Morgunblaðið - 01.07.1979, Side 24

Morgunblaðið - 01.07.1979, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1979 Helga Soffía Bjarna- dóttir—Minning Fædd 13. október 1890. Dáin 21. júní 1979. Þegar ég kynntist Helgu árið 1939, átti hún langan vinnudag að baki og nærri jafnlangan fram- undan. Hún var barn þegar hún byrjaði að vinna fyrir sér, þá þótti ekki tiltökumál, þótt hún væri send á hverjum degi frá Melshús- um á Seltjarnarnesi eftir Grand- anum með marga lítra af mjólk í mörgum brúsum til Reykjavíkur í hvernig veðri sem var. En svona voru æskuárin hjá mörgum börn- um og unglingum í þá daga og þá þótti ekki tiltökumál þó þau væru blaut í fæturna frá morgni til kvölds, enda kom það fram á seinni árum hennar, því hún var mjög fótaveik síðustu árin, en Helga lét ekki það á sig fá, því hún var alltaf létt í lund og söng mikið bæði ættjarðarlög og sálma því hún var mjög trúuð kona. Helga var dóttir Soffíu ísleifsdóttur af Víkingslækjarætt, systir Ólafs ís- leifssonar frá Þjórsártúni. Faðir hennar var Bjarni Gunnarsson. Ung réðst hún að prestsetrinu að Kálfholti í Holtum og vann þar í mörg ár. Þar kynntist hún manni sínum, sem þá var vinnumaður að Kálfholtshjáleigu, Theódóri Jónssyni, ættuðum frá Stóruvöll- um í Bárðardal, sem mikill ætt- leggur stendur að. Theódór var dugnaðarmaður, hann var sjómað- ur og eftirsóttur af skipstjórum þeim, sem hann vann hjá, var dulur maður en glettinn og eftir- minnilegur þeim, sem kynntust honum. Theódór lézt 1961, þá saddur lífdaga, enda orðinn útslit- inn og blindur. Helga og Theódór áttu 12 börn, svo að marga munna þurfti að metta. Hefur þurft mikla útsjónarsemi til að allir fengju nóg, enda þekktist ekki þá að fara illa með mat og þurfti vel að halda á, til að kaup eins manns dygði í heimilið. Helga kunni þá list, hún var mikil handavinnukona, bæði prjónaði og saumaði á börnin sín, þar að auki saumaði hún mikið út og heklaði. Prjónaði mikið á barnabörnin og barnabarnabörnin enda eru afkomendur þeirra á annað hundrað. Alltaf var gott að koma til Helgu, hún tók höfðing- lega á móti öllum og veitti það bezta sem til var. Þá þótti börnun- um gaman að koma til ömmu, alltaf átti hún eitthvað til að stinga upp í munninn, eða sokka eða vettlinga, peysu eða jafnvel fínan heklaðan kjól. Og svo voru það jólin hjá afa og ömmu. Það var dýrð, sem enginn hefði viljað missa af. Þá var sungið mikið, þá var spilað á gítar og allir voru kátir, svoleiðis vildi amma hafa það. Mikið á ég Helgu að þakka, hún var okkur góð, tengdabörnunum, aldrei varð okkur sundurorða og höfðum við þó báðar skap. Svo var hún alltaf góð og alltaf var hún að þakka hvað lítið sem gert var fyrir + Þökkum samúö og hluttekningu viö fráfall og jaröarför BJARNA ÞORLÁKSSONAR, Hvammatanga. Sérstakar þakkir sendum viö læknum og starfsfólkl Sjúkrahúss Hvammstanga. Asvaldur Bjarnason Debóra Þóröardóttir Richard Guömundsson og börn Siguröur Karlsson Sveinbjörg Davíösdóttir Útför dóttur minnar MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR, Lynghaga 16, veröur gerö frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. júlí kl. 13.30. — Þeir, sem vildu minnast hennar, skal bent á landssamtökln Þroskahjálp. Helga Finnsdóttir og aörir aöstandendur. + Þakka innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns JÓNS GUÐMUNDSSONAR, sjómanns, Bjargarstíg 6. Fyrir hönd