Morgunblaðið - 16.05.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1979
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Nýtt 160 fm skrifstofuhúsnæöi til leigu á
góöum staö viö miðborgina.
Uppl. á skrifstofunni.
Húsafell
__________________________Luövik Hattdórsson
FASTEKMASALA Unghoitsvegi 115 Adalsteinn Pélursson
(BæiarieAahúsinu I simi: 81066 Bergur Guonason hd'
AUGLÝSINGASIMINN F.R:
22480
R:@
Hvöt heldur markað
á útimarkaðinum
föstudaginn 18. maí
Sjálfstæðiskonur vlnsamlegast komlö maö varnlng, svo sem blóm,
búsáhöld. fatnaö.
Upplýslngar í síma 82900 kl. 3—5. Móttaka varnlngs í Valhöll á sama
tíma mánudag tll flmmtudags.
Tökum allar vlrkan þátt.
Undirbúningsnefndln.
Vestfjarðakjördæmi
Sjálfstæðiskvennafélögin
í Vestfjarðarkjördæmi
boöa tll fundar ( Bolungarvík, flmmtu-
daglnn 17. maí n.k. kl. 8.30 I sjómanna-
stofu Félagshelmilslns, Bolungarvfk.
Stofnuö veröa á fundlnum kjördæmls-
samtök sjálfstæölskvenna á Vestfjörö-
um.
Formaöur Landssambands sjálfstæöls-
kvenna Slgurlaug Bjarnadóttlr, mætir á
fundlnn.
Pétur H. Blöndal, trygglngarfræðlngur
flytur erlndl um verðtryggingu Iffeyria.
Almennar umræður.
Allar vestflrzkar sjálfstæölskonuar vel-
komnar.
Slálfstæðlskvennafélögln.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JOHANNES S. ÓLAFSSON,
Austurbrún 6,
veröur jarösunginn fimmtudaginn 17. maí frá Fossvogskirkju kl. 3.
Kristin Alexandersdóttir,
bðrn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir mín,
ELÍSABET PJETURSDÓTTIR JENSEN,
lést í Hilleröd, föstudaginn 11. maí.
Sturla Jensen,
Vejle; Danmörku.
t
Hjartkær eiginkona mín og móðir
ELÍSABET JÓNASDÓTTIR,
Vesturbergi 102,
andaöist í Landspítalanum 14. maí.
Svavar E. Árnason,
Sævar E. Svavarsson.
t
Dóttir mín, stjúpdóttir, móöir og svstir,
JAROÞRÚÐUR GUDNY KRISTJÁNSDÓTTIR,
lézt þann 14. maí.
F.h. vandamanna.
Kristján Sigurjónsson Arndís Markúsdóttir
Kristján Arnar Guöjónsson
og systkini.
t
Jaröarför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og
ömmu,
SIGRÍÐAR V. EGGERTSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. maí n.k. kl. 15.00.
Óskar Bergsson,
Elsa Óskarsdóttir, Jón R. Björgvinsson,
Eggert Óskarsson, Ragna Hall
og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma
HALLDÓRA SAMÚELSDÓTTIR
Sjafnargötu 3,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 17. maí kl. 1.30.
Þeim sem vildu minnast hennar vinsamlegast bent á líknarstofnan-
ir.
Kristín Pétursdóttir, Baldvin Einarsson,
Martha Pétursdóttir, Björn Halldórsson,
Guðrún E. Halldórsdóttir,
Gunnar Pétursson, Sigrún Guöbjarnardóttir,
og barnabörn.
Hallgrímur Th. Björnsson
fyrrv. yfirkennari - Minning
Hallgrímur Thorberg Björnsson
er látinn, sjötugur að aldri. Hann
lét af störfum sem kennari nokkru
fyrir sjötugsaldur og fluttist til
höfuðstaðarins. Ekki til að setjast
í helgan stein, heldur til að skipta
um starf. Kennsla við stóran skóla
er erfitt starf, og þarf ekki stóran
til. Hallgrímur skilaði góðu dags-
verki og miklu. Hann var á mörg-
um vígstöðvum, ef svo má að orði
kveða. Bindindismálin voru hon-
um hugleikin, og þar lagði hann
sannarlega sitt af mörkum. Rit-
störf stundaði Hallgrímur alla
ævi, enda ritfær vel. Allt sem frá
honum kom einkenndist af létt-
leika og smekkvísi. Skáldmæltur
var hann, og sáust við og við kvæði
frá hans hendi, ekki sízt í ritinu
Faxa, sem hann ritstýrði frá því
það hóf göngu sína (að kalla) og
þar til flutt var úr Keflavík. Alla
tíð frá því Hallgrímur lauk kenn-
araprófi var hann kennari við
barnaskólann í Keflavík, — hann
setti sannarlega svip á bæinn
sinn.
