Morgunblaðið - 22.03.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1979
Jafnt og gott fiskirí
hjá Olafsvíkurbátum
ólaísvík, 20. marz
GÓÐUR afli hefur verið hjá
Ólafsvíkurbátum síðastliðna
viku. A fimmtudat' í fyrri viku
glæddist aflinn í' netin og á
lauKardaK ok sunnudag var jafnt
ok gott fiskirí. Þá komu 275 tonn
á land hvorn das af 18 hátum. I
mánudaic. dró heldur úr. en
vonir standa til að þessi afla-
kippur haldi áfram ok Keti þá
kallast hrota.
Hér er um göngufisk að ræða,
loðnufullan. Aflahrota hefur ekki
komið hér í ein 3—4 ár og engin
loðna sást í fiski hér í fyrra. Róið
hefur verið hvern dag og er vonast
til að gæftir haldist til þess að
nýting aflans verði sem best. Allur
fiskur hefur fram að þessu náðst í
bezta ástandi úr netunum og í
gegnum vinnslu. Atvinna hefur
verið mikil síðustu 2 vikurnar og
hefur verið gefið frí í efstu bekkj-
um grunnskólans til að bjarga
verðmætum. Stutt er í saltskort og
getur komið sér afar illa ef dregst
að saltskip komi.
Togarinn Lárus Sveinsson land-
aði hér um 100 lestum fyrir 5
dögum og mun hann vera væntan-
legur aftur nú í vikunni. Má því sjá
að nú sem oft áður snýst hér allt
um fisk og margur þreyttur í lok
vinnudags.
- Helgi.
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur 1—33
□ Ingólfsstræti
□ Sóleyjargata
□ Flókagata 1—47
VESTURBÆR:
□ Miöbær
UPPL. I SIMA
35408
laugardaginn 24. marz veröa til viðtals Birgir
ísleifur Gunnarsson, borgarfulltrúi og Hulda
Valtýsdóttir, varaborgarfulltrúi.
Birgir er í borgarráöi, hafnarstjórn og launamála-
nefnd, situr fyrir Reykjavíkurborg í stjórn Lands-
virkjunar.
Hulda er í félagsmálaráði og leikvallanefnd.
| VIÐTALSTÍMI
| Alþingismanna og
p borgarfulltrúa
I Sjálfstæðisflokksins
p í Reykjavík
ÞEGAR Stórmóti Bridgefélags
Reykjavikur lauk sl. sunnudag
var efnt til pallborðsumræðna
þar sem norsku gestirnir Per
Breck og Rcidar Lien sátu
fyrir svörum.
Þeir félagar sögðu að mjög
góður bridge væri spilaður á
Islandi og væri það ótrúlegt að
hægt væri að halda mót sem
stórmótið þar sem 27 pör mættu
til leiks hvert öðru betra. Sögðu
þeir að öll pörin sem þeir hefðu
spilað gegn hefðu spilað vel. Þá
var rætt um Norðurlandamótið
sem fram fór í Reykjavík í
fyrra. Var þeim tíðrætt um
íslenzka unglingamótið sem þeir
sögðu að hefði spilað mjög mis-
jafnlega. Stundum hefðu þeir
spilað mjög vel, stundum mjög
illa. Norska unglingaliðið sem
sigraði á mótinu spilaði ágæt-
lega en þó ekki betur en það að
þeir unnu aldrei báða hálfleiki
gegn andstæðingunum.
Breck og Lien voru mjög
ánægðir með mótstjórnina en
sögðu að það væri tvennt sem
kæmi þeim á óvart. Annars
vegar að skorblöðin voru ekki
merkt, þ.e. hvaða spil ætti að
spila og hvaða pör ættu að spila
saraan. Það væri ekki venja að
treysta spilurum fyrir því í
Noregi á Stórmótum sem þessu.
Þá fannst þeim gefinn góður
tími til að spila fjögur spil, það
væru aðeins gefnar 25 mínútur í
Noregi á móti 30 mínútum hér.
Góður stjórnandi umræðn-
anna, Jakob R. Möller, spurði
því næst af hverju norskir
bridgespilarar færu sjaldan til
annarra landa t.d. meginlands-
ins til að taka þátt í stórum
bridgemótum. Minntist Jakob í
því sambandi á Svía og Dani
sem gera mikið af því að spila
erlendis á stórmótum. Reidar
Lien sem var í forsvari fyrir þá
kollega að mestu leyti sagði, að í
fyrsta lagi væru það blankheit
Norðmanna sem yllu því að þeir
færu ekki oftar. Þá sagði hann
aðra ástæðu liggja að baki ekki
síður mikilvæga, þá að t.d. í
sænska landsliðinu væru a.m.k.
4 spilaranna ógiftir.
