Morgunblaðið - 16.05.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 1979
3
Hreinlætistæki
og plastgerðarefni
— voru í gámunum sem töpuðust af Rangá
FLUTNINGASKIPIÐ Rangá
kom til Reykjavfkur í gær-
morgun, sólarhring seinna en
áætlað var. Ástæðan er sú að
skipið fékk á sig brotsjó s.l.
sunnudag þegar það var statt
suður af landinu og missti þá
útbyrðis tvo vörugáma.
Mjög slæmt veður var á þessum
slóðum og sukku gámarnir fljót-
lega. Samkvæmt upplýsingum
Hafskips voru hreinlætistæki í
öðrum gámnun en efni til plast-
gerðar í hinum.
Á dekkinu voru einnig vinnuvél-
ar að verðmæti 60—80 milljónir
króna og mikil mildi að þær
skyldu ekki fara fyrir borð, því
það hefði getað valdið miklum
skemmdum á skipinu.
Sjópróf vegna málsins verða
haldin einhvern næstu daga.
Myndin var tekin af Rangá í gær.
Ljósm. 01. K. Maif.
Tvær sölur
SÆVÍK landaði f gær 58 lestum
af fiski f Þýzkalandi og fékk 58
milljónir króna fyrir aflann,
meðalverð 278 krónur. Þá land-
aði Sigurey frystum fiski f Eng-
landi í gær.
„Ger-
eyðingar-
stefnan”
ofan á í
efri deild
Á FUNDI efri deildar í gær
var frumvarp ríkisstjórnar-
innar þess efnis, að rfkis-
einkasala skuli vera á öllum
bruggefnum samþykkt við 2.
og 3. umræðu með 13 atkvæð-
um gegn 1 og sent neðri deild
til afgreiðslu.
Fyrir deildinni lá frávísunar
tillaga frá Þorvaldi Garðari
Kristjánssyni og Eyjólfi K.
Jónssyni þess efnis, að áfengis-
löggöfin skyldi tekin til endur-
skoðunar í heild og frumvarp
þar að lútandi lagt fyrir al-
þingi í haust. Hún var felld
með 13 atkvæðum gegn 4, en 3
voru fjarstaddir.
Þessir þingmenn greiddu at-
kvæði með frávísunartillög-
unni: Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, Eyjólfur K.
Jónsson, Jón G. Sólnes og
Guðmundur Karlsson. Á móti
voru: Alexander Stefánsson,
Ágúst Einarsson, Bragi Níels-
son, Geir Gunnarsson, Bragi
Sigurjónsson, Helgi F. Seljan,
Jón Helgason, Karl Steinar
Guðnason, Oddur ólafsson,
Stefán Guðmundsson, Ragnar
Arnalds, Soffía Guðmunds-
dóttir og Vilhjálmur Hjálm-
arsson.
Síldveiðar
bannaðar
við Noreg
í haust
NORSKA ríkisstjórnin hefur
ákveðið að leyfa ekki sfld-
veiðar við Noreg á næstkom-
andi hausti, en samtök út-
gerðarmanna höfðu farið
fram á að leyfð yrði veiði á
200 þúsund hektólftrum af
sfld. í fyrra höfðu norskir
sjómenn leyfi til veiða á 75
þúsund hektólítrum og árið
þar á undan 100 þúsund
hektólftrum.
Fiskifræðingar halda því
fram að norsk-fslenzki sfldar-
stofninn við Noreg hafi
minnkað um þriðjung sfðustu
árin og lögðu til algjört bann
við sfldveiðum í haust. Út-
gerðarmenn halda hins vegar
hinu gagnstæða fram og telja
sfldveiðibannið setja alvarlegt
strik f reikninginn varðandi
afkomu útgerðar á árinu.
söguslóðum
i hjarta B/rópu
Luxemborg
seilingar. 7/7 dæmis erstutt
á vígaslóöir tveggja
heimsstyrjalda, Verdun og
Ardennafjöll.
Ef þú feröast til Luxemborgar, þá
Hvort heldur þú kýst ys og þys
stórborgarinnar eöa kyrrö og
friösæld sveitahéraöanna - þá ferö þú í sumarfrí á eigin spýtur -
finnur þú hvort tveggja í ræöur feröinni sjálfur—slakar á
Luxemborg, þessu litla landi sem og sleikir sólskiniö og skoöar þig
liggur í hjarta Evrópu. um á söguslóöum.
Næstu nágrannar eru Frakkland, Sumarfrí í Luxemborg er hvort
Þýskaland og Belgía - og fjær
Holland, Sviss og Ítalía.
Því er þaö aö margir helstu
sögustaöir Evrópu eru innan
tveggja ísenn einstæö skemmtun
og upplifun sögulegra atburöa.
FLUGLEIÐIR
luosswOteOW