Morgunblaðið - 29.08.1979, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
Utvarp kl. 21.45. íþróttir:
/ /
Rætt við Agúst As-
geirsson hlaupara
_í þessum þætti ætla ég að ra‘ða
við hinn þjoðkunna frjáísiþrótta-
mann Ájfúst Ásjíeirsson," sajjði
Hermann Gunnarsson fþrótta-
fróttaritari útvarpsins, er Mbl.
innti hann eftir efni íþróttaþátt-
arins sem er á da«skrá útvarpsins
í kvöld. _Auk þess að vcra einn
fremsti hlaupari landsins. er
Ágúst formaður frjáisfþrótta-
deildar ÍR, en ÍR varð sem kunn-
ujft er sijíurvejfari í bikarkeppni
FRI sem var nú um helgina. Eins
og mörjfum er kunnujft um
skokkar Ájfúst ofan úr Breiðholt-
inu dag hvern á leið sinni í
vinnuna og hefur því meiri yfir-
ferð en flestir aðrir," sajfði Herm-
ann. _Við Ájfúst munum f þættin-
um spjalla nokkuð um frjáls-
íþróttirnar almennt og þá við-
burði sem hæst hefur borið að
undanförnu.
Þá mun ég ræða um grein sem
skrifuð var fyrir skömmu um
íþróttameiðsli, en hana skrifaði
Pálmi Frímannsson héraðslæknir
á Snæfellsnesi. Pálmi er íþrótta-
maður sjálfur og hefur mikinn
áhuga á þessum málum. Það er
nauðsynlegt að hafa sérmenntaðan
íþróttalækni hér á landi, en hér er
enginn slíkur, — aftur á móti er
nóg af meiðslunum.
Að lokum mun ég ræða um
íslandsmótið í knattspyrnu, en nú
eru aðeins þrjár umferðir eftir í
mótinu og getur allt gerst. Nú eru
efst og jöfn Valur og Vestmanna-
eyjar, en Akurnesingar og KR-ing-
ar eru ekki langt undan og verða
síðustu umferðir mótsins vafalaust
spennandi. Einnig mun ég víkja
nokkuð að úrslitaleiknum í bikar-
keppninni sem var um síðustu
helgi og lýsa mínum skoðunum á
leiknum," sagði Hermann Gunn-
arsson að lokum.
■'Hafið þið heyrt um hjónin sem
máhiðu húsið sitt
með HRAUNI fyrit 12 ámm,
os ætla nú að endurmála það í sumar
bara til að breyta um lit"
Sögurnar um ágaeti þessarar
sendnu akrýlmálningar,
HRAUN-málningarinnar frá
Málningu h/f magnast með
árunum, og hróður hennar
eykst með hverju árinu, sem
líður.
Nú, eftir að HRAUN hefur
tíaðið af sér íslenska veðráttu í
rúmlega 10 ár, er enn ekki
vitað um hinn raunverulega
endingartíma þess, sé það
notað rétt í upphafi.
Þess vegna gerir þú góð kaup,
þegar þú velur HRAUN á
húsið.
HRAUN málning'f
Sjónvarp kl. 21.20. Heimsstyrjöldin síóari:
Hver jir sigruðu?
Sjónvarpið sýnir í kvöld
breska heimildarmynd og
íjallar hún um ýmsar
afdrífaríkustu afleiðingar
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Hinn fyrsta september nk.
eru liðin 40 ár frá upphafi
heimsstyrjaldarinnar, sem
hófst með innrás Þjóðverja í
Pólland. Styrjöldinni lauk
sem kunnugt er með alger-
um ósigri Þjóðverja og Jap-
ana. Margt hefur breyst á
umliðnum fjörtíu árum, hin-
ar sigruðu þjóðir búa við
góðan efnahag en Bretland
er ekki lengur stórveldi,
hins vegar eru Bandarikin
og Sovétríkin óumdeilanlega
öflugustu riki vorra daga.
Þessi breska heimildar-
mynd gerir upp reikninga
styrjaldarinnar, ef svo má
segja, og upplýsir ýmsar
staðreyndir á kaldranalegan
hátt. Meðal annars kemur
fram í myndinni hve þjóðirn-
ar sem stóðu í eldlínunni
fórnuðu mörgum mannslíf-!
um. Rússar fórnuðu um 20
milljón manns, en fengu í
staðinn yfirráð yfir
Austur-Evrópu. Bandaríkin
misstu um 250 þús. menn en
hlutu Evrópumarkaðinn í
sárabætur. Bretar sem stóðu
í eldlínunni allan tímann
uppskáru varla eins og þeir
sáðu því breska ljóninu hefur
stöðugt farið hrakandi. Það
má segja að Bandaríkin og
Sovétríkin hafi verið hinir
raunverulegu sigurvegarar
styrjaldarinnar, þau tvö ríki
eru mestu stórveldi nútím-
ans.
í mynd þessari lýsir
bandarískur fræðimaður
ástandinu í dag, með tilliti til
úrslita styrjaldarinnar, á
raunsæjan og kaldhæðinn
hátt.
Að sögn Baldurs Her-
mannssonar hjá sjónvarpinu
er þessi þáttur einn margra
þátta um styrjöldina og getur
farið svo að fleiri þættir
verði sýndir í sjónvarpinu um
ýmsa þætti stríðsins.
Utvarp ReykjaviK
A1IÐMIKUDKGUR
29. ágúst.
