okkar landi vill það gleymast
að frelsi til orðs og æðis er ekki
sjálfsagður hlutur heldur brot-
hætt gersemi. Forngríski heim-
spekingurinn Platon lýsir því í
bók sinni „Lýðveldinu“ hvernig
taumlausu lýðræði hættir til að
leysast upp í harðstjórn. Þrátt
fyrir að íslenzkir sagnaritarar
fjölluðu ekki um viðfangsefnið
sérstaklega gæti í stöku tilsvari
litið svo út sem þeir væru að orða
einmitt þessa hugsun Grikkjans.
I Sturlungu er stúlka á stað
einum látin spyrja: Hvernig er
þér til Þorgils skaða? og fær hið
kjarngóða svar: „Illir þykja mér
allir þeir fuglar, er í sitt hreiður
skíta."
I tilefni menningardags
herstöðvaandstæðinga hefðu
e.t.v. fleiri landsmenn séð ástæðu
til að blygðast en sá einn, er
nefndur hefur verið sómi Islands,
sverð þess og skjöldur.
Kröfuganga
vegna dag-
vistarmála
álaugardag
N.EST komandi laugardag hafa
ýmis félagasamtök ákveðið að
beita sér fyrir kröfugöngu til að
leggja áherzlu á þörfina fyrir
stórauknu dagvistarrými í höfuð-
horginni. Verður lagt af stað frá
Illemmi kl. 14 á laugardag og
gengið niður Laugaveg og síðan
verður útidagskrá á Lækjartorgi
með ávörpum og skemmtiatriðum
fyrir börn.
í fréttabréfi um málið segir, að
samstarf þetta hafi byrjað í janú-
ar sl. í þeim tilgangi að gefa
kröfunni um næg góð dagvistar-
heimili aukinn slagkraft. Mark-
miðið með þessu samstarfi er að
knýja á um úrbætur. Þessir aðilar
hafi orðið sammála um að standa
fyrir tvenns konar aðgerðum undir
kjörorðinu „Næg og góð dagvistar-
heimiþ fyrir öll börn“.
Einnig kveðst nefndin vilja
vekja athygli á, að á biðlista hjá
Dagvistun Reykjavíkurborgar eru
nú 280 börn á dagheimili og 1337
um leikskóla og að 600 börn eru í
gæzlu hjá dagmömmum sem hafa
leyfi, en vænta megi þess að ekki
verði gizkað á fjölda barna sem er
í gæzlu þar fyrir utan. Vakin er
athygli á að 1. des. sl. voru 8166
börn í Reykjavík 0—5 ára en á
sama tíma aðeins 866 dagheimilis-
pláss og börn á aldrinum 6—12 ára
9696 en aðeins 108 pláss á skóla-
dagheimilum.
Þá er hópurinn að vinna að
undirskriftasöfnun þessu máli til
hvatningar og gefið hefur verið út
merki til að standa straum af
kostnaði.
Samtök þau sem eru aðilar að
þessu samstarfi eru:
Fósturfélag íslands, Iðnnema-
samband Íslands, Félag einstæðra
foreldra, Nemendaráð Kennara-
háskóla Íslands, íbúasamtök
Vesturbæjar, Íbúasamtök Þing-
holtanna, Rauðsokkahreyfingin,
Framfarafélag Breiðholts, Sjúkra-
liðafélag íslands, Stéttarfélag ísl.
félagsráðgjafa, Stúdentaráð H.í og
8. marz hreyfingin.
Skákþing
í slands haldið
um páskana
SKÁKÞING íslands fer að venju
fram um páskana. nánar tiltekið
dagana 5. —16. apríl 1979. Móts-
staðir verða Grensásvegur 46 og
Laugavegur 71. Reykjavík.
Keppni í landsliðsflokki og
áskorendaflokki hefst 5. apríl og
verða tefldar 11 umferðir í hverj-
um flokki.
Keppni í meistaraflokki
(lágmark 1700 skákstig) og opnum
flokki hefst laugardaginn 7. apríl
(kl. 14). Tefldar verða 9 umferðir
eftir Monradkerfi.
