Morgunblaðið - 10.06.1979, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.06.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1979 3 HÖNDLAÐ Á ÚTIMARKAÐNUM. - Útimarkaður- inn á Lækjartorgi er orðinn að föstum lið í bæjarlífinu en þar eru á boðstólum hinar fjölbreytt- ustu vörutegundir. Ljósm. Kristinn. Gjörbreytt atvinnuástand á Þórshöfn Englending- / ur sýnir „A næstugrösum” NÝLEGA var opnuð sýning „Ánæstu grösum“ (Matstofunni, Laugavegi 42), á myndverkum englendingsins Miles Parnell, og stendur hún yfir í þrjár vikur, eða til 15. júní. Miles Parnell er ungur auglýs- ingateiknari, sem starfað hefur hérlendis sl. þrjú ár. Hann stundaði nám í St. Martins School of Art, London, og Leicester Polutechnic, þar sem hann sérhæfði sig í myndskreyt- ingu (illustration). Hér á landi hefur hann unnið á Auglýsingastofu Kristínar, Argus og er nú á Ayglýsingastofunni Gylmi. Myndirnar á sýningunni eru allar unnar á þessu ári og eru flestar teiknaðar með lituðu bleki og vatnslitum. Hugmyndir og efnivið myndanna sækir Miles í ríki náttúrunnar — fuglar, dýr, blóm, o.s.fv., Miles hefur áður haldið hér einkasyningu og þá í Galleríi Sólon Islandus í júlí ‘77. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 11—22, og er aðgangur að sýningunni ókeypis. Innbrot íRíkiðá ísafirði Miles Parnell við eitt verka sinna. ÁRLA á föstudagsmorgun var brotist inn í kjallara útsölu Áfeng- is- og tóbaksverzlunar ríkisins á fsafirði en í kjallaranum eru birgðageymslur útsölunnar og var stolið þaðan tæplega tveimur köss- um af Baccardi. Lögreglan á ísafirði handtók síð- ar um daginn þrjá pilta um tvítugt, þar sem þeir sátu að snæðingi á matsölustað í bænum, reifir og með fulla ferðatösku af áfengi sér við hlið. Játuðu þeir við yfirheyrslur að hafa brotist inn í kjallara Afengis- verzlunarinnar. Ætluðu þeir að halda til Reykjavíkur en fengu ekki far með áætlunarvélinni um morg- uninn og hugðust þá leigja sér einkaflugvél en sú vél fékk ekki leyfi til blindflugs. „ÞETTA er nánast eins og að skipta um plús og mínus,“ sagði Ólafur Rafn Jónsson, sveitarstjóri á Þórshöfn, er han var spurður um atvinnuástand þar en sem kunnugt er var athafnalíf þar nær lamað langt fram eftir vori vegna hafíss. „Hér gjörbreyttist allt þegar ísinn fór og það hefur komið það mikill fiskur á land að hér er unnið alltaf til sjö og einnig á laugardögum. Reyndar er erfitt að fá mann í nokkurt verk, það eru allir rígbundnir við vinnu.“2 Einn 30 tonna bátur frá Þórs- höfn, Geir ÞH 100, veiddi á rúmlega hálfum mánuði 300 tonn og vann þannig upp það aflatjón, sem hann hafði orðið fyrir vegna hafíssins. Skipstjóri á Geir er Jóhann Jónasson. „Þetta er lýs- Þegar flest var í vetur og vor voru milli 30 og 40 manns á atvinnuleysisskrá á Þórshöfn og milli 20 og 30 sjómenn gátu ekki róið um tíma vegna ísa. Ólafur gat þess, að þetta fiskerí hafði verið alveg óvenjumikið og þann- ig væri vertíðin orðin jafn góð og í fyrra hjá mörgum grásleppu- karlinum, þó stutt hefði verið, en þessa dagana væru þeir að fara í síðustu róðrana. andi dæmi fyrir atvinnuástandið hér síðustu vikur. Hér hefur líka verið indælt veður síðustu 10 daga og sumarið er greinilega komið," sagði Ólafur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.