Morgunblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
23
w,
0 Þessi ungmenni urðu stigahæst ís/num Ilokkum íSkólakeppni Frjálsíþróttasambands-
ins og hlutu hina fögru skildi sem þau halda á að launum. Hvert þeirra skartar einnig
guiipeningum sem þau hlutu fyrir sigur í einstökum keppnisgreinum. Á myndinni eru
(f.v.) Bryndís Hólm. Reykjavík, Kristín Halldórsdóttir, Norðurlandi eystra, Ármann Geirlaugsdóttir.
Einarsson, Austurlandi og Aðalsteinn Eifasson, Vestfjörðum. Skólakeppni FRÍ er
kjördæmakeppni úrvalsliða skólabarna í frjálsíþróttum, en keppnin var háð í Reykjavík
um helgina og segir nánar frá keppninni á bls. Ljósm. Mbl. Emilía
Skólamót Frjálsíþróttasambandsins:
Reykvíkingar unnu
eftir harða baráttu
0 Reykjavíkurliðið sem vann Skólakeppni FRÍ í frjáisíþróttum ásamt fyrirliða sínum. Á
myndinni eru (f.v.) Margrét Hallgrímsdóttir, Anthonu Karl Gregory, Ágúst Halivarðsson.
Sigurjón D. Karlsson, Þórður Þórðarson. Guðrún Ágústsdóttir, Bryndís Ilólm og Geirlaug
Ljósm. Mbi. Emilía.
ÞAÐ ríkti mikil stemmning í
Laugardalshöll og Baldurshaga á
laugardag þegar þar fór fram
skólakeppni Frjálsíþróttasam-
bands Islands, (FRÍ), í frjáls-
íþróttum. Á þessu móti leiddu
saman hesta sína átta ungmenni
úr hverju kjördæmi landsins,
fjórir piltar og fjórar telpur
yngri en 14 ára. Keppnisgleðin
skein úr augum þátttakenda og
hjá sumum keppenda var einbeit-
ingin og ósárhlífnin í keppninni
ekki síðri en hjá fullorðnu og
hörðnuðu keppnisfólki.
Stigakeppni kjördæmanna var
spennandi og skiptust nokkur
kjördæmi á að halda forustu allt
fram að síðustu grein. Lengi
framan af voru Vestfirðingar í
forystu, en lengi vel skildu aðeins
3—5 stig fyrstu fimm kjördæmin
að. Reykvíkingar reyndust sterk-
astir á lokasprettinum, en lið
þeirra varð að hafa sig allt við, þó
svo að það hafi verið talið sigur-
stranglegast fyriríram.
Nokkrir hinna ungu keppenda
náðu athyglisverðum árangri og
fram komu á mótinu fjölmargir
efnilegir íþróttamenn, enda vart
við öðru að búast þar sem þarna
var á ferðinni úrvalið úr hverju
kjördæma landsins. Athyglisverð-
ustum árangri náðu þau Bryndís
Hólm, Reykjavík, Aðalsteinn
Elíasson, Vestfjörðum og
Ármann Einarsson Austfjörðum.
Þá háðu þær Jóna B. Grétarsdótt-
ir, Reykjavík og Svava Grönfeldt,
Vesturlandi skemmtilega keppni
í spretthlaupinu, og eiga báðar
áreiðanlega eftir að láta að sér
kveða í frjálsíþróttakeppni því
árangur þeirra var góður.
Skólamót FRÍ var háð með
tilstyrk Áfengisvarnarráðs, sem
gaf styttu þá sem keppt var um
svo og alla verðlaunapeninga, en
fyrstu þrír í hverri grein hlutu
verðlaunapeninga. Auk þess fengu
stigahæstu einstaklingarnir í
hverjum flokki veglega og snotra
skildi til eignar og allir þátttak-
endur voru leystir út með sérstök-
um árituðum skjölum til minning-
ar um keppnina.
Mótið fór vel fram undir röggri
stjórn Sigurðar Helgasonar, for-
manns útbreiðslunefndar Frjáls-
íþróttasambandsins. Efnt var til
sérstaks verðlaunahófs að Skála-
felli á Hótel Esju að lokinni
keppni, og þágu börnin og aðstand-
endur súkkulaði og ljúffengar
tertur þar. Ekki var stemmningin
og kátínan síðri í verðlaunahófinu
en í sjálfri keppninni.
