Morgunblaðið - 29.08.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
r
Sparisjóðurinn Atak
stofnaður í gærkvöldi
STOFNFUNDUR nýs sparisjóðs
var haldinn á Hótel Loftleiðum í
gærkvöldi. Fyrir fundinum lágu
nokkrar tiliögur um nafn á nýja
sparisjóðinn og varð nafnið Átak
fyrir valinu.
Stofnfélagar hins nýja spari-
sjóðs eru 240 að tölu og er
stofnframlag hvers og eins 100
Karl Þorsteins
Karl Þorsteins
í efsta sæti
HINN ungi skákmaður Karl Þor-
steins úr Taflfélagi Reykjavíkur
tefiir um þessar mundir á skák-
móti í Puerto Rico, sem helgað er
barnaári Sameinuðu þjóðanna.
Karl hefur staðið sig frábærlega
vel á þessu móti. Þegar lokið er 7
umferðum af 9 er hann í 1,—2.
sæti ásamt Adianti frá Indónesíu
með 5% vinning. Þykir ljóst að
keppnin um efsta sætið muni
standa milli þeirra tveggja en þeir
hafa teflt innbyrðis og lauk skák-
inni með jafntefli.
Keppendur eru 24 frá 20 þjóð-
um. Eru þeir á aldrinum 12—15
ára. Karl Þorsteins er 14 ára
gamall.
þúsund krónur. Á fundinum í gær
voru samþykkt lög fyrir sjóðinn og
stjórn kosin.
Auk almennrar sparisjóðs-
starfsemi er Sparisjóðnum Átaki
ætlað að eftir megni að beita sér
fyrir hvers kyns aðstoð við ein-
staklinga og félög, sem tengjast
baráttunni við áfengisbölið. Þá
eru uppi hugmyndir um að nýi
sparisjóðurinn taki upp fjármála-
ráðgjöf fyrir einstaklinga.
Leyfi yfirvalda þarf til þess að
hefja starfrækslu sparisjóðs og
mun beiðni um slíkt leyfi verða
lögð fyrir bankayfirvöld á næstu
dögum.
Stofnfundurinn kaus þrjá menn
í aðalstjórn og jafn marga í
varastjórn. í aðalstjórn hlutu
kosningu Albert Guðmundsson,
Hilmar Helgason og Guðmundur
J. Guðmundsson og í varastjórn
hlutu kosningu Ewald Berndsen,
Jóhanna Sigurðardóttir og Guð-
mundur G. Þórarinsson. Borgar-
stjórn kýs síðan tvo menn í
aðalstjórn og tvo menn í vara-
stjórn þegar og ef sparisjóðurinn
fær starfsleyfi.
Bók fyrir
þá sem vilja
votta samúð
MORGUNBLAÐIÐ spurðist
fyrir um það hjá Brian Holt í
brezka sendiráðinu f gær,
hvort þar muni liggja frammi
bók sem þeir, er votta vilja
brezku konungsfjölskyldunni
samúð vegna láts Mountbatt-
ens jarls, dóttur hans, dóttur-
sonar og tengdamóður dóttur
hans, geta ritað nöfn sín f.
Brian Holt kvað svo vera og
gætu þeir, sem vildu rita nöfn
sín í virðingarskyni við hina
látnu og votta fjölskyldu þeirra
samúð komið í sendiráðið við
Laufásveg, en það er opið
10—12 og 2—4 á virkum dög-
um. Bókin mun liggja frammi
fram að jarðarförinni.
Hinn landflótta rússneski ballett-
dansari, Mikhail Baryshnikov,
ræðir við blaðamann Morgun-
blaðsins á Keflavfkurflugvelli f
gærmorgun, áður en hann héit
með þotu Flugleiða til London.
Sighvatur Björgvinsson form. þingflokks Alþýðuflokksins:
Bíðum eftirvæntingarfullir
tillagna forsætisráðherra
Hal Linker
látinn
HAL Linker andaðist á heimili
sínu í Los Angeles í Bandarfkjun-
um s.l. laugardag, 63 ára að
aldri.
Hal var kvæntur íslenzkri konu,
Höllu Guðmundsdóttur Linker.
