Morgunblaðið - 10.06.1979, Síða 32
Síminn á afgreióslunni er
83033
2K«r0unblabib
Síminn á afgreiðslunni er
83033
jnargunblflbib
128. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1979
Kveiktu í á
5 stöðum
í Eyjum
BRENNUVARGAR voru á
ferð í Vestmannaeyjum í fyrri-
nótt og kveiktu þeir í á 5
stöðum á 20 mínútum. Urðu
talsverðar skemmdir af völd-
um íkveikjanna.
Kveikt var í útihúsi við
Kirkjuveg 86 en þar inni var
aðeins drasl, í skúr við
Hásteinsveg 20 og gjöreyði-
lagðist þar Ford-bifreið sem
var verið að gera upp. Þá urðu
skemmdir 'af eldi á neta-
geymslu við Norðursund og þar
var keikt í tveimur gömlum,
ógangfærum bílum. Annar
bíllinn, Skoda, átti að fara í
varahluti, en hinn bíllinn,
Rambler, var ónýtur fyrir.
Ekki er vitað hverjir kveiktu
eldana.
Viðmiðunarverð verðjöfnun-
arsjóðs bundið við dollara
„ÞAÐ ER gert ráð íyrir því, að viðmiðunarverð fyrir freðfiskinn verði
dagsverðið í dollurum og að væntanlega muni ekki þurfa að koma til
greiðslna úr sjóðnum, enda er engin innstæða í freðfiskdeild hans,“
sagði Davíð Olafsson stjórnarformaður verðjöfnunarsjóðs sjávarút-
vegsins, er Mbl. spurði hann um stöðu verðjöfnunarsjóðs gagnvart
fiskverðshækkun.
Mbl. spurði Davíð um aðrar deildir verðjöfnunarsjóðsins og sagði
hann, að saltfiskurinn þyrfti á áframhaldandi greiðslum að halda úr
sjóðnum, en sú deild ætti fyrir þeim greiðslum. Eins væru innstæður í
öllum öðru deildum sjóðsins, nema freðfiskdeildinni.
í verðjöfnunarsjóðnum hefur
undanfarin ár hvað freðfisk varð-
ar verið miðað við söluverð í
íslenzkum krónum. Hefur þá oft
og einatt verið sett viðmiðunar-
verð í verðjöfnunarsjóði, sem
byggt hefur verið á talsvert hærra
markaðsverði en í raun gildir.
Síðan hefur gengi krónunnar verið
látið síga upp í þessa viðmiðun og
þannig komið í veg fyrir að
greiðslur hafi átt sér stað úr
sjóðnum, sem lítið hefur verið til í,
eða að söluverð hefur hækkað.
Nú er hins vegar ákveðið, til
þess að axla það að lán hafa verið
tekin í erlendri mynt fyrir afurða-
lánum, sem eru helmingur af
framleiðsluverðmætinu, að setja
viðmiðunina í verðjöfnunarsjóðn-
um miðað við verðin eins og þau
eru í dag á frysta fiskinum sem
viðmiðunarverð í dollurum. Það
þýðir, að úr sjóðnum koma engar
greiðslur og verða stjórnvöld að
aðlaga gengið að þessu nýja fisk-
verði strax með gengisfellingu eða
öllu heldur mjög hröðu gengissigi,
þar sem ríkisstjórnin mun ekki
tilbúin til þess að fella gengið
formlega.
Þessi dollaraviðmiðun á aðeins
við afgreiðslu fjár úr eða í verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins, en
kemur ekki á neinn hátt við
fiskverðið sjálft og það, sem til
skipta kemur. Verða því engar
greiðslur úr eða í sjóðinn, nema
breytingar verði á markaðsverði
erlendis. Er íslenzka krónan tekin
út úr viðmiðuninni og dollarar
settir í staðinn. Þegar verð hækk-
’ar erlendis, greiðist í sjóðinn og
öfugt. Verður haft eitthvert
ákveðið bil, þar sem engin breyt-
ing verður á greiðslum, en fari
verðbreyting út fyrir þau mörk,
sem í gær höfðu ekki verið ákveð-
in, breytist fjárstreymi til eða frá
sjóðnum.
Þessi breyting kemur í veg fyrir
það að stjórnmálamenn geti
eftir þessa breytingu notað verð-
jöfnunarsjóðinn sem pólitískt vald
hér innanlands.
Yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins kom saman til fundar
klukkan 9 í gærmorgun og stóð
hann til hádegis og var þá ákveð-
inn annar fundur k. 17.30 í gær.
Frystihúsið á Stokkseyri:
Full afköst á
fimmtudagirm
FISKVINNSLA hjá Hraðfrysti-
húsi Stokkseyrar h.f. mun hefjast
af fullum krafti á fimmtudaginn,
og munu þá allir starfsmenn
fyrirtækisins, rösklega 150
manns, hef ja störf að nýju, að því
er Snorri Snorrason verkstjóri
„Verulegttap”
„ÞAÐ liggur ljóst fyrir, að Flugleiðir
verða fyrir verulega fjárhagslegu
tapi vegna stöðvunar tíunnar," sagði
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða í samtali við Mbl. í gærkvöldi
þar sem hann var staddur í New
York. „Þetta er sá tími sem best
nýting fæst á flugleiðunum," sagði
Sigurður, „ og það er því ákaflega
óhagstætt að missa þessa afkasta-
miklu vél út úr áætlun. Það er
vaxandi gagnrýni hér vestra á þess-
ari afstöðu flugmálastjórnar Banda-
ríkjanna og er viðbrögðunum líkt við
þá yfirkeyrslu sem varð t.d. ísam-
bandi við óhappið í kjarnorkuverinu
í Harrisburg."
