Morgunblaðið - 29.08.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
3
„Heimurirm á langt í land
með að verða fullkominn”
segir rússneski ballettdansar-
inn Mikhail Baryshnikov um
flótta Alexanders Gudunovs
„ÉG VIL helst ekkert um flótta Gudunovs frá Bolshoiballettinum
segja, enda þekki ég það mál lítið. Ég get þó sagt það að þetta sýnir
aðeins að heimurinn er ekki fullkominn, og á langt f land með að
verða það,“ sagði rússneski ballettdansarinn Mikhail Baryshnikov f
samtali við blaðamann Morgunblaðsins f gær, er hann fór frá
Keflavíkurflugvelli áleiðis til London.
„Þar sem ég veit ekki fyllilega
um ástæður Alexanders Gudunovs
fyrir flóttanum, get ég ekki sagt
hvort það eru sömu ástæður og
voru fyrir því að ég flúði til
Vesturlanda á sínum tíma,“ sagði
Baryshnikov ennfremur, „en allir
hafa sínar eigin ástæður, og ég hef
mínar. Að öðru leyti vil ég ekki
ræða þetta mál. Ég er hér í
einkaheimsókn, hef verið hér í fríi,
stundað laxveiðar og slappað af.
Þetta er ágætis land, og ég hef
notið dvalar minnar hér ásamt
vinum mínum, þar sem ég hef
getað verið í friði," sagði Barys-
hnikov.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu, hefur Mikhail
Baryshnikov dvalið hér á landi í
eina viku ásamt vinkonu sinni,
bandarísku leikkonunni Jessicu
Lange og fleira fólki. Voru þau
meðal annars við laxveiðar í Laxá
í Dölum í boði forstjóra
Pepsi-Cola verksmiðjanna, og hélt
ungfrú Lange af landi brott áleiðis
til Bandaríkjanna í fyrradag í
einkaþotu forstjóra fyrirtækisins.
Baryshnikov fór hins vegar í gær
Bandariska kvikmyndaleikkonan Jessica Lange gengur um borð í
einkaþotu forstjóra Pepsi-Cola á Reykjavíkurflugvelli í fyrradag.
Kvikmyndahúsgestir munu kannast við hana úr kvikmyndinni King
Kong sem hér hefur verið sýnd.
sem fyrr segir, til London, þar sem
hann mun koma fram á ballett-
sýningum. Baryshnikov kvaðst
hins vegar vera búsettur í Banda-
ríkjunum. Eins og áður hefur
komið fram í fréttum flýði hann
til Vesturlanda frá Sovétríkjunum
árið 1974. Baðst hann hælis sem
pólitískur flóttamaður er hann
var á sýningarferðalagi um
Kanada, ásamt fleiri dönsurum úr
Kirovballettinum í Leningrad.
Baryshnikov er einn þekktasti
ballettdansari heims, og einn
þekktasti ballettdansari Sovét-
ríkjanna sem flúið hefur land.
Áður hafði Rudolf Nureyev flúið í
París árið 1961, og Natalia
Makarova í London árið 1970, og
nú fyrir nokkrum dögum flúði svo
aðaldansari Bolshoiballettsins,
Alexander Gudunov.
Mikhail Baryshnikov sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærmorgun að hann
þekkti Gudunov ágætlega, og þeir
væru vinir.
Kögur 09 Horn og Heljarvík,
huga minn seiöa löngum
Mi
m ií1
Þú hefur ef til vill ekki séð þessa staði og átt þess kannske
aldrei kost. En í staðinn birtast landið og heimurinn á
sjónvarpsskerminum hjá þér. Þú sérð ekki einungis form
hrikalegrar náttúru heldur líka skíra og ótrúlega eðlilega liti.
Liti sem þú sérð einungis úti í náttúrunni og í Philips
litsjónvarpstækjum.
Við komum ekki með upptalningu á tæknilegum atriðum en
hvetjum kaupendur til að kynna sér myndgæði Philips litsjón-
varpstækja og þá er ekki um nema eitt að velja.
Það er og verður Philips
heimilistæki sf
Verð:
2<T kr. 498.900
22“ kr. 633.550
26“ kr. 698.500
HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 20455 - SÆTÚNI