Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
84. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretland:
Kosningabaráttan
hafin og enn eykst
fylgi Ihaldsflokks
Vopnaðir menn úr byltingarsveitunum við lík Hoveida fyrrverandi forsætisráð-
herra írans. Myndin var tekin örstuttu eftir að hann var líflátinn á sunnudag.
Líflát Hoveida vekur
hrylling utan írans
— og sex til viðbótar skotnir í gær
London, 9. apríl. AP.
JAMES CallaKhan forsætisráð-
herra Breta hót kosningabaráttu
sína í dag með því að gefa þá
yfirlýsingu að hann hygðist ekki
Finnland:
Holkeri reynir
stjórnarmyndun
Helsinki, 9. apríl. AP.
KEKKONEN Finnlandsforseti
fól í dag Barri Holkeri, for-
manni Ihaldsflokksins þar í
landi, að gera tilraun til að
mynda starfhæfa meirihluta-
stjórn.
Flokkur Holkeris vann
mikinn sigur í kosningunum í
sl. mánuði. Holkeri féllst á að
verða við tilmælum Kekkonens
en lét hafa það eftir sér, að
verkefnið væri mjög erfitt og
ekki ljóst hvort það væri ger-
legt við núverandi aðstæður að
mynda meirihlutastjórn í land-
inu.
Kekkonen ræddi fyrst við
Ahti Pekkala, talsmann
finnska þingsins, og síðan við
fulltrúa allra þeirra átta flokka
sem eiga fulltrúa á þinginu.
Slysið á Florida:
Fyrst eftir að slysið varð sögðu
embættismenn að útlitið hefði verið
hið alvarlegasta og eiturgufurnar
nálguðust bæinn óðfluga. Um hríð
var búizt við að rýma þyrfti enn
stærra svæði. Vindáttin blés þá
eiturgufunum í áttina að bænum.
Talsmaður umhverfisyfirvalda í
láta skoðanakannanir og niðurstöð-
ur þeirra koma sér úr jafnvægi. Um
það leyti sem Callaghan gaf þessa
glaðbeittu yfirlýsingu lágu fyrir
niðurstöður úr nýjustu skoðana-
könnunum þess efnis að fhalds-
flokkurinn hefði nú allt að 21%
meira fylgi en Verkamannaflokkur-
inn, en í annarri skoðanakönnun
var meirihluti íhaldsflokksins 13%.
Engu að síður kemur fram í þessum
skoðanakönnunum að töluvert
skortir á að Margaret Thatcher
forvfgismaður íhaldsflokksins njóti
ámóta trausts meðal kjósenda og
James Callaghan.
Thatcher mun hefja kosningba-
baráttu sína á miðvikudag og birta
þá helztu baráttumál íhaldsflokks-
ins og efnir síðan til blaðamanna-
fundar.
Verkamannaflokkurinn hefur þeg-
ar lagt fram fyrirheit og er þar lögð
áherzla á að draga úr verðbólgu og
atvinnuleysi, minnka skatta á lág-
launafólki, auka framlög til félags-
mála og leggja á sérstakan hátekju-
mannaskatt.
Callaghan sagði á blaðamanna-
fundi í dag að Verkamannaflokkur-
inn myndi sem fyrr leggja allt kapp
á að bæta hag þeirra sem við bágust
kjör byggju í þjóðfélaginu, og einnig
væri eðlilegt að hlúa að ungu fólki
sem væri að koma undir sig fótunum
í námi ellegar íbúðakaupum.
Atlanta, George Moein, segir að
þetta sé með meiri slysum sem geti
orðið af þessu tagi. Um 28 vagnar
fóru af sporinu við á á fenjasvæði
sem erfitt er að komast að. Einn
vagninn, hlaðinn banvænu eitri,
hangir á brú.
Teheran, 9. aprfl. AP.
AFTAKA Hoveida fyrrv.
forsætisráðherra írans um
helgina hefur vakið hrylling
manna víðs vegar og verið ákaft
fordæmd utan landsins og þykir
mönnum sýnt að meira cn lítið sé
bogið við störf hinna svokölluðu
byltingardómstóla Khomeinis.
Þeir héldu enn áfram uppteknum
hætti í dag og voru sex menn til
viðbótar skotnir í dag þar á
meðal Raabi, fyrrv. yfirmaður
flughers landsins. sem hafði þó
gengið í lið með byltingarsveitun-
um fyrir tveimur mánuðum.
Óstaðfestar fregnir sögðu að fjór-
ar aftökur til viðbótar hefðu
einnig farið fram í morgun.
Líflát Hoveida kom mjög á óvart
og nokkru eftir að það var kunn-
gert birti stjórn Bazargans til-
kynningu þar sem sagði að henni
hefði verið ókunnugt um það.
Síðdegis lét Entezem aðstoðarfor-
sætisráðherra frá sér fara aðra
orðsendingu þar sem sjá mátti að
enn hafði ríkisstjórnin verið kúguð
til hlýðni við byltingarsveitirnar,
og var þar farið reiðilegum orðum
um gagnrýni erlendis frá. Orð-
rómur er nú á kreiki í Teheran um
að Bazargan sé staðráðinn í að
segja af sér og dómsmálaráðherr-
ann hafi reynt það um helgina en
ekki verið tekið mark á beiðni
hans.
