Morgunblaðið - 04.04.1979, Side 1

Morgunblaðið - 04.04.1979, Side 1
■ 64 SÍÐUR 79. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hættan liðin hjá í Harrisburg Harrisburg, Moskvu, Seoul, Tókýó, 3. aprfl. AP. Reuter. TALIÐ er að nú sé liðin hjá öll hætta á að sprenging geti orðið í kjarnorkuverinu T Harrisburg. Sérfræðingar hafa náð yfirhöndinni í viðureigninni við kjarnaofninn og tekist hefur að eyða að mestu vetnisskýi sem myndaðist innan ofnsins. Geislun er nú hverfandi í verinu. í liósi þessarar þróunar hafa áætlanir um meiri háttar brottflutning fólks af svæðinu verið lagðar á hilluna, og íbúar í næsta nágrenni við orkuverið hafa margir hverjir snúið til heim- kynna sinna. Stjórnvöld í Suður-Kóreu skýrðu frá því í dag að kjarnorkuverið í borginni Kori við suðausturströnd landsins hefði ekki verið starfrækt frá 27. marz sl. er geislavirkt kæli- vatn lak frá stöðinni vegna biiunar í kælikerfi. Sovézkir embættismenn sögðu í dag að sams konar óhapp og henti í kjarnorkuverinu í Harrisburg gæti ekki gerzt í sovézkum orkuverum. Kælikerfi sovézkra kjarnorkuvera væru betur úr garði gerð og öryggis- mál væru meira í heiðri höfð í Sovétríkjunum. Mikið hefur verið gert úr slysinu í Harrisburg í sovézk- um fjölmiðlum og hefur þungamiðj- an í allri þeirra frásögn verið „að atburðir af þessu tagi gætu ekki gerzt hér“. Frankfurtflugvöllur: Sprenging i póstpoka Frankfurt, 3. apr. Reuter. TÍU flugvallarstarfsmenn slösuðust, þar af tveir lífshættu- iega, 1 morgun, þegar öflug sprengja sprakk í póstpokageymsiu í flugstöðinni í Frankfurt. Er talið að pokinn með sprengjunni hafi átt að fara um borð í EL AL vél til ísraels. Talsmaður saksóknara f Frankfurt sagði í kvöld að ekkert benti til þess að v-þýzkir hryðju- verkamenn hefðu verið að verki, og trúlegra að einhver samtök Palestínumanna bæru ábyrgð á þessu. Eins og fyrr sagði eru tveir í lífshættu og missti annar handlegg við atburðinn, tveir til viðbótar eru alvarlega skaddaðir. Hinir sex eru minna meiddir. Pokinn með sprengjunni var ásamt öðrum varningi á vagni sem átti að fara að aka út í hinar ýmsu flugvélar. Öryggissveitir komu tafarlaust á vettvang og var flugvallarsvæðið girt af að mestu um hríð og hætt var öllum póst- og bögglasendingum frá flugvellinum í dag. Mohammed Reza fyrrverandi íranskeisari sést hér með konu sinni og tveimur sonum á leið frá húsi sem þau dvelja í á Paradísareyju skanimt fra Nassau á Bahamaeyjum. Fjölskyldan hefur verið á Bahamaeyjum síðan á föstudag og talið að þau hyggi á búsetu í Suður-Ameríku. Dennis Healy lagði fram fjár- lagafrumvarp í 15. sinn London, 3. aprfl. Reuter. DENNIS Ilealy, sem verið hefur fjármálaráðherra í Bretlandi lengur en nokkur annar frá lokum seinni heimsstyrjaldar. lagði í dag fram fjárlagafrum- varp brezku stjórnarinnar og var það í 15. sinn sem hann innir það verk af hendi. Þar sem þing verður rofið í Bretlandi innan fárra daga og efnt til nýrra kosninga 3. maí næst- komandi, en talið að þá fari núverandi stjórnarandstaða með sigur af hólmi, hafði Healy samráð við Ihaldsflokkinn áður en hann lagði frumvarp sitt fram. Að sögn sérfræðinga var aðeins að finna eina umtalsverða kjara- bót í frumvarpi Healys, en það var áætlun um að tekjuskattar hinna lægst launuðu yrðu lækkaðir um níu af hundraði frá 1. ágúst næstkomandi. Búist er við því að næsta stjórn leggi fram nýtt fjárlagafrumvarp fljótlega að loknum kosningum og er talið að þessi skattalækkun verði þá jafn- vel afnumin. Myndin sýnir hvernig umhorfs var í póstpokageymslunni í flugstöð- inni í Frankfurt örstuttu eftir að sprengingin varð. Fremst á myndinni til vinstri sjást skór af manni þeim sem stóð við vagninn þegar sprengjan sprakk. Þeyttist maðurinn langar leiðir. Næsti fundur Sadats og Begins síðla í maí Kairó, 3. apr. Reuter. AP. NÆSTI fundur Sadats Egypta- landsforseta og Begins forsætisráð- herra ísraels verður í bænum E1 Arish á Sinaiskaga hinn 27. maí n.k. en þá afhenda ísraelar bæinn f hendur Egypta og er það hálfum mánuði fyrr en upphaflega var samið um. Þar með verða landa- mæri rfkjanna opnuð. Begin forsæt- isráðherra sagði frá þessu skömmu áður en hann hélt heim