Morgunblaðið - 10.04.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
27
Þannig féllu atkvæðin:
Alþýðubandalag
klofið um efna-
hagsfrumvarpið
EFNAHAGSFRUMVARP forsætisráðherra — með þeim breytingum sem
stjórnarflokkarnir höfðu komið sér saman um — var samþykkt sem iög frá
Alþingi í neðri deild sl. laugardag með 21 atkvæði gegn 13. Gegn
frumvarpinu í heild greiddu atkvæði viðstaddir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins. Tveir þingmenn Alþýðubandalags, Kjartan Olafsson og Svava
Jakobsdóttir, sátu hjá um frumvarpið í heild en greiddu atkvæði gegn
stöku frumvarpsgrein. Enda þótt þingmenn Sjálfstæðisflokks hafi greitt
atkvæði gegn frumvarpinu í heild vóru flestar frumvarpsgreinar
samþykktar án mótatkvæða. Atkvæðagreiðslan sem og greinargerðir
einstakra þingmanna fyrir atkvæðum þeirra, vóru hinar sögulegustu.
Fyrsti kaflinn, sem er nokkurs
konar stefnumörkun í efnahagsmál-
um, er í tveimur greinum. Fyrri
greinin var samþykkt með 22 sam-
hljóða atkvæðum, önnur greinin með
23. Annar kaflinn (3.-5. gr.), um
samráð stjórnvalda við samtök
launafólks, var samþykktur með 23
samhljóða atkvæðum. Þriðji kaflinn
(6.—13. gr.), um ríkisfjármál, var
einnig samþykktur með 23 sam-
hljóða atkvæðum, utan það að 9. gr.,
sem takmarkar nokkuð niður-
greiðslu landbúnaðarafurða, var
samþykkt með 22 samhljóða atkv.
Kjartan Ólafsson (Abl) sat hjá.
Fjórði kaflinn, um fjárfestingar- og
lánsfjáráætlanir (14.—21. gr.), var
samþykktur með 23 samhlj. atkvæð-
um. Sömuleiðis fimmti kaflinn, um
„framfarir í atvinnuvegum og hag-
ræðingu í atvinnurekstri" (22.-27.
gr.). Sjötti kaflinn, um „peninga og
lánamál" (28.-32. gr., ásamt ákv. til
bráðabirgða), einnig, nema hvað 31.
gr., um rekstrargrundvöll útflutn-
ingsatvinnuvega, hlaut 22 atkv. (KÓ
sat hjá). Sjöundi kaflinn, um verð-
tryggingu sparifjár og lánsfjár, var
samþykktur með 23 atkvæðum.
Áttundi kaflinn, um verðbætur á
laun, leiddi til klofnings í þingliði
Alþýðubandalags. Tvær fyrstu
Kvenfélag Bisk-
upstungna 50 ára
KVENFÉLAG Biskupstungna er
50 ára um þessar mundir og
heldur upp á afmælið með sam-
sæti í Aratungu síðasta vetrardag
kl. 21. Þangað er boðið núverandi
og fyrrverandi félögum og öllum
íbúum sveitarinnar. Þar verður
saga félagsins rakin f máli og
myndum og fleira verður til
skemmtunar.
Kvenfélag Biskupstungna var
stofnað 24. janúar 1929. Fyrsti
formaður félagsins var frú Anna
Eggertsdóttir í Laugarási. Eftir að
hún fluttist burt úr sveitinni árið
1932 tók frú Sigurlaug Erlends-
dóttir við og var formaður í 23 ár.
Núverandi formaður Kvenfélags-
ins er Ágústa Ólafsdóttir í Útihlíð.
greinar kaflans, 48. og 49. gr., um
verðbótavísitölu, vóru samþykktar
með 23 atkv. samhljóða. Fyrsta mgr.
og fyrsti töluliður 50. gr., um áhrif
almennra launahækkana á verð bú-
vöru, var samþykkt með 21 atkvæði
gegn 2 (Kjartans Ólafssonar og
Svövu Jakobsdóttur). Annar tölulið-
ur greinarinnar um áhrif sérstakra
skatta til að greiða niður olíuverð á
vísitölu var samþykktur með 23
atkv., en þriðji töluliður, um vísitölu-
áhrif áfengis- og tóbaksverðs, var
samþykktur með 21 atkvæði gegn 2,
hinum sömu og áður. Fyrsta mgr. 51.
gr., um viðskiptakjaravísitölu, var
samþykkt með 21 atkvæði gegn 1
(nafnakall), KÓ. Síðari málsgrein
með 23 atkv. 52. gr. hlaut og 23
atkvæði.
í ákvæðum til bráðabirgða var
fyrsta málsgrein og töluliður I, um
að grunnkaup haldist óbreytt þar til
um annað verði samið, samþykkt
með 23 atkv. gegn 1 (nafnakall),
Haildórs Blöndals (S). Liður II um
viðskiptakjaravísitölu, útreikning,
var samþykktur með 23 atkvæðum
en með athugasemdum í greinargerð
þriggja þingmanna. Liður III, um elli
og ororkulaun, hlaut einnig 23 at-
kvæði.