í frétt AP í kvöld sagði að
samkvæmt hinum nýju lögum ráði
dómari í hverju einstöku máli
hvort hann leyfir að réttarhöld sé
opin eður ei. Fréttastofan segir að
ýmsir íranir úr millistéttum sem
talað hafi verið við hafi tjáð
þungar áhyggjur sínar vegna þess
hve mikil leynd væri yfir öllum
réttarhöldum og flest benti til þess
að sakborningar fengju takmark-
aða eða enga vörn fyrir réttinum.
Sjá bls. 46 „Hendur mínar
cru ekki ataðar blóði“ og bls.
47 „Efasemdir um réttiæti
írönsku byltingarinnar“.
Egyptaland:
Þj óðar atk væði
um samninginn
Eiturgufurnar
gufuðu upp
Crestview, Florida, 9. aprfl. AP.
EITURGAS barst f dag með vindi í nánd við bæinn Crestview í Florida frá
járnbrautarlest. hlaðinni eiturefnum, sem fór út af sporinu. Yfirvöld
ákváðu að stækka svæði sem fólk var flutt af. En í kvöld breytti um vindátt
og um 4500 manns sem fyrr f dag höfðu verið fluttir frá heimilum sfnum í
gær vegna slyssins sem var um 6 km frá bænum, var ieyft að halda til sfns
heima á ný.
Ss Skírlífi presta
gjöf guði til dgrðar
En 1% gefst árlega upp á einlífinu og hættir prestskap
PiiaKaröi, 9. aprfl. AP.
JÓHANNES Páll páfi II sagði í
dag í bréfi er hann sendi
biskupum og prestum, að skír-
lífi presta væri „dásamleg gjöf
guði til dýrðar“ og sagði að
ekki kæmi til mála að prestar
yrðu leystir frá heiti sínu.
Hann vék að þeim óróa sem
víða gætti meðal presta vegna
þessa og sagði að fráleitt væri
að slaka á hvað þessu viðkæmi
enda væri það engin lausn
og færði ekki störf kaþólsku
kirkjunnar til nútímalegra
horfs. Þvert á móti myndi það
veikja stöðu hennar stórlega.
Hvatti páfi biskupa til að vera
vel á verði og reyna eftir megni
að sjá til þess að prestar gerðust
ekki brotlegir hvað þetta
snertir. Hann sagðist gera sér
grein fyrir því að skortur á
kaþólskum prestum væri meiri
nú, en það mætti aldrei
sýna undanslátt í þessu efni,
enda enginn maður þvingaður
til að gerast prestur og undir-
gangast heitið. Þeir sem héldu
því fram hefðu annað tveggja
misskilið köllun sína eða hefðu
vonda trú.
Skírlífiskvöð presta er talin
vera meginástæðan fyrir því að
æ færri vilja takast starfið á
hendur og æ fleiri gefast upp og
segja því lausu vegna þess álags
sem skírlífisheitinu fylgir. Árið
1965 hættu eitt þúsund prestar í
starfi, flestir af þessum
orsökum að sögn AP, en síðustu
ár hafa árlega um fjögur þúsund
kaþólskra presta látið af starfi,
það er um 1 prósent kaþólskra
presta.
í Bandaríkjunum einum
hafa um átta þúsund horfið frá
á þessum þrettán árum.
Kairó, 9. aprfl. Reuter. AP.
FRIÐARSAMNINGURINN við
ísraela verður lagður undir dóm
egypsku þjóðarinnar f þjóðarat-
kvæði væntanlega mjög fljótlega og
er búizt við að mikill meirihluti
gjaldi jáyrði sitt við honum. Svo
segir í fréttastofufregnum frá
Kaíró í dag og blaðið A1 Ahram
hefur þetta fyrir satt, en af opin-
berri hálfu hefur ekki verið staðfest
að þessi verði niðurstaða.
Hins vegar hóf egypska þingið að
ræða samninginn í dag, sextíu þing-
menn höfðu beðið um orðið þegar
síðast fréttist og ákvað forseti þings-
ins að takmarka ræðutíma hvers og
eins við tíu mínútur. Verði úr að
samningurinn verði borinn undir
þjóðaratkvæði er‘ mjög trúlegt að
Sadat tilkynni það á morgun eða
miðvikudag og sumir spá því að
atkvæðagreiðsian yrði þá haldin um
helgina. Sérfræðingum ber ásamt
um að Sadat myndi enn styrkja
stöðu sína gegn óvildarmönnum í
öðrum Arabaríkjum með því að sýna
fram á að meirihluti Egypta stæði
einhuga að baki honum varðandi
þessa samningsgerð. Af 360 fulltrú-
um á egypska þinginu eru 312 úr
I flokki Sadats, Lýðræðislega þjóðar-
| flokknum.
Pakistanar
neita áreitni
London, Islamahad, 9. aprfl.
ÚTVARPIÐ í Kabul í
Afganistan sagði um helgina að
afganískir hermenn hefðu verið
felldir í bardaga við hermenn
frá Pakistan sem hefðu farið
yfir landamæri ríkjanna og
gert hríð að fjórum stöðvum á
afganísku landi. Var sagt að
síðan hefði tekist að reka
Pakistana aftur yfir landamær-
in og hefðu þeir mátt þola
mikið mannfall. Var send við-
vörun til stjórnvalda í Pakistan
um að það myndi verst fyrir
þau ef slíkri árásarstefnu yrði
fram haldið.
í fréttum frá Pakistan í
kvöld, mánudag, sagði að þessi
frétt v.æri uppspuni frá rótum