En lítum þá á úrslitin:
PILTAR A-FLOKKUR:
50 m hlaup: sek.
Jón L. Ríkharðss. VI. 6,9
Þórður Pálsson, Vf. 6,9
Einar Sv. Jónsson, A 7,0
Langstökk: mtr.
Ármann Einarsson, A 5,50
Halldór Áskelss., Nl.e. 4,82
Antony K. Gregory, Rvk. 4,80
Hástökk: mtr.
Ármann Einarsson, A 1,65
Þorbjörn Guðjónss., VI. 1,60
Þórður Þórðarss., Rvk. 1,50
Kúluvarp: mtr.
Þorbjörn Guðjónss., VI. 11,46
Þórður Pálsson, Vf. 11,25
Friðgeir Halldórss., Vf. 9,61
PILTAR B-FLOKKUR:
50 m hlaup: sek.
Aðalsteinn Elíass., Vf. 7,2
Sigurjón D. Karlss., Rvk. 7,4
Jón B. Guðmundss., S. 7,5
Langstökk: mtr.
Aðalsteinn Elíass., Vf. 4,51
Ágúst Hallvarðss., Rvk. 4,37
Stefán Kristjánss., Rnes. 4,33
Hástökk: mtr.
Sigfinnur Viggóss., A 1,45
Sigurj. D. Karlss., Rvk. 1,40
Mikael J. Traustas. Nl.e. 1,40
Kúluvarp: mtr.
Ágúst Hallvarðss., Rvk. 7,36
Sigfinnur Viggóss., Al. 6,97
Haukur Vagnsson, Vf. 6,55
TELPUR A-FLOKKUR:
50 m hlaup: sek.
Svava Grönfeldt, VI. 6,7
Stigahæstu
einstaklingarnir:
Drengir A-flokkur:
Ármann Einarsson, A
Drengir G-flokkur:
Aðalsteinn Elíasson, Vf.
Telpur A-flokkur:
Bryndís Hólm, Rvk.
Telpur B. flokkur:
Kristín Halldórsd. Nl.e.
Úrslit stigakeppninnar:
1. Reykjavík
2. Austurland
3. Vesturland
4. Vestfirðir
5. Norðurl. eystra
7. Reykjanes
6. Suðurland
8. Norðurl. vestra
Jóna B. Grétarsd. Rvk. 6,7
Hrönn Guðmundsd., Rnes. 7,0
Langstökk: mtr.
Bryndís Hólm, Rvk. 5,15
Svava Grönfeldt, VI. 4,92
Jóna B. Grétarsd., Rvk. 4,89
Hástökk: mtr.
Bryndís Hólm, Rvk. 1,56
Ingveldur Ingibergsd., VI. 1,45
Þuríður Jónsdóttir, Nl.e. 1,45
Kúluvarp: mtr.
Ylfa Einarsd., Vf. 7,58
Anna M. Arnfinnsd., A 6,90
Þuríður Jónsd., Nl.e. 5,75
TELPUR B-FLOKKUR:
50 metra hlaup: sek
Geirlaug Geirlaugsd. Rvk. 7,2
Helga Magnúsd. A 7,5
Ingibjörg Ingjaldsd. VI. 7,5
Langstökk: mtr.
Kristín Halldórsd. Nl.e. 4,21
Linda B. Guðmundsd. S. 3,82
Vigdís Hrafnkelsd. A 3,60
Hástökk mtr.
Kristín Halldórsd. Nl.e. 1,35
Vigdís Hrafnkelsd. A 1,30
Heiða B. Sturlud. R.nes 1,25
Kúluvarp: mtr.
Sigurlín Pétursd. Vf. 6,09
Guðrún Magnúsd., Nl.e. 5,91
Eydís Eyþórsd. VI. 5,70
Boðhlaup:
1. Reykjavík
2. Vesturland
3. Austurland
4. Suðurland
5. Norðurland eystra
6. Vestfirðir
7. Norðurland vestra
8. Reykjanes
miMJANLS