Tíminn - 22.06.1965, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 22. Júní 1965
TÍMINN
MÁNUDAGUR 21. júní .
NTB—Lundúnum, Moskvu og
Washington. —
Seint í kvöld staðfesti brezka
utanríkisráðuneytið fvrri upp-
lýsingar um, að brezka stjórn-
in hefði viðurkennt hina nýju
stjórn í Alsír. Fréttir frá Mosk
vu herma, að sovézka stjórnin
muni ekki strax taka afstöðu
til hinnar nýju stjórnar, og
sama er að segja um Banda-
ríkjastjórn.
NTB—Varsjá. — Af hálfu
stjórnarinnar í Varsjá var neit
að I dag að segja nokkuð við-
víkjandi þeim orðrómi, að
kommúnistaleiðtoginn Gom-
lílka hefði v«rið Iagður inn á
sjúkrahús vegna alvarlegra veik
inda.
NTB—Moskvu. — Aðstoðar-
fiskimálaráðherra Sovétríkj-
anna sagði í dag, að nú v«ri
nauðsynlegt að gera róttækar
ráðstafanir tii að bjarga hvala-
stofninum í Suðurhöfum frá al-
gerri útrýmingu. Takmarkan-
irnar, sem samþykkt var að
gera á hvalveiðum á þessum
slóðum á alþjóðlegu hvalveiði-
ráðstefnunni í maí í fyrra hefðu
verið spor í rétta átt, en nú
þyrfti enn að takmarka veið-
ina.
NTB—Lundúnum. — Stjórnir
14 samveldislanda Breta skor-
uðu í dag á hina nýju valdhafa
í Alsír að þyrma lífi Ben Bella
fyrrvcrandi forsætisrá'ðherra,
og séð yrði um, að ráðstefna
Asíu- og Afríkuríkja, sem hefj
ast á um næstu helgi í Alsír,
fari fram samkvæmt upphaf-
legri áætlun.
NTB—Stokkhólmi. — 90 sænsk
ir rithöfundar og listamenn
mótmæltu í dag harðlega hörku
legum aðferðum sænsku lögregl
unnar, er hún bældi niður mót
mælaaðgerðir stúdenta í Stokk-
hólmi, gegn stefnu Bandaríkj-
anna í Vietinam.
NTB—Hong Kong. — Útvarps-
stöðjn Nvja Kína skýrði frá því
í dag. nð forsætisráðherra Bret
lards. Harold Wilson, yrði ekki
levf að koma til Kína með frið
a-uefndinni. sem samþykkt var
að skipa til að revna lausn á
deilnnni í Víetnam. Eins og
kunnugt er, var nefnd þessi
skinnð eftir samkomulagi á
Samveldisráðstefnunni í Lund
únum nú fyrir nokkrum dögum.
NTB—Haag. — Á föstudaginn
kemur verður haldinn sérstak
itr fundur hollenzku stjórnar-
innar, þar sem tekin verður
endanleg afstaða til trúlofunar
Beatrix krónprinsessu, en eins
og kunnugt er, vill prinsessan
giftast vestur-þýzka diplómat-
inum Claus von Amsberg. Fái
prinsessan ekki «amþvkki þings
og stjórnar, verður hún annað
hvort að hætta við þessar hjú-
skaparhugleiðingar sínar eða
afsala sér ríkiserfðum.
Grindavíkurdrengirnfr um borð í Óðni.
(Ljósm.: J.E.
Heildaraflinn tæpiega 300
mákm meirí en í fyrra
FB-Reykjavík, mánudag.
Aðeins var vitað um eitt skip,
sem fengið hafði síld frá því í
morgun og fram til klukkan 19 í
kvöld. Það var Sigurður Bjarna-
son, sem fékk 1200 mál á miðun-
um um 100 mílur út af Langanesi.
Bræla var komin á miðin og skip-
in á leið í land. Hér fer á eftir
yfirlit frá Fiskifélaginu yfir veið-
ina eins og hún hefur verið til
þessa:
Fyrsta síld sumarsins barst á
land 25. maí s. 1. Vs. Þorsteinn frá
Reykjavík fékk síldina 100 mílur
72° réttvísandi út af Glettingar-
nesi. Fyrsta síldin,.j'fýrra yeidijist
31. maí. Fá skip voru á miounpni
Síldarfréttir sunnudaginn 20.
júní og mánudaginn 21. júní 1965.
Hagstætt veður hefur verið á
sildarmiðunum s. 1. 2 sólarhringa,
en veiði fremur treg.
Skipin hafa einkum verið að
veiðum 80-—120 mílur AAN og
ANA frá Langanesi.
Sunnudagur 20. júní.