til ísraels í dag, þriðjudag, eftir rúmlega sólar- hringsdvöl í Egyptalandi. Hann sagði einnig að þeir Sadat myndu siðan fara saman til ísraelsku borgarinnar Beersheva í Negeveyði- mörkinni. A þessum fundi hyggjast þeir tala um áform f sambandi við beinar flugsamgöngur milli Kairó og Tel Aviv, svo og siglingar milli landanna tveggja. Begin sagði að Ghali utanríkisráð- herra Egyptalands myndi koma til Israels bráðlega með afrit af samn- ingi landanna á arabisku og Moshe Dayan færi sömu erinda til Egypta- lands með hebresku útgáfuna. Begin sagði aðspurður að við- ræður um sjálfstjórn til handa Palestínumönnum sem búa á Vestur- bakkanum og á Gaza myndu hefjast mánuði eftir staðfestingu samnings- ins. Yigal Yadin, aðstoðarforsætis- ráðherra Israels og víðfrægur forn- NATO-ríki láti mál bandalagsins til Briissel, 3. aprfl, AP. ALEXANDER Haig, yfirmaður alls herafla NATO í Evrópu, hvatti öll aðildarlönd Atlantshafsbandalagsins (NATO) í grein sem hann reit í Le Soir til að veita Tyrkjum efnahagsaðstoð sem nauðsynleg er til að koma í veg fyrir hrun í landinu. Ennfremur hvatti Haig aðildarlönd NATO til að láta sig öllu meira skipta þróun mála í iöndum utan bandaiagsins vegna vaxandi umsvifa Sovétríkjanna þar. Haig sagði að ýmis þróun utan ríkja NATO varðandi hagsmuni bandalagsins og því væri meiri nauðsyn nú en nokkru sinni fyrr að lönd NATO létu slík mál til sín taka. Ekki væri einvörðungu hægt að gera ráð fyrir því að Bandaríkin létu sig skipta mál af þessu tagi. I þessu sambandi benti Haig á að á síðastliðnu ári hefðu Afghanistan, Suður-Jemen og Eþíópía eflt bandalag sitt við Sovétríkin. Sovétmenn hefðu sett á fót flotastöðvar og flug- stöðvar í Aden og í Eþíópíu. Víetnamar hefðu ráðist inn í Kambódíu með tilstyrk Sovét- manna og Suður-Jemenar hefðu ráðist inn í Norður-Jemen, einnig með tilstyrk Sovétmanna. „Við getum ekki haldið áfram að loka augum okkar fyrir þeim afleiðingum sem umsvif Sovét- manna eiga eftir að hafa í för með sér,“ reit Haig. Hann sagði utan taka að aðgangur vestrænna ríkja að ýmsum auðlindum væri í hættu vegna umsvifa Sovétmanna. Sovétmenn ættu einnig auðvelt með að trufla mikilvægar sigl- ngaleiðir þar sem þeir hefðu víða sett upp röð af flotastöðv- um í þriðja heiminum. Loks væri hátterni Sovétmanna á allan hátt til þess fallið að spilia vinsamlegum tengslum ýmissa þróunarríkja og ríkja NATO. „Það er kominn tími til að ríki NATO breyti um stefnu og láti af ríkjandi þankagangi. Dreifa þarf ábyrgðinni í ríkari mæli meðal vestrænna ríkja svo að árangur megi nást í þeirri við- leitni að hefta heimsveldi Sovét- ríkjanna," sagði Haig. leifafræðingur hefur verið boðið í Egyptalandsför. Þeir Begin og Sadat sátu á fundi í morgun og virtist mun léttara yfir mönnum en í gær og sömuleiðis gerðu egypsk blöð nú meira úr heimsókn Begins en þegar hann kom í gær. Israelskir fánar blöktu víða þar sem Begin fór um og ísraelski forsætisráðherrann var við brottför sína margorður um hversu frábærar viðtökur hann hefði fengið í Egyptalandi. Sadat sagði að hann væri einnig hinn glaðasti fyrir því hversu farsæl byrjunin á samskipt- um ríkjanna hefði orðið og ítrekuðu þeir síðan að áfram yrði haldið á sömu braut og náið samráð yrði á millum þeirra. Sadat sagði aðspurð- ur að samkomulagið við Israela hefði leitt til þess að ýmsar Arabaþjóðir ætluðu bersýnilega að beita hörku, m.a. á efnahagssviðinu, svo og póli- tísku og diplómatísku og nánast allir sendiherrar Arabaríkja fóru frá Kairó áður en Begin kom þangað. Sadat var kampakátur og sagði að hann væri orðinn ýmsu vanur af hálfu Arabaþjóðanna sumra og kippti sér ekki upp við það. Thatcher vill ekki í kappræðu London, 3. aprfl, Reuter. TALSMAÐUR James Callaghans forsætisráðherra Breta sagði í dag, að Margaret Thatcher leiðtogi Ihaldsflokksins hefði ekki viljað þiggja boð um kappræður við Callaghan í beinni sjónvarpsút- sendingu LWT-sjónvarpsstöðvar- innar er hafði boðið köppunum báð««» til þessa leiks. Talsmaður sjónvarpsstöðvarinnar staðfesti í kvöld að Thatcher hefði hafnað boðinu. Callaghan hafði sent já- kvætt svar um þátttöku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.