Morgunblaðið - 11.08.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1979
9
piltarnir farið í trúboð, ef þeir
vilja sjálfir fara. Trúboðið
stendur yfir í tvö ár og er það
talið mjög góð leið til að
þroska unga menn, því í starfi
þeirra gefa þeir tíma sinn og
þjónustu við aðra, en þurfa
jafnframt að hlýða ákveðnum
reglum og starfa undir nokkuð
ströngum aga.
Smátt og smátt feta ungu
mennirnir sig áfram í hin
ýmsu embætti kirkjunnar og
eru allan tímann mjög virkir í
kirkjustarfinu. Skilyrði þess
að fá að takast á hendur hin
ýmsu störf innan kirkjunnar
eru þau að þeir hafi óflekkað
mannorð og hafi farið eftir
þeim kenningum sem kirkjan
kennir.
Er Arthur var spurður að
því, hvort stúlkur tækju á
engan hátt þátt í þessu starfi,
sagði hann, að þær fengju
tækifæri til að starfa á öðrum
sviðum, því innan kirkjunnar
væri ákveðin verkaskipting á
milli kynjanna. Þess væri vel
gætt, að allir meðlimir kirkj-
unnar væru virkir í starfinu.
Mán udagskvöldin
helguð
fjölskyldunni
Mormónar líta mjög alvar-
legum augum á hjúskaparbrot
og gegnir fjölskyldan mjög
stóru hlutverki í kirkjunni.
Telja mormónar að foreldrar
beri á allan hátt ábyrgð á
uppeldi barna sinna, en þrátt
fyrir það að utanaðkomandi
aðilar aðstoði við uppeldið,
eins og til dæmis skólar, taki
þeir á engan hátt ábyrgðina af
herðum foreldranna. Þeir ein-
ir eru ábyrgir fyrir því að
börnin hljóti gott uppeldi.
Hjá mormónum er hvert
mánudagskvöld fjölskyldu-
kvöld. Þá kemur öll fjölskyld-
an saman við störf, leiki,
umræður um ýmis vandamál
eða hvað sem er. Aðaltak-
markið er að fjölskyldan sé
saman og geri eitthvað saman
þessi kvöld. Að sögn Arthurs
Hansens byrja slík fjölskyldu-
kvöld yfirleitt með bæn og
þeim lýkur oftast á því að öll
fjölskyldan krýpur saman og
biður um handleiðslu Drott-
ins. Mormónar trúa á líf eftir
dauðann og telja að sá maður
sem ekki hefur tekið við boð-
skap guðs og orðið kristinn
maður og látið skírast til
fyrirgefningar syndanna deyi í
syndum sínum, því skírnin sé
sáttmáli, sem maðurinn gerir
við Guð um fyrirgefningu
syndanna. Þótt maðurinn sé
ekki skírður þarf það þó ekki
að vera að hann fyrirfarist
eftir dauðann, því hann getur
tekið við fagnaðarerindinu í
næsta lífi. Það er þó ekki nóg
að vera skírður, maðurinn
þarf að vanda vel líferni sitt,
því eftir dauðann verður
maðurinn dæmdur eftir hegð-
un sinni í lifanda lífi.
Hins vegar telja mormónar
ekki rétt að skíra ómálga
barn, því það getur ekki gert
slíkan sáttmála við Guð. Þess
vegna skíra mormónar börnin
þegar þau eru orðin átta ára,
því þá eiga foreldrarnir að
bera ábyrgð á því að búið sé að
kenna börnunum grundvallar-
atriði kristindóms.
Það þarf mikið fé til að
starfrækja slíkan sértrúar-
söfnuð, sem mormónasöfnuð-
urinn er og var blm. Mbl. tjáð
að mormónakirkjan í Banda-
ríkjunum styrkti söfnuðinn
hér fjárhagslega. Einnig tíðk-
ast það að fólk greiði tíund,
þ.e. mormónar greiða 10%
tekna sinna til safnaðarins.
Islenski mormónasöfnuður-
inn á þó engar eignir hér á
landi enn sem komið er, og er
starfsemin rekin í leiguhús-
næði. Að sögn forráðamanna
safnaðarins eru þeir nú búnir
að bíða í þrjú ár eftir að fá
úthlutað lóð til að byggja á, en
það virðist ætla að ganga seint
að þeirra sögn.