S. 1. sólarhring tilkynntu 19 skip
um afla samtals 12.100 mál og tn.
Raufarhöfn:
Héðinn ÞH 300 mál. Bjarmi II EA
400 mál. Árni Magnússon GK
1600 mál. Guðrún Jónsdóttir IS
700 tn. Sæhrímnir KE 300. Stein-
unn SH 600 mál. Guðbjörg OF 500
mál. Akuréy RE T500. Guðbjörg
IS 500. Grótta RE 1400 tn, Berg-
víkKE 700.
Dalatangi:
Jörundur II RE 600 mál. Manni
KE 50. Siglfirðingur SI 200. Guð-
mundur Péturs IS 750 .tn. Vigri
GK 400 mál. Sigfús Bergmann GK
200. Einir SU 450 tn. Elliði GK
900.
Mánudagur 21. júní.
S. 1. sólarhring tilkynntu 21 skip
um afla samtals 12.700 mál og tn.
Raufarhöfn:
Þórsnes SH 200 tn. Náttfari ÞIl
1400. Ásbjörn RE 900. Þorsteinn
RE 1100. Barði NK 800 mál. Fróða
klettur GK 600 Bjarmi EA 200 tn.
Sigrún AK 900. Helga RE 300
Súlan EA 700 mál. Gjafar VE 800
Mummi GK 350 tn.
Dalatangi:
Straumnes IS 450 mál Ingvar Guð
jónsson SK 400. Jón Eiríksson SF
400. Keflvíkingur KE 500. Gull-
berg NS 400 Pétur Sigurðsson RE
800 mál. Gullver NS 500 Jón á
Stapa SH 600. Dofri BA 200.
fyrstu dagana, en flotinn er nú
almennt byrjaður veiðar og munu
milli 220—30 skip stunda síldveið
ar í sumar, en voru þegar mest
var í fyrra 233. Veiðisvæðið hefur
aðallega verið 100—160 sjóm. aust
ur frá Langanesi, en hefur síðustu
daga færzt lengra út allt að 75—
90 sjóm. suður af Jan Mayen. Engr
ar síldar hefur enn orðið vart
norðan Langaness. Veður hefur
verið hagstætt til veiða það sem
af er vertíðinni, en síldin verið
mjög stygg og erfið viðureignar.
Heildarmagn á land komið frá
vertíðarbyrjun til miðnættis síð-
agtá iaugardags var orðið 578.186
mál og tn., sem skiptist þannig eft
ir verkunaraðferðum: í bræðslu
577.188 mál. í frystingu 998 uppm.
tn. eða samtals 578.186. Á sama
tíma í fyrra var heildarmagn á
land komið 301.337 mál og tunnur.
Aflinn skiptist þannig á löndun
arstaði: Siglufjörður 101.228 mál
og tunnur. Ólafsfjörður 14.832.
Hjalteyri 40.501. Krossanes 52.812.
Húsavík 16.058. Raufarhöfn 64.450.
Þórshöfn 447. Vopnafjörður 56.
384. Borgarfjörður eystri 10.909.
Seyðisfjörður 34.398. Neskaupstað-
ur 43.149. Eskifjörður 54.386.
Reyðarfjörður 35.025. Fáskrúðs-
fjörður 40.051. Breiðdalsvík
13.557.
32 DRENGIR
SIGLDU MEÐ
DÐNIÚT AÐ
SURTSEY
FB-Reykjavík, föstudag.
Varðskipið Óðinn sigldi á
miðvikudaginn út að gosstöðv
unum við Surtsey, en með
varðskipinu í þessari ferð voru
32 ungir drengir frá Grinda-
vík. Lagt var af stað frá Grinda
vík klukkan átta um morgun-
inn og komið aftur klukkan
rúmlega 8 um kvöldið.
Guðsteinn Einarsson frétta-
ritari Tímans í Grindavík sagði
okkur í dag, að þessi ferð með
Óðni hefði verið mjög vel
heppnuð, og hefðu allir þótzt
forframaðir eftir að hafa siglt
með flaggskipínu í þessari ferð.
Upphaf þessarar ferðar var
eiginlega það, að er vora tek-
ur grípur sjómannsandinn
strákana í Grindavík, eins og
reyndar víðast annars staðar.
Þeir tóku upp á því að byggja
sér báta, sem ekki voru annað
en timburgrind með striga á.
Reyndu hinir ungu sjógarpar
að sigla Þessum farkostum sín-
um um höfnína í Grindavík, í
og stundum meira að segja út
fyrir hana. Þótti það heldur |
óráðlegt, svo til að byrja með j
veitti Lyonsklúbburinn í
Grindavík þeim leyfi til þess
Framhald á 15. síðu
SkófagarSur ú Blönduósi
JS-Blönduósi, mánudag.
