Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
7
I
AIÞýðubandalagið hef-
ur smám saman verið að
breytast í pólitíska fjöl-
fætlu, sem teygir sig,
skoðanalega, í allar áttir,
eftir pví hvar er atkvæða-
von. Stefnufesta hefur
breytzt í allra átta bros.
Flokkurinn skiptir um lit,
eins og ónefndar dýra-
tegundir, eftir aðstæöum
og atkvæðavon. Hann
rembist við að höfða í
senn til fólks, sem hefur
hugsunarhátt „borgar-
skæruliða“, yzt á vinstri
vængnum, og íhalds-
samra „pjóðernissinna“,
sem nánast aðhyllast
einangrunarstefnu í pjóð-
málum. Hann kann vel
við sig í aðildarstjórn að
Nató, innan varnarsamn-
ings við Bandaríkin, gríp-
ur til gengislækkunar
pegar svo ber við og skítt
með nokkur prósentu-
stig, hvort heldur sem er
í grunnkaupi eöa verð-
bótum, pegar flokkurinn
skrýðist stjórnarklæðuml
Og hver man ekki frum-
kvæði ráðherra Alpýðu-
bandalagsins, í hinni fyrri
vinstri stjórn, pegar járn-
blendiverksmiðjan var
hönnuð, hugmyndalega
og pólitískt?
Samhliða pví, sem
flokkurinn höfðar til
íhaldssamrar pjóðernis-
hyggju og einangrunar-
stefnu, t.d. varðandi sam-
skipti við og samstöðu
með vestrænum pjóðum,
reynir hann að gera alla
pá, er aöhyllast vestræna
samtryggíngu í öryggis-
málum, tortryggilega.
Hann tönnlast á pví, að
raunsæi á pessum vett-
vangi geri fólk „ópjóð-
legt“, eins og par hefur
verið kallað „Þjóölegir“
eru peir einir, sem fylgja
úreltri einangrunar-
stefnu.
Þjóöhollur
Guðmundur H.
Garðarsson vék að pessu
efni í útvarpserindi á
dögunum. Þar vitnar
hann til ritsins íslending-
ar, nokkur drög að Þjóö-
arlýsingu, eftir lærdóms-
manninn Guðmund Finn-
bogason (Menningar-
sjóöur/1933). Þar segir
orðrétt: „Þjóölegan köll-
um vér pann hátt, sem
pjóðin hefur almennt
lengi fylgt af frjálsum
vilja eða runninn er af
slíkum pætti. Upptökin
eru alltaf hjá einstakling-
um, en pað EITT fær
varanlegt fylgi alpjóðar,
sem mönnum fellur al-
mennt vel í geð. Hitt
fellur brátt niður. — Eng-
inn er leiðtogi án fylgd-
ar...“
Frá pví aö lýöræöis-
flokkar nú 3 sampykktu
aðild aö Nató fyrir prjátíu
árum hefur pjóðin gengið
12 sinnum til kosninga. í
hverjum kosningum hef-
ur samanlagt fylgi pess-
ara flokka verið 75—80%
greiddra atkvæða.
Afstaða pessara flokka til
samstarfs viö vestrænar
pjóöir, í féiags- menning-
ar-, viöskipta- og örygg-
ismálum hefur ekki hvað
sízt haft áhrif á fylgi
peirra. „Þjóölegan köllum
vér pann hátt“, segir í
tilvitnaðri bók, „sem
Þjóðin hefur almennt
lengi fylgt af frjálsum
vilja...“ I pessu sambandi
má og minna á, er u.p.b.
55 púsund kosninga-
bærra íslendinga rituðu
undir viljayfirlýsingu pá,
sem kennd hefur verið
við Varið land. í Ijósi
framangreinds fer heldur
lítiö fyrir „Þjóðlegheit-
um“ á „Þjóðviljanum“
eða í Alpýðubandalaginu.
En stundum er handhægt
að sópa pólitískri stefnu,
sem enginn vill sjá eða
heyra pegar hún er sýnd
ódulbúin, undir teppi
snoturyröa í nafngift;
flokks- og blaöheiti. En
óhreinindi verða alltaf
óhreinindi, hvort sem
pau eru undir teppi eða í
augsýn.
Barnaáriö
Þjóöviljinn reynir í leið-
ara í gær að matreiða
barnaárið, eða hugmynd-
ina að tilurö pess, eftir
kokkabók flokkshyggj-
unnar. Árangurinn veröur
í senn viöbrenndur og
samanskroppinn. Hvern
veg væri að Þjóðviljinn
beindi áskorunaroröum
sínum til hins nýja borg-
arstjórnarmeirihluta í
Reykjavík, Guðrúnar-
deildar Helgadóttur,
varðandi barnadagheim-
ili, leíkskóla, athvörf, úti-
deild og ípróttaaðstööu?
