Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1979
Helgi Hallgríms-
son — Minningarorð
Fæddur 11. apríl 1891.
Dáinn 23. maí 1979.
í dafí miðvikudag fer fram frá
Dómkirkjunni útför Helga
Hallgrimssonar. Hann fæddist á
Grímsstöðum á Mýrum 14. apríl
1891 og lést s.l. miðvikudag 23.
maí 1979. Hann var sonur
Hallgríms Níelssonar, bónda á
Grímsstöðum á Mýrum og
Sigríðar Helgadóttur frá Vogi á
Mýrum, konu hans. Séra Haraldur
Nieisson prófessor var föðurbróðir
hans og margt dugnaðarfólk er í
ættinni.
Helgi var kennari að mennt, en
var lengst af fulltrúi á skrifstofu
Reykjavíkurhafnar. Tók hann
mikinn þátt í félagsmálum og var
um langt árabil þingforseti
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Fóru honum þau störf vel úr
hendi, enda röggsamur í forseta-
stóli og mælskumaður mikill.
Hann hugsaði mikið um þjóð-
félagsmál og hélt oft erindi um
þau í útvarpið. Hann var mikill
tækifærisræðumaður og hafði
yndi af að flytja kvæði, einkum
kvæði Kinars Benidiktssonar, sem
hann kunni flest utanbókar.
Aðal áhugamál Helga var tón-
listin. Hann hafði góða söngrödd
og lék vei á píanó og orgel, m.a. við
messur Haralds Níelssonar í
hVíkirkjunni. Hvergi kunni hann
betur við sig en þar sem tónlistin
var í heiðri höfð og var þá hrókur
alls fagnaðar. Helgi fékkst við
innflutning á píanóum alla ævi
allt fram til hins síðasta og þar
undi hann sér vel. Vildi hann
leggja sinn skerf til, að tónlistin
væri iðkuð á flestum heimilum.
Einkum var honum annt um, að
unglingar hefðu tækifæri til að
öðlast staðfasta grundvallarþekk-
ingu í tónlist.
Eiginkona Helga, Ólöf
Sigurjónsdóttir, lést fyrir nokkr-
um árum. Börn þeirra eru
Hailgrímur tónskáld, Sigurður
forstjóri h'lugleiða, Gunnar
lógfræðingur Flugleiða, Halldór
forstjóri Ocean Harvest í Boston
og Ástríður sendiherrafrú í
Washington.
Vinir Helga Hallgrímssonar
munu minnast hans sem alvöru-
manns og gleðimanns og umfram
allt sem góðs vinar. Eg naut
vináttu Helga um 30 ára skeið.
Þótt aldurmunur væri mikill,
fannst mér alltaf, að við værum
jafnaldrar. Svo ungur var hann í
anda og jákvæður í öllum sínum
lífsviðhorfum.
Hafðu þökk fyrir samveruna,
ka-ri tengdafaðir.
Hans G. Andersen.
Þann 23. maí s.l. lést á Land-
spítalanum Helgi Hallgrímsson 88
ára að aldri. Þar var lokið löngu,
fjólþættu og viðburðaríku ævi-
starfi. Starfsdagurinn hóf Helgi
við lok síðustu aldar, þá ungur að
árum með þátttöku í dag-
legumstörfum á stóru sveita-
heimili í Borgarfirði. Starfsdagur
þessi hélt áfram með fjölbreytni
og litlum frátöfum þar til 4 dögum
áður en hann lést, en þá lauk hann
við (innflutnings) skýrslur fyrir
verslunarstarfsemi þá, sem hann
hafði starfrækt um áratugaskeið.
Ekki lét hann bugast þótt kraftar
væru farnir að þverra, en undan-
farna daga hafði hann tekið eftir
vaxandi þróttleysi og einnig því að
hjarta starfaði með nokkuð öðrum
hætti en hann myndi eftir að það
hefði gert í rúm 80 ár. Samt þurfti
úrlausn vissra verkefna að ganga
fyrir nauðsyn þess að fara á
sjúkrahús að þessu sinni.
