Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 23

Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979 23 Skátatívólí og skemmtiatriði • I Reykjavík sjá skátar um hátíðahöld dagsins. Hefjast þau með því að tvær skrúðgöngur leggja upp kl. 13.45 önnur frá Hlemmi og hin frá Melaskóla. Gengið verður niður á Lækjartorg. Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit Verkalýðsins leika fyrir göngunum. Kl. 14.00 hefjast skemmtiatriði á Lækjartorgi. Koma þar fram Toddi trúður, Baldur Brjánsson töframaður, barnasönghópur og einnig skemmta „Stelpurnar". Kl. 16.00 verða skemmtiatriðin flutt út á Austurvöll og þar verður tizkusýning á vegum Model '79 danssýning undir stjórn Heiðars Astvaldssonar og Jazzskóli Báru sýnir dans. Islandsmeistararnir í paradanskeppni í diskódansi og unglingameistarar sýna dans, auk þess verður Fordbílaklúbburinn með sýningu og Hestamannafélagið Fákur verður einnig með sitthvað á boðstólnum. I lok skemmtidagskrárinnar verða sjóskátar með smásprell á Tjörninni. Síðan en ekki sízt ber að geta þess, að skátarnir munu, eins og í fyrra, bjóða upp á Tívólí í Austurstræti og Pósthússtræti. Hafnarfjörður Skátaskrúðganga og hlaup • ÍHafnarfirði hefjast hátíðarhöldin kl. 10.00 áredegis með þvi að lagt verði af stað í skrúðgöngu frá Skátaheimilinu Hraunbyrgi og gengið Reykjavíkurveg, Fjarðargötu, Strandgötu, Suðurgötu að kirkju, þar sem skátaguðsþjónusta hefst kl. 11.00. Prestur er séra Gunnþór Ingason og stólræðu flytur Sigurður H. Þorsteinsson. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur fyrir skrúðgöngunni. Eftir hádegið mun F.H. gangast fyrir víðavangshlaupi í tilefni af 50 ára afmæli félagsins, sem er 29. okt. n.k. Hefst hlaupið kl. 14.00 við Lækjarskóla og verður keppt í nokkrum flokkum. Flokki 8 ára og yngri stelpna og stráka, þau hlaupa 600 m. 9—12 ára stelpur hlaupa 1.000 m, 13 ára og eldri telpur 1.500 m, 9—13 ára strákar 1.000 m, 14—16 ára strákar 1.000 m og 17 ára og eldri 1.500 m. Veitt verða þrenn verðlaun í hverjum flokki og farandbikar fyrir bezta árangur. Garðabær Fjölskyldukaffi og tívólí • I Garðabæ sjá skátar um hátíðahöldin. Kl. 11.00 árdegis verður skátaguðsþjónusta í Garðakirkju. Eftir hádegið, kl. 14.00, verður safnast saman á mótum Karlabrautar og Hofsstaðabrautar og gengið þaðan í skrúðgöngu um Flatir að Skátaheimilinu. Þar verður kaffisala á vegum skátanna og munu þeir einnig kynna starf sitt með sýningum og skemmtiatriðum. Tvívolí, sem skátarnir hafa sjálfir útbúið, verður öllum opið. Kópavogur Víðavangshlaup og fleira • Kvenfélag Kópavogs annast framkvæmd hátíðarhaldanna. Hefst dagskráin kl. 10.00 árdegis með víðavangshlaupi frá félagsheimilinu Fagrahvammi. Kl. 13.30 hefst skrúðganga frá Digranesskóla að Kópavogsskóla með skátum og skólahljómsveit Kópavogs í fararbroddi. Onnur dagskráratriði verða: Ávarp, séra Arni Pálsson, kórsöngur, leikþættir, diskódanssýning og verðlaunaafhending til sigurvegara víðavangshlaupsins. Kynnir Guðrún Stephensen leikari. Mosfellssveit Sumarfagnaður og fjölskylduka II • í Mosfellssveit standa Stefniskonur fyrir sumarfagnaði yngri kynslóðarinnar. Hefst fagnaðurinn í Hlégarði kl. 15.00. Lúðrasveit barna úr Mosfellssveit leikur, telpnakór syngur. Leikflokkur úr Kópavogi kemur í heimsókn og sýnir nokkur atriði úr barnaleikritinu „Gegnum holt og hæðir“, sem verið er að sýna í Kópavogi. Einnig verður fjöldasöngur og í lokin stiginn dans. Félagar úr Karladórnum Stefni leika fyrir dansi. í Hlegarði verður einnig fjölskyldukaffi. Seltjarnarnes Skrúðganga og sumarkaffi • A Seltjarnarnesi verður safnast saman við félagsheimilið kl. 9.30 árdegis og gengið í skrúðgöngu með skáta í fararbroddi um bæinn og til skátaguðsþjónustu í Neskirkju. ^ Eftir hádegið mun Kvenfélag Seltjarnarness vera með sitt árlega sumarkaffi í félagsheimilinu og að venju verður þar sitthvað til skemmtunar. Félagsheimilið opnar kl. 15.00 Nýtt happdrættisár D.A.S. Toppvinning- um fjölgað HAPPDRÆTTI DAS er nú að hefja nýtt happdrættisár. hið 25. í röðinni. Akveðið hefur verið að hætta um sinn að hafa hús í aðalvinning, eins og verið hefur. en dreifa hæstu vinningunum á fleiri númer. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi, er Sjómannadagsráð boðaði til nýverið í nýjum húsakynnum ráðsins að Hrafnistu í Hafnarfirði. Aðalvinningurinn á næsta ári verður húseign að vali vinnanda fyrir 25. millj. kr. Þá verður í júlí-útdrætti sumarbústaður að Hraunborgum í Grímsnesi, full- frágenginn og með öilum búnaði og húsgögnum, að verðmæti 15 millj. kr. Bústaðurinn verður til sýnis laugardaga og sunnudaga í júní frá kl. 11—19 og hefjast sýningar á hvftasunnunni, þ.e. laugardaginn 2. júní. Ibúðarvinningar verða í 1. flokki á 10 millj. og í öðrum flokkum á 7,5 millj. kr. Nú sem áður verða 100 bílavinningar á 2 millj. og 1,5 millj., en einnig verður dregið um valdar bifreiðar, sem verða Simca Matra Ranco í maí, Mazda 929 L Station í ágúst og Ford Mustang í október. Ferðavinningar verða samtals 300 og húsbúnaðarvinn- ingar samtals 5588. Heildartala vinninga er 6.000, samtals að upphæð 540 millj. kr. Mánaðarverð miða verður 1.000 kr. og verð ársmiða 12.000 kr. Þetta kom fram í ávarpi fram- kvæmdastjóra happdrættisins, Baldvins Jónssonar og sagði hann einnig: „Málum aldraðra er sem betur fer sífellt meiri gaumur gefinn og Reykjavík, Akureyri og heildartekjum happdrættisins er varið í vinninga og af eftirstöðvun- um er varið 40% til Byggingar- sjóðsins. „Gamla baðstofulífið alveg úr sögunni" Pétur Sigurðsson gerði síðan grein fyrir stöðu byggingarfram- kvæmda Hrafnistu í Hafnarfirði. Sagði hann m.a.: „Auk teiknivinnu er þessa dagana unnið að öflun tekna til fjármögnunar byggingar- framkvæmdanna hér í Hafnar- firði. Fengist hafa vilyrði 5 sveit- arfélaga í Reykjaneskjördæmi, þ.e. Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Seltjarnarness og Bessastaðahrepps. Auk þess hafa nokkrar stúkur úr Oddfellowregl- unni ákveðið að taka þátt í upp- byggingunni. Þörfin í dag er brýnust fyrir sjúkt aldrað fólk og eftirspurn eftir vistun er gífurlega mikil. Gamla baðstofulífið er alveg úr sögunni og oft hefur gamalt fólk í ekkert hús að venda. Fram að þessum framkvæmdum hér í Hafnarfirði hefur okkur tekist að reka fyrirtækið án rekstrarhalla, en rekstrarhallinn á s.l. ári er tilkominn vegna vaxta- byrði og eigum við nú í miklu basli að losa okkur úr skuldúm. Munum við í framhaldi af viðræðum við sveitarfélög þurfa að sækja til hins opinbera um aðstoð. Má reyndar í því því sambandi benda á, að þjónusta sú, sem við veitum fellur að vissu leyti undir sjúkra- húsgeirann, því ef litið er til sjúkrahúsanna úti á landi þá eru þau meira og minna yfirfull af sjúku, öldnu fólki.“ Veitum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld gæti þessi mynd heitið. en hún er tekin í hinum vistlegu húsakynnum Hrafnistu í Hafnarfirði. Forráðamenn D.A.S. við hlið Mustang-bifreiðarinnar. er dregin verður út í október. Þeir eru. talið frá vinstri: Pétur Sigurðsson formaður Sjómannadagsráðs, Baldvin Jónsson framkva'mdastjóri happdrættis- ins. Hilmar Jónsson. Garðar Þorsteinsson og Tómas Guðjónsson. mörg fleiri bæjarfélög út um land vinna ötullega að þessum málum og mörg þeirra hafa hlotið lán úr Byggingarsjóði aldraðs fólks, en einu tekjur þess sjóðs erú 40% af hagnaði okkar happdrættis. Við teljum sjálfir á þessum tímamótum, að við getum sam- fagnað framlagi Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna til málefna aldraðra og færum viðskiptavinum happdrættisins kærar þakkir fyrir þeirra dýr- mæta stuðning." Það kom einnig fram, að 60% af Það kom fram hjá Pétri, að samtals eru í lengri og skemmri vistun á heimilum DAS i dag u.þ.b. 520 manns, þar af 100 manns á Hrafnistu í Hafnarfirði og 420 í Reykjavík. Sagði hann að vegna endurbóta á húsnæðisaðstöðu heimilisins í Reykjavík væri fyrir- hugað að fækka þar vistmönnum. Sá áfangi, sem fyrirhugað er að vinna að á næsta ári er uppbygg- ing annars hússins, en fyrirhugað er að þau verði þrjú, ásamt því að koma upp tengingum milli allra húsanna á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.