Morgunblaðið - 26.04.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.04.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979 21 Rúmir 9 milljarðar í lán á síðasta ári Húsnæðismálastofnun ríkisins: Á SÍÐASTA ári námu lánveitingar Húsnædismálastofnunar ríkisins samtals 9.163.1 milljón króna til byggingar og/eða kaupa á 4.653 íbúðum. Var hér um að íða lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna, sem og af hinu sérstaka framlagi ríkissjóðs til nýbyggingar íbúða í stað heilsuspillandi húsnæðis. Árið 1978 námu lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins samtals 8.640.0 milljónum króna til bygg- ingar og/eða kaupa á 4278 íbúðum. Var þar um að ræða venjuleg íbúðarlán úr Byggingarsjóði, framkvæmdalán, er breyttust í föst lán á árinu, og lán til nýbygg- ingar íbúða í stað heilsuspillandi húsnæðis, sem lagt er niður. I þessum lánaflokki voru svokölluð F-lán, eða frumlán og viðbótarlán, veitt vegna 1883 íbúða, samtals 5.198.6 milljónir króna. G-lán til kaupa á eldri íbúðum voru veitt vegna 1897 íbúða, samtals 1.532.3 milljónir króna. Á árinu 1978 námu lánveitingar úr Byggingarsjóði verkamanna samtals 523.1 milljónum króna. Þar af voru kr. 514.989.935.00 veittar til smíði 371 íbúðar í nýjum verkamannabústöðum og kr. 8.079.485.00 vegna endursölu fjögurra eldri íbúða. Lánin fóru til 12 sveitarfélaga. Frá því að lögin um Byggingar- sjóð verkamanna og verkamanna- bústaði tóku gildi vorið 1970 hefur verið hafin bygging á samtals 842 íbúðum í verkamannabústöðum í 25 byggðarlögum í landinu. Meiri- hluti þessara íbúða er í notkun, um sl. áramót voru 274 íbúðir í bygg- ingu í verkamannabústöðum í landinu. Á árinu 1978 komu til útborgun- ar lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins samtals að fjárhæð 8.894.2 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess, að á árinu 1977 komu til útborgunar 6.141.0 miiljónir króna. Nemur því aukn- ingin 44,8%. Lánveitingarnar á sl. ári skiptust þannig: Ástæðan fyrir því, að hærri fjárhæð kom til greiðslu á síðasta ári en veittu lánsfé nam er sú, að á árinu voru greidd lán, sem veitt voru til greiðslu 1977, en voru ekki hafin fyrr en á síðasta ári. bessar ungu stúlkur frá Akranesi söfnuðu 30 þúsund krónum á hlutaveltu til styrktar sundlaugarbyggingu Sjálfsbjargar, sem Hjálparstofnun kirkjunnar hefur staðið fyrir. Nöfn þeirra eru: Helma Hreinsdóttir, bórdís Á. Örnólfsdóttir, María Gústafsdóttir, Ágústa H. Gústafsdóttir, Björgheiður G. Jónsdóttir og Guðmunda .1. Jónsdóttir. Mál Hreggviðs gegn borginni dómtekið í dag LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — 100% ull einnig 100% nylon 20 mismunandi stærðir frá 0,60—120m til 3—3,90m Verð mjög hagstætt Lítiö viö í Litaveri, því Þaö hefur ávallt borgað sig. Grensásvegi, Hreyfilshúsinu. Simi 82444. LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER Með hækkandi sól fara íslenskir gróðurhúsaávextir að koma á markaðinn á ný, tómatar agúrkur og fleira góðgæti. Þessa mynd tók Sigurður Sigmundsson í Syðra-Langholti í gróðurhúsi á Flúðum, þar sem ungur garðyrkjumaður, Axel Thorsteinsson að nafni, heldur á fyrstu uppskerunni á þessu vori. Fyrirlestur í Norræna húsinu VEGNA 500 ára afmælis Kaup- mannahafnarháskóla hefur Norræna húsið boðið nýkjörnum rektor