„ Var lengi
ákaflega efins“
Sveinbjörg Guðmundsdóttir
vinnur við þýðingar fyrir mor-
mónakirkjuna á íslandi, en
hún gekk í söfnuðinn fyrir
þremur árum. í viðtali við
blm. Mbl. sagði hún, að ástæð-
an fyrir því að hún hefði
gengið í söfnuðinn hefði verið
sú, að hún hefði fundið að það
var sannleikurinn sem þessi
kirkja kenndi.
„Það er aðeins til ein leið til
þess að komast að raun um
slíkt," sagði Sveinbjörg. „Það
er að biðja til Guðs og fá svar.
Það gerði ég, en ef satt skal
segja var ég lengi vel ákaflega
efins og ætlaði mér ekki að
gleypa við einu né neinu. Ég
fann í hvert einasta skipti sem
ég kom á samkomur og þegar
trúboðarnir voru að kenna
mér, var alltaf mjög sterkur
andi í kringum okkur, og
fannst mér það alveg stórkost-
legt.“
Að sögn Sveinbjargar er
mormónakirkjan ekki sprottin
upp vegna deilna um kenni-
setningar, heldur er hún hin
endurreista kirkja Drottins.
„Ef það er sannleikurinn að
þetta væri hin endurreista
kirkja Drottins, fannst mér
það þess virði að athuga það
og sé ég ekki eftir því. Það eru
mjög margir sem halda að við
séum ekki kristin, en það erum
við svo sannarlega, því við
trúum á Krist sem frelsara
okkar og lausnara," sagði
Sveinbjörg að lokum.
A.K.
Mormónatrúboðarnir vekja oft athygli á götum úti fyrir klæðnað
sinn, en til þess að geta verið góðir og frambærilegir fulltrúar
kirkjunnar, þurfa þeir að vera snyrtilega klæddir. Á þessari mynd eru
þeir Bert Leifsson og Curt Hutchings, en þeir eru af vestur-íslenskum
uppruna.
Frá lögreglunni:
Vitni vantar
að ákeyrslum
RANNSÓKNADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur beðið
Mbl. að auglýsa eftir vitnum að
eftirtöldum ákeyrslum. Þeir, sem
veitt geta lögreglunni upplýsing-
ar, sem kunna að leiða til þess að
tjónvaldarnir finnist, eru vin-
samlega beðnir að hafa samband
við Rannsóknadeildina hið fyrsta
í síma 10200.
Miðvikudaginn 25. júlí s.l. var
ekið á bifreiðina R-11654 á Ás-
vallagötu við hús nr. 53. Bifreiðin
er blá Mazta. Varð á tímabilinu
frá kl. 15,15 til 16,30. Vinstra
afturaurbretti er skemmt á bif-
reiðinni og er skemmdin 65 cm frá
jörðu. Tjónvaldur gæti verið grá
eða silfurlituð bifreið.
Fimmtudaginn 26. júlí var ekið
á bifreiðina R-50718 þar sem hún
var í Tjarnargötu við hús nr. 11
frá kl. 08,20 til 12,15. Bifreiðin er
Citroen, ljósgul að lit. Vinstra
afturaurbretti er dældað og risp-
að. I skemmdinni er svart eftir
höggvaragúmmí.
Þriðjudaginn 31. júlí var ekið á
bifreiðina R-80 þar sem hún var á
gatnamótum Skuggasunds og
Sölvhólsgötu. Bifreiðin er Volks-
wagen, rauðbrún að lit. Skemmd
er á vinstra framaurbretti.
Fimmtudaginn. 2. ágúst s.l. var
ekið á bifreiðina Y-6374, þar sem
hún var við Sjálfstæðishúsið að
Háaleitisbraut 1. Bifreiðin er
Skoda, blá að lit. Vinstra fram-*
aurbretti, framhöggvari og ljós er
skemmt á bifreiðinni. Talið að
þetta hafi orðið frá kl. 11.00 til
12.10. Blá málning er í skemmd-
inni.
