Tíminn - 23.06.1965, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 1965
8
TBMINN
Ríkisreikningur
fyrir árið 1963
íslendingar telja sig bókmennta
ÞjóS og færa það sér til gildisauka
enda mun bökaútgáfa hér mikil.
Hversu mikíl hún er, sé miðað
við hina vel þekktu höfðatölu-
reglu, verður hér ekki dæmt. Hinu
verður trauðla mótmælt, að tals
vert er gert til þess að opna augu
almennra lese'nda fyrir því, sem
þar er látið af hendi rakna. Ekki
mun með öllu grunlaust að kaup
sýslan standi að ein'hverju leyti
að toaki sumra þeírra ritdóma,
sem fylgja höfuð bókaflóði hvers
árs, enda mun hún gjarnan kjósa
sér endurheimt þess 'fjármagns.
sem fram hefur verið lagt, — og
þó trúlega helzt dálítið betur.
Benda ritdómar stundum í þá átt,
að þessi þáttur sé ræktur af kost
gæfni. En hver sem ætlan þeirra
er, sem ritfregnimar skrásetja, er
víst að Þeir ganga mjög framhjá
einu riti, sem flest ár bætist í
bókahlaða þjóðarinnar. Þetta rit
er Ríkisreikningurinn (Skammstaf
að hér RR). Orsök þessarar þag-
mælsku er þó naumast sú, að hann
sé öðrum ritum ómerkari. Hitt
mundi sönnu nær. að fátt mun
birtast á spjöldum stórnmálasögu
lagi: ,,Innheimtir skattar og toll-
ar, og í öðru lagi tekjur 3ju og
5tu gr. hans nemur sú upphæð
árið 1959 kr. 1.060.004.141, en
árið 1963 kr. 2.518.443.078. (Aur-
um er nær alltaf sleppt hér). Hef
ur því samtala þessara liða
hækkað um kr. 1.458.438.937 —
og nemur sú hækkun 137.59%.
Engum dylst að þarna er um
örugga þróun að ræða. Hitt er
annað mál, að um það skiptast
skoðanirnar, hvort hún er æskileg
eða uggvænleg.
Ekki verður um það deilt, að
með þessu hefur ríkisvaldið dreg
ið saman drjúga fúlgu. Mætti það
því verða nokkurs um vert að
virða það viðlits, hversu henni hef
ur verið varið, því enn ,mun það
sannmæli að „ekki er minni vandi
að gæta fengins fjár en afla þess“.
Til þess að gera sér nokkra
i grein fyrir þessu og jafnframt til
: þess. að fá nokkurt yfirlit yfir
: þróun þessara mála þessi ár, eru
I hér lagðar fram samtölur þeirra
• 12 greina RR, sem hafa inni að
halda höfuð gjaldahliðar hans, —
þ. e. 8. — 19 gr. að báðum með-
töldum.
f’ *
1S.
■
u.
u.
ÍJ.
«
14.
«
16,
17.
ið.
13*.
totnwk’twe Ki'&m i I.Í76.59*
<vy. .
c% rlStts«a*tur»J>i><«s 8,«$8.093,
J.St jéraairéíiS l6.Sí8<JC»j_
n. 11.969.903
m. TiU9( «U ýaUM *l>íó«Mt. 1.743.074
A. eÓGnaal* tð(r*clv«t;«ni 84.289.129
B. Zmhtiata tollt ee «*»tta 29.703.469
0. SaMÍciBl.kMts. rt? trtafttitr. 1.443.019
KeUbrieSitail 39*379.488
A. Vtgjaoil 67.39i.171
B. Btacðagw i t}& 14.797.132
6. Vitaail 0* btímufr’tir 23.i09.S94
B. nteail U.142.629
E. TifirMÍgaM 4.902.862
B. tsinál 4*206.209
A. Rnaalmil i39.296.O96
B. BOfo, tókaátíáf », lictir 11.045.747
Urkjwil 13.018.613
A. UBðfr&Mferail T4.043.004
B. 8jÍT«r«t7*CMél 17.739.037
0. rwtsrdh 3.864.507
B. Rtforktaii ».702.071
C. Rtontófenir t þifa Mr.ntlM 6.681.602
riucMÍi 158.304.643
tttirl«œ>,»trrU*rf4, llf«rri*«^Sir*5.142.S35
8rj**6t««l4 „... ,;^.0«>.727 1«,
1999 1963 8*Wn»
kr. kr. t
Su
nift!4.9O0>98T .82,28»
i!uJ9.'®9?.9S9 01783
23,276.482 94.46
6.294.036 298,79
124.312.U9 93.38
47.728.087 89,69
8.692.228 86,97
86.242.46l 119,00
133.273.163 92,97
32.152.849 UT.99
43.929.809 90,13
20.694.039 89,36
6.660.278 62.13
6US8.T64 U7.93
313.008.QU 124,74
8O.4i9.89e 81,66
17.55«.tó2 34,92
101.816.687 97,61
61.880.784 248,92
8.492.949 78,68
31.6U.I24 46,87
18.9S6.19I ,79.93
911.648^46 2*7,47
91.199.037 96^4
"M"'
vorrar, er gagnmerkara sé. Öá þátt
ur þeirra mála, sem oftast ber
fyrir augu og eyru almennings, eru
fjárlögin, En sá er regin munur
þeirra og RR að þau eru loforðin
en hann efndirnar. En heit og
efndir eiga ekki alltaf samleið.