móöur hins látna og vandamanna. Guðmunda Þorvaldsdóttir + Móöursystir mín GRÓA ÞÓRARINSDÓTTIR lést í Elliheimilinu Grund föstudaglnn 29. júní. Útförin auglýst síöar. Helga Viggósdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og sonar, fööur okkar og bróöur, tengdaföður, afa og mágs, GUÐMUNDAR WILLIAMSSONAR og GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR. Guö blessi ykkur öll. Freydís Bernharösdóttir William Þorsteinsson, Þóröur Guömundsson Hólmfríöur Arngrímsdóttir Sigríöur Guömundsdóttir Konráö Þ. Sigurösson Arnar Guömundsson Arna Björk Þóröardóttir. Guömundur Fannar Þóröarson. hana, en það erum við sem eigum henni mikið að þakka og okkur vantar nógu mörg orð til að það nái tilgangi. Þar næst ber að þakka Ellert, yngsta syni Helgu, sem hefur búið með henni siðustu árin og verið hennar önnur hönd, allt vildi hann fyrir mömmu gera, ekkert var of gott fyrir mömmu. Á meðan Helgi gat farið á fætur var sjálfsagt að keyra eitthvað, oft varð Seltjarn- arnesið fyrir valinu, þar þekkti hún hvert hús og hverja þúfu, áður en öllu var breytt. Þá var að heimsækja börnin, og barnabörn og alltaf var Elli tilbúinn, hann var trúr og tryggur fram á síðustu stund. Eg kveð svo Helgu með þessum sálmi: 1. Mœtumst vér á Ijóaslns landi? Ljúft þar broair unn við strönd — Sem um helga himingeima Hrelling nein ei þjáir «nd. Kúr: Mætumat vér? Mætumst vér? Mæt- umst vér þá handan fljótsins? Ljúft þar báran brosir hver. 2. Munum vér þar hólpnir hittast Herterð þegar lokið er? Og þar láta akker falla Oðrum hjá, sem þekkjum vér? 3. Hittum vér þá hjartakæru. Hér sem vorum skilin frá? Fáum vér um eilftð alla Aftur þeim að dvelja hjá? (H.L.H. - Þýð. óþ.) Þann 21. júní sl. andaðist í Landsspítalanum tengdamóðir mín, Helga Soffía Bjarnadóttir. Hún var ein þeirra íslandsdætra sem lítið mun fara fyrir í íslands- sögunni en hafði unnið þjóð vorri ómetanlegt gagn með starfi sínu. Á ég þá við að ala upp 12 börn sem er ærinn starfi og ekki verður metinn til fjár en er eigi að síður stórt innlegg í vort smáa þjóðfé- lag. Helga S. Bjarnadóttir var fædd 13. október 1890 í Tjarnarhúsum á Seltjarnarnesi. Foreldrar hennar voru Bjarni Gunnarsson sjómaður og Soffía ísleifsdóttir. Helga gift- ist 16. september 1912 Theódór Jónssyni sjómanni. Eignuðust þau hjón 12 mannvænleg börn og eru tíu á lífi en tvö eru látin, sonur og dóttir. Theódór var mikill dugnað- ar- og sómamaður og hann barðist harðri baráttu til þess að sjá heimili sínu farborða. Að sögn skipsfélaga hans var hann ein- stakur í sinni röð. Reglusemi, stundvísi og trumennska voru einkenni hans. Til merkis um það er að hann var í 20 ár með sama skipstjóra og segir það sína sögu. Helga var greind kona og hjartahrein og mjög trúuð. Hún var með afbrigðum gestrisin og skemmtileg heim að sækja. Helga kynntist ung erfiðleikum lífsins. Foreldra sína missti hún aðeins 13 ára og fór þá að vinna hjá vanda- lausum. Mann sinn missti Helga 1963 og höfðu þau hjón þá búið saman í yfir 50 ár. Eftir lát eiginmannsins bjó Helga með syni sínum Ellert Leif Thedórssyni sem sá um hana af einlægni og ástúð þar til hún var lögð inn á sjúkrahús fyrir 2 mánuðum síðan. Hafi hann þökk fyrir alla þá hjálp sem hann veitti henni. Innilegustu þakkir eru einnig sendar starfs- fólki á deild 3A á Landsspítalan- um frá börnum og barnabörnum. Ég vil að skilnaði þakka Helgu liðnar