Morgunblaðið - 23.06.1979, Qupperneq 1
44 SIÐUR OG LESBOK
Innflutningur olíu
til Evrópu frystur
Loftárásir
í Managua
ManaKua, 22. júní. Reutcr.
HER Nicaraguastjórnar
beitti herþotum og stór-
skotavopnum gegn upp-
rejsnarmönnum í Mana-
gua í dag en mætti harðri
mótspyrnu.
Harðir bardagar blossuðu upp
þegar hermenn notuðu fallbyssur
til að hrekja skæruliða frá stórum
götuvígjum. Inter-Continental-
hótelinu var lokað þegar skærulið-
ar lýstu því yfir, að það væri
skotmark þar sem embættismenn
hefðu leitað þar hælis.
í Washington neitaði talsmaður
Jimmy Carters forseta að útiloka
þann möguleika, að bandarísku
herliði yrði beitt í Nicaragua.
Strassborg, 22. júní. AP. Reuter.
LEIÐTOGAR Efnahags-
bandalagslandanna
ákváðu í dag í lok tveggja
daga fundar síns til undir-
búnings leiðtogafundinum
í Tokyo í næstu viku að
frysta olíuinnflutning og
skora á Bandaríkjamenn
að draga úr olíunotkun.
Leiðtogarnir ákváðu að
takmarka olíuinnflutning-
inn næstu sex ár við 470
milljónir lesta, sama magn
og flutt var inn í fyrra, og
auka kjarnorkunotkun
þrátt fyrir andstöðu um:
hverfisverndarmanna. í
lokayfirlýsingu fundarins
sagði, að ef ekki yrði sigr-
azt á oliuskorti „mundi
heimurinn stefna hraðbyri
til nýrrar og víðtækari
efnahags og
þjóðfélagskreppu“.
Forsætisráðherra Bretlands,
Margaret Thatcher, sagði að
sparnaðarráðstafanir Evrópuríkja
yrðu gagnslausar ef önnur lönd
heims færu ekki að dæmi þeirra.
Enginn nefndi Bandaríkin með
nafni en ekki fór á milli mála að
átt var við þau. Nokkrir forsætis-
ráðherrar létu í ljós efa um að
Bandaríkin sem nota tvöfalt meiri
olíu en Evrópuríkin, gætu dregið
úr innflutningi að ráði.
Leiðtogarnir ákváðu að leita
eftir viðræðum iðnríkja og
Opec-landa. Frakkar hafa viljað
viðræður Evrópu og Opec án
Bandaríkjanna vegna stuðnings
þeirra við ísrael en Vestur-Þjóð-
verjar voru á öðru máli.
Þeir ákváðu einnig að auka
eftirlit með olíumarkaðnum og fá
olíufélög ofan af að verzla á
skyndimörkuðum. Frakkar vildu
þak á olíuverð á skyndimörkuðum
og nokkurs konar neytendaverk-
föll ef markaðir héldu áfram að
selja olíu á uppsprengdu verði.
Vestur-Þjóðverjar voru andvígir
ríkisíhlutun á skyndimörkuðum
þar sem Evrópa græddi ekki á því
að markaðirnir flyttust frá álf-
unni.
Leiðtogarnir sögðu að skyndi-
markaðir gætu ekki haldið áfram
að valda „alþjóðlegri braskveiki"
án samstarfs Bandaríkjamanna
og Japana. Þeir vona að með
ströngu eftirliti með viðskiptum á
skyndimörkuðum verði hægt að
tryggja verðlagseftirlit án laga-
setningar.
Sjá „Heimskreppu spáð bls.
16.
„France ”
tilNoregs?
París, 22. júní, AP. Reuter.
AUÐMAÐUR frá Saudi Arabíu,
sem kcypti lystiskipið Francc,
ætlar að selja það norsku skipa-
félagi á þriðjudaginn aö sögn
blaðs í Le Ifavrc. Vcrðið er 17.5
milljónir dollara samkvæmt
óstaðfcstum fréttum.
France var hleypt af stokkun-
um 1960 og var flaggskip franska
kaupskipaflotans. Skipinu var
lagt 1974 vegna 22.7 milljóna
dollara árlegs taps á rekstri þess.
Það var selt 1977.
Bátaíólkið vill
heldur berjast
Kuantan. Malaysíu. 22. júní. Rcutcr. AP.
VÍETNAMSKIR flóttamenn, sem búa í búðum á
ströndinni við bæinn Kuantan í Malaysíu, strengdu þess
heit í dag að berjast og deyja í stað þess að láta
Malaysíumenn hrekja sig á haf út. Þeir skoruðu á
vestrænar þjóðir að veita þeim hjálp áður en það yrði
um seinan.
Talsmaður um 500 manna hóps
sagði: „Við skorum á heiminn,
einkum Bandaríkjamenn, að
hjálpa okkur. Við höfum þjáðst
undir stjórn kommúnista í Víet-
nam. Við líðum þrengingar núna.
Við þörfnumst hjálpar."