Sá, RR, sem hér verður getið,
mun vera hinn fimmti í röðinni
sem þessi rxkisstjórn hefur, látið
frá sér fara. Það varð mér því
nokkurt forvitniefni að bera hann
saman við hinn fyrsta þ.e. fyrir
árið 1959. Með slíkum samanburði
má ætla að nokkuð megi glöggva
sig á hversu horfir um höfuð-
strauma Þess fiármagns sem feli
:r undir skipan Alþingis og ríkis
aldsins. Verður bá fyrst fyrir að
athuga tekjurnar
Ef aðalfekjuliðir reikningsins
eru teknir saman, þ.e. í fyrsta
■w6.em n.m
'rjé.us maw
Við samanburð þessara ára Sést,
að útgjöldín hafa hækkað um kr.
938.608.540. Er það til jafnaðar
á ári kr. 187.721.708 eða nærri
188 miljónir og verður það
trauðla talið naumt skorið. Hins
er og vert að geta, að þessi hækk-
un er talsvert misjöfn milli greina.
Minnst er hún á 13. gr. Kirkju-
mál eða aðeins 34.92%, þá á 16.
gr. A. Landbúnaðarmál 37,51%.
þá á 8. gr. Kostnaður við æðstu
stjórn 42.25% og loks Raforkumál
45,67%.
Hækkanir verða mestar á þess-
nm liðum Á 10 gr III. Tillög
tiJ ýmissa alþjóðastofnana
258,79%, á 16 gr B. Sjávarútvegs-
má) 248,92%, á 17. gr. Félagsmál
227, 47% og á 14. gr A. Kennslu-
'nál 124,71%.
Þegar þessi mál eru athuguð
betur kemur ýmislegt fram, sem
leikmanni í þessum fræðum virð
ist torskilið. Má Þar sem dæmi
nefna þetta: Húsmæðraskólarnir
í Reykjavík, Akureyri og ísafirði
falla undir Kennslumál, en hús-
mæðraskólar í sveitum undir Land
búnaðarmál. Iðnfræðslan, — þar
með taldir iðnskólarnir. — er
færð á Kennslumál en Stýrimanna
og Sjómannaskólahúsið undir Ým-
is mál. Bændaskólarnir og Garð-
yrkjuskólinn á Reykjum eru og
færðir á Landbúnaðarmál. Með
þessu eru á RR 1963 færðar kr.
11.589.484, sem tvímæallítið sýn-
ast eiga að fylgja Kennslumálum.
Sama virðist uppi á teningnum
um Ýmis mál. Skólar þeir, sem
þar eru taldir, sýnast eiga þangað
lítið erindi, enda ótrúlegt að nokk
ur neiti því í alvöru, að þar sé
um Kennslumál að ræða. Ef þeir
eru ,,óhreinu börnin hennar Evu“
svo þeir megi ekkí lenda þar, virð
ist sönnu nær að Þeir féllu undir
Sjávarútvegsmál. Það er annars
athyglisvert, að þeir skólar þjóð
arinnar, sem sniðnir eru við hæfi
þessara tveggja höfuð atvinnuvega
okkar, skuli ekkí taldir tii kennslu
stofnana á síðum RR, eða fer þar
ekki fram kennsla? Er þar að-
eins troðið í tossa?
Enn má benda á að á Landbún
íaðarmál eru færðar kr. 1.550:000
'tíl sjóvarnargarða. Virðast þó 'slík
■'ír'garðar í1 Vestmannaeyjum éða
við Siglufjörð, þjóna litlu hlut-
verki í þágu landbúnaðar, svo eitt
hvað sé nefnt af slíku.
Undanfarið hefur nauðsyn vinnu
hagræðíngar í landbúnaði verið
mjög á lofti haldið og skal það
sízt lastað. En því verður varla
neitað að hennar hafi kenpt í
háttum bænda nú um alllangt
skeið. Þeim hefur fækkað til
stórra muna. Þó hafa Þeir haldið
sínum hlut í verðmætasköpun
þjóðarinnar í furðu jafnri þróun.
