Morgunblaðið - 16.05.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1979
23
Minning - Lára Jóns-
dóttir hjúkrunarkona
Fædd árið 1900.
Dáin árið 1979.
Ylir um álinn bátinn bar
blikaði sól um fold «k mar
(■K ýtti að hlein ok eyKÖi þar
ástina ok lffið hvar sem var.
Hún Lára Jónsdóttir hjúkrunar-
kona er horfin okkur sjónum.
Eftir henni, sem var okkur vinur
og líknarsystir í margri raun,
horfum við, ég og fjölskylda mín
og hver veit hve margir, með
söknuði og angurværð.
Ætt hennar, uppruni og lífsfer-
ill verður ekki rakinn hér, enda
hefur það gjört frændkona hennar
náin, frú Auður Sveinsdóttir, í
ágætri minningargrein.
Móðir mín og Lára voru alda-
vinkonur frá því þær ungar að
árum unnu saman í verslun Ingi-
bjargar Johnsen. Einnig hjúkraði
Lára móður minni síðar heilan
vetur, þá deildarhjúkrunarkona á
Landspítalanum. Er móður minni
enn í minni kvöldið, er Lára tók
þar á móti henni fársjúkri opnum
örmum. Var þá sem þegar birti og
batavonir glæddust. Sjálf sá ég
Láru fyrst á skurðstofugangi, þá
sextán ára unglingur þangað kom-
in til smáaðgerðar sökum fingur-
meins. Er mér enn í minni hversu
þessi glæsilega kona með geislandi
yfirbragð tók mér hlýlega og
traustvekjandi. Hún var svo sann-
arlega hjúkrunarkona af guðs náð
og jafnframt ein af þessum sjálf-
lýsandi manneskjum, sem einlægt
eru eins og nýjar á hverri stundu
hversu gömul sem kynnin verða —
en þau urðu bæði löng og ógleym-
anleg.
Lára var manna sjálfstæðust og
gjörhugulust í hverju máli. Minn-
ist ég þess, að hún sagði okkur
einu sinni frá því hversu hún á
unglingsárum hugleiddi ferming-
arheitið og hvað í því raunveru-
lega fælist. Að lokinni yfirvegaðri
íhugun kvaðst hún hafa komist að
þeirri niðurstöðu, að hún, þá svo
ung og óreynd, treystist ekki til að
gefa slíkt heit — og standa við það
í einu og öllu.
Skyldi annars nokkur hafa gert
svo?
Ræddi hún þennan vanda við
sóknarprest sinn, er reyndist
maður glöggur og víðsýnn og
hvatti hana eindregið til að taka
sjálfstæða ákvörðun í þessu máli.
Gerði hún svo og lét ekki ferma
sig á hefðbundinn hátt. Þannig
var hún alla tíð, heilsteypt og
hreinlynd og fjarri allri sýndar-
mennsku og rækti sitt hlutverk
svo vel að af bar. Návist hennar
ein saman, orð og handtök voru
sannkölluð heilsulind. Djúp sam-
kennd með öllu sem lifði og
hrærðist svo og jafnréttishugsjón
var henni í brjóst lagin. Fáum
manneskjum hefi ég kynnst jafn
lausum við dómgirni og hverskon-
ar þröngsýni. Það var sem tindr-
andi, ljósvökul augun sæju gegn-
um holt og hæðir, menn og mál-
efni þegar því var að skipta. — Æ,
blessað barnið — var orðtak Láru
um þá, sem heimurinn hallmælti
eða lítils voru virtir sökum veik-
leika og bresta, og einnig um þá,
sem meira máttu sín og sómakær-
ir kölluðust. Þessi þáttur í fari
hennar minnti mig stundum á þá
ógleymanlegu afbragðskonu,
Akkúlínu Ivanovnu, ömmu Maxim
Gorkís. Þessi fyrirmannlega öðl-
ingskona, Lára, var ævinlega svo
AUGLYSINGA-
TEIKNISTOFA
MYNDAMOTA
Adiilstraíti 6 sími 25810
snarlifandi, gædd öldungis sér-
stæðri kímnigáfu, sem ávallt var
blandin góðvild og næmi. Einu
sinni man ég, að unglingsstúlku
bar að garði, þegar Lára var
gestkomandi heima. Var stúlkan
allrækilega „meikuð" í andliti,
sem kallað er, jafnvel svo mjög að
minnti á innbrotsþjóf ellegar
hrollvekju. Lára gaumgæfði ungl-
inginn hýrlegum alvörusvip, sagði
síðan þegar sá var farinn og léku
þá glampar í augum. — Það þyrfti
að taka þau sum þessi blessuð
börn, og sandskúra þau í framan,
svo þau yrðu eins og manneskjur,
agnirnar þær arna. Varð af þessu
hjartanlegur hlátur eins og oftar,
þegar Lára hitti beint í mark.
