Morgunblaðið - 22.04.1979, Side 1
64 SÍÐUR
90. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Washington. 21. apríl. Reuter.
BANDARÍKIN og Sovétríkin von-
ast til að ljúka gerð nýs samnings
um takmörkun kjarnorkuvígbúnað-
arins (SALT) í næstu viku og boða
tii leiðtogafundar um miðjan næsta
mánuð. Samningurinn verður lagð-
ur fyrir öidungadeildina 1. júní og
þá má búast við hörðum umræðum.
Flest er vitað um efni samnings-
ins, en leiðtogafundurinn verður
líklega ekki haldinn í Bandaríkjun-
um vegna heilsufars Leonid Brezhn-
evs forseta. Líklega verður fundur-
inn haldinn í Evrópu þar sem
Brezhnev vill helzt ferðast með
járnbrautum.
Því má gera ráð fyrir, að leiðtoga-
fundurinn verði haldinn í hlutlausri
höfuðborg eins og Helsinki eða Genf.
Samningurinn mun kveða á um að
samningsaðilar ráði í mesta lagi yfir
2.250 eldflaugum sem draga heims-
álfa á milli, langfleygum sprengju-
flugvélum og kafbátaflaugum. Þar
með yrðu Rússar að eyða um 150
slíkum vopnum, en Bandaríkjamenn
gætu fjölgað sínum í umrætt há-
mark. Hvorum tveggja yrði gert að
gera engar nútímabreytingar á
kjarnorkuvopnaforða sínum.
Sadat ef nir
til kosninga
Kalró, 21. aprfl. Reuter
BÚIST er við að Anwar Sadat
Egyptalandsforscti rjúfi þing f dag
til undirbúnings almennum kosn-
ingum eftir að þjóðin hafði nær
einróma lýst yfir stuðningi við
friðarsamningana við ísrael og
samþykkt ákveðnar stjórnarskrár-
breytingar.
Talið er að Sadat muni í dag
einnig tilkynna hvenær kosningarn-
ar skuli fara fram og þykir sennilegt
að það verði í júní. Þetta verða
fyrstu kosningar sem haldnar eru í
landinu síðan 1950 undir fjölflokka-
skipulagi. Núverandi stjórnmála-
flokkar voru settir á stofn eftir
kosningarnar 1976 og er talið að
fleiri muni spretta upp áður en
kosningarnar fara í hönd.
Líbýsk
innrás
í Chad
París, 21. apríL Reuter.
FORSETINN í Mið-Afríkuríkinu
Chad, Goukoni Oueddei, sakaði í
dag Líbýumenn um innrás og
skoraði á þjóðina að hervæðast
þótt Líbýustjórn segði, að cnginn
fótur væri fyrir því að hún hefði
hafið innrás í landið.
Frolinat-frelsisfylking Oueddeis
naut stuðnings Líbýumanna þegar
hann komst til valda fyrir einum
mánuði eftir nokkrar byltingar og
valdatogstreitu norðanmanna sem
eru múhameðskir og sunnan-
manna sem eru kristnir, en síðan
hefur Oueddei forseti snúizt gegn
líbýskum stuðningsmönnum sín-
um og sakað þá um að ala á
sundrungu í Chad.
Stórfelldir bardagar geisa sam-
kvæmt góðum heimildum 500 km
innan við landamæri Chad þótt
ekki hafi fengizt staðfest að Líbýu-
menn séu viðriðnir bardagana.
Útvarpið í höfuðborginni
Ndjamena segir, að líka geisi
bardagar í austurhluta Chad ná-
lægt súdönsku landamærunum.
Samkvæmt heimildum Kaíró-
blaðsins Al-Ahram mun Sadat sjá til
þess að þrjátíu af þrjú hundruÖ og
sextíu sætum á þingi komi í hlut
kvenna. Bændur og verkamenn fá
um helming.
Larsen
sigraði
Spassky
Montreal, 21. aprfl, AP.
DANSKI skákmaðurinn Bent
Larsen mátaði Boris Spassky
fyrrum heimsmeistara á skák-
mótinu mikla í Montreal í dag
og var það fyrsta vinnings-
skák Larsens á mótinu. Sér-
fræðingar segja að Larsen
hafi tekið frumkvæðið í byrj-
un skákarinnar og að Spassky
hafi aldrei fengið rönd við
reist. Þrátt fyrir sigurinn á
Spassky er Larsen enp í
neðsta sæti á mótinu.
Ungverski skákmaðurinn
Lajos Portisch leiðir enn
mótið, en hann hefur hlotið 5'/2
vinning úr átta umferðum.
Sovézku skákmennirnir
Karpov og Tal eru í öðru sæti
með 4% vinning og eiga þeir
báðir biðskák óteflda.
einu að smella af manni myndum. — Ljósm: Emilía.
