Morgunblaðið - 24.06.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ1979
31
Prestastefnu slitið í Bolungarvík
ísafirði. 22. júní 1979.
PRESTASTEFNA íslands scm staö-
ið hefur á ísafirði undanfarna þrjá
daga. eins og komið hcfur fram í
Morgunblaðinu, lauk störfum síð-
degis í gær með altarisgöngu í
Ilólskirkju í Bolungarvík.
Prestastefnan fjallaði aðallega um
efnið tilbeiðslu og trúariðkun. Eftir
framsöguerindi prestanna Arngríms
Jónssonar og Arnar Friðrikssonar
var starfað í umræðuhópum á þriðju-
dagseftirmiðdag og fyrir hádegi á
miðvikudag voru niðurstöður fund-
anna dregnar saman í ályktun, sem
sendar veröa til presta og starfs-
manna kirkjunnar og er ætluð til
hliðsjónar, við guðsþjónustugjörð og
skipulagningu kirkjulífs. Eftir há-
degi á miðvikudag var þátttakendum
prestastefnunnar og mökum þeirra
boðið í kynnisferð í Hraðfrystihúsið
Norðurtanga h.f. á ísafirði, en það er
eitt best búna frystihús landsins. Var
húsið skoðað undir leiðsögn Jóns
Páls Halldórssonar framkvæmda-
stjóra. Gestirnir voru greinilega
mjög miskunnugir fiskvinnslu, því á
meðan sumir störðu í stórri spurn á
athafnalífið, brugðu aðrir sér í flök-
Eftir að hafa skoðað frystihúsið
fylgdi Jón Páll Halldórsson gestun-
um um Byggðasafn Vestfjarða, en
hann er þar gjörkunnugur, enda
verið í stjórn safnsins um margra
ára skeið.
Um kvöldið sátu gestirnir kvöld-
verðarboð sóknarnefndar og bæjar-
stjórnar Isafjarðar í húsakynnum
menntaskólans. Þar rakti bæjar-
stjórinn Bolli Kjartansson helstu
söguþætti kaupstaðarins og gerði
grein fyrir helstu viðfangsefnum
líðandi stundar.
Biskup þakkaði gestrisni Isfirðinga
og bað þeim guðs blessunar. Kl. 9 um
kvöldið yar dagskrá í kirkjunni í
umsjá Isafjarðarsafnaðar. Sunnu-
kórinn flutti nokkra kórala eftir
Bach og Kjartan Sigurjónsson organ-
isti lék einleik á orgel kirkjunnar.
Séra Gunnar Björnsson lek einleik á
selló við undirleik Kjartans. Gunn-
laugur Jónasson bóksali, formaður
sóknarnefndar, flutti ágætt erindi
um sögu þeirrar kirkju, sem nú hefur
staðið á Isafirði síðan 1863. Eftir að
Gunnlaugur hafði lokið máli sínu
flutti Sunnukórinn með aðstoð
hljóðfæraleikara úr hljómsveit Tón-
listarskóla Isafjarðar og organista
kirkjunnar tónverk eftir Jónas Tóm-
asson yngri, „Sjö orð Krists á
krossinum". Sóknarpresturinn séra
Jakob Hjálmarsson lauk athöfninni
með ritningarlestri og bænagjörð.
Kirkjan var þéttskipuð fólki.
Höfðu gestir orð á því, að það sem
þeir hefðu heyrt og séð á ísafirði
þennan dag bæri ríkan vott um
þróttmikið atvinnu- og menningarlíf
hér vestra. Höfðu sumir gestirnir orð
á því, að athyglisvert væri að sjá
konurnar frá bónusborði frystihúss-
ins flytja frumsamið nútímatónverk
í kirkjunni um kvöldið með miklum
ágætum.
Séra Jakob Hjálmarsson sóknar-
prestur hafði veg og vanda af undir-
búningi og framkvæmd prestastefn-
unnar hér, fréttaritari Morgunblaðs-
ins hafði samband við hann í dag og
innti hann eftir því hvernig fram-
kvæmd ráðstefnunnar hefði gengið.
Sagði hann að aðstaða fyrir ráð-
stefnuhald fyrir allt að 100 þátttak-
endur væri all góð og fyrirgreiðsla
hefði verið öll einstaklega lipurleg.