Hafnarháskóla, prófessor Erik Skinhöj, og prófessor Svend Ellenhöj að koma til íslands. Svend Ellenhöj mun halda fyrir- lestur í Norræna húsinu á morgun, fimmtudag, um sögu Hafnar- háskóla og þróun hans gegnum aldirnar. Ellenhöj hefur áður gist Norræna húsið en hann er prófessor í sögu við Hafnar- háskóla. Hann hefur skrifað mörg rit um eldri tímabil í sögu Dan- merkur og er nú aðalritstjóri þess ritverks sem Hafnarháskóli mun gefa út í tilefni 500 ára afmælis- ins. Erik Skinhöj, hinn nýkjörni rektor Hafnarháskóla og prófessor í taugasjúkdómafræði, mun verða viðstaddur fyrirlesturinn og einnig þann sem dr. Jakob Beneditsson flytur er Háskóli íslands minnist afmælis Hafnarháskóla sunnudag- inn 29. apríl n.k. Kaupmannahafnarháskóli 500 ára: MÁL Hreggviðs Jónssonar gegn borgarstjóranum í Reykjavik fyr- ir hönd Borgarsjóðs Reykjavíkur verður dómtekið í bæjarþingi í dag. Eins og fram hefur komið í fréttum höfðar Hreggviður mál þetta til að fá fullar verðbætur á laun eins og þær eru skilgreindar í kjarasamningi ASÍ og vinnu- veitenda frá 22. júní 1977. I greinargerð með stefnu sinni segir Hreggviður svo, en hann flytur mál sitt- sjálfur: „Borgar- stjórn Reykjavíkur, sem fer með æðsta vald í borgarmálum, tók ákvörðun 15. júní 1978, sem vera skyldi starfsmönnum borgarinnar til mikilla hagsbóta varðandi laun. Það er almenn regla, að þegar opinberir aðilar taka slíkar ákvarðanir mönnum í hag, er ekki hægt að taka þær til baka að hluta eða öllu leyti eftir geðþótta og einhliða. Gildir það gagnvart starfsmönnum Reykjavíkurborgar í því máli, sem hér liggur fyrir, og alveg sérstaklega verður að undir- strika, að það hefur ekki einu sinni verið reynt að draga ákvörðun borgarstjórnar formlega til baka, heldur er það gert með undanþágu og útúrsnúningi varðandi efni hennar." Síðar í greinargerðinni segir Hreggviður: “.. .borgarstjórn telur sig hafa borgað þær verðbætur, sem á vantar, með því einu að vísa til lagaákvæðis um félagslegar umbætur o.fl., sem án allra út- reikninga eða rökstuðnings eru metnár til vísitölulækkunnar. Það er nákvæmlega í þessu atriði, sem skekkja borgarstjórnar liggur. Það dæmi gengur ekki upp að lofa fullum verðbótum „skv. ákvæðum kjarasamninga" og ætla síðan að greiða þær með félagslegum umbótum, sem hvergi er minnst á í kjarasamningum." Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins: Samkomulag ríkisstjórnar- innar við BSRB verði fellt Á FUNDI Verkalýðsráðs Sjálf- stæðisflokksins nú um helgina var svohljóðandi ályktun sam- þykkt samhljóða: „Aðalfundur Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, haldinn 21. og 22. apríl 1979, telur óeðlilegt, að falla frá umsömdum kjarasamn- ingum í skiptum fyrir loforð um nánast óskilgreindar breytingar á samningsrétti. Reynsla opinberra starfsmanna er slík af vinstri stjórnum í réttindamálum að ekki er hægt að mæla með slíkum skiptum. Því skorar aðalfundurinn á allt Iaunafólk innan BSRB að fella þá samninga, sem gerðir voru milli stjórnar BSRB og ríkisins um niðurfellingu 3% áfangahækkun- ar. Enn fremur mótmælir aðal- fundurinn gerræðislögum for- sætisráðherra um efnahagsmál, þar sem grunnkaupshækkanir eru í fyrsta skipti afnumdar án bóta eins og dæmið um bankamenn sannar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.