Níundi kaflinn, um vinnumarkaðs-
mál, var samþykktur með 22 atkvæð-
um samhljóða; utan það, að þing-
menn Sjálfstæðisfl., 13 talsins,
greiddu atkvæði gegn 55. gr., um
tilkynningarskyldu með 2ja mánaða
fyrirvara um samdrátt í atvinnu-
rekstri, sem þeir töldu ófram-
kvæmanlega, þar sem enginn gæti
séð fyrir samdrátt af aflabresti eða
öðrum hliðstæðum orsökum. Kaflinn
um verðlagsmál, þ.e. breyting á
lögum um frjálsa verðmyndun, sem
taka átti gildi 1. nóv. nk., þ.e. að
ganga verulega skemmra í frjáls-
ræðisátt en þau lög ákveða, var
samþykktur með 22datkv. gegn 12
(sjálfstæðismenn). Ellefti kaflinn
um jöfnunarsjóði sjávarútvegs, var
samþykktur með 23 atkvæðum,
nema 64. gr., sem fjallar um sérstaka
sköttun þorskveiða, sem samþykkt
var með 22 atkvæðum gegn 14 (13
sjálfstæðismenn og Kjartan Ólafs-
son).
Greinargerðir einstakra þing-
manna fyrir atkvæði sínu eru raktar
á bls. 29 í dag.
Þorkell Sigurbjörnsson:
Gagnrýni tækni-
legar samgöngur
Það er nú meira fólkið þessir
„sjálfvöldu gagnrýnendur", sem
ryðjast óbeðnir fram á síður
blaðanna til þess eins að fara
með fleipur. Svo voga þeir sér að
segja „mér fannst“, „sýndist",
„heyrðist" — án þess að kanna
skoðanir allra annarra áheyr-
enda og vera sammála þeim
öllum. Þegar þeir eru viðstaddir
frumsýningar, þá eru þeir svo
fávísir, að þeir vita ekki, að
svoleiðis nokkuð hefur gerst
áður!
Ef blaðamaður segir t.d. frá
slysi í gær, má hann til með að
tíunda öll slys, sem sögur fara
af, svo að ekki hallist á neinn og
sagnfræðinni sé fullnægt.
Illt innræti gagnrýnenda birt-
ist alveg sérstaklega í því, þegar
þeir rangnefna ókunnar mann-
eskjur, reiða sig á prentaðar
efnisskrár. Svo leyfa þeir sér að
lofa einstaka þátttakendur úr
heilum hóp og „gleyma" öllum
hinum. Þeir ættu að vita betur
en t.d. að hæla ungum söngvur-
um, án þess að hæla öllum
öðrum söngvurum, lífs og liðn-
um, fyrir það, sem þeir hafa líka
gert einhvern tímann.
Þar eð undirritaður kann ekki
þessa tækni, á hann langt í land
með að verða fullkominn gagn-
rýnitæknir, þyrfti að stúdera
fagið, vera langrækinn og muna
vel, hvað aðrir hafa sagt og
skrifað um hans háu persónu.
Ég man t.d. eftir að hafa samið
barnaóperu, sem hét Rabbi, en
hvað um hana var sagt, er löngu
gleymt. Það er enn ein yfirsjón-
in. Ú-ha!
Þorkell Sigurbjörnsson
Bflarnir í keppninni voru af ýmsum gerðum, en ekki færri en 7 voru af Escort-gerð.
Fimm bílar af 25
féllu úr rallinu
^f§jg§|É|
ómar og Jón Ragnarssynir hrepptu fyrsta sætið í ralli Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavikur a
laugardag. Ljósm. Kristinn.
70 km klst. en var leyfður 90 km
og 88,8 á tveimur sérleiðum.
Réðu keppendur það vel við
þennan meðalhraða að þeir urðu
að bíða allt upp í 1V4 mínútu
áður en komið var inn á tíma-
varðstöð, og ekki urðu nein slys
eða óhöpp á þeim leiðum að sögn
aðstandenda keppninnar.
Næsta rall er íyrirhugað dag-
ana 16,—19. ágúst og verður allt
að 3.000 km langt. Er búizt við
að erlendir áhugamenn muni
fylgjast með framkvæmd og
gangi þeirrar keppni með fyrir-
hugaða þátttöku hérlendis siðar
meir fyrir augum.
( þessari keppni voru bflarn-
ir betur útbúnir en áður þar
sem gerðar voru strangari
öryggiskröfur.
TUTTUGU og fimm keppendur
lögðu af stað í svonefndu Fin-
lux-ralli sem Bifreiðaíþrótta-
klúbbur Reykjavíkur gekkst
fyrir sl. laugardag og luku 20
bflar keppninni. I fyrsta sæti
urðu þeir Ómar og Jón Ragn-
arssynir sem óku Simca 1100
og hlutu þeir 6,04 refsistig. í
öðru sæti urðu Hafsteinn Aðal-
steinsson og Magnús Pálsson á
BMW 320 og fengu 7,0 refsi-
stig.
Þriðju urðu Halldór Úlfarsson
og Tryggvi Aðalsteinsson með
7,01 stig og óku þeir á Toyota
Celica, og fjórðu Birgir Þór
Bragason og Hafþór Guðmunds-
son á Datsun 1600 með 7,37 stig.
Að sögn eins stjórnarmanns í
Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykja-
víkur varð að fella niður erfiðar
leiðir, en á sumum leiðum fékkst
að hækka meðalhraðann. Hefur
hann til þessa aldrei farið yfir
Gefið í á einni sérleiðinni.