Morgunblaðið - 23.06.1979, Blaðsíða 27
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1979 2 7
800 ára af mæli Snorra Sturlusonar:
„Kringla heimsins, sú er
mannfólkit by ggvir.
Hátíðardagskrá í tilefni 800 ára íæðingarafmælis Snorra Sturlusonar fór fram
í hátíðarsal Háskóla íslands í gær. Fjölmenm var við athöfnina og íslensk
veðrátta skartaði spariklæðum í tilefni dagsins. Útvarpað var frá athöfninni.
Athöfnin hófst með Jþví að
blásarakvartett lék „Ar vas
alda“, og setti þetta gamla
íslenska þjóðlag strax í upp-
hafi hátíðarblæ á athöfnina.
Blásarakvartettinn skipa fé-
lagar úr Sinfóníuhljómsveit
íslands, þeir Árni Elvar, Her-
bert H. Ágústsson, Stefán Þ.
Stephensen og William
Gregory.
Að því loknu setti Guðlaug-
ur Þorvaldsson, háskólarekt-
or, hátíðina en hann er for-
maður Snorranefndar.
Halldór Laxness rithöfund-
ur flutti ræðu þar sem hann
fjallaði um Heimskringlu en
þó einkum og sér í lagi þann
hluta hennar sem nefnist
Ólafs saga helga.
Síðan var lesið úr ritverk-
um Snorra Sturlusonar. Les-
arar voru Óskar Halldórsson,
Silja Aðalsteinsdóttir og
Sverrir Hólmarsson og var í
upplestri þessum víða komið
við í ritverkum Snorra.
Að lokum flutti blásara-
kvartettinn „ísland, farsælda
frón“. Gestum var að lokinni
þessari athöfn í Háskólanum
boðið að ganga til Þjóðminja-
safns, þar sem opnuð var í
Bogasal sýning í tilefni 8 alda
afmælis Snorra.
Á sýningu þessari getur að
líta fjölmörg handrit sem
geyma ritverk Snorra. Má þar
nefna eitt einstakt blað úr
handritinu Kringlu, en það
handrit hafði að geyma alla
hluta Heimskringlu. Nafngift
Heimskringlu má rekja til
upphafsoröa hennar sem seg-
ir: „Kringla heimsins, sú er
mannfólkit byggvir, er mjög
vágskorin". Kringla brann í
Kaupmannahöfn árið 1728 en
þetta eina blað hafði orðið
viðskila við handritið og hef-
ur varðveist af þeim ástæð-
um. Meðal annarra sýningar-
gripa má nefna Flateyjarbók,
sem geymir Ólafs sögu helga
og önnur rit, Möðruvallabók,
sem geymir 11 Islendingasög-
ur og þar á meðal Egils sögu,
en sumir fræðimenn telja
Snorra hafa samið hana.
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður sagði við opnun sýn-
ingarinnar: „Snorri Sturluson
hefur ekki eftirlátið okkur
nein þau verðmæti sem mölur
og ryð fá grandað" og því
ekkert hefur varðveist af
jarðneskum eigum Snorra,
sem á sínum tíma var einn
mesti stóreignamaður lands-
ins. En á þessari sýningu
gefst tækifæri til að sjá hand-
rit sem geyma þær gersemar
sem Snorri skóp og standa
ofar veraldlegu glysi.
Að sýningunni í Bogasal
standa Landsbókasafnið,
Stofnun Árna Magnússonar
og Þjóðminjasafnið. Sýningin
verður opin í allt sumar.
Hönnuður sýningarinnar er
Steinþór Sigurðsson.
í tilefni þessarar sýningar
hefur verið gefin út vegleg
sýningarskrá sem hefur að
geyma upplýsingar um hand-
rit og myndir sem á sýning-
unni eru, auk tveggja formála
sem Kristján Eldjárn, forseti
íslands, og Finnbogi Guð-
mundsson, landsbókavörður,
hafa skrifað.
Haustið 1978 skipaði
menntamálaráðherra Snorra-
nefnd, sem séð hefur um
undirbúning hátíðardag-
skrárinnar í Háskólanum og
sýninguna í Bogasal. Formað-
ur nefndarinnar er Guðlaug-
ur Þorvaldsson, en aðrir
Halldór Laxness rithöfundur
flutti ra>ðu um Snorra og verk
hans. og þó sérstaklega um
Ólaf s sögu helga.
nefndarmenn eru Gils Guð-
mundsson og Ólafur Hall-
dórsson. Heiðursformaður er
forseti íslands, dr. Kristján
Eldjárn, og hefur hann starf-
að mikið með nefndinni. Ýms-
ir aðilar og samtök hafa
minnst þessa afmælis með
einhverjum hætti og nægir
þar að nefna útvarp, sjónvarp
og Fornritafélagið. Snorra-
nefnd hefur í hyggju að bjóða
hingað til lands norska fræði-
manninum Holm-Olsen, sem
margir telja einn fróðasta
núlifandi manna um Snorra
og verk hans og mun hann
flytja fyrirlestur í Háskólan-
um um það efni.