Hana Láru sjálfa þurfti enginn
að sandskúra með trúarjátning-
um, ellegar. titlatogi, svo að hún
yrði eins og manneskja, því að það
var hún sannarlega í þess orðs
bestu merkingu og áreiðanlega
nær guði í alheimsgeimi og guði í
sjálfri sér en margur sá, sem trú
sinni flíkar eins og skartklæðum.
Eitt sinn sagði Lára mér frá
merkilegri reynslu, er hún varð
fyrir. Þreytt og þjökuð lagðist hún
fyrir um stund heima hjá sér.
Skyndilega var sem hún losnaði úr
iíkamanum og kæmist gegnum
vegginn í veröld fegri en orð fá
lýst.
Dvaldi hún þar æðistund, hitti
horfna ástvini og naut unaðar
meiri en hana hafði áður órað
fyrir að finnast mætti. En þar
kom, að hún varð að hverfa til
baka í sinn gamla líkama og til
fyrri starfa.
Fyrir nokkuð löngu var mér
sögð sú saga um skáldkonuna
Theódóru Thoroddsen og vinkonu
hennar aldna, að þær hefðu svo
ráð fyrir gjört, að sú þeirra, sem
fyrr færi héðan af heimi skyldi
gjöra hinni viðvart um tilvist sína
og ástand með einhverjum hætti.
Dó Theódóra ekki löngu síðar.
Leið svo og beið og varð vinkonan
eftirlifandi einskis vísari.
En þar kom, að nótt eina
dreymdi hana Theódóru bráðlif-
andi og æskubjarta og kastaði hún
fram þessari stöku.
Yfir um álinn bátinn bar
blikaAi aál um fold ok mar
éx ýtti aA hlrin ok eyKÖI þar
ástina ok IffiA hvar scm var.
Mun þessi saga, að því er ég best
veit, vel vottfest. Nú þegar hún
Lára blessuð er horfin gegnum
vegginn fyrir fullt og allt kemur
mér þessi staka ósjálfrátt í hug.
Mun ekki svo, að hún sem
Barðstrendingur að uppruna, hafi
nú ýtt að hlein og eygt þar hið
sama og hið fyrra sinnið, er hún
skaust gegnum vegginn.
Hafi hún hugheilar þakkir mín-
ar, móður minnar og föður, fyrr
frábærlega hugljúf kynni og vin-
artryggð gegnum árin. Ég hygg,
að enn muni gott að eiga hana að,
því enginn veit hverju jafn ljós-
gjöfular sálir fá áorkað, þótt
horfnar séu sjónum okkar, sem
eftirlifendur köllumst.
Blessuð veri henni framtíðin og
blessuð sé minning hennar hér á
jörðu.
María Skagan.
t t
Þökkum innilega öllum sem hafa sýnt okkur samúö og vináttu viö Móöir okkar
andlát og jaröarför KRISTÍN BJARNADÓTTIR,
GUDMUNDAR KRISTINS GUÐJÓNSSONAR, Hrafnistu,
Goöatúni 30, Garöabn. óöur Mjölnisholti 8,
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A5 og A7 Borgarspítalan-
um. andaöist á Landakotsspitala 15. maí.
Elísabet Sveinsdóttir, Hallgrímur Guömundsson Börnin.
og fjölskylda.
Höfum flutt
varahlutaverslunina
frá Vonarlandi v/Sogaveg í
Varahlutahúsið
Melavöllum v/Rauðgerði
sími 8-45-11
Stórbætt þjónusta
Öll önnur starf-
semi svo sem
heildverslun og
bifreiöasala
verður
áfram að
Vonarlandi
v/Sogaveg
Datsun — Subaru — Trabant — Wartburg umboöiö
Heildverslun og bílasala
Sími 3-35-60
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg