Morgunblaðið - 10.06.1979, Síða 24

Morgunblaðið - 10.06.1979, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979 t UNA ÞORSTEINSDÓTTIR andaðist þann 7. júní. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Aðstandendur. Hjónaminning: Oddný Friðrikka Áma- dóttir og Jngimar Bald- vinsson á Þórshöfn t Útför konu minnar og móður okkar, INGIBJARGAR BJARNADÓTTUR, Sólvöllum, Mosfellssveit, fer fram frá Lágafellskirkju þriöjudaginn 12. júní kl. 14.00. Finnbogi Helgason, Ingunn Finnbogadóttir, Soffía Finnbogadóttir, Aðalheiöur Finnbogadóttir, Bragi Friöriksson. t Eiginkona mín, móöir okkar, tenpdamóöir og amma, VILBORG GUDRUN GÍSLADÓTTIR, ! Tunguvegi 60, Reykjavík. veröur jarösungin frá Bústaðarkirkju þriöjudaginn 1. júní kl. 13.30. Jarösett verður í Lágafellskirkjugaröi. Haraldur B. Þorsteinsson Sævar Haraldsson Jóhanna Haraldsdóttir Helga Haraldsdóttir Ásgeröur Haraldsdóttir Kristín Haraldsdóttir Gísli Haraldsson Haraldur Vilberg Haraldsson Gunnlaugur Valtýsson Jón Sveinsson Sölmundur Kárason Birgir Þór Sigurbjörnsson Bergdís Guönadóttir og barnabörn. Faöir okkar, ÁRNI ÓLA, rithöfundur veröur jarðsettur þriðjudaginn 12. júní kl. 13.30 frá Fossvogs- kirkju. Blóm vinsamlega afbeðin, þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Anna Mjö|| Atli Már. t Hjartkær eiginmaöur minn, JÓN JÚLÍUS ÞORSTEINSSON, fyrrverandi kennari, Byggöavegi 94,Akureyri veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 12. júní kl. 13.30. Margrét Elíasdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, FRÍMANN ÞÓRÐARSON, Selvogsgötu 18, Hafnarfiröi, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi þriöjudaginn 12. júní klukkan 13.30. Guörún Ólafsdóttir og börn. t Eiginmaöur minn, GUNNAR ODDSTEINSSON Hrauntungu 109, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. júní kl. 3. F.h. barna. Erna Einarsdóttir. t Maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JAKOB EINARSSON, bólstrari, Hátúni 8, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 11. júní kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaö en þeir, sem vildu minnast hins látna er bent á Styrktarfélag lamaöra og fatlaðra. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Ingvi Br. Jakobsson, Ragnheiöur Jónsdóttir, Hólmfríöur Jakobsdóttir, Þorsteinn S. Jónsson, Sveinn H. Jakobsson, Margrét Jónsdóttir, Þórdís Baldvinsdóttir, Einar Kjartansson. barnabörn og barnabarnabörn. Þeim fækkar óðum börnunum, sem lifðu síðasta áratug nítjándu aldarinnar og heyrðu fullorðna fólkið ræða um öldina, sem var að kveðja og um þær vonir sem nýrri öld voru tengdar. Nítjánda öldin hafði verið þjóð- inni erfið eins og margar fyrri aldir í sögu íslands byggðar. Hallæri höfðu gengið yfir ásamt skæðum farsóttum. Þjóðinni fjölg- aði lítið og á árunum 1880—90 hafði landsmönnum heldur fækk- að enda stuðlaði margt að því. Mikil harðindi, barnadauði með mesta móti og fólksflutningar þá hafnir til Vesturheims. En vonarneistinn slokknaði aldrei. Lágreistu bændabýlin héldu áfram að hjúfra sig upp að landinu, dreifð eins og áður inn til dala og út til yztu nesja. Konurnar földu hlóðaeldinn að kvöldi og blésu í glæðurnar að morgni, og mæðurnar fórnuðu öllum sínum kröftum til þess að hlúa að og vernda börnin sín, vormenn Islands. Og fyrir kom, að dýrmætasta gjöf lífsins, lítið barn, var dúðað og sett upp á hnakknef og reitt langa vegu, burt frá æskuheimil- inu í þeirri einu von, að framtíð þess væri betur borgið. Það kost- aði tár og mikinn söknuð, en nærgætnir fósturforeldrar mild- uðu þessi umskifti. Þannig hafði þjóðin lært að þrauka allar hinar dimmu aldir, lært að feta sig áfram grýttan götuslóða, vel minnug þess, að það var ekki hægt án fórna. Mér verður hugsað til þessa tímabils þegar kvatt hafa aldur- hnignir vinir foreldra minna og okkar hjóna, börn þess tíma, sem ég hefi minnzt á, þau hjónin Oddný Friðrikka Arnadóttir og Ingimar Baldvinsson. Oddný Friðrikka var fædd að Felli í Vopnafirði 16. júlí 1893. Foreldrar hennar voru Arni póst- ur Sigbjörnsson prests að Sand- felli og Kálfafellsstað og kona hans Þórdís Benediktsdóttir Einarssonar ættuð úr Suðursveit. Þórdís var glæsileg kona, en dó ung frá 6 börnum, og var Oddný þá yngst þeirra aðeins 6 ára gömul. Séra Jón Halldórsson á Skeggjastöðum á Langanesströnd, sonur Halldórs Jónssonar prófasts á Hofi í Vopnafirði, ríður þá austur yfir Sandvíkurheiði og kemur til baka með litla fallega 6 ára stúlku og hefur reitt hana í hnakknefinu alla leiðina. Oddný ólst upp hjá prestshjón- unum frú Soffíu Daníelsdóttur og séra Jóni Halldórssyni, fyrst á Skeggjastöðum og síðan á Sauða- nesi, því að prestshjónin flytja að Sauðanesi vorið 1905 og þar deyr + Þakka auösýnda samúö og vinsemd viö andlát og útför, KRISTÍNAR M. JÓNSDÓTTUR. Eínar Eyfells. Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarþel við andlát og útför fööur okkar og tengdafööur, JÓNS SIGURJÓNSSONAR, Karfavogi 25. Sigurjón Jónsson Aöalheiður Sveinsdóttir Unnur Jónsdóttir Björn Guömundsson. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SESSELJU BÆRINGSDÓTTUR. Fjóla Siguröardóttir Hanna Rath Earl Rath Margref Siguröardóttir Jón Hjálmtýsson Eiöur Sigurösson Ása Árnadóttir Stefnir Sigurósson barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær eiginmaöur, faðir okkar, tengdafaöir og afi, MAGNÚS GÍSLI ÞÓRÐARSON varöstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur Efstasundi 79, Rvk. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 12. júní kl 15.00 e.h. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á að láta Langholtskirkju njóta þess. Erla Siguröardóttir Siguröur R. Magnússon Ingibjörg Einarsdóttir Guörún Þ. Magnúsdóttir Örn ísleifsson Þóröur A. Magnússon Guöni K. Magnússon Erla Kr. Siguröardóttir Ólafur Örn Arnarson. prestsfrúin í febrúar 1907. Þá er Oddný aðeins 14 ára gömul. „Þá missti Oddný litla móður sína í annað sinn og fósturfaðir hennar þriðju konu sína,“ skrifar Oddný Guðmundsdóttir í minningargrein um nöfnu sína. Ingimar Baldvinsson var fædd- ur 20. nóvember 1891 á Fagranesi á Langanesi. Foreldrar hans voru Baldvin Þorsteinsson bóndi þar og kona hans Hólmfríður Stefáns- dóttir. Hann var kominn af góðum ættstofnum í báðar ættir. I föður- ætt frá Guðmundi Péturssyni sýslumanni í Krossavík og móðir hans var dóttir Stefáns stúdents og umboðsmanns í Snartarstöð- um. Fagranes er lítil jörð austan- vert á Langanesi og nú löngu komin í eyði. Ingimar var yngstur 11 syst- , kina. I því árferði sem þá var mun hafa verið lítið til skiptana hjá barnmargri fjölskyldu, svo að foreldrar hans ákváðu, til þess að tryggja öryggi barna sinna, að koma 2 yngstu börnunum í fóstur, tveggja ára dóttur og hálfs árs gömlum syni. Vorið 1892 er Ingi- mar því fluttur að heiman þvert yfir Langanesið til fósturforeldra sinna Arnþrúðar Jónsdóttur og Jóhanns Jónssonar borgara á Þórshöfn, og þar ólst hann upp. Ingimar varð fljótt að treysta á eigin atgervi því að fósturfaðir hans dó er hann var barn að aldri og fósturmóður sína missir hann 15 ára gamall. Þá komu í ljós þeir eiginleikar, sem áttu eftir að móta allt hans líf; mikil bjartsýni og dugnaður. Hann gerðist ungur starfsmað- ur Örum & Wulfs verzlunar á Þórshöfn, en réðist svo árið 1911 að Sauðanesi til séra Jóns Halldórssonar. Förin að Sauða- nesi var gæfa hans. Þar felldu þau hugi saman fósturbörnin Oddný og Ingimar, hin glæsilega fóstur- dóttir prestsins og pilturinn táp- mikli frá Þórshöfn, ungmennin frá nágrannabæjunúm, sem að mörgu leyti höfðu átt svipaða æsku. Þau voru gefin saman í hjónaband þann 13. janúar 1912 af séra Jóni Halldórssyni. Þau dvöldu síðan á heimili séra Jóns næstu 3 árin og unnu við bú hans en fluttu svo til Þórshafnar í hús fósturforeldra Ingimars og hófu búskap á þeim hluta jarðarinnar Syðra-Lóns, sem Þórshöfn byggð- ist úr. Og þar var ekki setið auðum höndum. Ingimar hóf fljótt um- fangsmikil störf þar bæði við landbúnað og útgerð, og fljótlega tók hann við starfi póst- og símstöðvarstjóra á Þórshöfn, sem hann hafði á hendi í marga ára- tugi. Og Oddný skipaði með sóma hinn veglega húsmóðursess, ann- aðist af varfærni og hlýju uppeldi barna þeirra og fyllti húsið með glaðværð og söng. Sveitungar og aðrir nágrannar fundu því fljótt, að þar höfðu ung hjón byggt sér heimili yfir þjóðbraut þvera. Þau urðu því miðdepill í kaup- túni, sem myndaðist og byggðist út frá húsi þeirra. Svo að fátt varð heimili þeirra óviðkomandi. Þar ríkti gestrisni og glaðværð, og heimili þeirra varð því eins og segull, sem dró alla til sín, eins og sagt er í minningargrein um LEGSTEINAR S. HELGASON H/F, STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48, KÓPAVOGI, SÍMI 76677.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.