Morgunblaðið - 25.04.1979, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 25.04.1979, Qupperneq 38
t 38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1979 Valur með unnið mót VALUR svo gott sem trygjíði sér Reykjavíkurmeistaratitilinn í knattspyrnu með því að vinna Fylki 3—2 á Melavellinum í gær- kvöldi. bar með krækti Valur í aukastig fyrir mörkin þrjú. Staðan í hálfleik var 2—0 fyrir Val. í’yrri hálfleikur var frekar slakur ojí mörkin sem þá voru skoruð frekar klúðursleg, eink- um frá sjónarhóli Fylkismanna. Fyrra markið skoraði Guðmund- ur borbjörnsson ojí það si'ðara ólafur Danivalsson í báðum tilvikum fenjju þeir félagar meiri aðstoð frá varnarmönnum Fylkis en nauðsyn var. Það lifnaði mikið yfir leiknum í síðari hálfleik og mátti þá sjá skínandi kafla hjá báðum liðum, Fylki ekki síður en Val. Það var þó Valur sem komst i 3—0 með marki Inga Björns Albertssonar úr víti, eftir að varnarmaður Fylkis hafði handleikið knöttinn. Sigurinn virt- ist í öruggri höfn, en 2 mörk á 3 mínútum hjá Fylki hleyptu spennu í leikinn, Valur hélt þó út. Hilmar Sighvatsson og Grettir Gíslason skoruðu mörkin, sem bæði voru gullfalleg. - KJÍ- Liverpool á grænni grein Liverp<M>l getur nú vart annað en orðið enskur meistari, en liðið opnaði sjö stiga ginnungagap i' nasta lið er jafntefli náðist niður í Southampton. Dave Johnson skoraði fyrir Liverpool á 12. mínútu, en Nick Holmes tryggði Southampton stig með glæsimarki á 76. mínútu. WBA missti endanlega af lestinni, en Úlfarnir björguðu sér örugglega úr fallhættunni með góðum sigri gegn Úlfunum. Úrslit leikja í gærkvöldi urðu þessi: 1. deild: Birmingham — WBA 1—1 Man. City — Middlesbrough 1—0 Southampton — Liverpool 1-1 Wolves — Derby 4-0 2. deild: Millwall — Fulham 0-0 Notts County — Leicester 0-1 Oldham — Wrexham 1-0 Preston — Cambridge 0-2 West Ham — Burnley 3-1 3. deild: Blackpool — Exeter 1-1 Carlisle — Watford 1-0 Colchester — Chesterfield 0-0 Hull City — Southend 2-0 Peterbrough — Swindon 2-1 Plymouth — Chester 2-2 Shrewsbury — Tranmere 2-1 Walsall — Bury 0-1 Mikil þátttaka í skíðafélagsgöngunni Hópganga Ski'ðafélags Reykjavikur var haldin í Bláfjöllum laugardaginn 21. aprfl. Gengnir voru 5 km f kvenna- og karlaflokkum. Kvennaflokkar voru tveir, 40 ára og yngri og 41 árs og eldri. Karlaflokkar voru fimm, 40 ára og yngri, 41—45, 46—50, 51—55, og 56 og eldri. Keppnin fór fram á flötunum vestan og ofan við Borgarskálann. bátttaka var mjög mikil eða 57 göngumenn samtals, 23 konur og 34 karlar. Veður var eins gott og best var á kosið, logn og sólskin, hiti var 2—5 gráður, færi var mjög gott. Formaðurinn, Matthías Sveinsson, setti mótið með hvatningarræðu og síðan voru allir ræstir í einu. Göngubrautin var mjög góð og vel lögð af þeim Guðmundi Sveinssyni og Ingólfi Jónssyni. bað var mjög mikil ánægja með þessa fjölmennustu skfðagöngu sem haldin hefur verið sunnanlands. Keppt var um mjög fallega verðlaunabikara í 7 flokkum sem gefnar voru af Jóni Aðalsteini Jónassyni, eiganda verslunarinnar Sportvals. Verðlaunaafhending var á mótstað, ennfremur var þar páska- eggjahappdrætti. Framkvæmd mótsins var í höndum Skíðafélags Reykjavíkur. Skíðafélagsgangan 1979 NR. KONUR 40 ÁRA OG YNGRI TÍMI 1. Guðbjorg Haraldsdóttir 16.37 2. Lilja Þorleiísdóttir 18.05 3. Unnur B. Guðmundsdóttir 19.28 4. Þyri Laxdal 20.45 5. Elín J. Jónsdóttir 23.52 6. Jóhanna Guðbjðrnsdóttir 24.30 7. Fríða Pálmadóttir 24.50 8. Ásta Magnúsdóttir 25.54 9. Sitfríður Lóthersdóttir 26.11 10. Ragnheiður Sveinsdóttir 28.26 11. Bessí Jóhannsdóttir 29.03 KONUR 41. ÁRS OG ELDRI TÍMI l.Inga Árnadóttir 20.33 2. Jarmila Hermannsdóttir 21.12 