En það hefur vissulega átt sér
stað enn örari þróun á öðrum
sviðum í þjþðlífi voru og má nefna
sem dæmi þrjá liði RR: Alþingi,
Stjórnarráðið og Utanríkismál þar
hefur þróunin orðið ör og virð-
Ist vinnuhagræðing ekki mjög
áberandi, ef blaðsíður RR eru at-
hugaðar. Þessir þrír liðir saman
lagðir hafa numið kr. 37.556.295
1959, en kr. 74.936.738 1963. Hafa
þeir því hækkað um kr. 37.380.443
Á sama tíma hækkar hinn ill-
ræmdi liður Landbúnaðarmál um
kr. 27.772.533. Þó verður þess ekki
vart. að á þessa þrjá liði, sem
hér eru teknir til samanburðar
við landbúnaðarmálin, hafi verið
tyllt pinklum eins og t. d. sjó-
vamargörðum eða skólum til und
irbúnings setu þar ínnan veggj-
anna.
Fylgiskjal eitt mjög ábendingar
vert fylgir RR ár hvert. Það ber
heitið „Skýrsla um ábyrgðarskuld
ir ríkissjóðs í árslok“, þ. e. skýrsla
um þær skuldir, sem ríkissjóður
hefur tekið að sér að ábyrgjast
full skíl á. Þetta p.lagg er hið gagn
merkasta. Gefur það ýmsar bend
ingar um í hvaða áttir því láns
fé hefur verið beint sem hann
ábyrgist Ætla má að hann ábyrg
■ ist þær fjárhæðir einar sem for-
váðamenn hans telja að varið sé
ti) sérstakra nauðsynjamála
Samanlagðar þær upphæðir,
i-sem ríkissjóður hefur ábyrgzt
fulla greiðslu á, voru í árslok
1959 kr. 1.572,645.320, en í árs-
1963 kr. 2.948.877,282. Þessi upp-
hæð hefur því hækkað um kr.
1.376.231.962 eða rúmar 275 millj.
á ári. Ein upphæð vekur þar sér-
staka atfhygli. Framkvæmdabanki
íslands skuldaði á ábyrgð ríkis
sjóðs í árslok 1959 kr. 371.228.886,
en í árslok 1963 kr. 1.227,212,858.
Nemur hækkunin tæpum 856 millj.
kr. Þessi lán eru öll erlend og
því „gengistryggð“. Þau fylgja
því gengi íslenzks gjaldmiðils
hverju sínni. Þess verður að gæta,
að þessi hækkun hvílir að furðu<
miklum hluta á þeim gengisbreyt
ingum. sem orðið hafa á þessu
árabili. Gefur það bendingar um
þá gífurlegu truflun, sem gengis
breytingin hefur valdið í fjárhags-
lífi íslendinga. En það er kapítuli
út af fyrir sig, sem hér er ekki
aðstaða til að rekja til róta svo
sem vert væri. En engin skila-
grein fylgir RR til hvers þessu
fé hefur verið varið. Þar er aðeins
um bendingar að ræða, m. a. eftir
farandi:
Eftirstöðvar þess fjár, sem Fram
kvæmdabankinn hafði lánað til
landbúnaðar á ábyrgð ríkissjóðs
nam í árslok 1963 alls kr. 46.093.
941. Upphæðin er 3.76% af þeirri
heildarupphæð, sem ríkissjóður
’nefur ábyrgzt fyrir bankann. Þess
um rúmum 46 millj. króna má
skipta í tvennt: í fyrsta lagi lán
Alþjúðabankans tekið 1953 og síð
an lánað Búnaðarbankanum til
landbúnaðarlána. Þessi upphæð
var upphaflega 1.350.000 dollarar.
Hún var í árslok 1959 orðin 1.271,-
000 dollarar, sem þá voru í ísl.
krónum 20.742.720. í árslok 1963
er skuldin 1.030.000 dollarar. Hún
hefur því lækkað um 241,000 doll
ara. Sé hún nú metin í íslenzkum
peningum, — og það gerir RR að
sjálfsögðu, — er hún í árslok 1963
kr. 44.351.800. Þótt hún hafi lækk
að um þessa upphæð í dollurum
hefur hún hækkað í íslenzkum
krónum um 23.609.080. Af þessu
láni hefur ríkissjóður tekið á sig
að greiða kr. 12.916.889 eða tæp
ar 13 millj. Verður ekki annað séð
af ábyrgðarskýrslunni en þetta
sé eina upphæðin, sem á ríkíssjóð
hefur fallið vegna landbúnaðar-
lána.
