Morgunblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 1
32 SlÐUR 94. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaósins. Öryggisráðið vill enn auka eftirlitið Verður keisara rænt? Teheran, 26. april. Reuter. FRELSISSAMTÖK Palestínu- manna hafa í hyggju að ræna útlegðarkeisaranum Reza Palevi samkvæmt frásögn PLO-erindreka, sem birtist í írönsku tímariti í dag. Fulltrúi PLO í Teheran, Hani al Ilassan, sagði vikuritinu Ly Javan frá því að sérstökum hryðjuverkahópi hefði verið gefin fyrirmæli um að framkvæma mannránið. Skipunin er beint komin frá leiðtoga Frelsissam- takanna, Yasser Arafat. Bannfœrði r Olaf kóng Ósló, 26. aprtl, fró fréttaritara Mbl. TVEIR norskir prestar hafa hrundið af stað væringum í trúarlífi Norðmanna. Prestur- inn í Balsfirði, Börre Knudsen, hefur ákveðið að snúa baki við þeim þætti starfsins, er lýtur að hinu opinbera, í mótmælaskyni við lög um fóstureyðingar. Neitar hann þvf að taka við launum. í Heröy, hefur Wiily Abiidsnes, neitað að taka á móti biskupn- um í kirkjuvitjunum. Ber séra Willy því við að biskupinn styðji textabreytingu í Faðirvorinu. Presturinn í Balsfirði hefur einnig bannfært þá sem leggja fóstureyðingarlögunum lið. Nær bannfæringin til ríkisstjórnar- innar, hluta Stórþingsins og loks einnig Ólafs Noregskónungs. Biskupinn í umdæminu hefur veitt presti harðar átölur en séra Börre segist lifa af fiski úr sjónum og einskis þurfa með frá ríkinu. Séra Willy vill ekki að texta Faðirvorsins verði breytt til samræmis við nútímamál. Reza Palevi Beirut. 26. aprfl — AP — Reuter ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna bauð í dag líbönsku stjórn- inni aukinn herstuðning í Suð- ur-Líbanon, þar sem hersveitir kristinna manna hafa í skjóli ísraela torveldað friðargæzlu- starf. Ráðið samþykkti að koma saman án tafar ef drægi til alvarlegra tíóinda. Þykir and- rúmsloft í þessum landshluta nú mjög magnað spennu. Kyrrt var í Suður-Líbanon í dag eftir að Palestínumenn og ísraelar féllust á vopnahlé eftir fjögurra daga átök. bað voru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sem gengust fyrir vopnahléinu. í tilkynningu sem forseti Örygg- isráðsins, Norðmaðurinn Ole Al- gárd, gaf út, eftir skyndifund ráðsins var hvatt til þess að virt yrði eining landsins og samheldni, fullveldi þess og pólitískt sjálf- stæði. Hvergi var minnst á loftárásir Israela á bækistöðvar Palestínu- manna í Líbanon. Egyptar slitu í dag stjórnmála- sambandi við Líbanon en einnig Qatar og Bahrein og arabísku furstadæmin vegna andstöðu þeirra við friðarsamninga. Sýrlenzkar flugvélar sáust í gær á sveimi yfir Beirut. Talsmenn PLO kváðu þær vera á varðbergi gegn nýjum loftárásum óvinanna. Amin í hópi afsprengja — Enginn getur sagt fyrir með vissu hve margar konur eða hve mörg börn harðstjórinn Amin á. Á meðfylgjandi mynd sjáum við forsetann fyrrverandi umkringdan tuttugu og þremur afkvæma sinna og var hún tekin áður en Amin var hrakinn frá völdum. Hann fer nú huldu höfði og er alls óvíst um afdrif hans. Hin nýja ríkisstjórn Uganda hefur nú farið þess á leit við grannríkið Kenya, að allir flóttamenn úr röðum einræðisherrans verði framseldir. símamynd ap Stjórnarherinn ber á Kúrdum Teheran, 26. aprfl, Reuter. ÍRANSHER sótti í dag í átt að vesturlandamærum íraks og segir talsmaður stærsta stjórnmála- flokks Kúrda, að stjórnarherinn hafi beitt þyrlum í árásum á fjalla- þorp í þeim tilgangi að ná aftur á sitt vald svæðum, sem verið hafa á valdi þjóðernissinnaðra uppreisnar- manna síðan í febrúar. Talsmaður- inn sakaði stjórnina um að styðja við bakið á Tyrkjahéraðinu Azerbaijani, er Kúrdar hafa eldað grátt silfur við um skeið. bjóðernis- sinnar úr olíuhéraðinu Khuzestan hafa einnig sótzt eftir takmarkaðri sjálfsstjórn, en segjast þó ekki vilja yfirtaka olfuiðnaðinn. Begin stingur upp á Carter Jerúsalem, 26. apríl, Reuter. FORSÆTISRÁÐHERRA ísraels, Menachem Begin, stakk upp á þvf við norska þingið í dag að friðarverðlaun Nóbcls í ár kæmu í hlut Carters Bandarfkjaforseta fyrir þátt hans í að friðarsamn- ingar ísraela og Egypta voru undirritaðir. í bréfi, sem hann sendi Nóbels- nefnd þingsins, sagði Begin: „í ljósi alls sem ég veit er enginn maður í veröldinni betur að friðar- verðlaunum Nóbels kominn fyrir árið 1979 en Bandaríkjaforseti, Jimmy Carter." ki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.