Hvern veg væri að Þjóö-
viljinn skoraöi á borgar-
stjórnarlið sitt aö hætta
að ganga aftur á bak, á
barnaári, í aöstööu fyrir
börn í höfuöborginni? og
varðandi hugleiöingar
blaðsins um lífvænleg
laun hinna lægst launuðu
fyrir 8 stunda vinnudag,
gæti blaðið gert eftirmála
úr hálaunapaklyftingu
Alpýðubandalagsins í
borgarstjórn — sem var
forsenda kjardóms um
sama efni — og nýjum
flugmannasamningum í
skjóli samgönguráðu-
neytis, sem einhver
flokkssvipur ku á. Spurn-
ing er, hvort nokkru sinni
hafi viðgengist í islenzk-
um stjórnmálum önnur
eins hræsni og sú, sem er
uppistaðan og ívafið í
pessu svokallaöa Alpýðu-
bandalagi eins og pað
birtist almenningi í dag.
rr
Evinrude þjónusta
Utanborðs-
mótorar
2-235 hestöfl
Evinrude framleiðir utanborðs-
mótora í mörgum stærðum, þann-
ig að allir geta fundið þástærð (og
styrkleika) sem þá vantar, 'hvort
heldur er fyrir fiskibáta, hraðbát,
gúmmíbát eða litla kænu.
Evinrude
öðrum fremri
Framleiðendur Evinrude
hafa hugsað fyrir öllu, og
á 70 árum, hafa þeir full-
komnað utanborðsmótorinn
mjög, að þeir geta boðið meiri
gæði, en verðið segir til um.
Nú getur EVINRUDE
orðið allra eign.
Kraftmikill og
öruggur
Það er ekkert eins ánægjulegt
og að þjóta eftir vatnsfletinum
láta andvarann leika um sig -
og njóta EVINRUDE til fullnustu.
Evinrude er öruggur mótor, sem
gerður er fyrir áreynslu,
og honum er hægt
að treysta.
Fullkomin vara-
hluta og viðgerð-
arþjónusta, sem
tryggir enn frekar
örugga notkun
Evinrude.
Frábær gæði
Utið verð
Ný námskeið eru að hefjast fyrir börn á aldrinum
8—14 ára. Innritun fer fram á morgun, föstudag
kl. 10—12.
Kennslutímar lausir frá 9.30—11.30 og
13.30—15.30.
Munið kaffihlaðborðið hjá Fákskonum í dag.
Hestamannafélagið Fákur.
Stjórnunarfélag íslands
Rangæingar
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í Rangárvalla-
sýslu dagana 23.—26. apríl næstkomandi. Námskeiðíð verður
haldið í húsi verkalýðsfélaganna aö Hellu frá kl. 13.30 til 18.30 dag
hvern.
Á dagskrá er:
★ Undirstöðuatriði bókhalds: Mánudaginn 23. apríl og þriðjudag-
inn 24. Farið verður yfir helstu ákvæði bókhaldslaga, kynntar helstu
bókhaldsbækur, færslur sýndar, gerð ársreiknins og framsetning og
kennt hvernig lesa má útskrift úr tölvubókhaldi. Leiðbeinandi:
Kristján Aöalsteinsson viðskiptafræöingur.
★ Skattréttur og skattskil: Miövikudaginn 25. apríl. Fariö veröur
yfir ákvæði laga og reglna sem taka þarf tillit til við rekstur smærri
fyrirtækja, hvernig má nota bókhald við framtal til söluskatts,
frágang orlofsskýrslna og skilgreina til lífeyrissjóða o.fl. Leiðbein-
andi: Árni Björn Birgisson viðskfr. og lögg. endursk.
★ Rekstrarbókhald og framlegöarreikningar: Dagana 26. og 27.
apríl: Kennd uppsetning rekstrarbókhalds, rætt verður um
framlegöarhugtakiö og sýnt hvernig nota má framlegöaraðferðina
við mat á arðsemi einstakra afuröa eða deilda og við ákvaröanir á
verði afuröa. Leiöbeinendur: Þórður Hilmarsson og Eggert Ágúst
Sverrisson, viðskiptafræðingar.
Námskeiöiö er ætlað mönnum í stjórnunarstörfum fyrirtækja. Eins
og fram kemur að ofan verður þar gefið almennt yfirlit um hvernig
haga skal bókhaldi og fjárreiðum fyrirtækja.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37, í síma
(91)82930.
Vélstjórar
Vegna áskorana félagsmanna meöal nemenda
Vélskólans og fleiri veröur aukaaöalfundur
haldinn í Vélstjórafélagi íslands miðvikudaginn
25. apríl kl. 20. í Kristalsal, Hótel Loftleiöa.
Dagskrá fundarins:
1. Réttarstaða fullmenntaöra vélstóra.
2. Lögverndun atvinnuheitis og atvinnuréttinda.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
EINSTAKT TÆKIFÆRI
KORFUBILL
TIL SOLU
Ný uppgeröur bíll frá verksmiöju erlendis.
Góður bill á góðu verði ef gengið er frá kaupum
strax.
Leitið nánari uppl. um bílinn í síma 27745
pfiLmn/on & vnL//on ud
Ægisgötu 10. Sími 27745.
Kvöldsími 23949.