Morgunblaðið - 10.06.1979, Page 13

Morgunblaðið - 10.06.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979 13 ig gengur hann með girðingunni og kastar tölu á folana að engan vanti. I hvaða tilgangi er það gert ef félaga ber enga ábyrgð þó folarnir sleppi út? í búfjár- ræktarlögunum nr. 31, 1973, 33. gr. stendur: Valdi stóðhestur sem gengur laus eða sleppur úr vörzlu, tjóni á búfé eða öðrum eigum annarra (en eiganda) er eigandi skaðabótaskyldur. Hvernig ber að túlka þessa grein þegar stóðhestur er í vörzlu annarra en eiganda, gegn gjaldi, í að talið er löglega girtri girð- ingu, og sleppur út? Má eigandi ekki ætla að hesturinn sé jafn- framt á ábyrgð leigusalans, svo framarlega sem hesturinn ekki stekkur yfir girðinguna? í umræddum lögum um stóð- hesta stendur í 45. gr. nr. 54, 1957, 4.m.gr. Að girðingin sé minnst 5 gaddavírsstrengir, eða úr öðru jafngildu efni, t.d. rafmagnsgirðing, og ekki lægri en 135 sm. Unghestagirðing Harðar stenzt ekki þær kröfur, því á þeim kafla sem hesturinn skreið í gegn er girðingin úr lélegu neti, meira og minna rifnu og gloppóttu, auk þess sem hæðin fer allt niður í 118 sm. Þá er bil milli jarðfastra stólpa rúmir 8 m. í griðingarlögunum Þessi mynd sýnir að girð- ingin nær ekki tilskilinni hæð. frá 25. marz, 1965 stendur: Girðingar í lögum þessum þegar annars er ekki getið eru 6 strengja gaddavírsgirðingar, 110 sm. á hæð frá jafnsléttu, og ekki lengra á milli jarðfastra stólpa hennar en 4 m. Getur verið að ákvæðið um bil milli jarðfastra stólpa gildi ekki um stóðhestagirðingar, sem þó eiga að vera öflugri og traustari en fyrir búfé almennt? Hrossaræktarsamband Suð- urlands á og leigir út stóðhesta til hinna ýmsu aðildarfélaga. Ef slíkur hestur sleppur út úr girðingu leigutakans og fyljar hryssur sem ekki hefðu átt að fá, hver er þá hinn ábyrgi aðili? Æskilegt væri að fá opinbert álit stjórnar Búnaðarfélags ís- lands og stjórnar Landssam- bands hestamanna á máli sem þessu, hver sé hinn ábyrgi og bótaskyldi aðili og hver sé rétt- lát og sanngjörn krafa þess er fyrir óþægindum og útgjöldum verður.“ — á.j. ASI-félög ræða viðbrögð UPP ÚR helginni munu allmörg félagasamtök innan ASÍ hyggja á fundahöld um viðbrögð þeirra við verkbannsboðun Vinnuveit- endasambands íslands og á þriðjudag munu miðstjórn Alþýðusambandsins koma saman til þess að fjalla um þessi mái. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær innan raða ASÍ, gætir töluverðr- ar reiði meðal manna þar vegna verkbannsboðunarinnar, en fæst- ir tryðu því þó enn, að af verk- banni yrði. Gera má ráð fyrir, að viðbrögð félaga verði m.a. að boða til verkfalla, þannig að aflétti VSÍ verkbönnum, hefjist vinna ekki sjálfkrafa án þess að verkalýðs- félögin geti sett sín skilyrði. Fjölþætt starfeemi skátaað Uffljóts- vatni Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi frá Bandalagi fslenzkra skáta: Sem fyrr verður ýmislegt um að vera hjá skátunum að Úlfljóts- vatni í sumar. Bæði er þar um að ræða ýmsar skátasamkomur og svo starfsemi fyrir almenning. Sumarbúðir og útilífsnámskeið verða með svipuðu sniði og undan- farin sumur og