Morgunblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
3
Paradís-
arheimt
undirbúin:
MIKIÐ verður um að vera í
kvikmyndatöku hér á landi í
sumar. Nefna má að norð-
ur-þýzka sjónvarpið tekur
m.a. hér á landi kvikmynd
eftir Paradísarheimt Hall-
dórs Laxness í samvinnu við
Norrænu sjónvarpsstöðvarn-
ar. Norska og íslenzka sjón-
varpið taka í sameiningu
kvikmynd um Snorra Sturlu-
son og þá aðallega í Reyk-
holti og fjölmargir innlendir
aðilar undirbúa nú kvik-
myndatöku í sumar, þ.á m.
Ágúst Guðmundsson, Indriði
G. Þorsteinsson og fleiri eftir
sögunni „Land og synir“.
Hins vegar eru litlar líkur
Grindin er komin upp og með hverjum deginum kemur heillegri mynd á Hlíðabæinn, sem þeir Björn
Björnsson og Helgi Skúlason standa við á myndinni. (Ljósm. Kristján).
Mikil leitað Ijóshœrðri ungri stúlku og
þrekvöxnum hesta- og kvennamanni
taldar á því að kvikmynd
eftir sögu Per Olof Sund-
manns, Sagan af Sámi, verði
tekin hér á landi í ár. Nátt-
úruverndarráð synjaði þeim
þýzku aðilum, sem ætluðu að
taka myndina, um leyfi til
afnota af Skaftafelli, en ráðið
hefur nú verið beðið að end-
urskoða þá afstöðu sína. Fá-
ist ekki leyfi til að mynda í
Skaftafelli verður myndin
sennilega ekki tekin.
Undirbúningi miðar vel að
kvikmyndatökunni af Para-
dísarheimt, og vinna nú um 15
manns í fullu starfi við leik-
myndagerð, smíðar og muna-
söfnun. Kvikmyndatakan
hefst í Kaupmannahöfn í
byrjun júní, en hér á landi
verður kvikmyndað frá því í
miðjum júnímánuði fram í
ágúst. I Utah í Bandaríkjun-
um verður síðan unnið við
kvikmyndatöku í september.
Teikning af Hlíðabænum, þannig verður hann útlits í kvikmynd-
inni.
Að auki verður e.t.v. eitthvað
af útiatriðum tekið í Edin-
borg, en inniatriði verða öll
tekin í Reykjavík. Leigð hefur
verið mikil skemma í því
augnamiði.
Hlutverkaskipan hefur ekki
verið ákveðin en Helgi Skúla-
son leikstjóri og aðstoðar-
maður Rolf Hádrichs leitar nú
ákaft að ungri stúlku, ljós-
hærðri og hugljúfri, sem leik-
ið gæti Steinu dóttur Steinars
bónda í Hlíðum undir Steina-
hlíðum. Þegar hefur verið
rætt við á annað hundrað
stúlkur, þær myndaðar og
teknar af þeim prufuupptök-
ur, til að finna þá einu réttu,
en ekki tekist enn. Þá vantar
einnig stóran, þrekvaxinn
hesta- og kvennamann í hlut-
verk Björns á Leirum. Hlut-
verk Islendinga í sögunni
verða í höndum íslenzkra leik-
ara.
Maraþonskákin:
Tefldu
720
skákir
NÍU skákmenn úr Búnaðarbanka
(slands ásamt einum gesti, Ásgeiri
Þ. Árnasyni Reykjavíkurmeistara.
áttu með sér maraþonkeppni í
skák um helgina, eins og greint
var frá í Mbl. á sunnudag. Hófst
keppnin kl. 18 á föstudagskvöld og
lauk kl. 19 á laugardag eftir 25
tíma viðureign. Á þessum tíma
voru tefldar 720 skákir og 142
umferðir.
Að sögn Guðmundar Sigþórsson-
ar hafði hver skákmaður 5 mínútna
umhugsunartíma og tók því hver
umferð 10—11 mínútur að meðal-
tali. Flesta vinninga hlaut Bragi
Kristjánsson, 119'/2, í öðru sæti
varð Ásgeir Þ. Árnason með 106
vinninga og þriðji varð Jón Krist-
insson og hlaut hann 102'/2 vinning.