Þau hjónin hafa á undanförnum
áratugum ferðast um heiminn
ásamt syni sínum David Þór og
gert þætti um lönd og þjóðir,
aðallega fyrir sjónvarp. Hlutu þau
mikla frægð fyrir þætti sína, en
margir þeirra hafa verið sýndir
hérlendis. Heimsótti Linker-fjöl-
skyldan flest öll þjóðlönd heims-
ins og til Islands komu þau marg-
oft. Hal Linker hefur verið ræðis-
maður íslands í Los Angeles síðan
1973.
Halla Linker lifir mann sinn
ásamt David syni þeirra.
„VIÐ alþýðuflokksmenn fylgj-
umst af athygli með því starfi,
sem framsóknarmenn eru nú að
vinna f efnahagsmálunum og
eftir því sem vinir mínir og
kunningjar í Framsóknarflokkn-
um hafa fortalið mér, þá falla nú
hugmyndir framsóknarmanna
nánast eftir sama farvegi og við
kratar unnum eftir í fyrra. Allar
lýsingar leiða í ljós sömu vinnu-
brögð og bendir allt til þess að
framsóknarmenn komist að sömu
niðurstöðu og við, hvað heildina
varðar, þótt einhver munur
kunni að vera á einstökum stærð-
um. Ég tel lfklegt að þegar
framsóknarmenn hafa rekið
smiðshöggið á þessar tillögur
sínar í efnahagsmálum sem verði
innan skamms þá geti þær orðið
framlag forsætisráðherra í ríkis-
stjórninni og að nú séu framsókn-
armenn reiðubúnir til að standa
fast á hlutunum,“ sagði Sighvat-
ur Björgvinsson formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins f samtali
við Mbl. í gær. „Við alþýðu-
fiokksmenn erum svona f róleg-
heitum sjálfir að endurskoða
Stúlkan
sem lézt
STÚLKAN, sem lézt í
dráttarvélarslysi í
Syðra-Vallholti, í Skaga-
firði s.l. sunnudag hét Að-
alheiður Erla Gunnarsdótt-
ir. Aðalheiður heitin var 12
ára gömul, fædd 4. febrúar
1967, dóttir hjónanna
Stefaníu Þórunnar Sæ-
mundsdóttur og Gunnars
Gunnarssonar bónda í
Syðra-Vallholti.
okkar efnahagsmálaprógramm
og fella það að þeirri þróun, sem
orðið hefur, en mér vitanlega fer
ekkert slíkt starf fram á vegum
Alþýðubandalagsins,“ sagði Sig-
hvatur.
Sighvatur sagði að eftir þeim
fréttum, sem hann hefði af starfi
framsóknarmanna í efnahagsmál-
um að dæma, þá væru þeir nú í
meginatriðum að feta sig eftir
tillögum alþýðuflokksmanna frá í
desember sL „Það má segja, að
spár okkar þá um hvað verða
mundi, ef ekki yrði unnið í anda
okkar tillagna, hafi gengið eftir
svo nánast óhugnanlegt er,“ sagði
Sighvatur. „Og öllum er nú ljóst,
hvers vegna okkar stefna náðist
ekki fram.
Mér er sagt að forsætisráðherra
sé nú þeirrar skoðunar, að ekki sé
verjandi að halda út til nýs árs
með alla enda lausa eins og síðast,
og ég er honum algjörlega sam-
mála“.
Mbi. spurði þá Sighvat, hvort
þetta benti til þess að samstaða
væri að nást með framsóknar-
mönnum og alþýðuflokksmönnum
varðandi aðgerðir í efnahagsmál-
um. „Við höfum alltaf haldið því
fram að það yrði að byggja upp
girðingu gegn verðbólgunni í einu
lagi, en ekki vera að dunda við
einn og einn staur í einu og láta
sig þá engu skipta, þótt allir hinir
staurarnir liggi niðri", sagði Sig-
hvatur. „Nú virðast framsóknar-
menn vera orðnir sama sinnis og
við bíðum eftirvæntingarfullir til-
lagna forsætisráðherra".
