Morgunblaðið - 25.04.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL 1979
33
fclk f
fréttum
Áhyggjufullir á flokksþinginu
+, SVO SEM kunnugt er heitir
foringi ítalskra kommúnista
Enrico Berlinguer. — Hann er
til vinstri. Myndin er tekin á
flokksþingi kommúnista sem
haldið var fyrir skömmu suður
í Róm. — Hann sýnist ekki
vera neitt sérlega glaðlegur á
svipinn er hann horfir yfir
þingheim frá foringjaborðinu.
— Við hlið hans situr annar úr
flokksstjórninni. Ekki sýnist
hann var áhyggjuminni en
flokksforinginn. Þessi maður
er bróðir flokksforingjans og
heitir Giovanni, 54 ára gamall,
tveimur árum yngri en bróðir
hans. Þeir brseður eiga báðir
sæti á ítalska þinginu.
+ ÞAÐ VAKTI athygli okkar um
daginn, að í danska vikublaðinu
Billedbladet var mynd af söng-
konunni Elsu Sigfúss. — Þar er
þeirri fyrirspurn komið á fram-
færi í lesendadálki hvers vegna
svo langt sé síðan sú góða söng-
kona hafi komið fram í sjónvarp-
inu (danska). Hún sé í flokki
listamanna, sem alltof sjaldan
komi þar fram og skemmti. Um
leið og þessari ábendingu bréfrit-
ara er komið á framfæri, birtir
Billedbladet svar frá söngkon-
unni:
Elsa Sigfúss, Söborg (heimilis-
fangið): Því er fljótsvarað og
svarið stutt: Ég hef aldrei komið
fram í sjónvarpinu!
+ MÓÐIR og barn hvíla sig á
thailenskri grund eftir flótta yfir
landamærin frá vígvöllunum í
Kampútseu. Þau flúðu ásamt um
100 hermönnum úr liði rauðu
khmeranna, hersveita Pol
Pots-stjórnarinnar. — Hvorki
móðir né barn gátu fagnað und-
ankomunni nema skamma stund,
því að fólkið var allt sent aftur til
síns heima, en í næsta nágrenni
, við þann stað þar sem hópurinn
flúði yfir landamæri ríkjanna
APÍw geisuðu þá harðir bardagar.
Mannréttindi
+ ÞESSI 26 ára gamla móðir í
borginni Iowa City í Bandaríkj-
unum varð fræg stranda á milli
þar vestra í sambandi við litla
barnið sitt. — Konan, sem
heitir Linda Eaton, eignaðist
ekki allskostar hressir. —
Komust blöðin í málið og er
ekki að orðlengja það að þetta
mál varð stórmál. Umræðurnar
snerust fljótlega um það hvort
hér væri ekki um að ræða mál,
pennan litla dreng fyrir 6
mánuðum. — Hann var orðinn
þriggja og hálfs mánaða er hún
dag einn kom til vinnu sinnar
með litla kút með sér og vildi fá
að annast barnið á vinnustaðn-
um. Konan er í slökkviliði
borgarinnar. Taldi hún sig
vera í fullum rétti til að annast
um barnið sitt með vinnu sinni
á vinnustaðnum. En þeir sem
yfir slökkviliðinu ráða voru
sem snerti jafnan rétt kynj-
anna. Hvort ekki væri verið að
mismuna kynjunum. — Og
málið er nú til meðferðar hjá
mannréttindanefnd borgarinn-
ar.
— Meðan málið er þar til
meðferðar fær brunavörðurinn
Linda Eaton að hafa soninn hjá
sér á vakt á stöðinni. Og á
slökkvistöðinni er myndin tek-
in af mæðginunum.
lí
V
.e
AI
Ai
nýjar sendingar af
hjónarúmum
Glæsilegt úrval
Til sölu
árg. ekinn
323 5 dyra ‘78 14.000
818 2 dyra ‘78 12.000
323 3 dyra ‘78 13.000
929 RX 4 4 dyra ‘78 10.000
323 5 dyra ‘78 51.000
323 5 dyra ‘78 12.000
121 2 dyra ‘77 31.000
121 2 dyra ‘77 45.000
929 Station ‘77 40.000
616 4 dyra ‘77 37.000
616 4 dyra ‘77 43.000
929 4 dyra '77 24.000
929 4 dyra ‘77 21.000
929 4 dyra ‘77 36.000
929 RX 4 2 dyra ‘76 72.000
929 Station ‘76 56.000
929 4 dyra ‘76 26.000
929 Station ‘76 53.000
929 2 dyra ‘76 44.000
929 Station ‘75 80.000
929 4 dyra ‘75 70.000
818 4 dyra '75 69.000
818 4 dyra ‘74 51.000
Athugið:
6 mánaða ábyrgð fylgir öllum
ofangreindum bílum.
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 simar: 812 64 og 812 99