Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1979 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 1 FRÁ MÁNUDEGI (UAmFK'aa'v ir valin er við hvern drátt. Til þessa er notaður stokkur með lokuðum hólfum og í hverju hólfi er teningur með 20 flötum. Á fletina eru skráðar tölurnar 0—9, þannig að hver tala er skráð á tvo fleti hvers tenings. Stokknum er snúið sex sinnum og kemur þannig upp samtals 48 stafa tala. Þegar þessi tala er þannig fundin, hafa vinningsnúmerin raunverulega verið ákveðin. Talan er síðan lesin inn í tölvuna, sem gerir ekki annað en að reikna út vinningsnúmerin samkvæmt lykiltölunni og forrit- inu og prenta þau síðan í réttri röð. Ef sama lykiltala er notuð, er hægt að endurtaka dráttinn aftur og aftur og niðurstaðan verður ætíð sú sama. Raunar getur reikningsfróður maður reiknað út vinningsnúmerin samkvæmt lykil- tölunni og forritinu og fengi hann sömu niðurstöðu og tölvan. Þetta tæki hins vegar óralangan tíma. Lykiltalan er fundin með tilviljun og það er hún, en ekki tölvan, sem ræður vinningsnúmerunum. Stærðfræðilegar rannsóknir leiða í ljós, að ekki er neinn munur greinanlegur á því, þegar dregið er með tölvu eða með eldri aðferðum að því er varðar dreifingu vinninga, líkur á að sama númer komi upp oftar en einu sinni á sama ári eða neitt það annað, sem hér skiptir máli. Dregið er í hverjum mánuði og er það gert opinberlega hjá Reiknistofnun Háskólans undir eftirliti happdrættisráðs. Getur hver sem vill verið viðstaddur dráttinn og fylgst með honum. Eg vona, að þetta svari spurn- ingu bréfritara, en H.H.Í. er að sjálfsögðu reiðubúið til að veita allar nánari upplýsingar um þetta efni. Virðingarfyllst, Jóhannes L. L. Helgason. MANNI OG KONNA HAGTRYGGING HF M)) Tekiö veröur á móti umsóknum um dvöl í orlofshúsum félagsins í sumar á skrifstofu félagsins að Lindargötu 9 frá og með mánudegin- um 23. apríl. Vikudvöl kr. 15.000 greiðist við pöntun. Þeir sem ekki hafa dvalið í húsunum áður hafa forgang til fijmtudagsins 26. apríl. Ekki tekiö á móti pöntunum í síma fyrstu vikuna. Félagsmenn, athugiö orlofshúsin eru nú á 4 stöðum. Ölfusborgun, 5 hús, lllugastöðum í Fnjóskadal 2 hús, Svignaskarði í Borgarfiröi 1 hús og Vatnsfirði á Barðaströnd 1 hús. Stjórn félagsins. Orösending frá Verkamanna- félaginu Dagsbrún • Lítilsháttar aðfinnslur Af hverju eru menn að setja óþarfa bókstaf inn í gömul og góð orð, eins og t.d. ungbarn — eða náttúrulegt náttúrulegur? Ung- barn er oft og mörgum sinnum kallað ungabarn, síðast í tímarit- inu „Hjúkrun“, ofarlega á bls. 27 (1. tbl. ‘79). Og sitthvað náttúrlegt er stundum skrifað og jafnvel sagt (m.a. í útvarpi) náttúrulegt. Hafa sjálfsagt allir tekið eftir þessu. Er það að vísu meinlaust, en varla til bóta. Og spurning er, hvað sé rétt. Flytjandi þáttar útvarpsins „Daglegt mál“ var mér eitt sinn, að gefnu tilefni, sammála um, að orðið ungbarn væri réttara en hitt og í orðabók Sigfúsar Blöndal er nýfætt homo sapiens nefnt ung- barn. En ungamæður eiga fuglsunga, segir hann líka, og börn komast á unga/aldur. Sigfús Blöndal nefnir einnig náttúrleg- heit og náttúrleg (án u). En síðan telur hann upp: náttúruafbrigði, náttúrueðli, náttúrusteina, náttúruvísindi. Og er merkingar- munur augljós. í Morgunblaðinu sunnudaginn 8/4 er á bls. 37 setning sem byrjar þannig: „Öll voru þau sammála um . . .“ Einum bókstaf ofaukið enn. í stað þeirra orða sem hér hafa verið talin afbökuð, má auðvitað segja ýmislegt annað, s.s. hvítvoðungur, eðlilegt, á sama máli, o.s. frv. Vonandi verða lang- líf ummæli Jóns Oskars í Les- bókinni 8/4, en þau eru á þá leið að málið okkar sé „göfugt, ríkt og hreint“. Margrét Jóhannesdóttir. Velvakandi vill taka það fram í SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Sovézku stórmeistararnir David Bronstein og Rafael Vaganjan tefldu nýlega fjögurra skáka sýningareinvígi. Þessi staða kom upp í einni skákinni, það er gamla kempan Bronstein, sem hefur hvítt og á leik. 16. Bxf7+! - Kh8 (Ef 16... Hxf7 17. Hd8+ - Rxd8,18. Dxe5) 17. Dxe5 — Rxe5, 18. Bb3 — Rg4,19. Hd2 - Bb7, 20. Í3 - Rf6, 21. Rb5 - Hfc8, 22. Be6 - og svartur gafst upp. Einvíginu lauk 2:2, hvor vann tvær skákir. 10 kg. nautahakk 1.500.- kr. kg. 5 kg. nautahakk 1.670.- kr. kg. 1 kg. nautahakk 1.980.- kr. kg. Nautahamborgari 100.- kr. stk. Kindahakk 1.210.- kr. kg. Saltkjötshakk 1.210.- kr. kg. Ærhakk 915.- kr. kg. Folaldahakk 1.150.- kr. kg. Svínahakk 2.240.- kr. kg. Kálfahakk 1.267.- kr. kg. 10 kjúklingar í kassa 1.490.- kr. kg. Nýr svartfugl 400.- kr. stk. Opið föstudag 7—19 Opið laugardag 7—12. Lokað öll hádegi kl. 12:30—14. Laugalaek 2, REYKJAVIK. simi 3 5o 2o m sambandi við tilvitnun bréfritara í Morgunblaðjð, „Öll voru þau samamála um . . .“ að hér er eins og augljóslega má sjá, um prent- villu að ræða sem ekki er frá blaðamanninum komin. • Gleðilegt sumar Velvakandi óskar öllum bréf- riturum sínum og lesendum gleði- legs sumars og þakkar þeim við- skiptin á liðnum vetri. HÖGNI HREKKVÍSI ré Synd McNaught " -r/L ab rMA Matur er mannsins megin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.