Morgunblaðið - 26.05.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
5
Edda Jónsdóttir
sýnir í Suðurgötu 7
UM HELGINA opnar Edda
Jónsdóttir sína fyrstu
einkasýningu í Gallery
Suðurgötu 7. Sýningin
stendur í eina viku frá og
með 25. maí—1. júní og
verður opið frá kl. 4—10
daglega en 2—10 um helg-
ina. Edda stundaði nám við
Myndlistaskóla Reykjavík-
ur, Myndlista- og Handíða-
skóla íslands og Rijksaka-
demie Van Beeldende
Kunsten í Amsterdam. Hún
lauk teiknikennaraprófi frá
M.H.Í. og stundaði eftir það
grafíknám við M.H.Í. og við
Ríkisakademíuna í Amster-
dam. Hún hefur tekið þátt í
nokkrum grafíksýningum
hér heima, á Norðurlöndum
og í Póllandi. Á þessari
sýningu verður hún með
teikningar og ljósmyndir.
Edda Jónsdóttir hjá tveimur
verka sinna.
Vörðuskóla
sagt upp í 50.
sinn í dag
VÖRÐUSKÓLA verður sagt upp
í fimmtugusta sinn í dag, lautcar-
dag kl. 14. Afmælisdaiíur skólans
var hinn 2. október sl. en skóla-
yfirvöld ákváðu að minnast þessa
afmælis við skólaslitaathöfn nú.
Verður á dagskrá við athöfnina,
m.a. söngur. ræða skólastjórans
Gunnars Finnbogasonar, 20 ára
nemendur færa skólanum gjöf og
kaffiveitingar verða að athöfn-
inni lokinni.
Vörðuskóli hefur borið fjögur
nöfn á ferli sínum. Hét hann fyrst
Ungmennaskólinn í Reykjavík,
síðar Gagnfræðaskóli Reykjavík-
ur, með nýjum fræðslulögum, sem
samþykkt voru 1946, hét hann
Gagnfræðaskóli Austurbæjar og í
tíð núverandi skólastjóra var
nafninu breytt í Vörðuskóla. Eldri
nemendur eru velkomnir á skóla-
slitaathöfnina.
Flugdagur
á Selfossi
FLUGKLÚBBUR Selfoss heldur
flugdag á Selfossflugveili í dag,
laugardag kl. 14. Þar verður
ýmislegt til skemmtunar. Sýnt
verður listflug, yfirflug ýmissa
flugvéla, þyrlur frá björgunarsveit
varnarliðsins sýna björgun, happ-
drættismiðum verður dreift úr
flugvél og loks verður útsýnisflug
fyrir þá sem þess óska.
Landsþing
sjálfstæð-
iskvenna
LANDSÞING sjálfstæðis-
kvenna verður á Akranesi á
morgun, sunnudag. Vegna
farmannaverkfalls verður ekki
hægt að fara frá Reykjavík
sjóleiðis, en í staðnn verður
farin landleiðin til Akraness.
Verður lagt af stað í langferða-
bílum kl. 9 í fyrramálið frá
Valhöll á Háaleitisbraut 1.
Hefur Mbl. verið beðið um að
vekja athygli fulltrúa á því.
Aðalfundur
Samtaka
sykursjúkra
AÐALFUNDUR Samtaka sykur
sjúkra verður haldinn í dag,
laugardag, í Glæsibæ, Ájfheimum,
og hefst hann kl. 14. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf og
stjórnarkjör. Þá verður sýnd kvik-
mynd og að lokum verða bornar
fram veitingar.
Já, margir hverjir, það fer ekkert
á milli mála - þó eru þeir
sérstaklega úti að aka á sumrin -
þá skipta þeir þúsundum
Ástæðan?
Jú ástæðan er einföld, hún ersú
að afsláttarfargjöld okkargera
öllum kleift að komast utan í
sumarleyfi til þess að sjá sig um,
kynnast frægum stöðum - og
gista heimsborgir.
Þeir sem þannig ferðast ráða
ferðinni sjálfir-sumir fara um ■
mörg lönd-aðrir fara hægaryfir
og halda sig lengst þar sem
skemmtilegast er.
Það þarf engan að undra þótt
margir séu úti að aka á sumrin -
á eigin bílum eða leigðum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
okkar-þau gætu komið þér
þægilega á óvart- og orðið til
þess að þú yrðir líka úti að aka í
sumar.
FLUGLEIÐIR