Samband austurhúnvetnskra
kvenna beitti sér fyrir því, að nú
er í fyrsta sinn gerð tilraun með
starfrækslu skólagarða á Blöndu-
ósi. 14 börn á aldrinum níu til
tólf ára taka þátt í þessu undir
stjórn frú Huldu Stefánsdóttur for
stöðukonu Kvennaskólans og frú
Sólveigar Benediktsdóttur, kenn-
ara við sama skóla.
Börnin fá útmælda reíti, sem
Bát hwoldií Fossvogi
— fimm féru / sjéinn
KJ-Reykyjavík, mánudag.
Fimm karlmenn fóru í sjóinn í
HÖMLUR
Framhald at- l. siðu
og fundarritarar Ingi Tryggvason,
Kárhóli og Einar Halldórsson,
Setbergi. Gunnar Guðbjartsson,
formaður sambandsins, flutti
skýrslu um starfsemi sambandsins
á s.l. ári, landbúnaðarráðherra,
Ingólfur Jónsson, flutti ávarp, og
framkvæmdastjóri Stéttarsam-
bandsins, Sæmundur Friðnksson,
lagði fram reikninga Stéttarsam-
bandsins og Bændahallarinnar og
skýrði þá. Kl. 2 hófust umræður
um skýrsiu formanns og reikning-
ana, og stóðu þær fram til kvölds.
en þá var skipað í nefndir. Eftir
kvöldmat var framkomnum til-
lögum, 50 talsins. frá kjörmanna-
fundum, öðrum bændafundum og
einstaklingum, vísað til nefnda,
sem voru sex talsins, Hófust síð-
an nefndarstörf en á sunpudag-
inn hófust umræður um nefndar-
álit, og lauk fundinum kl. 4 í nótt.
Fossvogi í nótt, eir litlum bát
hvolfdi undir þeim.
Atburður þessi skeði um klukk-
an hálf eitt, og voru menninnir
á leið út í hina nýju skútu Storm-
svöluna, sem liggur i Fossvogin-
um. Munu mennirnir hafa verið
komnir miðja vegu á milli lands
og skútunmar, er bátnum hvolfdi.
Syntu tvcir þeirra út að skútunni
og tókst að komast um borð, einn
synti í land, en tveir héngu á
bátnum sem flaut á hvolfi. Nær-
staddir menn komu hinum tveim,
sem héngu á bátnum, til hjálpar,
en Iögreglan i Kópavogi fór á bát
út í Stormsvöluna og bjargaði
mönnunum tveim þaðan. Veður
var gott þarna um nóttina, og
varð mönnunum ekki meint af
volkimu.
LÖGFRÆÐINGAR
Frainhald al a siðu
fengi' allar nánari upplýsingar
hjá þeim Ágústi Fjeldsted hrl. og
Agli igurgeirssyni hrl. svo og
umsóknarevðublöð undir þálttöku
i í þinginu.
þau annast og var þeim séð fyrir
kartöfluútsæði, kálplöntum og
öllum öðrum algengustu matjurta
tegundum. Börnin sýna mikinn
áhuga á þessu starfi og aðstandend
ur þeirra eru Sambandi austur-
húnverskra kvenna mjög þakklátir
fyrir þetta framtak og fórnfýsi.
Sambandið mun hafa hug á því,
að starfseminni verði framhaldið,
ef vel tekst til í sumar.
Hreppurinn lét i té land, full-
unnið. undir garðana.
3,5 mil! ióna stvrktar
r
framlag Islands
til S.þ.
KÍTB-New York, 21. júní.
Danmörk, ísland, Noregur og
Svíþjóð hafa gefið Sameinuðu þjóð
unum 3.780.000 dollara eða tæpar
163 milljónir íslenzkra króna til
aðstoðar samtökunum um að vinna
bug á fjárhagsvandræðum þeim,
er þau eiga stöðugt við að striða.
Hlutur íslands í þessari upphæð er
80.000 dollarar eða tæplega 3,5
milljónir íslenzkra króna.
Það var utanríkisráðherra Ivloregs
Halvard Lange. sem hafði for-
göngu í þessu máli og hafa Bret
ar þegar bætt víð 10 milljónum
dollara og búizt er við framlögum
frá fleiri ríkjum svo sem Ástralíu.
Kanada og Hollandi. Stofnframlag
ið skiptist að öðru leyti þannig
mjlli Norðurlandanna: Svíþjóð,
tvær milljónir dollara. Danmörk.
ein milljón dollarar og Noregur
700.000 dollarar.