Guðmundur Sigþórsson sagði, að
forseti Skáksambands íslands, Ein-
ar S. Einarsson, hefði litið við hjá
keppendum á laugardag og látið þau
orð falla, að sennilega væri þar um
heimsmet að ræða, ekki hefðu svo
margir keppendur verið í móti er
staðið hefði svo langan tíma. Þá
sagði Guðmundur, að svo virtist
sem keppni skákmannanna hefði
haft góð áhrif á umferð í miðbæn-
um á föstudagskvöldið, unglingarn-
ir hefðu staldrað við og virt þá fyrir
sér, enda hefðu þeir setið sem næst
gluggum til að áhorfendur gætu
fylgst með keppninni.
Sex sækja um
prófessors-
embætti í sögu
NÝLEGA er runnin út umsóknar-
frestur um prófessorsembætti í
sögu við Háskóla íslands. Sex
menn hafa sótt um embættið:
Björn Teitsson, Egill J. Stardal,
dr. Gunnar Karlsson, Helgi
Þorláksson, Ólafur Ásgeirsson og
dr. Sveinbjörn Rafnsson. Að sögn
Birgis Thorlaciusar ráðuneytis-
stjóra menntamálaráðuneytisins
skipa Háskólinn og ráðuneytið
dómnefnd sem fjalla mun um
hvort umsækjendur séu hæfir til
að gegna embættinu og eftir að
viðkomandi deild hefur gefið sína
umsögn veitir ráðherra embættið.
Netaskemmdir af völdum haflss:
Nota stuðpúða svo að
netin fari undir ísinn
HAFÍS hefur valdið sjómönnum
og útgerðarmönnum talsverðum
erfiðleikum að undanförnu, eins
og komið hefur fram í fréttum.
Hafa meðal annars verið allmikil
brögð að því, að net hafi skemmst
af völdum íss, auk þess sem þau
hefur rekið langar leiðir frá þeim
stöðum sem þeim hefur verið lagt.
Menn hafa þó fundið upp að-
KLAUSTURHÓLAR Guðmundar
Axelssonar efndu til bókaupp-
boðs í Reykjavík sl. laugardag og
voru þar í boði 200 númer og
seldust þau öll. Að sögn Guð-
mundar Axelssonar var hæst verð
greitt fyrir Jarðabók Árna Magn-
ússonar, 1. bindi, eða kr. 170
þúsund, en verð er tilgreint hér
án söluskatts.
Þá fór Kennaratal á kr. 51
þúsund, Niðjatal Þorvalds Böðv-
gerðir við að komast hjá erfiðleik-
um af þessum sökum, til dæmis
sagði Tryggvi Finnsson hjá Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur í samtali
við Morgunblaðið, að þekkt aðferð
væri að hafa belgina það loftlitla,
að þegar ís leggst yfir hanga þeir
ekki uppi, heldur er flotmagnið
það lítið að þeir sökkva og fara
undir ísinn. Þá nær ísinn ekki að
arssonar á kr. 35 þúsund, handrit
eftir Guðmund Hannesson með
endurminningum úr Skagafirði á
kr. 16 þúsund og ævisaga og
niðjatal Gríms Gíslasonar frá
Óseyrarnesi á kr. 26 þúsund.
Þá seldist ævisaga Árna Þórar-
inssonar á 37 þúsund, dönsk-ís-
lenzk orðabók Sigfúsar Blöndals á
60 þúsund, Borgir, tímarit, 2 hefti
á 31 þúsund og 1.—28. árgangur
Heima er bezt fór á kr. 60 þúsund.
draga trossurnar með sér. Hefur
þessi aðferð verið notuð lengi við
þessar aðstæður, en hefur nú verið
endurbætt.
Eru þá notaðir svokallaðir stuð-
púðar, en það eru langir og mjóir
belgir, sem eru endranær settir á
milli skips og bryggju. Eru þeir þá
þyngdir þannig, að þeir fljóta
aðeins til hálfs, og eru þá aðeins
um 20 sentimetrar upp úr sjónum.
Belgirnir leggjast því undir ísinn
þegar hann kemur og koma upp
aftur í auðum sjó. Er þetta því
endurbætt aðferð frá því sem var,
er belgirnir voru hafðir loftlitlir
eða loftlausir.
Með þessari aðferð er sjómönn-
um fært að leggja net sín þrátt
fyrir ís, þó vissulega fylgi því
alltaf nokkur áhætta.
Bókauppboð Klausturhóla:
Jarðabók Áma Magn-
ússonar á 170 þúsund
Opið til
kl. 8
annað
kvöld
ogtil
hádegis
laugardag
fyrir páska