MORGUNNINN___________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
Dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Margrét Guðmundsdóttir
heldur áfram lestri sögunnar
_Sumar á heimsenda" eftir
Moniku Dickens (13).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónieikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar.
11.00 Víðsjá.
Helgi H. Jónsson sér um
þáttinn.
11.15 Kirkjutónlist: Ingeborg
Reichelt, Lotte Wolf-Matt-
haus, kór Kirkjutónlistar-
skólans f Halle og
Bach-hljómsveitin í Berlfn
flytja „Dixit Dominus", sálm
nr. 109 eftir Hándel; Eber-
hard Wenzel stj. / Flor Peet-
ers ieikur á orgel Jóhannes-
arkirkjunnar f Gouda f
Hollandi Preludfu og fúgu
eftir Kerckhoven.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.Við
vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dorrell
og sonur" eftir Warwick
Deeping. Helgi Sæmundsson
fslenzkaði. Sigurður Helga-
son les (3).
15.00 Miðdegistónleikar.
Fílharmonfusveitin í Lund-
únum leikur _Um haust",
konsertforleik op. 11 eftir
Edvard Grieg; Sir Thomas
Beechman stj. / Fíl-
harmonfusveitin í Stokk-
holmi leikur Sinfónfu í
g-moll op. 34 eftir Wilhelm
Stenhammar; Tor Mann stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunn-
arsson kynnir.
17.20 Litli barnatfminn.
Valdfs Óskarsdóttir sér um
tfmann og spjallar við Ljós-
brá Baldursdóttur (8 ára)
um lífið og tilveruna.
17.40 Tónleikar.
18.00 Víðsjá. Endurtekinn þátt-
ur frá morgninum.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Gestir f útvarpssal:
Kammerkvintettinn í Málm-
ey leikur Kvintett í es-moll
fyrir fiðlu, víólu, selló,
kontrabassa og píanó op. 89,
eftir Johan Nepomuk Humm-
el. Kammer kvintettinn
skipa: Einar Sveinbjörnsson,
Ingvar Jónasson, Guido
Becchi, Kristina MArtensson
og Janake Larson.
20.00 Pfnókonsert í C-dúr op.
26 eftir Sergej Prokofjeff.
20.30 „Leikvöllurinn", smá-
saga eftir Leone Stewart.
Ásmundur Jónsson á Húsa-
vík fslenzkaði. Þórhallur Sig-
urðsson leikari les.
21.00 Tónleikar.
a. manuela Wiesler og Juli-
an Dawson Lyell leika á
flautu og pfnó Divertimento
eftir Jean Francaiz-Calais.
b. Nelson Freire leikur
„Brúður barnsins", svítu fyr-
ir pfanó og Prelúdfu eftir
Heitor Villa Lobos.
21.30 Rímuð ljóð eftir Tryggva
Emilsson. Þórarinn Friðjóns-
son les.
21.45 fþróttir
Hermann Gunnarsson segir
frá.
22.05 Að austan.
Birgir Stefánsson kennari á
Fáskrúðsfirði segir frá.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Djassþáttur.
í umsjá Jóns Múla Árnason-
ar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
29. ágúst.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.30 Barbapapa. Endursýnd-
ur þáttur frá sfðastliðnum
sunnudegi.
20.35 Barnið hans Péturs.
Fjórði og síðasti þáttur.
Efni þriðja þáttar: Skóla-
systkini Péturs gera verk-
fall og krefjast þess, að
hann fái Lenu aftur. Pétur
er hættur að hafa ánægju
af því að skemmta sér með
félögum sfnum. en er öllum
stundum með Lenu. Kvöld
nokkurt lyftir hann sér þó
upp með kunningjunum.
býðandi Dóra Ilafsteins-
dóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
21.20 Heimsstyrjöldin sfðari:
Hverjir sigruðu? Bresk
heimildamynd.
Hinn 1. september í ár eru
liðin 40 ár frá upphafi
heimsstyrjaldarinnar síð-
ari, en henni lauk sem
kunnugt er með algerum
ósigri Japana og Þjóðverja.
Margt hefur breyst á þess-
um tfma. Hinar sigruðu
þjóðir búa við góðan efna-
hag, en Bretland er ekki
lengur stórveldi, og Banda-
ríkjamenn og Sovétmenn
hafa lengst af verið svarnir
óvinir. I þessari mynd eru
raktar ýmsar aldrifarfk-
ustu afleiðingar styrjaldar-
innar. Þýðandi og þulur
Þorsteinn Helgason.
21.50 Nakinn, opinber starfs-
maður. Bresk sjónvarps-
mynd. Handrit Philip
Mackie. Leikstjóri Jack
Gold. Aðalhlutverk John
Hurt.
Mynd þessi er byggð á
sjálfsævisögu Quentins
Crisps. Hann ákvað á unga
aldri að viðurkenna fyrir
sjálfum sér og öðrum að
hann hncigðist til kynvillu,
og undanfarna fimm ára-
tujd hefur hann staðið fast
við sannfæringu sína og
verið eðli sínu trúr. Myndin
lýsir öðrum þræði, hverjar
breytingar hafa orðið á
þessum tíma á viðhorfum
almennings til ýmissa
minnihlutahópa, einkum
kynvillinga. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Áður á
dagskrá 30. janúar 1978.
23-10 Dagskrárlok.