eru opin öllum börnum, drengjum og stúlkum. Sumarbúðir fyrir 7—10 ára krakka eru nú drðinn hefðbundinn þáttur í sumarstarfinu á Úlfljóts- vatni. Þar er lögð áhersla á útiveru, jafnt gönguferðir og náttúruskoðun sem íþróttir og leiki. Þá má nefna sund- og báts- ferðir, handavinnu úti og inni, ýmis einföld skátastörf, kvöldvök- ur, varðelda o.fl. Útilífsnámskeiðin eru ætluð 11—14 ára krökkum, sem fá þar þjálfun í ýmsum undirstöðuatrið- um útilífs og ferðamennsku, s.s. tjáldbúðarstörfum, meðferð korts og áttavita, útimatreiðslu, náttúruskoðun, skyndihjálp o.s.frv. Búið er jöfnum höndum í skála og í tjöldum og borðað í mötuneyti staðarins — nema að sjálfsögðu í gönguferðum. Enginn Rauðhetta verður að þessu sinni um verslunarmanna- helgina. Þess í stað verður efnt til fjölskyldumóts að Úlfljótsvatni um þá helgi. Mótið verður opið öllum fjölskyldum og dagskrá verður með skátasniði. Auk þessarar starfsemi og sam- hliða henni verða svo sem endra- nær ýmsar smærri og stærri skátaútilegur að Úlfkljótsvatni í sumar, námskeið fyrir skátafor- ingja o.fl. í þeim dúr. Um miðjan júlí verður norrænt radíóskátamót, þar sem skátar sem venjulegast hafa samskipti á öldum ljósvakans munu hittast til að ræða áhuganál sín. Innritun á útilífsnámskeiðin og í sumarbúðirnar er þegar hafin og allar nánari upplýsingar má fá hjá Bandalagi íslenskra skáta í Blönduhlíð 35. Þar er opið á milli klukkan 9.00 og 13.00 og síminn er 23190. Vélstjórar Áformaö er aö halda námskeiö fyrir starfandi vélstjóra í ágústmánuöi n.k. Gert er ráö fyrir aö námskeiöin standi í 7—10 daga. Efni hvers mámskeiös veröur takmarkaö viö afmarkaö sviö. Rafmagnsfraeöi, stýritækni, kælitækni og olíur. Þar meö taliö brennsla svartolíu. Mikilvægt er, vegna nauösynlegs undirbún- ings, aö þeir vélstjórar, sem áhuga hafa á þáttöku hafi samband viö skrifstofu félagsins fyrir 20. júní og geri grein fyrir því, hvaöa sviö þeir helzt kjósa svo hægt sé aö miöa undirbúning viö væntanlega þáttöku. Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu félagsins og veröa send í pósti sé þess óskaö. Vélstjórafélag íslands. Tilbúið undir tréverk Til sölu 3ja til 4ra og 4ra—5 herb. íbúöir viö Kambasel í Breiöholti. 3ja hæöa stigahús. íbúöunum veröur skilaö tilbúnum undir tréverk og málningu. Sér þvottaherb. og búr fylgir hverri íbúö. Öll sameign veröur frágengin: Stigahús málaö aö innan, teppi á stigum, dyrasími, huröir inn í íbúöir, geymsluhuröir o.fl. Húsin máluö aö utan. Lóö veröur frágengin meö grasi, steyptum stéttum og malbikuðum bílastæöum. Fast verö. Svavar Örn Höskuldsson, múrarameistari, skrifstofu Gnoöarvogi 44 (Vogaver). Sími86854. MtOBORG fasteignasalan í Nýja bióhúsinu, Reykjavik. Símar 25590, 21682 3ja herb. Hjallabraut Hafn. íbúðin er ca. 94 fm á 2. hæð. Sér þvottahús inn af eldhúsi. Stórar og góðar suður svalir. Verð 20 til 21 millj., útb. 15 millj. 2ja til 3ja viö Krosseyrarveg Hafn. íbúðin er ca. 65 til 70 fm á efri hæð í timburhúsi. Sér inngangur. Verö 12 til 13 millj., útb. 9 millj. 