Ég hef hér að framan greint í
stuttu máli frá starfi Hallgríms
Th. Björnssonar. Kynni okkar
voru orðin nokkuð löng. í Kenn-
araskólanum hafði Hallgrímur
verið sambekkingur Hannesar
Péturssonar, frænda míns, (við
vorum systkinasynir) er síða varð
skólastjóri á Hellissandi og lézt
langt um aldur fram, árið 1943. Ég
fann að Hallgrímur og Hannes
heitinn höfðu verið góðir félagar.
Vináttan færðist yfir á mig,
óverðskuldað, að mér fannst.
Hallgrímur var örlátur maður.
Get ég sjálfur vel um það borið.
Eitt sumar kom hann til mín og
færði mér Faxa frá upphafi. Það
var góð gjöf og vel þegin. Lét ég
það ekki dragast að binda ritið inn
í band, sem því hæfði. A sextugs-
afmæli Hallgríms sendi ég honum
símskeyti:
Vel ég Kaxa viröl ufe ireymi,
valdi honum spariflik.
Dveldu lengi hér f heimi.
HalÍKrfmur f Keflavfk.
Kvaddur er hæfileikamaður,
hugsjónamaður, mannbótamaður.
Ég sakna Hallgríms, og svo munu
allir gera, sem af honum höfðu
einhver kynni. Eiginkonu Hall-
gríms, Lóu Þorkelsdóttur, svo og
sonum þeirra tveimur og öðrum
aðstandendum sendum við hjónin
innilegar samúðarkveðjur.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Minning:
Þorleifur Jóhanns-
son Þrándarstöðum
Fæddur 24. febrúar 1951.
Dáinn 22. aprfl 1979.
Vorið er eins og lífið, það kemur
með framtíðina, hinn ókomna
tíma, sem hulið er, hvað í skauti
sínu ber. Ungum manni er líkt
farið og vorinu, hans er lífið og við
hann eru svo margar framtíðar-
vonir bundnar, bæði fyrir hann og
aðra. En: „Vor ævi stuttrar stund-
ar, er stefnt til Drottins fundar."
Hversu oft fer ekki svo, að hinu
unga lífi, sem svo margar vonir
voru bundnar við, er óvænt og á
augabragði kippt burtu og allir
draumar þess að engu orðnir.
Þessir hugleiðingar urðu það
fyrsta er fylltu vitund mína, er ég
fékk þá sorgarfregn, að frændi
minn, Þorleifur Jóhannsson, hefði
látist af slysförum 22. apríl síðast-
liðinn.
Þorleifur var fjölhæfur maður,
að hvaða verki sem hann gekk.
Hann var nýbúinn að koma sér
upp eigin húsi, sem þau hjónin
voru flutt í með sinn unga son.
Framtíðin sýndist brosa við þeim.
Hann hafði tekið að sér stjórn á
vélaverkstæði á Egilsstöðum, sem
Búnaðarsamband Austurlands
rak í sambandi við starfsemi sína.
I því stárfi hafði hann, þó ungur
væri, áunnið sér traust fyrir
fjölhæfni og trúmennsku sem
hann sýndi í öllum störfum og
kynnum, enda voru samviskusemi
og heiðarleiki einkennandi í öllu
hans dagfari.
Þessa kæra, unga frænda míns
er nú sárt saknað af okkur öllum,
sem af honum höfðum haft kynni.
En allra sárastur er sá söknuður
hjá hinni ungu eiginkonu og hin-
um litla syni, er svo mikið hafa
misst, og einnig hjá foreldrum og
systkinum, en milli þeirra var
sterk og innileg samheldni.
Öll erum við sem gestir hér á
þessari jörð, ýmist lengur eða
skemur, uns við flytjum yfir á
annað tilverustig, sem við trúum
að bíði okkar með æðri og meiri
þroska. „Þá opnast hlið að andans
höll, inni við þar hugsæl lítum
blasa við oss undur öll, englalið í
skrúða hvítum." Ég er þess full-
viss, að þessi trú okkar er rétt og
því veit ég að þar sem Þorleifur er
nú kominn umvefur hann birta og
englafriður og að þar bíður hans
hlý og fögur framtíð. Og þegar við
nú kveðjum Þorleif frænda minn
með þökk og virðingu, eftir hina
stuttu samfylgd hér, mildar það
Söknuðinn að eiga þá trú að við
fáum að hitta hann aftur er för
okkar hér lýkur. Og verk þau, er
hann skildi eftir sig hér, geyma
vitnisburð um það hverju hann
fékk áorkað á svo skammri ævi.
„Merkið stendur, þótt maðurinn
falli.“
Friður Guðs fylgi kærum
frænda mínum.
Sigurður Stefánsson,
frá Stakkahlfð.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.