Taldi hann að þegar búið væri að
bvggja menntaskólann allan svo og
hótelið sem nú er í smíðum, jafn-
framt því sem starfið efldist í
kringum slíka staði, væri Isafjörður
orðinn kjörinn staður til hvers konar
ráðstefnuhalds. Vildi séra Jakob
koma á framfæri sérstökum þökkum
sínum til allra þeirra sem stuðluðu
að því að prestastefnan fór fram svo
áfallalaust, sem raun bar vitni.
Úlfar.
Það er ekki að sjá annað en
prestar þekki til starfa alþýðunn-
ar. Séra Iljálmar Jónsson á Ból-
stað bregður hnííum og flakar
vænan þorsk. Ljósm: Myndablaftift.
1975 — Mósambík fær sjálfstæði.
1963 — Moise Tshombe neyddur
til að segja af sér sem forsætis-
ráðherra í Katanga.
1950 — Kóreu-stríðið hefst með
innrás Norður-Kóreumanna í
Suður-Kóreu.
1942 — Áttundi her Breta hörfar
til Mersa Matrun, Lýbíu — 1.000
brezkar sprengjuflugvélar ráðast
á Bremen.
1925 — Pangalos verður forsæt-
isráðherra Grikklands eftir bylt-
ingu.
1920 — Haag valin aðsetur Al-
þjóðadómstólsins.
1918 — Bandarískt herlið hrekur
Þjóðverja úr Belleau-skógi eftir
hálfs mánaðar orrustu.
1879 — Soldáninn steypir Ismael
Khedív í Egyptalandi og Tewfik
tekur við.
1876 — Orrustan um Little Big
Horn: Sioux-Indíánar stráfella
riddaralið George Custers hers-
höfðingja (Custer’s Last Stand).
1870 — Isabella Spánardrottning
leggur niður völd.
1862 — Sjö daga orrustan hefst.
1862 — Bandaríkin viðurkenna
sjálfstæði Líberíu.
1861 — Abdul Aziz verður
Tyrkjasoldán við lát Abdul
Mejids.
1658 — Ensk-franskur her sigrar
Spánverja við Dunkerque — Aur-
angzet fangelsar föður sinn eftir
sigurinn í orrustunni um Samgar,
Indlandi.
1530 — Ágsborgar-játningin.
1501 — Alexander páfi VI stað-
festir Granada-samning Frakka
og Spánverja um skiptingu Nap-
oli.
Aímæli — Nikulás I Rússakeisari
(1796-1885) — Louis Mountbatten
lávarður, brezkur hermaður
(1900--)■
Andlát — George Cleveland,
stjórnmálaleiðtogi, 1908.
Innlent. — Jörundur hundadaga-
konungur tekur völd 1809 —
Flóabardagi (mesta sjóorrusta hér
við land háð af íslendingum) 1244
— Skálholtsför Jóns Arasonar
biskups 1548 — Bannfæring num-
in úr lögum 1782 — W.L. Watts
leggur upp frá Núpsstað í ferð
þvert yfir Vatnajökul 1875 —
Grímuklæddir menn rífa laxagirð-
ingar í Elliðaám 1879 — Hjalti
Jónsson klífur Háadrang undan
Dyrhólaey 1893 — Heimastjórn-
armenn sigra í kosningum 1902 —
d. Þorlákur Ó. Jónsson 1917 —
Vígður Sigurgeir Sigurðsson bisk-
up 1939 — Kosningasigur Alþýðu-
flokks 1978 — f. María Markan
1905 — Verfall á drykkjumanna-
hælinu á Kaldraðarnesi 1945.
Orð dagsins — í stjórnmálum
stendur valið milli tveggja ókosta
— John Morley, enskur stjórn-
málaieiðtogi (1838-1923).
Skrýplavika í Karnabæ
Já, á morgun höldum við skrýpladaginn hátíðlegan
og gerum ýmislegt til að lífga upp á lífið og tilveruna
• Allir sem koma inn í verslanir okkar fá gefins „Skrýplalímmiða".
• Allir, sem kaupa plötuna „Haraldur í Skrýplalandi“ fá gefins
sérstakar „Skrýplaveifur".
• í verslun okkar í Austurstræti verða skrýplarnir á skjám video tækjanna.
• Aö auki, verður allt starfsfólk plötuverslana okkar í „Skrýplabolurn" og
„Skrýplar" á víö og dreif um verslanirnar okkar, og auövitað hljómar
skrýplatónlist innan dyra sem utan.
Við höldum svo áfram kynningu plötunnar
út vikuna.
Hver veit nema við fáum Harald
til aö mæta í einhverja verslun okkar
seinna í vikunni, auk annars.
Sjáumst öll í Skrýplastuði!