í öðru lagi er þess að geta að
Framkvæmdabankinn hefur lánað
kaupfélögunum kr. 1.742.141, —
að mestu til matvælaiðnaðar á
vegum landbúnaðar.
Heildareftirstöðvar þeirra láns
fjárhæða, sem merktar eru land
búnaði á blaðsíðum ábyrgðarskýrsl
unnar nema í árslok 1963 kr. 80.
116.228. En á sama tíma nárau
þær upphæðir, sem eftir stóðu af
lánum til fiskiðnaðar kr. 194.650.
503 og hliðstæður þeirra til togara
kaupa 187.070.650.
Af Þessum h. u. b. 2.949 millj.
kr, sem ríkigsjóður ábyrgist fulla
greiðslu á, nemur hlutur kaup
félaganna, — þ. e. sú upphæð.
sem hann ábyrgist fyrir þau alls
kr. 28.456.501. Er það tæplega
1% af heildarupphæðinni. Skuld
Framhald á 1Á síðu.
MINNING
Þórarinn Guðmundsson
Búðumf Fáskrúðsfirði
í dag verður jarðsunginn frá
Búðakirkju í Fáskrúðsfirði Þórar-
inn Guðmundsson, en hann andað-
ist á Landspítalanum 5. júní eftir
erfiða sjúkdómslegu, er hófst með
byrjun þessa árs.
Fjölmenn minningarathöfn fór
fram í dómkirkjunni mánudaginn
14. þ. m. og flutti séra Jón M.
Guðjónsson frá Akranesi þar eink-
ar fallega ræðu, svo sem honum
er lagið.
Þórarinn Guðmundsson var fædd
ur að Brekku í Búðakauptúni 27.
maí 1904, elztur 10 systkina, barna
þeirra sæmdarhjóna, Guðrúnar
Jónsdóttur og Guðmundar Stefáns-
sonar, er þar bjuggu lengi.
Strax á unglingsaldri fór Þór-
arinn að stunda sjóinn eins og títt
var um efnispilta á þeim slóðum,
fyrst hjá öðrum, en 1932 hóf hann
eigin útgerð, er hann rak allt til
þess tíma, er hann fluttist til Akra
ness árið 1945. Þar gerðist Þór-
arinn afgreiðslumaður við kaup-
félagið, en Sveinn bróðir hans var
þar kaupfélagsstjóri, og kann það
að hafa valdið nokkru um þessa
ráðabreytni.
Jafnan mun þó hugur Þórarins
hafa verið bundinn átthögunum,
enda fór það svo, að hann fluttist
aftur austur til Fáskrúðsfjarðar
með fjölskyldu sína sumarið 1958,
þar sem hann bjó sér og sínum
fallegt heimili á æskuslóðunum,
þó að dvölin yrði skemmri en von-
ir stóðu til miðað við aldur og
aðstæður allar.
Þórarinn kvongaðist 1931 Mar-
gréti Jónsdóttur, ljósmóður, hinni
mætustu konu í hvívetna. Eignuð-
ust þau tvo syni, 'Þráin og Óðin,
sem báðir eru fjölskyldumenn og
búsettir í Búðakauptúni. Einnig
ólu þau Þórarinn og Margrét upp
sem sitt barn Eddu Stefánsdóttur,
sem nú er húsfreyja á Laugarbökk-
um í Skagafirði, gift Helga Svav-
i arssyni bónda þar. — Frá fyrra
hjónabandi átti Margrét tvö börn,
Jón og Helgu, og ólst hún upp hjá
móður sinni og gekk Þórarinn
henni í föður stað, enda varð ekki
greint annað en þarna væri um
fjögur skilgetin systkini að ræða,
sem jafnkær væru foreldrum sín-
um, svo sem bezt verður á kosið
hjá góðri fjölskyldu.
Nú að leiðarlokum vil ég færa
Þórarni og fjölskyldu hans beztu
þakkir fyrir hugljúf kynni árin,
sem þau dvöldu hér á Akranesi,
en það atvikaðist svo, að við
bjuggum þar í nábýli, börnin léku
sér saman og við eldra fólkið átt-
um margar ánægjulegar samveru-
stundir, sem gott er að minnast.
Ég tel mér mikinn ávinning að
hafa kynnzt Þórarni. Það var vand
aður maður og drengur góður, sí-
fellt boðinn og búinn að rétta
hjálparhönd, ef með þurfti.
Konu hans og börnum flyt ég
alúðarfyllstu samúðarkveðjur minn
ar fjölskyldu og sama sinnis
munu vera fjölmargir Akurnesing-
ar, er Þórarni kynntust árin sem
hann dvaldist hér.
G. B.