Morgunblaðið - 21.04.1979, Qupperneq 1
48 SIÐUR OG LESBOK
89. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979
Prcntsmiója Morgunblaösins.
Kampala, 20. aprfl.
AP, Reuter.
FLÓTTAMENN frá borginni
Jinja f austurhluta Uganda sögðu
f dag, að margt benti til þess að
Idi Amín, sem til skamms tíma
var forseti landsins, væri enn í
borginni ásamt nokkur hundruð
Yusofu Lule, hinn nýi forseti
Uganda.
manna herliði og hygðist herjast
þar til síðasta manns. Búizt er
við, að hermenn nýju stjórnarinn-
ar f Kampala og Tanzanfumenn
nái til Jinja um helgina og má þá
búast við meiri háttar bardögum.
Talið er að liðsmenn Amíns hafi
enn á sínu valdi stærsta raforku-
ver landsins, sem einnig framleiðir
raforku fyrir Kenyamenn og hafa
hinir nýju ráðamenn í Kampaia nú
áhyggjur af því að skemmdarverk
kunni að verða unnin í orkuverinu.
Flóttamenn af þeim svæðum,
þar sem hér Amíns hefur hörfað
að undanförnu, segja miklar
hryllingssögur af framferði
hermanna hans, sem skjóti
miskunnarlaust á óbreytta borg-
ara og myrði alla sem þeir telja
vera einhverja fyrirstöðu á
flóttanum.
Stjórn Kenya hefur flutt stóran
hóp flóttamanna frá Uganda aftur
til landamæranna og er talið að
einhverjir þeirra verði framseldir
hinum nýju stjórnvöldum, þegar
um hægist í landinu.
Fylgst meö hátíðarhöldum sumardagsins íyrsta í Reykjavík.
Sjá nánar um hátíðarhöldin í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi á bls. 16 og 17.
Ástandið í S-Líbanon
komið á hættustig
— segir Kurt Waldheim
Tel Aviv, New York, 20. apríl. AP, Reuter.
ASTANDIÐ í Suður-Lfbanon er nú mjög alvarlegt og getur stefnt friðnum
í Miðausturlöndum í hættu að því cr Kurt Wajdheim framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna sagði f dag f skýrslu til Öryggisráðsins. Waldheim
sagði að gæzlulið S.b. hefði verið hindrað í að gegna skyldustörfum sfnum.
cn hluti liðsins hefur verið lokaður inni á svæði því, sem kristnir hægri
menn hafa lýst sjálfstætt.
herra Israels varði í dag stuðnini
Israelsmanna við sveitir hinn:
kristnu hægri manna í Líbanon 0|
sagði að þær og ísraelsmenn hefðt
sameiginlegra hagsmuna að gæt;
gagnvart PLO.
Yfirmaður hersveita kristinna
manna í S-Líbanon sem lýst hafa
yfir sjálfstæði yfirráðasvæðis síns,
Saad Haddad, ákvað í dag að aflétta
,Gleymdist” í 18
daga í f angelsi
Bregenz, Austurríki,
20. aprfl. Reuter, AP.
ÁTJAN ára gamall austur-
rískur piltur liggur nú á gjör-
gæzludeild spftaians f Brcgenz
eftir að hafa „gleymzt“ í 18
daga f litlum gluggalausum
fangaklefa f kjallara fangels-
ins í bænum og verið án matar
og vatns allan þann tíma.
Þykir ganga kraftaverki næst
að pilturinn skuli enn í lifenda
tölu og læknir sá sem nú
annast hann sagði f dag, að
þetta væri í fyrsta sinn sem
vitað væri til að nokkur maður
hefði lifað f 18 daga án vatns.
Sagðist læknirinn halda að
ástæðan fyrir því að pilturinn.
Andreas Mihavecs, hefði lifað
af væri sú, að kalt og rakt var í
klcfanum.
Mihavecs mun hafa verið
tekinn til yfirheyrslu af lögreglu
ásamt vini sínurp eftir að þeir
höfðu lent í árekstri, sem lög-
reglan grunaði hann um að bera
ábyrgð á. Mihavecs var stungið í
lítið notaðan fangaklefa á
meðan félagi hans var yfir-
heyrður, en í yfirheyrslunni
kom fram að hvorugur þeirra
bar ábyrgð á árekstrinum og var
félaganum sleppt þegar að
henni lokinni. Mihavecs
gleymdist hins vegar og mundi
enginn eftir honum fyrr en
starfsmenn í fangelsinu röktu
mikinn óþef til klefans þar sem
hann var géymdur 18 dögum
síðar. Var Mihavecs þegar
komið á sjúkrahús, en hann
hafði þá létzt um 24 kíló, en var
áður 78 kíló að þyngd.