3. Guðrún Andrésdóttir 22.40 4. Sigrfður Pétursdóttir 22.43 5. Anna H. Sveinsdóttir 23.26 6. Ásthildur EyjóUsdóttir 23.38 7. Elfsabet Gunnlaugsdóttir 23.50 8. Pálfna Guðlaugsdóttir 25.13 9. Þorbjörg Sveinsdóttir 26.22 10. Ingibjörg Halldórsdóttir 26.33 11. Jórunn Eyjólfsdóttir 29.09 12. Hulda Filipusdóttir 29.50 KARLAR 41-45 ÁRA TÍMI 1. Matthías Sveinsson 13.11 2. Sveinn Kristinsson 15.43 3. Pétur Pétursson 16.08 4. Pálmi Guðmundsson 16.48 5. Elfas Hergeirsson 17.30 6. Þorsteinn Hjaltason 18.28 7. Olfar Sigurmundsson 20.32 KARLAR 46 -50 ÁRA TÍMI 1. Bjarni Einarsson^- 17.38 2. Haultur Hergeifsson 18.41 3. Sigurkari ðfagnússon 19.03 4. Magnús Hailfreðsson 19.53 5. Páll Samúelsson 23.47 6. Kristófer Jóhannesson 24.19 7. Brynlelfur Steingrímsson 24.54 KARLAR 51 —55 ÁRA TÍMI 1. Haraldur Pálsson 14.08 2. Hörður Hafliðason 17.16 3. Þorsteinn Bjarnar 18.44 4. Stefán Kristjánsson 19.26 5. Magnús Eyjólfsson 22.44 6. Þór Þorsteinsson 24.00 KARLAR 40 ÁRA OG YNGRI TfMI 1. Hörður Árnason 14.37 2. Kristján Snorrason 14.57 3. Trausti Sveinbjörnsson 15.57 4. ólafur Pálmason 16.05 5. Gunnar Gunnarsson 18.14 6. Jón Frlðriksson 21.50 7. Einar Þórðarson 25.51 KARLAR 56 OG ELDRI TlMI 1. Tryggvi Halldórsson 16.38 2. Elnar ólafsson 17.25 3. Árni Kjartansson 20.04 4. Ingólfur Guójónsson 23.25 5. Gunnlaugur Björnsson 23.51 6. Jón Arason 26.20 7. Þórður Árnason 28.40 • Júlíus Hafstein, formaður HSÍ og Jóhann Briem, framkvæmdastjóri Frjáls Framtaks, með hinn glæsilega bikar á milli sfn. Mynd: — gg. StórleikirnL ÚRSLITALEIKURINN í bikar- keppni HSf fer fram á sunnudag- inn og að öllum li'kindum í Laugardalshöllinni. Hefst hann klukkan 20.15, en næsti leikur á undan er fyrir suma ekki minni leikur, en það er úrslitaleikurinn í bikarkeppni kvenna. Hefst hann klukkan 19.00. bað er ekki ljóst hvaða lið leika til úrslita, þar sem leikir í undanúrslitum hafa enn ekki farið fram. í kvöld fer sá fyrri fram, en það er leikur Víkings og Vals, en hann hefst í Laugardalshöllinni klukkan 21.00. Síðari leikurinn fer fram á föstudaginn, einnig í Höllinni, og er það leikur ÍR og FH. Hefst hann klukkan 19.00. betta er í sjötta skiptið sem leikið er um bikar HSÍ, þetta er mjög ung keppni hérlendis. Til þessa hefur FH unnið bikarinn þrívegis, Víkingur einu sinni og Valur einu sinni. FH hefur unnið bikarinn til eignar og er þvi' nú Icikið um nýjan og mjög glæsileg- an bikar sem Frjálst framtak og íþróttablaðið hafa af mikilli rausn gefið HSÍ. Verður keppt um hinn nýja bikar næstu fimm árin sem farandbikar, ásamt litlum fylgibikar sem vinnst til eignar. Það verður vafalítið hart barist í leiknum í kvöld. Valur og Víkingur hafa löngum eldað grátt silfur saman og skemmst er að minnast, að Valur lagði Víking í úrslitaleik íslandsmótsins fyrir skömmu. Víkingar eiga því harma að hefna, auk þess sem þetta er síðasti möguleiki þeirra á að tryggja sig í Evrópukeppnina næsta vetur. Valsmenn eru þegar Islands- meistarar, en möguleikinn á að vinna tvöfalt er fyrir hendi og því munu þeir ekki gefa sig. Ýmsir verða þarna fjarri góðu gamni, svo sem Viggó Sigurðsson, sem orðinn er félagsbundinn spænska liðinu Barcelona. Þá verður Einar Magnússon ekki með, nieiðsli hans hafa tekið sig upp. Sigurður Gunnarsson verður hins vegar með, er óðum að ná sér af meiðslum sínum. Valsmenn verða hins vegar með sitt sterkasta lið, Jón Pétur Jónsson verður með þrátt fyrir nýgerðan samning við Dankersen. Það verður ekki síður hamast á föstudagskvöldið. FH-ingar hafa eins og áður er getið þrisvar unnið bikarkeppnina og þeir hafa oftar en ekki unnið ÍR í deildarleikjum. En þetta er hins vegar bikar- keppnin og allt