Þá voru þeir félagar spurðir
um norska landsliðið. Það hefir
nýlega verið valið og eru Lien og
Breck að sjálfsögðu þar á meðal
ásamt Roy Christiansen og Tere
Pedersen en þriðja parið er úr
unglingalandsliðinu, Leif
Stabell og Hjaltnes.
Ekki bjuggust þeir félagar við
sérstökum árangri á Evrópu-
mótinu. Kæmi þar tvennt til.
Annars vegar að liðið væri ekki í
góðri þjáifun og hins vegar
vantaði samæfinguna.
Að lokum voru þeir félagar
spurðir álits á notkun skerma.
Lien sagði að þeir hefðu bæði
jákvæðar og neikvæðar hliðar
og væri hann hlynntur þeim svo
langt sem það næði. Þó vildi
hann benda á t.d. allar þær
gervisagnir sem nú tíðkast geta
gert notkun skerma nánast úti-
lokaða.
Þegar hér var komið lágu
úrslit Stórmótsins fyrir og urðu
umræður því ekki lengri.
Á Stórmótinu voru spiluð 108
spil og voru þau tölvugefin og
fengu spilarar tölvuúrskrift af
þeim. Hér á eftir verða sýnd 4
spil sem spiluð voru í mótinu og
gefin upp árangur spilara í
þremur þeirra:
Spil nr. 7.
Suður gefur — Allir á hættu.
Vestur
D. S. DG
H. ÁK742
T. KT76
L. G3
Norður
S. ÁK873
H. 6
T. Á53
L. D975
Austur
S. 96
H. DGT83
T. DG82
L. K8
Suður
S. T542
H. 95
T. 94
L. ÁT642
Séð yfir spilasalinn sl. laugardag. Allar myndir af stórmótinu tók
Kristján Ijósmyndari Mbl.
Dreggjar frá
stórmótinu...
Á tveimur borðum þar sem
undirritaður var áhorfandi voru
spilaðir 4 spaðar í Norður og á
báðum borðum var útspilið lauf-
kóngur sem er eina útspilið sem
gefur 6 spaða skor. Sex slagir á
tromp, einn á tígul og fimm á
lauf.
Spil nr. 80.
Vestur gefur —
Austur-Vestur á hættu
Brldge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
Norður
S. ÁT87632
H. -
T. G754
L. T6
Vestur
S. -
H. K9653
T. ÁT8
L. KG432
Surður
S. KDG4
H. D874
T. D3
L. Á97
Þetta spil kemst trúlega næst
því að falla sem kallað er — þ.e.
að sami árangur náist á öllum
borðum. Á ellefu borðum voru
spilaðir 5 spaðar tvöfaldaðir og
einn niður. Á einu borði fengu
N-S að spila 4 spaða tvöfaldaða
og slétt staðið og á tveimur
borðum voru spiluð fimm hjörtu
og unnin.
Spil nr. 21
Norður gefur —
Norður-Suður á hættu
Austur
S. 95
H. ÁGT2
T. K962
L. D85
Norður
Vestur
S. KDT87
H. 5
T. ÁD
L. T9652
S. 9
H. KT93
T. GT7653
L. K7
Austur
S. 63
H. ÁDG8764
T. 9842
L. -
Suður
S. ÁG542
H. 2
T. K
L. ÁDG843
Þetta spil er aftur andstæða
við hitt spilið. Hér voru tölurnar
allt frá 300 N-S upp í 1400 A-V.
Útkoman varð þessi:
3 hj. A-2x
4 sp. N-3x
3 hj. A-2x
5 tí. N-lx
4 sp. S-5x
4 1. S-3
5 I. S-4x
3 sp. S-2
3 gr. N-2
6 1. N-4x
6 1. N-4x
4 hj. A-lx
5 1. S-4x
300 NS
800 AV
300 NS
200 AV
1400 AV
300 AV
1100 AV
200 AV
200 AV
1100 AV
1100 AV
100 NS
1100 AV
590 AV
4 hj. Ax
Að lokum er hér svo spil nr. 70
þar sem aðeins einu pari tókst
að vinna sína lokasögn en það
voru Guðmundur Hermannsson
og Sævar Þorbjörnsson sem
spiluðu 3 grönd á spilið á meðan
salurinn spilaði 3 eða 4 spaða og
allt upp í 6 lauf fjórfölduð sem
urðu 3 niður og gáfu Austri og
vestri 1000 í skor.
Austur gefur —
Austur-Vestur á hættu.
Norður
S. DT8
H. DT9762
L. D963
Vestur
S. GT8542
H. 75
T. G854
L. G
Austur
Suður
S. 7
H. ÁG964
T. ÁK3
L. T842
S. AKD963
H. K32
T. -
L. ÁK75
Ásmundur Pálsson og Hjalti Elíasson urðu í 5. sæti Hér spila þeir
gegn Ólafi Valgcirssyni og Magnúsi Jóhannssyni.