4ra herb. við Lækjarfit Garöabæ íbúöin er ca. 90 fm á miöhæö í steinhúsi. Laus 1.7. Verð 16 til 17 millj., útb. 11 millj. Sumarbústaöur í Miöfellslandi ca. 36 fm. Tilboð óskast. EIGNIR ÚTI Á LANDI Einbýlishús á Hvammstanga Siglufjarðarhús. Tilboð óskast. Parhús í Hveragerði t.b. undir tréverk. Verö 12 til 13 millj. Einstaklingsíbúð Austurbrún Verð 14 millj., útb. 10 til 12 millj Seljendur — seljendur erum með kaupendur sem eru tilbúnir til að kaupa í Kópavogi, Reykjavík og Hafnarfirði. Látið því skrá íbúðina strax I dag. Jón Rafnar heimasími 52844 Guömundur Þóröarson hdl. Arkitektar Verkfræöingar Byggingar- iðnaðarmenn Sérfræöingur frá danska fyrirtækinu Hotaco veröur til viötals um TAKODEK-þakeiningar, TACOFLEX-þakpappa, TARNIT-eldvarnar- plötur og fleira þakefni á skrifstofu vorri þriðjudaginn 12. og miövikudaginn 13. þessa mánaðar. Vinsamlegast hafiö samband við skrifstofu vora Holtagöröum, sími 81266. Samband ísl. samvinnufélaga Innflutningsdeild Holtagörðum Rvík Sími 81266 Garðastræti 45 Símar 22911—19255. Jón Arason, lögmaöur málflutnings- og faateignasala. Höfum fjársterka kaupendur af einbýlis- húsi eöa sérhæö með bílskúr ca. 155 ferm. Einnig kaupanda af ein- býli á Seltjarnarnesi. Rúmur losunartími. Allt aö staögreiösia í boöi fyrir báöar pessar eign- ir. Nánari upplýsíngar á skrifstofu vorri. Jón Arason lögmaður Málflutnings og fasteignasala. Opiö sunnudag kl. 1—5 HJARÐARHAGI — 3JA HERB. Stór glæsileg íbúö á 3. hæö í nýlegri blokk. 2 stórar stofur og svefnh. Suöur- svalir. Verö 23 mlllj. Útb. 18 mlllj. SELTJARNARNES — 3JA HERB. Góö kjallaraíbúö. Sér inngangur. Sér hiti. 97 fm. Nýjar innréttingar. Verö 16—17 millj. Útb. 12—13 millj. KJARRHÓLMI 3JA HERB. Einstaklega falleg íbúö. Verö 18—19 millj. Útb. 13—14 mlllj. DÚFNAHÓLAR 3ja herb. góð íbúö. Verö 18 mlllj. Úlb. 13 millj. HAGASEL, RAÐHÚS Á tveimur hæöum meö innbyggöum bílskúr. Endahús, teikningar og allar nánari uppl. á skrifstofunni. SUÐURGATA HAFJ. 3ja herb. efri hæö í tvíbýlishúsi. Verö 14,5_15 millj. Útb. 11 millj. SUDURHÓLAR 4RA HERB. Falleg jaröhæö, sér garöur í suöur. Verö 19 millj. ÍRABAKKI 4RA HERB. íbúö meö auka herb. í kjallara. Verö 21—22 millj. VERSLUNARHÚSNÆÐI HRINGBRAUT 2JA HERB. Verö 14,5—15 millj. Útb. 11 millj. HAGAMELUR 2JA—3JA HERB. 87 fm kjallaraíbúö, sér hiti og sér inngangur. Verö 16 millj. ÁLFTAMÝRI — 4RA HERB. Falleg endaíbúö, bílskúrsréttur, fæst í skiptum fyrir 3ja herb. íbúö. KRÍUHOLAR — 3JA HERB. Verö 18 millj. Útb. 13 millj. GAMLI BÆR — HLÍÐAR 3ja—5 herb. risíbúöir. BREIÐHOLT 4RA—5 HERB. ÍBÚÐIR HEIMAR, LÆKIR 3ja herb. jaröhæöír. RAÐHÚS ÓSKAST Viö höfum fjársterka kaupendur aö raöhúsum eöa einbýlishúsum. Húsin mega bæöi vera á byggingarstigi eöa fullbúin, góöar greiöslur í boöi. KÓPAVOGUR 4RA HERB. Viö höfum mjög fjársterkan kaupanda aö góöri 4ra herb. íbúö í Kópavogi. Jafnframt koma til greina önnur hverfi í Reykjavík en Ðreiöholt og Hraunbær. RISÍBÚÐ ÓSKAST Okkur hefur veriö faliö aö auglýsa eftir risíbúö fyrir einn af viöskiptavlnum okkar. íbúöin þarf ekki aö losna fyrr en 10. nóv. n.k. EIGNAVER nn ISuóurlandabraut 20, ■ímar 82455—82330 Ámi Einarsson, lögtr. Ólafur Thoroddsan 1«

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.