Keppni í drengja- og telpna-
flokki (14 ára og yngri) hefst 13.
apríl (kl. 14) og fer sú keppni fram
á Laugavegi 71. Tefldar verða 3
umferðir á dag, alls 9 umferðir.
Þátttöku skal tilkynna Þorsteini
Þorsteinssyni eigi síðar en þriðju-
daginn 3. apríl n.k. kl. 22.00
Hraðskákmót íslands 1979 fer
fram sunnudaginn 22. apríl á
Grensásvegi 44, Reykjavík, og
hefst kl. 14.
L.A. frumsýnir
, ,S jálfstætt f ólk ’ ’
FÖSTUDAGINN 23. mars
frumsýnir Leikfélag Akur-
eyrar SJÁLFSTÆTT FÓLK
eftir Ilalldór Laxness í endur-
skoðaðri leikgerð Baldvins
Ilalldórssonar. en leikritið
var frumflutt í Þjóðleikhús-
inu 1972 í tilefni af sjötugsaf-
mæli skáldsins. Leikstjóri er
sem fyrr Baldvin Halldórs-
son. en leikmynd gerir Gunn-
ar Bjarnason.
Þetta er fjórða verkefni L.A.
á leikárinu, en starfsemi fé-
lagsins hefur staðið með mikl-
um blóma í vetur og aðsókn að
sýningum óvenju mikil.
Hlutverk eru 20 og leikend-
ur 16. Með hlutverk Bjarts í
Sumarhúsum fer Þráinn
Karlsson. Svanhildur Jóhann-
esdóttir leikur Ástu Sóllilju,
Jóhann Ögmundsson leikur
Séra Guðmund og Sigurveig
Jónsdóttir Hallberu í Urðar-
seli. Hreppsstjórahjónin á
Uti-Rauðsmýri leika Heimir
Ingimarsson og Þuríður
Schiöth. Aðrir leikendur eru
Aðalsteinn Bergdal, Gestur E.
Þráinn Karlsson (Bjartur), Aðalsteinn Bergdal (Gvendur). og
Sigurveig Jónsdóttir (Hallbera í Urðarseli).
Jónasson, Viðar Eggertsson og
Theodór Júlíusson — sem allir
fara með tvö hlutverk í sýn-
ingunni; Þórey Aðalsteins-
dóttir, Nanna I. Jónsdóttir og
Kristjana Jónsdóttir. Auk
þess koma fram þrjú börn.
Þráinn Karlsson, Svanhildur Jóhannesdóttir (Asta SóIIilja) og
Hildigunnur Þráinsdóttir (Björt).
Innan skamms hefjast æf-
ingar á síðasta verkefni vetr-
arins, nýjum kabarett, sem
væntanlega verður frumsýnd-
ur upp úr páskum.
Austurrísk vika
á Loftleióum
Hótel Loftleiðir býður nú til Austum'kis-kynningar
og skemmtikuölda í Blómasalnum dagana 16 —-25.
mars nk. Þekktir og vinsælir austurrískir þjóðlaga-
sönguarar, Duo Rossmann koma fram og leika og
syngja þjóðlög.
Þá uerður efnt til happdrættis á huerju kuöldi, en auk
þess býður Hótel Loftleiðir aðaluinning sem dregið
uerður um i lok kynningarínnar, flugfar til Austurríkis
fyrir tuo.
A austurrísku uikunni fá gestirsmjörþefinn afTýróla-
stemmningunni sem ríkir í skíðaparadís þeinrí er
hundruðíslendinga hafa kynnst af eigin raun ískíða-
ferðum Flugleiða til Austurríkis.
Matreitt uerður að austurrískum hætti. Matseðill:
WIENER KRAFTSUPPE Vínarkjötseyði
eða TIROLER EGGSPEISE TýrólarEgg
og SCHWEINEKOTELETT AUF SAUER
KRAUT Grísakótiletta með súrkáli
eða WIENER SCHNITZEL Vínarsneið
og SACHERTORTE Sacherterta
eða APFELSTRUDEL Eplakaka
Mataruerð er kr. 4.500.00.
Maturframreiddurfrá klukkan 19.
Borðpantanir í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin,
HÓTEL
LOFTLEIÐIR