Morgunblaðið - 13.05.1979, Síða 31

Morgunblaðið - 13.05.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 31 „Stóðst ekki að f á litakass- anníhendur” r Rabbad við Ama Garðar, sem sýnir á Borginni „Auðvitað er ég frístundamál- ari, þetta er mitt aðaláhugamál í tómstundum, gamalgróinn áhugi og reynsla sem lagðist í híði í 30 ár og blossaði síðan upp þegar konan mín gaf mér litakassa sem hún keypti í London fyrir nokkrum árum,“ sagði Arni Garðar Kristinsson sem heldur nú einkasýningu á Hótel Borg og hefur selt margar myndir. „Fiðringur um mig allan* „Það var einkennilegt að taka við litakassanum," hélt Arni Garðar áfram, „það fór fiðringur um mig allan þegar ég sá hvað var í kassanum og síðan má segja að ég hafi ekki stoppað, gat ekki staðist þetta lengur." „Þú sagðir gamalgróinn áhugi". „Já, ég byrjaði fyrst að mála 1944, var þá í skóla Félags íslenzkra frístundamálara og lærði hjá skozka málaranum Waistel. Síðan tók við harðsnúið brauðstrit í 30 ár í auglýsinga- bransanum, en fyrir 5 árum hóf ég endurhæfingu þegar kassinn góði kom til sögunnar. Um það leyti stofnuðum við Myndlistar- klúbb Seltjarnarness og þar hef ég ásamt félögum mínum notið leiðsagnar fjölmargra listmál- ara og við höfum haldið eina samsýningu á hverju sumri. Ekki hefur nú farið mikið fyrir öðrum sýningum utan það að eitt sumarið héngu myndir uppi í Bjarkarlundi og Flókalundi á Árni Garðar málar mikið á Sel- tjarnarnesi og sjórinn er hvergi langt frá þeim slóðum. Þarna er hann með blokkina úti við Gróttu og það er vitinn í Gróttu sem sézt f f jarska og Akraf jallið. Ljówmynd Mbl. Kristinn. Á handfærum, ein af vatnslitamyndum Árna Garðars. Vestfjörðum. Eigendum fannst veggirnir vera svo auðir að þeir báðu mig a lána sér myndir. Sýning mín á Borginni núna er hins vegar fyrsta einkasýning mín hér í Reykjavík." „ Vil helzt haía vatn í mínum myndum“ „Heldur Nesklúbburinn hóp- inn þegar leitað er viðfangs- efna?“ „Þetta er mjög samstilltur og skemmtilegur hópur og það eru konur sem eru í meirihluta. Þær ráða líka ríkjum þar. Já, við förum víða saman að mála, en sjálfum finnst mér skemmtileg- ast að mála sjávarmyndir. Ég vil helzt hafa vatn í mínum mynd- um, enda Hríseyingur og það má segja að mitt tríó séu bátar, sjór og land. Annars eru margir áhugamálarar á Nesinu og ugg- laus hefur hið sífellda birtuspil ljóss og hafs mikil áhrif í þessu sambandi. Seltirningar hafa einnig mikinn áhuga á málaralist og þeir hafa sýnt klúbbnum okkar mikla vel- vild.“ „Að virkja stemmn- inguna á Nesinuu „Þú sagðir sjávarsíðuna vera þitt viðfangsefni." „Já, ég mála mikið á Nesinu, það er minn staður, þótt ég taki blokkina oft með mér út fyrir „landhelgina". Það er svo gott að virkja stemmninguna á Nesinu í málverkinu og það hjálpar manni til að gera betri myndir en maður getur í rauninni og svo er ekki verra að búa við það stórkostlega sólarlag sem þar er.“ „Ekki minn höíuðverkur“ „Hvers vegna málar þú?“ „Það er stundum verið að skjóta á okkur frístundamál- arana, en mig varðar ekkert um það. Það er ekki minn höfuð- verkur. Ég mála af þvi að ég hef yndi af því. Ég hélt að það væri búið að drepa alveg niður í mér tilfinninguna á 30 árum, en svo þegar ég hafði litina í höndunum á ný, þá blossaði upp neistinn sem hafði blundað og árangur- inn er hægt að sjá á Borginni, á sýningunni sem verður opin þar til sunnudagskvölds, 13. maí.“ é/g* Unglingadeild (%jj) KARNABÆR k Austurstræti 22. Sími frá skiptiboröi 28155 Nú er sumar- tískan k 0Mnin í KARNABÆ Áprentaöir bolir — Ofsalegt úrval af myndum. Náttföt og náttkjólar. KRAKKARI ★ Khakibuxur ★ Gallabuxur ★ Flauelsbuxur ★ Peysur ★ Blússur ★ Skyrtur ★ Sportiakkar mmo sportföt á börn og unglinga. Blessuö komiö í bæinr á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.