Tíminn - 23.06.1965, Page 16
Bændaför Vestfirðinga hefur sta'ðiS yfir nú í 9 daga
137. tbl. — Miðvikudagur 23. júní 1965 —49. árg.
JfaUstæði opnað
við Sundlaugaveg
JHM—Reykjavík, þriðjudag.
Unnið er nú að lokaframkvæmd
nm á almennu tjaldstæði, sem er
við hliðina á hinni nýju sundlaug
við Sundlaugaveg. Blaðið hafði
tal af Ólafi Guðmundssyni hjá
Borgarverkfræðingi, og sagði hann
að tjaldstæðið gæti hæglega rúm
að nokkur hundruð tjöld. Þama
Moorer yfirmaður
Atlantshafsflota
NATO í heimsókn
JHM—Reykjavík, þriðjudag.
f kvöld, þriðjudag, kemur
Thomas H. Moorer, flotaforingi,
og yfirmaður Atlantshafsflota
NATO, hingað til lands. Moorer
mun dvelja hér í einn sólarhring
og ræða m. a. við forsætisráðherra
utanríkisráðherra o. fl. íslenzka
emtoættismenn. Hann mun einnig
fara til Þingvalla og skoða stað
inn.
Moorer er Bandaríkjamaður og
hefur verið alla sína starfstíð
veríð í bandaríska flotanum. Hann
hefur verið sæmdur flestum heið
ursmerkjum, sem bandarískur her
maður getur hlotið. Árið 1962 var
hann gerður yfirmaður 6. flota
Bandaríkjamanna, og í júní s. 1.
yfirmaður Kyrrahafsflota NATO.
f fylgd með honum hér er kona
hans, og nokkrir aðstoðarforingjar
sem hafa fylgt honum um aðildar
lönd NATO á undan förnum dög
um, en hann hefur verið þar í
heimsóknum.
Fundur boðaður
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Sáttasemjari hefur boðað sátta-
fund í kjaradeilu vinnuveitenda
og verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík og Hafnarfirði klukkan 16 á
morgun, miðvikudag.
verður rúmgott bílastæði og
steinsteypt hús fyrir snyrtiher-
bergi.
f ráði er að þarna verði
eftirlitsmaður, a. m. k. yfir
sumarmánuðina. Tjaldstæðið verð
ur opið jafnt fyrir utanbæjar-
menn og útlendinga, sem kjósa
tjaldgistingu fram yfir hótelgist
ingu. Akureyrarbær hefur rekið
slíkt tjaldstæði í nokkur ár og
befur reynzt vera afar vinsælt.
Þetta nýja tjaldstæði Reykjavík
urborgar verður tilbúið fyrir
fyrstu tjöltdin eftir aðeins nokkra
daga.
SUMARFERÐIN
Miðar í skemmtiferð Framsókn-
arfélaganna á sunnudaginn kemur
fást í Tjarnargötu 26, sími 15564.
Farið verður um Þingvöll —
Kaldadal og Borgarfjörð. Kvik-
mynd verður tekin af ferðalaginu.
f hverjum bíl verður kunnugur
leiðsögumaður.
Tilkynnið þátttöku sem allra
fyrst.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Myndin hér aS ofan er af jarðýtunni, sem ýtti fyrstu torfunni í grunni dælustöðvarinnar, sem reist verður við
Mývatn í sambandi við kísilgúrvinnsluna, sem þar mun taka til starfa fnnan fárra ára, en vinna hófst þarna
18. júní síðastliðinn. Jarðýtunni stýrir Ásmundur Kristjánsson bóndi á Stöng í Mývatnssveit. Jarðýtuna á
Ræktunarsambandið Smári, en það reka Búnaðarfélögin í Mývatnssveit og Reykjadal. Hefur sambandið
tekið að sér að leggja til þær stórvirku vinnuvélar, sem þarf við framkvæmdlr vegna kísilgúrfyrirtækisins
við Mývatn í sumar. Myndina tók Björn Guðmundsson framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins Smára.
Ein og hálf millj. í b jörgunar-
imm fyrír fárra mínátna starf
BÞG-Reykjavík, þriðjudag.
S. 1. mánudag var kveðinn upp
í Hæstarétti dómur í málinu: Jó-
hannes Jóhannesson, f. h. stjórn-
ar Eldeyjar h.f. og áhafnar vb.
Eldeyjar KE 37 gegn eigendum
og vátryggjendum ms. Kötlu, Eim-
skipafólagi Reykjavíkur h.f. og Al-
mennum tryggingum h.f., og eig-
anda og áhöfn vb. Vilborgar KE
51 og gagnsakir. Niðurstaða
Hæstaréttar var að því leyti hin
sama og í sjó- og verzlunardómi
VATNSVEITUFRAMKVÆMDUM
AÐ LJÚKA Á DJÚPAVOGI
ÞS—Djúpavogi, þriðjudag.
í dag var hleypt vatni í fyrsta
skipti á aðalæð þorpsins úr nýrri
vatnsveitu. Vatnið er tekið í svo
i kölluðum Búlandsdal, og ér leiðsl
! an 9 km löng og leiðslurnar 6
j tommu víðar. Verkið hófst 28. júní
1963, og hefur því tekið tvö ár að
leggja vatnsveituna að þorpinu,
en nú á eftir að leggja í húsin,
en aðalæðin er komin niður að
frvstihúsinu.
Það sem gert hefur verið til
þessa mun kosta um 3,2 milljónir
króna en ráðgert. að heildarverk
ið muni kosta um fjórar milljónir.