Töluvert af síld og
fituinnihald eykst
„Hvemig skyldi þessi fliigferð
enda, hugsaði ég á mðurleiðiraii”
Ncskaupstað 28. ágúst.
„HVERNIG skyldi þessi flug-
ferð enda, hugsaði ég á niður-
Ieiðinni“, sagði Hrafnkell
Björgvinsson, 46 ára bóndi á
Víðivöllum í Fljótsdal, er frétta-
ritari Morgunblaðsins heim-
sótti hann á sjúkrahúsið hér í
bæ til þess að hafa tal af honum
um þá lífsreynslu sem hann
varð fyrir á Reyðarfirði s.l.
fimmtudag, en þá féll Hrafnkell
ofan af húsþaki og 9 metra
niður á jörð.
Þeir eru að byggja íbúðarhús
við Austurveg, Hrafnkell og
mágur hans, og þennan dag voru
þeir að vinna við húsið um
klukkan 9 að morgni, Hrafnkell,
kona hans og sonur svo og
mágurinn. Þau voru öll uppi á
þaki að negla það og einangra en
veður var þannig að gekk á með
norðan strekkingi. Hrafnkel var
með stóra plastplötu þegar mikil
vindhviða kom, og skipti engum
togum að Hrafnkell tókst á loft
með plötuna í fanginu. Til Hrar
hamingju lenti hann á malar-
hrúgu, en öðrum megin við hana
voru harðir steypuafgangar en
hinum megin bárujárn. Kom
Hrafnkell niður á hægri mjöðm
og mjaðmagrindarbrotnaði en
slapp ómeiddur að öðru leyti.
„Ég tel það kraftaverk hve vel
ég slapp, ef ég hefði komið niður
á höfuðið hefði ég ekki verið hér
til frásagnar svo ég tali nú ekki
um ef ég hefði lent á harðri
steypunni eða bárujárninu,"
sagði Hrafnkell að lokum.
— Ásgeir.
QornaíirAi, 28. áKÚst.
REKNETABATURINN Gissur
hvfti kom inn í bftið f morgun
með um 100 tunnur af sfld eftir
nótina. Sfldin var til muna fall-
egri en í fyrsta farminum, sem
báturinn kom með á mánudag.
Reikna má með, að ef framhald
verður á vaxandi fituinnihaldi
sfldarinnar geti sfldarsöltun haf-
ist innan tfðar. Skipverjar á
Gissuri hvfta sögðu að þeir hefðu
orðið varir við töluvert af síld á
miðunum. Aflann fengu þeir f
Hornafjarðardjúpi, um klukku-
tíma stím beint út af Hornafirði.
Síldarfrysting er á fullu í dag í
frysihúsi KASK og reyndar er
einnig unnið í dag í humri og fiski.
Þrír nýir alþjóða-
dómarar í skák
ÞRÍR íslendingar voru útnefndir
alþjóðlegir dómarar í skák á þingi
Alþjóða skáksambandsins í
Puerto Rico í gær. Eru það Þor-
steinn Þorsteinsson, Jóhann Þórir
Jónsson og Guðbjartur Guð-
mundsson.
Sex bátar eru enn á humarveiðum,
en veiðileyfi bátanna renna út um
mánaðamótin. Þeir bátar sem
komu inn í dag voru með 5—6
tunnur af humri og 10—15 tonn af
fiski.
— Jens.
Tían í lag
í GÆR lauk í París viðgerð á DC
10 þotu Flugleiða. Var vélin
væntanleg til Keflavíkurflugvall-
ar seint í gærkvöldi frá
Luxemburg.
Það var á fimmtudaginn í síð-
ustu viku að bilunar varð vart í
vélinni að sögn Sveins Sæmunds-
sonar blaðafulltrúa. Rör sem leið-
ir hita frá hreyfli tvö losnaði og
skemmdust rafmagnsleiðslur af
völdum hitans. Bilun þessi er mjög
óvenjuleg og var því ákveðin
nákvæm athugun á vélinni. Að
sögn Sveins olli bilun þotunnar
mikilli röskun á flugleiðum og
varð að fá leiguvélar frá Arnar-
flugi, Evergreen og Martinair til
að bjarga málunum.