Helgi lauk kennaraprófi um
tvítugt. Það skólanám var traust
undirstaða viðtækrar og staðgóðr-
ar sjálfsmenntunar, einkum í bók-
menntum, sögu og listum, en þar
bar tónlistina hæst. Þetta var
hans eftirlætisgrein, eins og
margra hans ættingja fyrr og
síðar. Hann lærði ungur píanóleik
og náði þar mikilli færni sem hélst
að heita mátti alla ævi, þannig að
á síðasta aldursári lék hann utan-
bókar verk eftir uppáhaldstón-
skáldið Grieg. Þannig entist hon-
um áhugi, einbeitni og viljastyrk-
ur ásamt glöggu minni þrátt fyrir
háan aldur.
Helgi var gæfumaður bæði í
fjölskyldulífi og í starfi. Hann
mat það að verðleikum að verða
aðnjótandi þeirrar gæfu að stunda
frá æsku til síðustu ævidaga
fjölþætt störf og búa við góða
heilsu lengst af. Síðustu mánuði
fann hann þó krafta þverra, en
ekki bugaði það viljaþrek hans né
starfsþrá. Helgi var bjartsýnn, en
jafnframt raunsær, hann kvartaði
sjaldan en gladdist við það
jákvæða atriði að líðan var
þrautalaus með öllu.
Helgi stundaði kennslu í 6 ár, en
gerðist þá fulltrúi Hafnarsjóðs í
Reykjavík og gegndi þvi starfi til
1953. Á þessum árum ferðaðist
hann oft erlendis og öðlaðist gott
vald á erlendum málum, kynntist
menningu og högum þjóða. Mesta
áherslu mun hann hafa lagt á
tónlist og einnig að kynna sér gerð
og framleiðslu hljóðfæra. Tók
hann sér fyrir hendur að flytja inn
píanó og lagði ætíð áherslu á að
sameina eftir föngum vörugæði og
hagstætt verð. Hagnaðarsjónar-
mið var ekki aðalatriðið heldur
hitt, að píanó gæti orðið heimilis-
hljóðfæri sem víðast, enda taldi
hann það menningarsnautt
heimili þar sem hljóðfæri vantaði
og enginn lifandi hljómlist væri
flutt. Hljómflutningstæki eða
útvarp gæti ekki bætt slíka vönt-
un til fulls. Árangur af þessu
starfi er ekki unnt að mæla og
erfitt að meta, en mörg eru þau
heimili, sem Helgi hefur útvegað
hljóðfæri og vafalaust hefur þetta
stuðlað að auknum tónmennta-
áhuga margra ungmenna.
Helgi var félagssinnaður og sat
um langt árabil í stjórn Starfs-
mannafélags Reykjavíkur. I sam-
kvæmum var hann hrókur alls
fagnaðar, ræddi skemmtilega og
hvetjandi um hin ólíkustu
málefni. Glaðværðinni lagði hann
lið með píanóleik og söng, en auk
þess var hann ræðumaður svo
snjall að af bar. Ræður sínar flutti
hann blaðalaust og þegar við átti
vitnaði hann orðrétt í sígild skáld-
verk og gilti þá einu hvort ræða
var flutt á íslenzku eða erlendu
máli. Hann flutti snjallar ræður
oft óundirbúið við hin ólíkustu
tækifæri og jafn vel tókst hvort
sem hann ávarpaði unga eða
aldna, enda jafn dáður og virtur af
öllum aldurshópum. 1 lífsstíl
Helga var ekkert kynslóðabil.
Ég kynntist Helga fyrst fyrir
rúmum tuttugu árum í fjölmennu
samkvæmi á sextugsafmæli
Níelsar Dungals prófessors. Þar
flutti Helgi afmælisbarninu langa
og athyglisverða ræðu, þar sem
tilvitnanir í sígildar bókmenntir
vöktu athygli ásamt byggingu
ræðunnar í heild. Níels hóf þakkir
til ræðumanns þannig: „Mikill
ræðumaður ert þú Helgi...“ Þetta
voru orð að sönnu, sem áttu eftir
að rætast oft en síðustu sam-
kvæmisræðuna flutti Helgi fyrir
fáum mánuðum síðan og var
jafnvel þá orð á gert að vel hafi
tekist.
Góðir ræðumenn eru jafnan vel
ritfærir og svo var um Helga,
hann ritaði blaðagreinar einkum
um tónlist og þjóðfélagsmál.
Greinar þessar vöktu athygli en
þó sérstklega útvarpserindi hans
um „daginn og veginn“. Fyrir
tæpum tveimur árum flutti hann í
þessum útvarpsþætti snjallt
erindi, þar sem meðal annars var
gerð óvanalega glögg grein fyrir
þeirri þjóðfélagsmeinsemd, sem
verðbólga nefnist, sem enginn vill
gangast við, allir mótmæla, en fáir
virðast þora að missa. Var þar á
gagnorðan hátt lýst eyði-
leggingarmætti verðbólgu og því
þjóðfélagsmisrétti, sem hún hefur
skapað, þar sem lítilmaginn og
hinn heiðarlegi borgari verða
alltaf undir. Skýrt og skorinort
var varað við þeirri hættu, sem
verðbólgueyðilegging myndi hafa
ef áfram yrði haldið á sömu braut.
Varað var við því að breytt skipan
Alþingis gæti hér um bætt. Þessar
viðvaranir hafa reynst réttar
hingað til, en eru sígild hvatning
til stjórnmálamanna, að sýna
sannan umbótavilja í verki og
treysta á skilning og rétta dóm-
greind kjósenda. Hér kom fram
hinn skarpi þjóðfélagsskilningur
Helga, sem byggðist á viðtækri
þekkingu og nær aldalangri lífs-
reynslu og spannaði mesta
breytingatímabil í þjóðlífinu.
Aðlögun íslenzkrar og erlendar
menningar er enn ekki lokið, og að
því atriði lutu einkum ábendingar
Helga varðandi framtíðina.
Helgi hafði mikið dálæti á Ibsen
og þá einkum Pétri Gaut, en þar
kemur fram í fáum ljóðlínum sú
raunsæja lífsspeki sem Helgi vitn-
aði oft til:
_bar úti. sfm nótt (yrir árdeid víkur
er nróta'kiö maður ver sjálfum þór líkur".
Með þessum orðum Ibsens, kvej-
um við Helga með virðingu og
söknuði en framar öllu þakklæti
fyrir lærdómsríka samfylgd.
Arinbjörn Kolbeinsson.
Skemmtilegur maður er vin-
margur. Og skemmtilegur er
jafnan sá, sem af mörgu hefur að
miðla. Einn þeirra var Helgi
Hallgrímsson. I návist hans þurfti
engum nokkru sinni að leiðast.
Hann var einn þeirra fáu manna,
sem í dagfari sínu sameinaði
lífsgleði og lífsspeki. — Þessir
eftirsóknarverðu eiginleikar voru
honum styrkust stoð, til þess að
standast allt misvindi í löngum og
litríkum æviferli og gera hann að
þeim ógleymanlega persónuleika,
er auðgaði líf þeirra, sem honum
kynntust.
Helga var margt til lista lagt.
Hann unni orðsins list og var með
afljrigðum ljóðelskur. Af öllum
skáldum íslands mun hann mest
metið hafa Einar Benediktsson,
enda þótt margir aðrir líka skip-
uðu hjá honum háan sess. —
Söngmaður var hann af lífi og sál.
Þar sótti hann víða til fanga og
unni jafnt Schubert og Schumann
sem Hugo Wolf. Smekkur hans og
fegurðarskyn var óbrigðult. Fyrir
vináttu hans við Sveinbjörn
Sveinbjörnsson tók hann ástfóstri
ýmis lög hans og annarra
íslenzkra höfunda.
Allskonar óundirbúinn var
Helgi oft til kvaddur að halda
tækifærisræður í mannfagnaði og
við hátíðleg tækifæri, og varð
honum aldrei skotaskuld úr því að
móta mál sitt á eftirminnilegan
hátt.
Meira en hálf öld er nú liðin
síðan Helgi tók fyrst að flytja til
landsins prentuð verk og hljóðrit-
uð eftir klassíska meistara og
lagði þar með grundvöll að bættri
tónmenntaþekkingu. Hér var
hann vandur að vali og veitti með
ráðleggingum sínum og hjálpfýsi
lið mörgum upprennandi tón-
listarmanni á þroskabraut.
Öll börn Helga hafa þegið í arf
áhuga og ríkan skilning á
menntunargildi lista, og þá sér-
staklega á sviði tónlistar. Þessi
áhugi var ekki vakinn af neinni
einhliða ofdýrkun, heldur af innri
þrá til fegurra mannlífs, sem
hlaut að snerta þá er áttu því láni
að fagna að þekkja hann.
Ég er einn í þeim stóra hóp, sem
naut þess að hljóta hjá góðum vini
og drengskaparmanni dýrmætt
veganesti. Sú þakkarskuld verður
aldrei goldin. En þakklæti mitt
lifir sem ævarandi minning um
sjálfstæðan persónuleika og
merkan mann.
Einar Markússon.
Þegar ég var að alast upp í
Borgarfirði snemma á þessari öld
heyrði ég alltaf talað um Gríms-
staðaheimilið á Mýrum með sér-
stakri virðingu. Ólium, sem á það
minntust, kom saman um, að þar
byggi sérstakt höfðingsfólk og
gáfufólk, hjónin Hallgrímur
Níelsson og Sigríður Helgadóttir.
Hallgrímur var bróðir hins þjóð-
kunna gáfumanns og andans höfð-
ingja Haralds Níelssonar
prófessors, sem var virtur af
öllum, þó að nokkur styr stæði um
kenningar hans. Ég var barn að
aldri, þegar ég sá Hallgrím á
Grímsstöðum í fyrsta sinn, en
hann var þá um fimmtugt. Var
auðsætt, að hér var höfðingi á
ferð, en ljúfur og alþýðlegur var
hann við alla.
Það var á stríðsárunum síðari,
sem ég kynntist fyrst Helga syni
Hallgríms. Kunningsskapur okkar
hófst á þingum starfsmanna ríkis
og bæja. Þar var Helgi oft fundar-
stjóri og stjórnaði fundum af
miklum skörungssap og naut þar
trausts og virðingar allra. Við
Helgi urðum fljótlega góðir kunn-
ingjar, og flýtti það fyrir kynning-
unni, að við vorum báðir Borgfirð-
ingar og gömul og góð kynni voru
millum ætta okkar. Alltaf síðan
vorum við Helgi góðir vinir, og
mér þóttu það alltaf hátíðastund-
ir, þegar ég gat talað við hann.
Helgi var sérstæður persónuleiki,
sem batt ekki alltaf bagga sína
sömu hnútum og samferðamenn.
Hann sló ekki um sig slagorðum
og klisjum, en braut hlutina til
mergjar, og dómur hans um menn
og málefni voru skarplegir og
frumlegir. Hann fyrirleit sýndar-
mennsku, yfirborðsmennsku og
innantóm slagorð nútímans af
heilum hug. Það er orðið fágætt að
hitta slíka menn nú á dögunm, og
ég held að þeim fari stöðugt
fækkandi. Helga ieizt ekkert á
þróunina á hinum síðustu tímum,
bæði úti í heimi og þó sérstaklega
hér á íslandi. Honum sýndist flest
í voru landi stefna beint fram af
hengifluginu, bæði í veraldlegum
og andlegum efnum. Og því miður
varð ég oftast nær að vera honum
sammála. Það var einhver munur
að tala við slíkan frumlegan gáfu-
mann eða hlusta á hina venjulegu
yfirborðsfrasa nútímans, sem alls
staðar glymja við. Ég sakna þess
mjög að eiga aldrei eftir að ræða
við Helga um heiminn og mannlíf-
ið, þar er allt snauðara en áður.
Ég sakna þessa frumlega gáfu-
manns, sérstæða persónuleika og
trygga vinar og votta börnum
hans og öðru ættfólki samúð mína.
Ólafur Ilansson.
í örfáum orðum langar mig til
að minnast Helga Hallgrímssonar
með þökkum fyrir eftirminnilega
viðkynningu. Þrátt fyrir nálega
sextíu ára sldursmun okkar átti
Helgi einstaklega létt með að
skýra sín sjónarmið og ekki síður
skilja viðhorf okkar, sem yngri
vorum. Reynsla hans, sem mót-
aðist af lífi og starfi sex kynslóða
ásamt með eðlislægum athyglis-
gáfum gerði honum kleift að líta á
menn og málefni frá sífellt nýjum
sjónarhóli. Hann hafði séð Island
breytast úr fátæku veiðimanna-
og bændaþjóðfélagi um síðustu
aldamót í tiltölulega þróað
allsnægtarsamfélag. Hann
kynntist þróun í samgöngumálum
frá því er hann ferðaðist á milli
heimsálfa á skemmri tíma en tók
að komast frá Grímsstöðum í
Borgarnes. Með öllu þessu fylgdist
hann af óþrjótandi áhuga. Hann
gladdist að sjá hverju einkafram-
takið gat komið til leiðar og var
óþreytandi í stuðningi sínum við
það, sem hann taldi horfa til heilla
fyrir land og þjóð. Skapferli hans
var þannig farið, að hann hikaði
ekki við að lýsa skoðunum sínum á
mönnum og málefnum enda átti
hann öðrum mönnum léttara með
að tjá sig í hnökralausu og áheyri-
legu máli. Metnaður hans vegna
þess, er hann taldi að til framfara
horfði var honum stöðugur brunn-
ur áhugamála. Hann hafði skoð-
anir, átti kjark til að standa við
þær og kunni að setja þær fram í
skiljanlegu máli, kostir sem a.m.k.
Lagmetisiðjan hf. í Garði færir út kvíarnar:
Hóf rækjupillun sL mánudag
(•arói 29. maí.
Á MÁNUDAGINN var hófst
rækjupillun í pillunarstöð sem
Lagmetisiðjan hf. rekur ug á.
Verður rækjan notuð til niður-
suðu í Lagmetisiðjunni sem sei-
ur mikið af niðursoðinni rækju
til Uýzkalands. Hin nýja
vinnslustöð er á Háteig en þar
var áður fiskverkun.
Að sögn Arnars Erlendssonar
framkvæmdastjóra munu 8—9
konur og 5 karlmenn vinna í
pillunarstöðinni, en ef mikill
rækjuafli berst að er hugmyndin
að tvískipta vöktum. Þessi rækja
kemur til með að brúa það bil
sem á vantar að Lagmetisiðjan
geti unnið á sumrin en þá veiðist
engin rækja fyrir vestan og
norðan.
Örn sagði að rækjuveiðin við
Eldey hefði farið vel af stað en
átta bátar hefðu fengið leyfi til
veiða. Eldeyjarsvæðið hefir verið
lokað fyrir rækjuveiði í 6 eða 7 ár
en áður stunduðu allt að 40 bátar
veiðar þar. Mikil aðgát og var-
færni er nú viðhöfð við veiðarnar
og á að reyna að koma í veg fyrir
að loka þurfi svæðinu aftur.
Rækjupillunarstöðin í Garði
mun væntanlega taka á móti afla
frá fjórum rækjubátum.
Fréttaritari.