Tíminn - 23.06.1965, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 1965
TÍMJNN
9
De Gaulle, Frakklands-
forseti, ér án efa einhver
umdeildasti, en um leið
athyglisverðasti þjóðarleið-
togi í dag. Þó enginn geti
reiknað út eða sagt til um,
hvað forsetinn tekur upp
á að gera, er öllum kunn-
ugt um það, að hann ætl-
ar að gefa kost á sér til
endurkjörs. Stjórnmálasér-
fræðingar segja þetta vera
verst geymda leyndarmálið
í alþjóðapólitík, síðan
Frankfin D. Roosevelt,
Bandaríkjaforseti, ákvað
að gefa kost á sér til endur
kjörs í þriðja sinn.
Þegar De Gaulle tilkynnir
þessa ákvörðun sína, mun það
án efa gleðja flest alla Frakka,
a.m.k. alla Gaullistana, og um
leið mun það ekki koma nokkr
um manni á óvart. Þetta hef
ur verið opinbert leyndarmál
í langan tíma, en flestir ,reíkn
aðu með að forsetinn myndi
skýra frá þessari ákVörðun
sinni fyrir alllöngu síðan.
Eins og svo oft áður, læt-
ur De Gaulle ekki segja sér
hvenær eða hvernig hann eigi
að gera hlutina. Nú er samt
reiknað með því að seinna í
Þessum mánuði skýri forsetinn
frá ákvörðun sinni.
De Gaulle er nú á 23. opin-
beru ferð sinni um Frakkland
og aldrei hafa verið gerðar
eins strangar öryggisráðstaf-
anir til áð verja líf hans.
Það var í óopinberri ferð til
S-Frakklands í september 1963,
sem De Gaulle lét fyrst í það
skína að hann vildi gjarnan
bjóða sig fram aftur, til annars
sjö ára tímabils, sem forseti.
Hann hélt ræðu í Orange, þar
sem hann sagði m. a.: ,,Það eina
sem vakir fyrir General Char-
les De Gaulle, forseta lýðveld
isins, er að gera það sem er
bezt fyrir Frakka, og það sem
Frakkar vilja að hann geri. Ég
hef það á tilfinningunni að
þetta sé það sem ég hef verið
að gera í aldarfjórðung. Ég er
ákveðinn, vegna þess að ég
hef heilsu til þess, að halda
þessu starfi áfram“.
Það fór ekki á milli mála
við hvað hann átti, þegar hann
sagði i.Þessu starfi“. Hann var
að tala um forsetaembættið.
De Gaulle, ætlar sér að halda
áfram, ög hann ætlar sér að ná
kosningu, og hann veit, að eng-
inn efast um að hann geti það.
Það er búizt við því að for-
setinn segi frá ákvörðun sinni
einhvers staðar í grennd við
París, innan nokkurra daga.
í öllum ræðum sínum, þessa
dagana, talar forsetinn stöðugt
um „framhald á núv. stefn-
um“. Hann lætur mynda sig
umkringdan af fólki og hagar
sér eins og hann sé ekkert
hræddur um eigið öryggi.
Enda er hann umkringdur af
lífvörðum, sem eru þekktir und
ir nafninu „górillurnar". Hann
hefur óbilandi trú á þessum líf
vörðum sínum og hæfileikum
þeirra til að gæta lífs hans,
enda hagar hann sér eftir því.
Washíngton Post skýrði nýlega
frá því, að a. m. k. 5000 lög
reglumenn og öryggisverðir
gæti De Gaulle, þar sem hann
kemur á ferð sinni um land
ið, að undanskildum „górillun-
um“.
Allt er gert sem í mann-
legu valdi stendur til að
tryggja öryggi forsetans í þess
ari ferð. Öllum hliðargötum,
sem liggja að götum þeím, sem
forsetinn fer um í bíl sínum,
er lokað. Allir Þeir, sem eru
grunaðir um að vera illa við
forsetann. eru fjarlægðir. Öll
hús, gluggar, minnismerki, og
bílar eru vandlega skoðaðir.
Þrátt fyrir það að hann sé
að verða 75 ára, stendur De
Gaulle sig eíns og hetja' á
ferðum sínum og lætur ekki
sjá nein þreytumerki. Þeir
sem þekkja til, segja að líf-
verðirnir verði oft upgefnir
langt á undan De Gaulle. Hann
heldur flestar sínar ræður
blaðalaust, og talar eftir minni.
Hann hefur aldrei ræðuskrif
ara í fylgdarliði sínu, ekki einu
sinni á hinni 30.000 kílómetra
ferð sinni um S.-Ameríku á
s. 1. hausti.