stundir, bæði gleðistundir svo og þær sem erfiðari voru og þakka óbilandi tryggð hennar og velvilja. Blessuð sé minning hennar. Guð styrki og styðji af- komendur hennar. Einar Jóhannesson bryti Hjónaminning: r * Asta ogHaraldur Olafsson Látlaust hefur verið yfir andláti þessara gæðahjóna, sem mín fáu orð verða hér niður sett fyrir. Gæðahjón segi ég af því, að af heilsu höfðu þau gnægð gegnum árin, vináttu ásamt því að eiga hjartahlýju nóga með sér í þessu lífi hér á jörðu. Grein þessi er ætluð í minningu þeirra hjónanna Haralds Ólafssonar, f. 2.12. 1895 og d. 8.5.1978, og Ástu Ólafsson, f. Smith frá Ósló f. 28.2. 1899 og d. 21.5. 1979, rétt eftir andlát maka, en komust bæði yfir á níunda áratuginn. Haraldur og Ásta gift- ust þann 21.11. 1921 og fæddist þeim frumburðurinn, sonur rétt ári síðar, þann 12.11, Ólafur, og síðar auðnaðist þeim dóttirin Hulda þann 28.1. 1927, sem nú á 5 börn, að verða uppkomin. Ólaf misstu þau í umferðarslysi 1944 frá unnustu sinni sem gekk þá með barn þeirra. Ég hafði þá verið lögættaður kjörsonur þeirra hjóna rúm 2 ár er þau misstu frumburð sinn Ólaf svo sviplega. Og það eitt hversu vel var frá gengið í þeim málum strax lýsir svolítið höfð- ingslund þessara hjóna til alls, sem þau gerðu, þ.e. veittu þessum litla hnoðra, er þau tóku mig sem fullgildan fjölskyldumeðlim 1%. árs. Þetta lýsir dálítið vel öðru í þeirra lífi, ekkert hálfkák í heið- arleik sínum. Það var með foreldra mína að þau lifðu lengst af búskaparár sín hér í Reykjavík, en voru nýflutt að Hrafnistu í Hafnarfirði í jan. 1978 þegar Haraldur lést skömmu síðar og Ásta rétt um ári síðar eins og fyrr er sagt. Haraldur fór snemma til sjós eða um '14 ára og hóf störf hjá Eimskipafélagi íslands í febr. 1919, á flaggskipi þess og fyrsta skipafélagsins. Ög var hann hjá því félagi nær 42 ár af ævistarfi sínu eða til des. 1960, er hann hætti störfum sökum aldurs sem skipstjóri. En sigldi þó af og til allt til jan. 1970, þá rétt orðinn 75 ára. Segir þetta líka svoiítið um hreysti og elju þessa sómamanns, sem helst gat aldrei kunnað við sig hálfauðum höndum í landi, sjór- inn kallaði alltaf. Ásta var trú manni sínum öll þeirra hjúskaparár, um 56% árs tímabil, og dró aldrei bliku á. Og má segja að þessi hjón hafi notið mikillar gæfu að ná yfir hálfa öld á höfum úti og yfir hálfa öld í hjónabandi auk þess að komast á níunda áratuginn. Ég hafði áður staðið fyrir kveðju sem samin hafði verið af okkur tveimur þá á sjómannadag- inn 4. júní 1978, rétt eftir lát föður míns, sem birtist í Mbl. 10. júní 1978, fyrir neðan grein sem var um annan sjómann hvers jarð- neskar leifar höfðu fundist sama dag og við vorum að semja kveðj- una, svona eru forlögin misjöfn. Hann hafði aðeins náð 34 ára aldri. Blessuð sé minning þeirra. Grétar Róbert. LEGSTEINAR S. HELGASON H/F, STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48, KÓPAVOGI, SIMI 76677. + Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur minnar NÖNNU ÞÓROARDÓTTUR fré Hofstöðum, Gufudalssveit. Frlöa Ágústsdóttir og aörir aöstandendur. + Þökkum innilega vináttu og tryggö okkur sýnda viö andlát og útför ELÍNAR BJARGAR GUDMUNDSDÓTTUR fré Stóru-Héeyri, Eyrarbakka. Þökkum sérstaklega læknum og hjúkrunarfólki Kleppspítala, margra áratuga ágæta hjúkrun. Ingimar H. Jóhannesson og frændfólk hinnar létnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.