Síaukin hryðjuverk
óyndisúrræði Amins
Kakamega. Nairóbt, Kinoni,
21. aprfl, Rcuter — AP.
ÚGANDÍSKIR flóttamenn sem
náðu til Kenýa í dag sögðu, að
hermenn hliðhollir Idi Amin hefðu í
síðustu viku myrt allt að 1.000
óbreytta borgara í austurhluta
Uganda. Auk þess hefðu þeir rænt
og ruplað í stórum stfl og nauðgað
öllum konum sem orðið hefðu á vegi
þeirra.
Flóttamennirnir sögðu, að ódæðis-
verk hermanna Amins hefðu aukist
mjög upp á síðkastið og hefðu t.d. um
700 karlar, konur og börn á Bukedi-
og Budama-svæðunum verið myrt
frá því um síðustu helgi.
Hermennirnir heyra flestir til
Kakwa-kynþættinum, sem býr í
norðurhluta Uganda, en af þeim
ættbálki er Amin sjálfur. Einn
flóttamanna sagði við fréttamenn:
„Þeir virðast ákveðnir í að halda
áfram morðum sínum þar til þá
þrýtur byssukúlur. Þeir vita að þeir
hafa tapað styrjöldinni."
Herir Tanzaníumanna og
uppreisnarmanna hafa nú helming
Uganda á valdi sinu, en leifar af her
og leynilögreglu Amins láta enn til
Mondale í Hollandi
Haag, 21. aprfl, AP-Reuter.
WALTER Mondale varaforseti
Bandaríkjanna kom í morgun f
opinberá heimsókn til Hollands,
síðasta landsins sem hann kemur til
í þessari 12-daga ferð sinni til
Evrópu.
Mondale kom frá Helsinki en þar
átti hann m.a. viðræður við Uhro
Kekkonen forseta og Kalevi Sorsa
forsætisráðherra. Áður hafði
Mondale haft viðdvöl á íslandi,
Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Heimsókn Mondales til Hollands
er talin bera vott um vaxandi sam-
skipti landanna tveggja á stjórn-
málasviðinu. Háttsettir Bandaríkja-
menn hafa ekki verið gestir í Hol-
landi, ef undanskilin er heimsókn
Henrys Kissingers þáverandi utan-
ríkisráðherra árið 1976. Þar á undan
kom Lyndon Johnson þáverandi
varaforseti árið 1963.
Við komuna til Hollands sagði
Mondale blaðamönnum, að hann
ptundi einkum ræða hagsmunamál
NATO við hollenzka ráðamenn, en
einnig önnur mikilvæg alþjóðamál.
Talið er að endurnýjun vopnabúnað-
ar NATO-herja í Evrópu verði mikil-
vægt mál í viðræðunum. Einkum
leggja Bandaríkjamenn áherzlu á að
nýjum og fullkomnum kjarnorku-
vopnum verði í auknum mæli komið
fyrir í Evrópulöndum. Málið er víða
hápólitískt, en nú þegar hafa Vest-
ur-Þjóðverjar lýst sig reiðubúna til
að taka við vopnum af þessu tagi,
með því skilyrði þó að önnur
NATO-ríki í Evrópu geri slíkt hið
sama.
sín taka í austur- og norðurhluta
landins. Innrásarherirnir ná þó nýj-
um svæðum jafnt og þétt undir sig,
en eríiðir birgðaflutningar draga
mjög úr yfirferð þeirra. Flóttamenn
hafa hvatt innrásarherina til að
flýta töku alls landsins vegna
hryðjuverka sveita Amins.
Talið er að Amin hafist við í Jinja
fyrir norðaustan Kampala, en allt er
þó á huldu í þeim efnum. Hermenn
hans hafa komið sér fyrir með
skriðdreka, brynvarða vagna og
önnur þungavopn við Owen-orkuver-
ið við Jinja, en um stíflu orkuversins
liggur vegurinn til Jinja. I
Owen-orkuverinu er framleidd öll
raforka Uganda og um 15 af
hundraði eþeirrar raforku sem
Kenýabúar nota.
Tanzaníuher skýrði frá því í
morgun, að búist væri við því að
Jinja félli í hendur „frelsisherjun-
um“ um helgina. Beðið er með
eftirvæntingu frétta af afdrifum
orkuversins, því taki herir Amins
upp á því að eyðileggja það mun
efnahagur Uganda bíða mikið tjón.
Diplómatar í Kenýa sögðu í dag,
að stjórnvöld í Nairóbí myndu að
öllum líkindum senda aftur til
Uganda embættismenn Amins sem
flúið hafa til Kenýa að undanförnu.
Meðal þeirra er brezkur ráðgjafi
Amins, majór Bob Astles.
Samningar
hafa náðst
um SALT