getur gerst. FH-ingar hafa verið ærið misjafn- ir í vetur allt frá því að vera rúmlega frambærilegir og niður í það að vera bókstaflega lélegir. Þeir gerðu vel að vara sig á ÍR og vanmeta liðið ekki, því að þegar á reyndi í vetur kom í ljós að ÍR-ingar eru til alls líklegir. FH verður með sitt sterkasta lið að öðru leyti en því að óvíst er hvort að Guðmundur Arni Stefánsson getur leikið vegna meiðsla á fæti. Það hefur frekar stækkað hópur- inn hjá IR en hitt og heyrst hefur að bæði Ásgeir Elíasson og Vil- hjálmur Sigurgeirsson hafi æft á fleygiferð að undanförnu. Síðan verður úrslitaleikurinn á sunnudagskvöldið eins og áður sagði og á á mánudagskvöldið lýkur handboltavertíðinni form- lega með lokahófi í Sigtúni, loka- hófi sem standa mun allar götur til klukkan tvö um nóttina. Þar verða afhent ýmis verðlaun og fleira gert mönnum til skemmtun- ar. — gg. Bjartsýnismenn Á blaðamannafundi með íor- ráðamönnum og þjálfurum félag- anna f undanúrslitunum, Vfkingi, Val, ÍR og FH var m.a. mikið spurt um undirhúning og fyrir- ætlanir hvers félags um sig. Árangurinn er að nokkru leyti eftirfarandi: Hilmar Björnsson, þjálfari Vals: „Eg spáði okkur öruggum sigri í leiknum um daginn og það kom á daginn. Eg held hins vegar að leikurinn nú verði ekki eins örugg- ur og þá á ég aðallega við það, að við höfum ekki fyrir jafn miklu að berjast og þá. Þó finnst mér sem ákveðinn fjölmiðill sé að brýna okkur með því að afsaka frammi- stöðu Víkinga í síðasta leik okkar og því þurfum við hugsanlega að sanna fyrir alþjóð öðru sinni hvort liðið er í raun betra. Við höfum haldið okkar striki í æfingum og æfingaleikjum, en ég kann þó að breyta nokkuð hópnum fyrir leikinn þó að allir séu heilir," sagði Hilmar að lokum. Hannes Guðmundsson, varaform. handkn.deildar Víkings: — Við höfum ekki slegið slöku við nema síður sé, enda ætlum við að hefna ófaranna gegn Val um daginn. Það hefur þó ruglað undir- búning okkar nokkuð, að til skamms tíma höfðum við reiknað með að Viggó Sigurðsson fengi leyfi til að leika leikinn en nú fyrir skömmu varð það skyndilega ljóst að svo verður ekki. Það setur að sjálfsögðu strik í reikninginn hjá okkur. — Sigurður Gunnarsson verður hins vegar örugglega með, honum batnar óðum af meiðslum sínum og verður örugglega orðinn góður. Öðru máli gegnir með Einar Magnússon, hann gengur nú um draghaltur og þarf væntanlega að fara í einn uppskurðinn enn, meiðsli hans hafa tekið sig upp á ný- Hákon Bjarnason, formaður ÍR: — Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því, að við höfum yfirleitt beðið lægri hlut í leikjum okkar gegn FH, en stefnum þó ákveðið á sigur. Við höfum ekki slakað á á æfingum, en höfum þó orðið að æfa í litlu húsnæði þar sem við misstum tíma okkar í Höllinni um páskana. — Við erum með mjög ungt lið, meðalaldur er aðeins 23,2 ár og kappar eins og Ásgeir Elíasson, Vilhjálmur Sigurgeirsson og jafn- vel fleirf hafa æft að undanförnu. Ingvar Viktorsson, formaður handkn.deildar FH: — Við teljum að ef við vinnum ÍR, verði sjálfur úrslitaleikurinn mun léttari, við reiknum sem sagt með mjög erfiðri mótspyrnu sagði Ingvar. — Við höfum æft daglega eftir því sem hægt er, þ.e.a.s. að við höfum ekki fengið inni í stóra húsinu í Hafnarfirði upp á síðkast- ið, við höfum ávallt átt í brösum með bæjaryfirvöldin með æfinga- tíma þar, samt er húsið „hvílt" langtímum saman. I svona basli höfum við ávallt lent og ekki er fyrirsjáanlegt annað en að svona verði málum háttað áfram. Þessa dagana æfum við í smákompu með 8x16 metra sal og spilum þar körfubolta eins og við eigum lífið að leysa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.