Hingað til hefur vatn eínungis
verið leitt úr brunnum hingað og
þangað í þorpinu, en þeir hafa
oft viljað þorrna i Þurrkatíð. Vatns
veitan nýja kemur úr uppsprettu
lindum, sem koma undan Búlands
tindinum.
Framhald á l4. síðu
Keflavíkur, að hjálp vb. Eldeyjar
við ms. Kötlu, sem hafði steytt á
grunni í fjörunni við hafnargarð
Keflavíkur þann 31. janúar 1964,
var talin björgun í merkingu sigl-
ingalaga og Eimskipafélagið dæmt
til að greiða aðaláfrýjanda kr.
1.500.000.— í björgunarlaun og
215 þúsund í málskostnað í héraði
og fyrir Hæstarétti.
Málavextir eru í stuttu máli þeir
að þann 31. jan. 1964 stöðvuðust
vélar ms. Kötlu rétt eftir að land-
festar höfðu verið leystar frá hafn
argarðinum í Keflavík og rak skip
ið undan vindi, þannig að aftur-
endi þess sat fastur í fjörunni við
hafnargarðinn. Vb. Eldey var í
höfninni með vélar í gangi og skip
verjar um borð. Var vírtaug kast-
að úr Kötlu yfir í Eldey, en hún
slitnaði. Var þá nælontrossa tengd
milli skipanna og með því að beita
öllu vélarafli til hins ýtrasta, tókst
Eldeyju að losa Kötlu frá landi og
liðu aðeins 4—5 mínútur frá því
Eldey lét frá bryggju, þar til hún
hóf dráttinn, skv. vætti margra
vitna.
Meðan á þessum aðgerðum stóð,
kom vb. Vilborg á vettvang og
var kastað línu frá Kötlu um borð
í bátinn, en hún var síðan fest við
hafnargarðinn. Ekki kom þó til
þess að línan væri notuð, þar
Framhaio a 14 síðu
GEKK A FUND
FORSETANS
JHM—Reykjavík. þriðjudag.
Hér er í boði ríkisstjórnarinnar
yfirmaður Atlantshafsbandalagsins
ítalinn Manlio Brosio. Meðan hann
dvelur hér mun hann skoða Reykja
vík og hluta af landinu, auk þess
sem hann mun ræða við forráða
menn þjóðarinnar. Á mánudag
kom hann fram á fundi hjá Varð
FramhaJd a 14. siðu
900 MENN B SOLAR-
HRINGSVERKFALLI
og
lauk henni í dag á Hótel Sögu þar sem þátttakendur 90
talsins komu saman til kaffidrykkju í boSi BúnaSarfélags íslahds. Ragnar Ásgeirsson ráSunautur var farar-
stjórl í þessari bændaför, eins og svo mörgum öðrum, en forystu af hálfu þátttakenda hafði GuSmundur Ingi
Kristjánsson skáld og bóndi aS Kirkjubóli í Bjarnardal. Hófst ferSin i Bjarkarlundi á BarSaströnd og var
fariS þaSan sem leiS liggur um Dali, NorSur- og Austurland, og alla leiS að Jökulsá á BreiSamerkursandi.
FerSafólkiS var heppiS meS veSur vjSast hvar, og móttökur allar voru höfSinglegar í sveitum þar sem komiS
var viS. Myndin hér aS ofan var tekin þegar þátttakendur voru að rita nöfn sin á gæruskinn, sem fararstjórinn
fékk aS launum fyrir góSa leiSsögn. (TímamyndKJ).
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Dagsverkfall málm- og skipa- j
smiða í dag fór mjög rólega og j
árekstralaust fram og lögðu allir
niður vinnu, sem það áttu að gera,
samtals rúmlega 900 félagar þeirra
8 félaga, sem í sambandi málm- og
skipasmiða eru. 4 þessara félaga
eru í Reykjavík og fjögur úti á
landi.
Blaðið átti í dag tal við Guðjón
Jónsson, formann Félags járniðn-
aðarmanna, og sagði hann, að
verkfallið hefði gengið árekstra-
laust og eins og til var ætlazt.
Væri verkfall þetta gert til þess
að undirstrika það, að unnið verði
að samningamálunum, en þau ekki
látin drasla eins og átt hefði sér
stað fram að þessu. Ef ekki nást
samningar fyrir 29. þessa mánað-
ar, þá munu þessi sömu fé,lög
leggja niður vinnu þann dag í
sama skyni.
Guðjón sagði, að málinu hafi
verið vísað til sáttasemjara fyrir
nokkru, en enginn sáttafundur
hafi verið boðaður til þessa. Væri
tæplega hægt að segja að viðræð-
ur væru hafnar — haldnir hefðu
verið þrír fundir með löngu milli-
bili.
BSRB RÆÐIR
LAUNAKRÖFUR
Dagana 14. ■‘og 15. júní 1965 var
með fulltrúum frá félögum bæjar
haldin ráðstefna á vegum B.S.R.B
starfsmanna innan bandalagsins.
Viðfangsefni ráðstefnunnar var að
ræða um kröfur félaga bæjarstarfs
manna í væntanlegum samninga
viðræðum, en þær ber samkvæmt
reglugerð að leggja fram fyrir 1.
júlí n. k.
Ráðstefnan samÞykkti sameigin
legan grundvöll að kröfugerð fé-
laganna. og er þar byggt á þeirri
heildarstefnu, sem Bandalag starfs
manna ríkis og bæja hefur mark
að í kjaramálum opinberra starfs
manna.