Listf lug og svif drekaflug eru
meðal atriða á f lugdegi í dag
Á hlið yfir Fossvogi, en andartaki síðar var jörðin ekki lengur
undir vélinni, eins og flestir flugfarþegar eiga að venjast, hcldur
beint fyrir oían.
Tony Bianchi við stýrið á listflugvélinni CAP 10. Ljósm. Kristján.
FLUGMÁLAFÉLAG ís-
lands stendur fyrir sér-
stökum flugdegi í
Reykjavík og á Akureyri
í dag, laugardag og á
morgun, sunnudag. Flug-
dagurinn í Reykjavík
hefst með því að fólki
verður gefinn kostur á að
fara í útsýnisflug kl. 9—
12 f.h. og kl. 12:30-13:30
fer fram hópflug 15
einkaflugvéla yfir
Reykjavík.
Klukkan 13 verða flutt ávörp
og síðan frá kl. 13:20—16 verða
hin ýmsu dagskráratriði svo sem
flug Fokker véla Landlielgis-
gæzlunnar og þyrlu hennar,
DeHavilland Dash—7 sýnir
stutt flugtak og aðrar listir,
vélar frá vestur—þýzka flug-
hernum og bandaríska hernum
Hér stefnir Tony vélinni beint til jarðar við Suðurgötuna, en hann
var ýmist með vélina í 4.500 eða 2000 feta ha“ð og sagðist
ljósmyndarinn hafa átt fullt í fangi með að henda reiður á í hvaða
átt vélin stcfndi og fengið hálsrfg af að horfa „niður'* á jörðina.
sýna, einnig fljúga Panthom og
Lockheed þotur yfir svæðið og
félagar úr Fallhlífarklúbbum
Reykjavíkur og Akureyrar sýna
fallhlífarstökk úr Douglas vél
Landgræðslunnar. Þá verður
sýnt flug á radíóstýrðum flug-
módelum og á sérstæðri þyril-
vængju, sem smíðuð var hér-
lendis svo og listflug á svif-
flugum.
Klukkan 15:35—16 koma síðan
fram þekktir erlendir gestir,
annar bandaríski svifdrekaflug-
maðurinn Dan O’Neil, sem sýnir
flug á vélsvifdreka og listflug-
maðurinn brezki Tony Bianchi.
Sýnir hann listflug á vélinni Cap
10, sem er í eigu Magnúsar
Norðdahl og fleiri áhugamanna
um listflug.
— Eg hefi sýnt listflug nú í
nokkur ár, sagði Tony Bianci i
samtali við Mbl., en auk þess
keppi ég stundum í listflugi.
Sagðist hann hafa sýnt listflug í
Frakklandi, Belgíu, Hollandi og
Bandaríkjunum auk heimalands
síns, en á flugdegi í Reykjavík í
fyrrahaust var ráðgert að hann
sýndi listflug, sem þó varð að
hætta við þar sem deginum var
þá frestað og hann gat ekki
beðið. — En auk þess að stunda
listflug hefi ég starfað við ýmis
konar flug, m.a. fyrir kvikmynd-
ir, en aðalstarf mitt er við
fyrirtæki sem ég tók við af föður
mínum og sinnir endurbyggingu
og viðhaldi ýmis konar sjald-
gæfra flugvéla, m.a. tveggja
Spitfire véla.
Ekki vildi Bianci halda fram
að listflug væri hættulegt starf,
það væri ekki hættulegra en að
fljúga áætlunarflug við misjöfn
skilyrði, en í listflugi væri aðai-
atriðið að vera alltaf i góðri
þjálfun og ætla sér ekki að gera
hluti, sem menn réðu ekki við.
Þá sagði hann að listflugmenn
treystu ekki öðrum vélum al-
mennilega en nýjum og nýlegum,
enda væru listflugvélar í dag
alltaf byggðar með þetta
ákveðna hlutverk í huga. Magn-
ús Norðdahl, einn eigenda list-
flugvélarinnar, sagði að hún
væri nú ársgömul og væri talin
mjög fullkomin að allri gerð og
væri það áhugamál listflug-
áhugamanna hérlendis að
Bianchi myndi jafnvel þjálfa
einn til tvo íslendinga, en einnig
hefur komið til tals að hann
keppi sjálfur fyrir ísland í list-
flugskeppnum ef honum verður
útveguð vél.
Flugdagurinn á Akureyri
verður með svipuðu sniði og í
Reykjavík og sem fyrr segir
hefst aðaldagskráin kl. 13 og
verður selt inn á svæðið við
Öskjuhlíð og Flugvallarveg. Þá
verða í gildi umferðartakmark-
anir á þann veg að einstefna
verður um Flugvallarveginn
framhjá Slökkvistöðinni og út af
flugvallarsvæðinu um gamla
Flugvallarveginn til norðurs og
frá Nauthólsvík að Fossvogskap-
ellu að sunnanverðu.