Þeir fáu, sem eitthvað vita
um einkamál forsetans, segja
að hann sé búinn að semja sína
pólitísku erfðaskrá. Eitt ein-
takið er á segulbandi, en þrjú
eru vélrituð. Álitið er að
Pempidou, ráðherra, sé númer
eitt á listanum. Samkvæmt
stjórnarskránni er það for-
seti efri deildar, sem f -sr em-
bættið ef forsetinn fellur frá.
Þrátt fyrir það að De Gaulle
sé búinn að velja eftirmann
sinn, þá segja stjórnfræðingar,
að enginn af hans nánustu
samstarfsmönnum séu færir að
stjórna hinum stóra fylgjenda
hópi De Gaulles. Ef De Gaulle
mætti ráða, myndi hann éflaust
vilja sitja sem fbrseti Frakk- S
lands um alla eilífð. —jhm
—De Gaulle á kjörstað
Á bakvið: hann sjálfur.
I
92 stóðust
lanóspróf
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar við
Vonarstræti var slitið 13. júní s.
1. Lauk þar með 37. starfsári skól
ans.
Innritaðir nemendur voru 220,
en kennarar, að meðtöldum skóla-
scjóra, 20. Landspróf miðskóla
þrevttu 129 nemendum, luku 124
éíi 5 eiga enn ólokið prófi.
92 nemendur stóðust landspróf
með einkunninni 5.00 og yfir í
landsprófsgreinum. þar af 69 með
framhaldseinkunn 6.00 og yfir.
Hæstu einkunn á landsprófi
hlaut að Þessu sjnni Helgi Skúli
Kjartansson, 3. bekk C, I. ágætis
einkunn, 9.74, en það er hæsta
landsprófseinkunn sem nokkru
sinni hefir verið tekin á landinu
frá því að landspróf hófust. Ann
ar á landsprófi varð Hafsteinn
Guðjónsson, 8.6',' og þriðji Stefán
Halldórsson, 8.^6.
A prófi upp úr 3. bekk almennr
ar bóknámsdeildar hlaut Úlfar
Sehárup hæstu einkunn. 7.62.
Gagnfræðapróf bóknámsdeildar
þreyttu 51 nemandi, 49 innanskóla
og 2 utanskóla. Stóðust 48, 2 luku
ekki prófi, en 1 stóðst ekki.
Hæstu einkunnir á gagnfræða
prófi hlutu að þessu sinni: Ásdís
Kristinsdóttir. 7.61, Hörður E.
Tóníasson, 7.60 og Rafn ísfeld
7.59.
Nemendur hlutu verðlaun frá
skólanum og kennurum fyrir náms
afrek og félagsstörf.
NÝJAR ERLENDAR BÆKUR
dtv.-Atlas zw Weltgeschichte.
Karten und chronologischer
Abriss. Herraugsgegeben von
H. Kinder u. W. Hilgemann
unter Mitarbeit von Harald u.
Ruth Bukor. Band I. Von den
Anfangen bis zur Französ-
ischen Revonution. Mit 128
Kartenseiten. Útgefandi: Deut-
scher Taschenbuch Verlag
1964. Verð; DM 5.80.
Þetta er sagnfræðileg landa-
bréfabók með ártölum og
skrám um helztu atburði sög-
unnar. Landabréfin eru 128
og þeim fylgja ártalaskrá og
frásagnir Hér er beinagrind
sögunnar frá upphafi og fram
að frönsku stjórnarbyltingunni.
Þetta er mjög handhæg bók,
kort og skrár fylgjast að á
hverri opnu. Skrárnar eru
mjög ítarlegar og það hefur
ekki verið áður gefin ut landn-
bréfabók með svo ítarlegum
ártalasKrám og atburða. Landa
bréfin og sögubréfin eru ’ lit-
um og gerir það bréfin
greinilegri og auðskilaari en
væru þau svart-hvít. Útgefend-
ur leggja ekki eins mjirla á-
herzlu á Evrópusöguna og
hingað til hefur tíðkazt. bókin
er sett saman með pað fyrir
augum að skýra og gefa gott
yfirlit yfir veraldarsóguna í
heild Evrópusagan t’æ þann
sess, sem hún er talin eiga
innan veraldarsögunnai Sagan
hefur oft verið samin út frá
evrópskum forsendum ein-
göngu, en þetta er nú að breyt-
ast.
Þessi bók er öllum þeim nauð-
synleg, sem fást við sagn-
fræði og er hentugasti úr-
dráttur og kortabók, sem fáan-
leg er. Frágangur allur er
hinn bezti, prentun og pappír
með ágætum og bókin snyrti-
leg eins og allt, sem þetta for
lag gefur út, auk þessa er
bókin mjög ódýr.
