Morgunblaðið - 25.04.1979, Síða 37

Morgunblaðið - 25.04.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL 1979 37 7TT /s VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI sjá, að aðstaða hans er betri en eldri bróðurins, og það hvort sem vel eða illa árar. Meginkosturinn við þetta búskaparlag, bæði fyrir bændur og þjóðfélagið í heild, er sá, að með þessu hverfa áraskipti í framleiðslu búvöru, en þau eru alltaf til bölvunar. Þetta er aug- ljóst ef framleitt er eingöngu fyrir innlendan markað, en ekki skiptir þetta minna máli vegna útflutn- ings. Þá ríður á að halda magninu stöðugu, svo hægt sé að standa við samninga, ella eyðileggjast mark- aðir og verð fellur. Við þetta má svo bæta, að sanngjarnt er,, að aukin útgjöld bænda vegna harðinda séu reikn- uð, þegar verð búvöru er ákveðið. Þá er hins vegar rétt að ríkið greiði vörurnar niður sem þessu svarar til að tryggja jafna sölu. Það sem hér hefur verið sagt, getur staðist í grundvallaratrið- um, þótt ekki sé tekið í dæmið það kjarnfóðurvandamál, sem nú er við að etja, en ekki er tækifæri að ræða hér. Rögnvaldi Steinssyni sendi ég svo kveðju mína. Páll Bergþórsson. • „Opið bréf til foreldra og skólamanna“ Gleðilegt sumar. Mig langar til þess að biðja þig, Velvakandi góður, að birta þetta „opna bréf“ frá mér til lesenda þinna, um land allt'. — Efni þess á erindi til landsmanna allra. Það er gleðileg staðreynd að hugur fólks til náttúru landsins hefur farið batnandi nú hin síðari árin. Enda er sá hópur orðinn æði stór, sem lagt hefur gjörva hönd á plóginn við að rækta hugarfarið gagnvart náttúru landsins. — Nú fer sá tími senn í hönd að fuglarnir velji sér hreiðurstað og hreiðurgerð að hefjast. Hinir fyrstu eru þegar búnir að verpa, svo sem hrafninn, haförninn og dílaskarfur. — En það sem ég vildi vekja athygli á er að allir sem unna fuglalífinu í landinu taki höndum saman og beiti áhrifum EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU sínum í þá veru að hvetja unglinga og börn til þess að leggja fram sinn skerf til að auðga og bæta fuglalífið með því að kveikja ekki í sinu út um holt og móa. Sinu- brunatíminn stendur nú sem hæst og því hættan meiri. Vildi ég að lokum beina orðum mínum til forráðamanna æskufólks, til skólastjóra og kennara, um að hefja áróður gegn sinubruna, ræða við unga fólkið um að sinubrunar geta valdið dauða fugla, eyðilegg- ingu hreiðra og komið styggð að fuglum sem eru í leit að hreiður- stæði. — Sinubrunar séu því ákaf- lega neikvæð aðgerð og ógn við hið fábreytta fuglalíf í landi voru. Það gefst vonandi tími til þess að skrifa annað opið bréf og hvetja almenning til baráttu gegn úðun trjágarða, sem líka er skaðvaldur og það grófur í fuglalífinu. Það sakar ekki að vita þá staðreynd að því er okkur hefur verið tjáð, að það svæði. sem sinueldur hefur farið yfir sækir mófuglinn a.m.k. ekki í aftur í leit að heppilegu hreiðurstæði í tvö sumur eftir að sinan var brennd þar. Að lokum skal þess getið að bannað er að kveikja alla elda innan lögsagnarumdæmis Reykja- víkur og þar með sinuelda. Fuglavinir í Reykjavík. • Enn um vísuna I Velvakanda í gær birtist vísa eftir Jónatan Þorsteinsson. Hafði kona nokkur beðið Velvakanda um að auglýsa eftir fyrri helming þessarar vísu þar sem hún kunni þann síðari. Eggert Benónýsson hafði sam- band við Velvakanda og kvað hann vísuna sem birtist í Velvakanda í gær vera afbökun af upphaflegri gerð vísunnar. Þar er vísan færð upp á Jakob þann sem nefndur er en upphaflega gerð vísunnar telur Eggert vera þannig. Þessi jörðin frjóvgað fær féð hjá bónda kænum. Auðurinn vex en grasið grær í götunni heim að bænum. HÖGNI HREKKVÍSI " NÚNA HMV AÐ SVAíýJA H&TW'/öUg. I" _ áttu vandrœðum með þakið? 6,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.