Morgunblaðið - 24.06.1979, Page 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1979
Engin háhýsi en urmull
gagnmerkra bygginga
Fáir fornir kastalar hala vardvcittst hctur cn Rushcn-kastali þcirra Manarbúa. Þarna sátu kóngarnir og hertogarnir sem ríktu yfir cynni.
Stjórn Manar vonast
til þess, að alls komi
um hálf milljón
manna sem gestir til
eyjarinnar í sumar,
og er því viðbúið, að óhemju
annir verði hjá öllum þeim
Manarbúum, sem starfa við mót-
töku feröamanna á eyjunni og
þjónustu við þá ýmiss konar.
Fjöldi ferðamanna á þessu ári
verður þó væntanlega allmiklu
minni heldur en á metári ferða-
mannastraumsins til Manar,
sem var árið 1913, en þá komu
þangað alls 634.000 gestir. Þjón-
usta við ferðamenn hefur í nær
heila öld verið mjög þýðingar-
mikill atvinnuvegur á Mön, og
hefur þessi atvinnugrein staðið
undir um 12% af þjóðartekjum
Manarbúa á undanförnum árum.
Á síðustu 15 árum hefur Mön þó
hins vegar sett mjög ofan sem
ferðamannastaður í harðri sam-
keppni við ódýrar Spánarferðir.
Þeir Manarbúar, sem starfa að
ferðamálum, binda því miklar
vonir við yfirstandandi hátíðaár,
og hvað framtíðina snertir er
ætlunin að auglýsa nýjan ferða-
máta um Mön, þannig að fólk
geti dvalizt þar á ódýran hátt í
seinna sumarleyfinu og t.d. eldað
ofan í sig sjálft og séð um sig að
miklu leyti sjálft. En vitanlega
ætlast eyjarskeggjar þó ekki til,
að hinn hefðbundni ferðamanna-
markaður Manar leggist af, því
fjölmargir Englendingar og
Skotar halda enn tryggð við Mön
sem sinn eina rétta sumardval-
arstað. Sama er að segja um
allan þann fjölda ferðamanna,
sem kemur til Manar ár hvert til
þess að fylgjast með mótor-
hjóla-kappakstrinum á TT-vik-
unni og Grand Prix-keppninni.
Forn húsagerðarlist
Að auki hafa Manarbúar ný-
lega uppgötvað, hve forn mann-
virki hafa mikið aðdráttarafl á
ferðamenn. Saga húsagerðarlist-
ar á Mön nær aftur til grárrar
forneskju eða allt til miðrar
steinaldar, en frá þeim tímum
eru enn nokkrar leifar á Mön.
Þar við bætast svo hin hringlaga
hús Kelta frá því snemma á
miðöldum, keltneskar kapellur
og krossar. Forn húsagerðarlist
á Mön nær svo hámarki á þeim
fjórum öldum, sem veldi nor-
rænna manna á Mön stóð, eða
allt fram til ársins 1265.
Tynwald er eitt af þeim mann-
virkjum, sem hinir norrænu
yfirdrottnarar Manar reistu, en
á Tynwald-hæð kom hið árlega
allherjarþing norrænna manna
á Mön saman undir berum himni
um Jónsmessuleytið. Enn þann
dag í dag kemur heimastjórn
Manar saman til fundar á
Tynwald-hæð einu sinni á ári og
lýsir yfir gildistöku nýrra laga
fyrir eyjarskeggja. Sú athöfn
laðar einnig að sér marga ferða-
menn.
Á síðari hluta miðalda bætt-
ust aðallega við ýmsar kirkju-
byggingar og hernaðarmann-
virki, en í lok átjándu aldar
hafði Mön um langt skeið notið
algjörs friðar og allmikil velsæld
ríkti meðal íbúanna.
I kjölfar velsældarinnar kom
nýr fjörkippur í alls konar bygg-
ingarframkvæmdir á eyjunni, og
fjöldi hinna færustu arkitekta
frá Englandi og Skotlandi tóku
að sýna listir sínar á Mön. Hús
þau, sem þessir aðkomnu arki-
tektar skópu á Mön á síðustu
árum 18. aldar og fram eftir 19.
öld, eru mörg hver góð dæmi um
hið bezta í brezkri húsagerðar-
list frá þessum tímum og sýna
brezkan arkitektúr í hnotskurn.
Á 19. öld voru auk þess
byggðar fjölmargar kirkjur á
Mön, og var unnið að smíði
hinnar fyrstu á árunum milli
1830 og 1840.
í höfuðstaðnum
Það sem vekur eftirtekt ferða-
mannsins á Mön, er ekki aðeins
hið mikla og fagra safn form-
sterkra bygginga frá 19. og fyrri
hluta 20. aldar, heldur engu
síður, hve vel þessi hús eru felld
inn í hið sérstæða landslag
eyjarinnar. Sú staðreynd, að
efnahagur manna á Mön fór
mjög hnignandi um og eftir
síðustu aldamót, hefur gert það
að verkum, að hið viktoríanska
yfirbragð margra bæja á Mön
hefur varðveitzt ótrúlega vel allt
fram á þennan dag. Þannig
hefur t.d. útliti höfúðstaðar
Manar, Douglas, ekki verið spillt
með einu einasta háhýsi á síðari
áratugnum. Ferðamenn, sem
koma til Douglas, geta því notið
að fullu hins mikla og sjaldséða
samræmis, sem ríkir í bygging-
arstíl húsanna i Douglas, en þau
eru flest frá Viktoríu-tímabilinu.
Ber þá sérstaklega að nefna
húsaröðina við hina fjögurra
mílna löngu strandgötu í Doug-
las, sem er prýðilegt dæmi um
gott samræmi í húsagerð.
Óhætt mun að fullyrða, að
ferðalangar geta sem hægast
fundið sér ótal margt til dægra-
dvalar á Mön; hvort sem menn
kjósa að ferðast um eyjuna í
gufuknúinni járnbrautarlest frá
Viktoríutímabilinu, ríða dagleið
á vökrum smáhestum, þamba
sterkt manaröl, njóta fagurra
lista í heillandi umhverfi, skoða
samsafn stílhreinna bygginga
eða njóta sérstæðs landslags
þessa indæla eylands.
David Crawford.
„Gaukstaðaskipið“,
sem á að taka land á
Mön um miðja þessa
viku, tók niðri við
Skotland fyrir nokkr-
um dögum, og áhöfnin
— sjö manns — hafn-
aði í sjónum. Sem
snöggvast var jafnvel
óttast, að ferðalagi
„ víkinganna “ mundi
Ijúka þarna, en þetta
fór betur en horfði, og
menn eru að vona að
„Hrafn Óðins“, eins og
fjeyið er nefnt, haldi
áætlun.