A Knot of Roots. An Auto-
biography. Höfundur: The Earl
of Portsmouth. Útgefandi: Ge-
offrey Bles 1965. Verð 30/—.
Jarlinn af Portsmouth fæddist
í Villta-Vestrinu. Faðir hans
flutti til Bandaríkjanna og
kvæntist þar á efri árum
bandarískri konu. Forfeður
hans áttu níu hundruð ára
sögu á Englandi og móðurætt-
in taldi ýmsa þekkta land-
nema í Nýja-Heiminum. Hann
var sendur > heimavistarskóla
i Englandi og stundaði síðan
nám í Oxxford bæði fyrir og
eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Síðar verður hann þingmaðui
og ferðast víða. Hann fer tu
indlands og um Evrópu og
hittir þar að máli meðal ann
arra þrjá einvalda. Hann hverf
ur úr opinberri þjónustu
Valdamenn i Bretiandi sáu
enga ófriðarhættu um 1930 og
ekkert var gert til þess að
draga úr atvinnuleysinu. Jarl
inn vildi hefja herbúnað og
slá með því tvær flugur í einu
höggi, verða viðbúinn ófriði og
draga úr atvinnuleysinu. Hann
var einn þeirra fáu, sem sáu
hvert stefndi og aðvörunum
hans var ekki sinnt. Eftir síð-
ari styrjöldina ferðaðist hann
umA.-Afríku, en sú ferð varð
honum afdrifarík. Hann hreifst
svo af Kenya, að hann flutti
þangað og settist þar að.
Hann hefur alltaf verið mik-
ill áhugamaður um landbúnað
eins og forfeður hans. Beztu
kaflar bókarinnar eru um bú-
óðulum hans þar og landnám
hans í Kenya. Hann hefur
næmt auga fyrir náttúrufegurð
og dýralífi. Skoðanir hans á
þjóðfélagsmálum eru ákveðnar
á ýmsan hátt frábrugðnar
því sem ætla mætti. Bókin er
skemmtilega skrifuð og gefur
góða mynd af heilbrigðum og
heiðarlegum bóndamanni, en
það er hann fyrst og fremst
The War 1941—45. Volume V
of Men, Years — Life. Höf-
undur: Ilya Ehrenburg. Útgef-
andi MacGibbon & Kee 1964
Verð: 45/—.
Þessi bók er þýdd a ensku af
Tatiana Shebunina og Yvonne
Kapp og er fimmta oindi sjálf
ævisögu þessa vinsæla rúss
aeska höfundar Eins jg hin
bindin er þetta einkar læsileg
ævisaga Hér segir höfundur
ævi sína á stríðsárunum Á
standið í Rússlandi fyrstu ár
stríðsins var um flest uggvæn-
legt. Þjóðverjar virtust hafa
yfirburði í flestu, þeir ruddust
langt inn í Rússland og það var
að þakka eða kenna fáfræði og
veiklun Hitlers að þeir náðu
ekki enn betri árangri í fyrstu
lotu. Flest skorti á þessum ár-
um og við það bættist óttinn
við árásarseggina, en breyting-
in kom fyrr en búizt hafði ver-
ið við. Höfundurinn lýsir mjög
vel viðbrögðum manna af
öllum stéttum í Rússlandi við
árás Þjóðverja og heiftinni,
sem greip um sig meðal þjóð-
arinnar vegna framkomu óvin
anna. Það virðist svo sem
framkoma Þjóðverja hafi lagt
Rússum til eitt bezta vopn
hatrið á fjandmönnunum og
þetta hafi þjappað þeim sam
an og gert þá einhuga í barátt--
unni. Ilya átti fjölda viðtala
við fólk og þetta atriði kemur
fram í þeim flestum, margu
hafa búizt við sæmilegri fram-
komu Þjóðverja, on það varð
þveröfugt. Hann skrifaði grein-
ar og hvatningarpistla fytir
blöðin á þessum árum og lauk
stundum allt upp í fimm grein-
’um á dag. Efninu viðaði nann
að sér á ferðum með herjun-
um og skæruliðasveitunum
Hann segist aldrei hafa fundið
sig eins bundinn náungum sin-
um sem á stríðsárkunum. Með-
an aðrir höfundar skrifuðu
frægar bækur, skrifaði hann
búsundir greina og fáein ljóð.
Greinarnar eru hver anriarri
líkar. En þrátt fyrir magran
afrakstur á þessu sviði, telur
hann sig sjaldan hafa lifað
Framhald a l4 síðu.