Mál þetta hefur vakið mikla
furðu og óhug í Austurríki, en
þar er óheimilt að hafa grunaða
menn lengur í haldi en 48 tíma
án dómsúrskurðar. Innanrikis-
ráðherra landsins hefur vikið úr
starfi lögreglumönnunum
þremur, sem handtóku Mihavecs
og stungu honum í svartholið, og
verða þeir látnir sæta fullri
ábyrgð.
ferðabanni S.Þ. sveitanna frá og með
morgundeginum að loknum fundi
með yfirmönnum sveitanna.
Haddad sagði í dag 5 viðtali við
sjónvarpið í Israel, að her hans væri
hinn eini lögmæti í Líbanon og að
stjórnin í Beirut og herstyrkur
hennar væri alveg á bandi Sýrlend-
inga og skæruliðahreyfingarinnar
PLO.
Haddad vísaði á bug yfirlýsingum
stjórnarinnar í Beirut um að honum
hefði verið vikið úr her landsins og
að hann yrði leiddur fyrir herrétt um
leið og til hans næðist fyrir að hafa
lýst landamærasvæðið í suðaustur-
hluta landsins sjálfstætt og kallað
það „Frjálst Líbanon“.
Ezer Weizman landvarnarráð-
Á hæli vegna
einnar rúblu
FIMMTUG sovésk nunna,
Waleria Makijewa, hefur verið
send á heilsuhæli samkvæmt
úrskurði dómstóla. Nunnunni var
fundið til foráttu að hafa saumað
út tilvitnum í nítugasta Davíðs-
sálm í belti sitt og selt það síðan
fyrir rúblu. Á beltinu mátti lesa:
„Drottinn, þú ert okkar eilífa
athvarf". Dómstóllinn ákærði
hina guðhræddu Makijewu fyrir
„ólögleg söluviðskipti“.
Það var sovézki Nóbelshafinn
Andrei Sakaroff sem skýrði vest-
rænum fréttamönnum frá
atburðinum og lýsti honum sem
„hneysklanlegu broti á trúfrelsi“.
99,9% Egypta
með samningnum
Kairó, 20. apríl. AP, Reuter.
FRIÐARSAMNINGUR Egyptalands
og ísraels hlaut stuðning 99,9%
kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni
í Egyptalandi í gær, en yfir 90%
atkvæðisbærra manna greiddu
atkvæði. Aðeins 5246 kjósendur af
tæplega 11 ínilljón greiddu atkvæði
gegn samningunum, að því er innan-
ríkisráðuneytið upplýsti í dag. Staða
Sadats í Arabaheiminum er talin
munu styrkjast nokkuð við það að
hann getur nú bent á það, að þjóðin
stendur einhuga að baki friðarsamn-
ingunum.
Begin forsætisráðherra Israels
hringdi í Sadat þegar úrslit
atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir og
óskaði honum til hamingju með
úrslitin.
Mikil kosningaþátt-
taka í Rhódesíu
Salisbury, 20. aprfl. AP, Reuter.
TÆPLEGA 60 af hundraði atkvæðisbærra manna höfðu í kvöld greitt
atkvæði í þingkosningunum í Rhódesíu, en þær eru hinar fyrstu, þar
sem svartir menn jafnt sem hvítir hafa kosningarétt. Síðasti dagur
kosninganna er á morgun, laugardag, og þykir sýnt að þátttakan
verður ríflega 60%, en það var sú lágmarkstala, sem stjórnin hafði
vænzt.
Fleiri hermdarverk voru unnin í
dag en fyrri kosningadaga og er
talið að 27 manns hafi látið lífið af
völdum aðgerða skæruliða, sem
höfðu heitið að koma í veg fyrir að
menn neyttu atkvæðisréttar síns.
Meðal þeirra sem létuzt í dag voru
þrír blökkumenn, sem stigu á
jarðsprengju á leið á kjörstað.
Leiðtogar bráðabirgðastjórnar-
innar í Salisbury, en í henni eiga
sæti fulltrúar þriggja blökku-
mannahreyfinga auk hvítra
manna undir forystu lan Smiths,
hafa lýst sig mjög ánægða með
þátttökuna og telja hana mikil-
væga vísbendingu um vilja meiri-
hluta þjóðarinnar.
Flugvélar Rhódesíuhers gerðu í
dag loftárásir á stöðvar skæruliða
í Mozambique og var það í fyrsta
sinn eftir að kosningarnar hófust.
Amín undirbýr
lokaorrustima