Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
41
félk í
fréttum
+ ÞESSI mynd er tekin í þing-
sal danska þjóðþingsins fyrir
nokkru er þingforsetinn, K.B.
Andersen, býður frú Grethe
Hækkerup, ekkju danska
stjórnmálamannsins og fyrrum
ráðherra Per Hækkerups, sem
lézt fyrir nokkru — aftur
velkomna til starfa í þinginu.
Hún á sæti á þjóðþinginu.
Hefur hún sagt að hún muni
starfa út kjörtímabilið. —
Daginn sem útför eiginmanns
hennar fór fram varð hún fyrir
þeirri sorg að sonur þeirra
hjóna lenti í mjög alvarlegu
bflslysi á götu í
Kaupmannahöfn.
+ DOKTORSRITGERÐ. — í Gautaborg varði þessi maður, Philip Tagg,
doktorsritgerð sína fyrir skömmu. Fjallaði hún um óvenjulegt efni. —
Efniviðinn hafði hann sótt í sjónvarpsþáttinn Kojak, sem hiklaust er
talinn sjónvarpshetja. Það er hinn stórskorni leikari Telly Savalas, sem
leiikur hetjuna sem kunnugt er. — En doktorsritgerðin fjallar þó ekki
um persónuna, Kojak heldur lagstúfinn sem hljómar í upphafi hvers
þáttar og stendur yfir í 50 sekúndur. Ber doktorsritgerðin heitið:
„Kojak — 50 seconds of television music.“ Segir í ritgerðinni að einmitt
þetta stutta stef geri útslagið. — ekki útlit hetjunnar sjálfrar. Beri
lagstúfurinn með sér karlmennsku og dirfsku og eigi það sameiginlegt
með kynningarlagi í öðrum leynilögregluþætti í sjónvarpinu, nefnilega
í „Dýrlingnum“ með Roger Moore og að ógleymdu laginu í kvikmynd-
inni Stjörnustríð. Myndin hér í hægra horni er af hetjunni Kojak.
+ Margrét Danadrottn-
ing hefur nú lagt orð í
belg í umræðunum um
jafnréttismál kynjanna.
Hefur danski
rithöfundurinn Thorkil
Hansen átt samtal við
drottninguna í einu
Kaupmannahafnar-
blaðanna, um málið. Þar
lætur drottningin þau
orð falla að það sé sfn
skoðun, að meðferðin sem
karlmenn hafi hlotið í
þessum umræðum sé fyr-
ir neðan allar hellur.
Umræðan einkennist af
augljósum gamaldags
hefndarþorsta. Mér
fellur hún ekki í geð og
hún prýðir ekki kven-
þjóðina. — Og drottning-
in segir það skoðun sína í
samtalinu við Torkil
Hansen, að karlmaður
hæfi betur í stöðu þjóðar-
leiðtoga, en kona.
Auðvitað brugðust
ýmsar danskar framá-
konur f röðum danskra
kvenna hart við ummæl-
um drottningarinnar.
Fóru þær heldur óvægum
orðum um skoðanir
drottningarinnar í þessu
samtali hennar, sem birt-
ist um fyrstu helgina í
aprfl.
T-Bleian
er frá Mölnlycke
h/Ieð T-bleiunni notist T-buxur, þar sem bleiurn-
ar eru með plastundirlagi.
T-buxur eru taubuxur, sem veita lofti í gegnum
sig, sem plastbuxur gera ekki.
Vellíðan barnsins eykst.
wmmmm^^^^^^m^m—mmmmm^^mm
Góö bílakaup
helmingur út
og rest á 6-8
mánuðum
Við tökum notaða bíla upp í nýja og
margir hafa þann hátt, að skipta árlega
og eru því ævinlega á nýjum bílum.
Þarna verða því oft mjög góð bílakaup
á nýlegum bílum, sem við seljum með
vildarkjörum.
Komiö og skoðið bílana
og sannreynið þá.