Þriðjudaginn 7. ágúst s.l. var
ekið á bifreiðina R-60486, sem er
Lada, dökkblá að lit. Mun hafa
orðið við Litinn í Síðumúla eða
Vörumarkaðinn í Ármúla. Vinstra
framaurbretti er skemmt.
Þriðjudaginn 7. ágúst s.l. var
ekið á bifreiðina R-61931 sem er
Vauxhall, rauð að lit. Bifreiðin var
á stæði austan við Austurbæjar-
bíó. Vinstra framaurbretti er
skemmt og er gulur litur í
skemmdinni. Bifreiðin hafði stað-
ið á fyrrgreindum stað frá kl.
21.30 kvöldið áður.
Þriðjudaginn 7. ágúst var ekið
á bifreiðina G-7974 á bifr.stæði
við hús nr. 4 við Hverfisgötu. Var
bifreiðin á fyrsta stæði á fyrr-
greindri götu. Bifreiðin er rauð-
orange Morris Marina. Vinstra
afturaurbretti er skemmt. Kom á
hana frá kl. 17.00 til 17.30.
29555
Þorlákshöfn
Einbýlishús 2x139 Im m. bílskúr. Hannaö af
Kjartani Sveinssyni. Afhendist fokhelt.
Litið endaraöhús 3 herb. ♦ eldhús ♦ bíiskúr á
einni hæö, fokhelf. Teikn. og uppl. á
skrifstofunni.
3ja harb. íbúö i blokk. Allt bein sala.
Grindavík
Viölagasjóöshús 130 fm. Verö 21 m.
EIGNANAUST
LAUGAVEGI 96
(vió Stjörnubió)
SÍMI 29555
Lárus HelKason. sölustjóri.
Svanur Wr Vilhjálmsson hdl.
Sumarbústaður
Silungatjörn
Til sölu er sumarbústaöur viö Silungatjörn í
Mosfellssveit. Bústaðurinn stendur á einum bezta
veiöistaönum í vatninu. Verö kr. 3,5 millj.
Upplýsingar í síma 24866, eftir kl. 7 næstu kvöld.
f---------
TIL SÖLU:
Árni Einarsson lögfr.
Ólafur Thóroddsen lögfr.
Norðurbær —
Hafnarfirði
Mjög góö 2ja herb. íbúö 65 fm.
Suðursvalir. Verö 17'/2 millj.
Vesturberg — 2ja herb.
65 fm íbúð mjög falleg, þvotta-
herb. á hæðinni. Verö 18 millj.
Hraunbær — 2ja herb.
Mjög glæsileg 65 fm íbúö. Verö
18 millj.
Selvogsgata —
Hafnarfirði
Mjög snotur 55 fm íbúö. Verö
12—13 millj.
Vesturbær — 3ja herb.
Nýleg mjög falleg íbúð á 2.
hæð. Verð 21—22 millj. Uppl.
aðeins á skrifstofu, ekki í síma.
Rauðarárstígur —
3ja herb.
Mjög góð eign í fjölbýlishúsi.
Verö 17 millj.
Hrafnhólar — 4ra herb.
Sérstaklega glæsileg 100 fm
eign. Verö 24—25 millj.
Höfum mikið úrval rað-
húsa á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Vantar
Höfum mjög fjársterkan kaup-
anda aö 4ra herb. íbúð i
Reykjavík eða nágr.
Höfum mjög fjársterkan kaup-
anda að 3ja herb. íbúð í Reykja-
vík eða nágr.
Höfum mjög fjársterkan kaup-
anda aö einbýlishúsi eða raö-
húsi í Reykjavík eða Kópavogi.
Höfum fjársterkan kaupanda að
sér hæð í Hafnarfirði. Eignin
þarf ekki að afhendast fyrr en
eftir 9 mánuði.
Hjá okkur er miöstöð
fasteignaviðskipta á
Reykjavíkursvæðinu.
V
Árni Einarsson lögfraaömgur Ólafur Thórodson lögfræóingur
riGNAVER SE
Suðurlandsbraut 20, símar 82455 — 82330.
Kristján örn Jónsson sölustjóri.
i