Heilbrigðisyfirvöld hafa hafið
rannsókn á því hvort drepsótt
getur blossað upp meðal 9.400
víetnamskra flóttamanna í búðum
á eynni Pualau Tengah.
Sjóher Malaysíu hefur sent olíu-
flutningaskip að austurströndinni
til að gera við víetnamska flótta-
mannabáta og sjá þeim fyrir
vistum þannig að hægt verði að
draga bátana á haf út. Þetta fylgir
í kjölfar frétta um að hermenn
hafi skotið viðvörunarskotum að
flóttamönnum til að koma í veg
fyrir að þeir sigli að landi.
Fjöldamorð
í Sýrlandi
Damaskus, 22. júní. AP.
INNANRÍKISRÁÐHERRA Sýr-
lands, Adnan Dabbagh hershöfð-
ingi, staðfesti í dag að ofsatrúar-
Jeremy Thorpe, fyrrverandi leiðtogi Frjálslynda flokksins í Bretlandi,
kemur frá Old Bailey, þar sem hann var sýknaður _
Thorpe sýknaður
af morðákærunni
London. 22. júní. Rcuter. AP.
BREZKI stjórnmálamaðurinn Jeremy Thorpe var í dag sýknaður af
ákæru um morð á 31. degi réttarhalda sem hafa verið kölluð „mál
aldarinnar" í Bretlandi.
Kviðdómur skipaður níu körlum og þremur konum sýknaði Thorpe
þegar hann hafði setið á rökstólum í tvo og hálfan dag. Thorpe sýndi
ekki svipbrigði cn lét í ljós fögnuð sinn með því að fleygja púða sem
hann hafði setið á í réttarhöldunum til Marion konu sinnar.
Sækjendur í réttarhöldunum sök-
uðu hann um misheppnað samsæri
um að myrða Norman Scott, sýn-
ingarmann, sem hélt því fram, að
hann hefði haft kynvillusamband
við Thorpe á árunum eftir 1960.
Thorpe neitaði alltaf harðlega þess-
um ásökunum og sagði, þegar dóm-
urinn hafði verið kveðinn upp, að
hann væri „með öllu sanngjörn,
réttlát og alger uppreisn".
Hann sagði ekkert um fyrirætlanir
sínar annað en að hann þyrfti hvíld.
Lögfræðingar hans viðurkenndu í
réttarhöldunum að stjórnmálaferli
hans væri lokið.
Auk Thorpes voru þrír aðrir
menn ákærðir um samsæri um að
myrða Scott og voru allir sýknaðir.
Thorpe var sýknaður af annarri
ákæru um að hvetja einn þeirra,
David Holmes, til að myrða Scott.
Holmes er gamall vinur Thorpes og
f.vrrverandi varagjaldkeri Frjáls-
lynda flokksins. Hinir sakborning-
arnir voru kaupsýslumaðurinn
John Le Mesurier og næturklúbba-
eigandinn George Deakin.
Um málið hefur verið ítarlega
fjallað í fjölmiðlum og hlutverk
dagblaða, sem buðu mikilvægum
vitnum offjár fyrir frásagnir, kom
við sögu réttarhaldanna. Siðanefnd
brezkra blaða tilkynnti eftir rétt-
arhöldin að hún mundi fjalla um
þessi mál.
Núverandi leiðtogi Frjálslynda
flokksins, David Steel, fagnaði
dóminum og kvaðst vona að Thorpe
gæti fundið sér vettvang þar sem
hæfileikar hans nytu sín eftir
hæfilega hvíld. Marion, kona
Thorpes, sagði þegar hann hafði
verið sýknaður, að hún væri ekki
undrandi, en henni hefði létt mikið.
menn úr múhameðskum neðan-
jarðarsamtökum hefðu gert árás
á herskóla í borginni Aleppo í
norðurhluta landsins og myrt 32
foringjaefni úr stórskotaliðinu.
Hann sagði að 54 önnur for-
ingjacfni hefðu særzt þegar ofsa-
trúarmennirnir réðust inn um
opinn glugga á kennslustofu sem
var fullsetin foringjaefnum,
vopnaðir handsprengjum og vél-
byssum sem þeir beittu óspart.
Dabbagh hershöfðingi sagði, að
hann hefði fyrirskipað herferð um
land allt gegn Bræðralagi múham-
eðstrúarmanna, neðanjarðarsam-
tökum sem hann kenndi um árás-
ina á herskólann 16. júní. Hann
sakaði Bandaríkjamenn og ísraels-
menn um að endurlífga bræðralag-
ið til að veikja andspyrnu Sýrlend-
inga gegn sérfriði Egypta við ísra-
elsmenn.
Bræðralag múhameðstrúar-
manna var brotið á bak aftur 1954
þegar það gerði misheppnaða til-
raun til að ráða Gamal Abdel
Nasser heitinn forseta af dögum.
Dabbagh sagði að bræðralagið
, hefði staðið fyrir mörgum
sprengjuárásum og banatilræðum í
fleiri sýrlenzkum borgum, meðal
annars í bænum Hama og höfuð-
borginni Damaskus.