Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1979 3 Mikið tjón i elds- voða á Malarrifi Margeir í 6.-12. sæti á skákmóti í London Laugarbrekku, Breiðuvíkur- hreppi, 23. apríl. ELDUR kom upp í vélarhúsi við vitann á Malarrifi um klukkan hálf ellefu í morgun og brann húsið til ösku og allt sem í því var, þar á meðal þrjár diselvélar vitans og jarðarinn- ar, svo og olíubirgðir. Ekki er vitað um eldsupptök, en svo virðist sem sprenging hafi orðið í eldsneytinu, en inni í húsinu voru geymdir olíutankar og utan dyra var stór geymir, og komst eldur einnig í hann. Ekki var unnt að komast inn í húsið, en bóndinn á Malarrifi varð eldsins var er hann var að koma úr morgunkaffi við annan mann. Auk þess að lýsa upp vitann fékk bærinn á Malarrifi einnig rafmagn frá vélum vitans, bæði til að lýsa upp og til hitunar. Er því bæði kalt og ljóslaust hjá hjónunum á Malarrifi nú, en þau búa þar ásamt syni sínum, og einnig er vitinn að sjálfsögðu ljóslaus. Slökkvilið úr sveitinni kom á vettvang og einnig slökkvilið frá Ólafsvík og Rifi og gekk nokkuð auðveldlega að ráða niðurlögum eldsins, en hans varð það seint vart að allt var orðið alelda er slökkviliðið kom á vettvang. Þegar verður farið að kanna hvernig leysa má úr rafmagns- leysinu á Malarrifi, en ljóst er að fyrst í stað verður að notast við kolaeldavél í íbúðarhúsinu. — Finnbogi. Gerðadómur í flugmannadeilu YFIRBORGARDÓMARINN í Reykjavík, Björn Ingvarsson, hefur skipað þrjá menn í gerðardóm til þess að skera úr um þá kröfu Félags íslenzkra atvinnuflugmanna að flug- menn Flugleiða hafi sömu laun, óháð því hvaða flugvélategundum þeir fljdga. Er skipun gerðardómsins samkvæmt samkomulagi FIA og Flugleiða nýverið. Gerðadóminn skipa Auður Þorbergsdóttir borgar- dómari, formaður, og hæstaréttar- lögmennirnir Guðmundur Skaptason og Jón Finnsson. UM IIELGINA Iauk í London skákmótinu Aaronson Maters, en þar var einn íslenzkur skák- maður meðal þátttakenda. Margeir Pétursson. Margeir hlaut 6 vinninga af 9 mögulegum, sem er allgóð útkoma og hafnði hann í 6.—12. sæti. Margeir sagði í samtali við Mbl. í gær að hann hefði byrjað vel í mótinu, fengið 4 vinninga í fyrstu 5 umferðunum en síðan hefði hann tapað einni skák og gert svo tvö jafntefli i röð, en unnið síðustu skák sína. „Tapið var hálf slysa- legt hjá mér því .ég átti að geta haldið jöfnu. Hefði mér tekizt það hefði ég verið ánægður með út- komuna en á heildina litið var mótið ágæt æfing fyrir svæða- mótið i mai," srgði Margeir. Sigurvegari í mótinu var Paul Littlewood frá Bretlandi með l'k vinning en Niklasson, Svíþjóð, og Rivas, Spáni, urðu í 2.-3. sæti með 7 vinninga. 15 alþjóðlegir meistarar tefldu í mótinu og tveir stórmeistarar, Janocevic og Nicolic frá Júgóslavíu. Sleppt úr gæzlu UNGUM manni var sleppt úr gæzluvarðhaldi s.l. sunnudags- kvöld. Hann hafði setið inni í 18 daga vegna rannsóknar á meintu fíkniefnamisferli. DAIHATSU CHARADE ER RÖKRÉTTUR VALKOSTUR Viö flytjum bílinn beint og milliliöalaust frá Japan. Kynniö ykkur verö og þjónustu okkar. Daihatsuumboöiö Ármúla 23 sími 81733 og 85870. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um benzínhækkun verður bezt svarað með kaupum á DAIHATSU CHARADE AÖ sögn Svavars Gestssonar viöskiptaráöherra í fréttum fyrir helgi átti ríkis- stjórnin á fundi sínum í dag aö taka ákvörðun um næstu benzínhækkun. Meö óbreyttri veröuppbyggingu mun líterinn næstu daga hækka úr 205 krónum í 258.40 kr., skv. hækkunarumsókn olíufélaganna. Þessi hækkun er aöeins ein af mörgum, sem eftir eiga aö dynja yfir á þessu ári vegna hækkunar OPEC-ríkj- anna og ástandsins ííran. HiÖ gífurlega háa benzínverö kemur nú verr en nokkru sinni fyrr viö efnahag hins almenna borgara. Hvort sem fólki líkar betur eöa verr, verður þaö aö gera sér glögga grein fyrir kostnaöinum viö rekstur bifreiðar. Viö tökum stórt upp í okkur er viö segjum aö benzínverðshækkuninni veröur bezt mætt meö kaupum á DAIHATSU CHARADE, en viö höfum sannanir máli okkar til rökstuönings. í október síðastliönum sigraöi Daihatsu Charade í íslenzku sparaksturskeppninni, er hann eyddi 5.05 lítrum á 100 km. í sama mánuöi sigraði hann í frönsku sparaksturs- keppninni og eyddi þá aö meöaltali 5.61 líter á 100 km í erfiðri 500 km keppni. í marz sl. bættist svo enn einn stórsigurinn viö, er hann sigraði glæsilega í 1600 km, já, sextánhundr- uö kílómetra sparaksturskeppni í Ástralíu og eyddí aö meöaltali 5.51 líter á 100 km. DAIHATSU CHARADE er bíll nútímans, hannaöur meö framtíöina í huga. 5 manna bíll, framhjóladrifinn, þriggja strokka fjór- gengisvél 56 hö tryggir hámarksnýtingu eldsneytis og dyrnar eru 5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.