Hraðfrystihússins sagði f samtali
við Morgunblaðið í gær.
Snorri sagði að stefnt væri að
því að hefja fiskvinnsluna í þeim
hluta húsins sem ekki brann, þar
sem áður var fiskmóttaka. Þar
væri nú verið að mála og þrífa og
gera aðrar nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að fiskvinnsla geti farið
þar fram til bráðabirgða. Sagði
Snorri að mestur hluti starfsfólks
Hraðfrystihúsins ynni nú að þess-
um breytingum, en þó hefði ekki
verið unnt að finna störf fyrir
alla, einkum hefði skólafólk orðið
útundan. Allir fengju hins vegar
vinnu þegar vinnslan hæfist að
nýju, en starfsmennirnir eru alls
ríflega 150 talsins eins og fyrr
sagði.
Langur tími mun hins vegar líða
þar til nýbyggingin kemur í gagn-
ið, en unnið er að því að byggja
húsið upp að nýju. Nú er unnið að
því að hreinsa til í brunarústunum
og verið er að teikna þær bygg-
ingar sem reisa verður að nýju.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Hvalvertíð hefst í dag er hvalbátarnir fjórir halda úr höfn. Stríðsmenn hins „græna friðar" verða varla langt
undan þegar skipin leggja úr höfn, en í gærmorgun dólaði hraðbátur þeirra fyrir framan hvalbátana.
Hvalveidamar
hef jast í dag
Um 220 manns við vinnslu og veiðar í sumar
HVALVEIÐARNAR hefjast í kvöld, en að sögn Kristjáns Loftssonar, framkvæmdarstjóra Hvals hf, halda
hvalbátarnir fjórir til veiða í dag. Eins og áður byrjar hvalvertíðin á sunnudag, en í mörg ár hefur verið
reynt að láta veiðarnar byrja á þessum fyrsta degi vikunnar. Að sögn Kristjáns verða um 220 manns í
vinnu hjá fyrirtækinu þegar reksturinn verður kominn í fullan gang, 60 manns í áhöfnum hvalbátanna
fjögurra, 100 manns í Hvalstöðinni í Hvalfirði og 60 manns í frystihúsinu í Hafnarfirði.
Veiðarnar hefjast nokkru síðar
nú en undanfarin ár og sagði
Kristján, að ástæðan fyrir því
væri óvissan, sem ríkt hefði á
Dómararnir máttu ekki vera
sekúndum seinni á ferðinni
— ÞAÐ HEFÐI varla þurft að
spyrja að leikslokum ef við
hefðum verið andartaki fyrr
á ferðinni, sagði Björn Helga-
son ritari Hæstaréttar í gær er
Morgunblaðið bar undir hann
frétt þess efnis að hann ásamt
fimm dómurum Hæstaréttar
hefði verið hætt kominn er
bjarg eitt mikið féll á veginn í
Búlandshöfða síðastliðinn mið-
vikudag, augnabliki áður en
bifreið hæstaréttardómaranna
bar þar að. Þeir voru á
„áreiðar- og vettvangsgöngu“
vegna landamerkjamáls í Fróð-
árhreppi og voru á leið til
Stykkishólms.
Bjargið féll úr Höfðanum og
kom niður 70—100 metra fyrir
framan bifreið þeirra en aðeins
um 5 metrum fyrir framan
jeppabifreið, sem kom á móti
þeim. Bílarnir gátu naumlega
komist framhjá bjarginu, sem lá
á miðjum veginum, en fyrir
neðan var þverhnípi í sjó fram
tugi metra. Einn hæstaréttar-
dómaranna mældi bjargið, sem
var 2m á lengd, 1.20 á hæð, en
hins vegar gleymdist að mæla
breiddina, enda mönnum brugð-
ið við að hugsa um hvað hefði
gerzt ef þeir hefðu verið nokkr-
um sekúndum fyrr á ferðinni.
Þeir dómarar Hæstaréttar,
sem þarna voru í vettvangskönn-
un, voru þeir Ármann Snævarr,
Benedikt Sigurjónsson, Björn
Sveinbjörnsson, Magnus Þ.
Torfason og Þór Vilhjálmsson,
einnig Björn Helgason hæsta-
réttarritari og bílstjóri frá
Kjartani Ingimarssyni. Sjötti
dómari Hæstaréttar, Logi
Einarsson, var ekki með í ferð
þessari.
vinnumarkaðinum og einnig að
allt líf í sjónum virtist hálfum
mánuði síðar í ár en á venjulegu
vori.
Með þá von í huga að úr
rættist á næstu dögum á báðum
þessum vígstöðvum halda skipin
úr höfn í dag.
Aðspurður um markaði og hvert
afurðir væru seldar, sagði Krist-
ján, að á innanlandsmarkað væri
selt hvalkjöt, sem talið væri hæft
til þeirrar sölu og þá einkum kjöt
af minni hvölum. Súrsað rengi er
einnig selt innanlands. Frystar
afurðir eru að öðru leyti seldar til
Japans, en hvallýsi, búrhvalslýsi
og hvalmjöl er selt á markaði í
Evrópu. Kristján sagði, að útlit
væri fyrir, að ágætt verð fengist
fyrir afurðirnar á Japansmarkaði,
en hins vegar héldist verð á lýsi og
mjöli nokkuð í hendur við loðnu-
mjöl og lýsi, en það hefði nokkuð
lækkað að undanförnu.